Tíminn - 06.06.1973, Side 7

Tíminn - 06.06.1973, Side 7
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timans). Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasími 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 18 kr. eintakið. Blaðaprent h.f - ■ Hver var huldu- maðurinn Það er erfitt hlutverk að vera blaðafulltrúi rikisstjórnar, sem á i deilu við ósvifinn and- stæðing og þrautþjálfaðan i blekkingastarf- semi, eins og t.d. Bretar eru. Þvi betur sem blaðafulltrúinn reynist, þvi meira reynir mótaðilinn til þess að ófrægja hann og gera upplýsingar hans tortryggilegar. Þar er hvert smáatriði notað og reynt að gera úlfalda úr mýflugu. Þegar þetta er athugað ér ekki furða, þótt gætt hafi viðleitni til að gera starf Hannesar Jónssonar blaðafulltrúa tortryggi- legt. Bretar og samherjar þeirra vita af langri reynslu, hve mikilvægt það er að geta veikt andstæðinginn á þennan hátt. Þegar litið er á þá skipulögðu og kænlegu áróðursiðju, sem Bretar eru vanir að beita i slikum tilfellum, verður ekki annað sagt en að Hannesi Jónssyni hafi tekizt vel i þessari viðureign og hafa sézt þess fjölmörg merki i frásögnum erlendra blaðamanna, sem eru íslandi vinveittir. Mikil- vægi þess starfs, sem hér hefur verið unnið, verður seint ofmetið. 1 þessum efnum hvilir vissulega mikil ábyrgð á blaðafulltrúanum, en hún hvilir einnig á öðrum þeim, sem hafa helzt skilyrði til að umgangast erlenda blaðamenn. Ljóst dæmi um það er að finna i frásögn fréttamanns Daily Telegraph i London, sem birtist i blaðinu siðastl. laugardag. Fréttamaður þessi, James Wightman, virðist hafa verið staddur á Kjar- valsstöðum, þegar fréttir bárust af árás Breta á Árvakur og var Hannesi Jónssyni falið af hálfu rikisstjórnarinnar að koma þeim á framfæri við erlenda blaðamenn. Þegar Hannes skýrði frá árásinni, var henni ekki lokið, og sagði hann, eins og rétt var, að óvist væri hvort Árvakur bjargaðist úr þessari viðureign. Seinna kom i ljós, að vegna heppni og snarræðis áhafnar Árvakurs slapp hann betur en áhorfðist um skeið. Hinn enski blaða- maður bætir við, að þegar það fréttist hafi margir islenzku blaðamannanna hneykslazt yfir klaufalegu tiltæki islenzku stjórnarinnar til að stela sviðsljósinu frá Nixon og Pompidou. í framhaldi af þessu hafi einn Islendinganna sagt i laumi (covertly), að það hafi verið vel kunnugt, að rikisstjórnin hafi verið búin að ~ ákveða að láta koma til árekstrar umræddan morgun til þess að búa til stóra frétt (to make a big story) handa blaðamönnum, sem hefðu komið hingað vegna fundar Nixons og Pompidous. Satt að segja verður það að teljast ótrúlegt, að þessi frásögn hins enska blaðamanns af framkomu islenzkra blaðamanna geti verið sannleikanum samkvæm. Alveg sérstaklega verður að telja það ótrúlegt, að i þessum hópi sé að finna þann huldumann, sem hafi hvislað þvi laumulega i eyru hins enska blaðamanns, að árásin á Árvakur hafi verið ákveðin af rikis- stjórninni sem fréttaefni handa erlendum blaðamönnum! En þetta sýnir vel, að varúðar þarf að gæta i umgengni við þá erlenda blaðamenn, sem draga taum Breta i landhelgisdeilunni, og að það fer illa islenzkum blöðum og blaða- mönnum, að styðja á einn eða annan hátt áróður Breta gegn þeim, sem gegna þvi erfiða hlutverki að dreifa fréttum af framferði Breta. Þ.Þ. TÍMINN 7 ERLENT YFIRLIT AAarkmið Childers að sætta íra Sigur hans í forsetakosningunum var óvæntur í SIÐASTLIÐINNI viku fóru fram forsetakosningar i Is- landi og komu úrslitin talsvert á óvænt. Lengi vel var þvi spáð, að frambjóðandinn, sem var studdur af núverandi stjórnarflokkum, Jom O’Higgins, myndi bera sigur úr býtum, en i siöustu forseta- kosningunum hafði ekki munað nema 10 þús. at- kvæðum á honum og Eamon de Valera, hinni öldnu sjálf- stæðishetju Ira, sem mun láta af forsetastörfum 24. þessa mánaðar, 91 árs að aldri. O’Higgins hafði það m.a. til brunns að bera, að hann er bróðursonur O’Higgins, sem var innanrikisráðherra i fyrstu heimastjórn tra og féll fyrir morðingjahendi 1927, en hann hafði verið einn helzti leiðtogi sjálfstæðisbarátt- unnar fyrir 1922. Það þótti svo liklegt til að styrkja O’Higgins að stjórnarflokkarnir, Fine Gael og Verkamannaflokkur- inn, höfðu unnið sigur i þingkosningunum, sem fóru fram fyrir þremur mánuðum. Þegar leið á kosningabarátt- una, sem sótt var af miklu kappi, fóru þess að sjást merki, að fylking O’Higgins tók heldur að riðlast og eink- um snerust ýmsir kjósendur Verkamannaflokksins til liðs við keppinaut hans, Erskine Hamilton Childers, sem var frambjóðandi Fianna Fail, flokks de Valera, sem hefur lengstum farið með völd i trlandi, en missti þau i kosningunum, sem fóru fram i febrúar siðastl. Úrslitin urðu svo þau, að Childers vann með 50 þús. atkvæðamun. Hann fékk 636 þús. atkvæði, en O’Higgins 587 þús. atkvæði. Munurinn á flokkum Fianna Fail og Fine Gael, er oft skýrður á þann veg, að fram til 1922 unnu foringjar þessara flokka saman i einum flokki i sjálfstæðisbaráttunni, en leiðir skildi, er irska fririkið var stofnað 1922 og trlandi var skipt i tvennt. Þeir, sem stóðu að samningunum við Breta um þetta efni, stofnuðu Fine Gael, en þeir, sem beittu sér gegn samningunum, stofnuðu Fianna Fail. FLJÖTT á litið virtist allt mæla á móti þvi, að Childers næði kosningu. Childers er ekki irskur, heldur af brezk-ameriskum ættum. Childers er ekki kaþólskur, eins og flestir trar, heldur mótmælendatrúar. Childers kann ekki þjóðtungu tra, gael- isku en fyrri forsetar Irlands hafa allir talað hana. Childers var enskur rikisborgari þang að til 1938, er hann tók sér irskan borgararétt. Childers hafði hins vegar ómetanlegan styrk i faöerni sinu og raunar miklu meiri en O’Higgins. Faðir hans, Robert Childers, var ein mesta frelsishetja tra, þótt hann væri brezkur. Hann var ágætur skáldsagnahöfundur, mikill sæfari og ævintýra- maður á ýmsan hátt. Hann tók mikinn þátt i sjálfstæðis- baráttu tra og var i hópi þeirra, sem snerust gegn stofnun irska fririkisins og skiptingu lrlands 1921 undir forustu de Valera. Hann tók virkan þátt i baráttu irska lýð- veldishersins og tók m.a. að sér það hiutverk að smygla vopnum til hans. Bretar stóðu hann að verki og dæmdu hann til dauða. Dómnum var l'ull- nægt og er það frægt, að Robert Childers tók i hönd allraþeirra, sem voru i af tökusveitinni, áður en hann tók sér stöðu við hlið félaga sinna, sem voru skotnir með honum. Eitt siðasta verk hans fyrir aftökuna var að ræða við son sinn og leggja honum lifs- reglurnar. M.a. lagði hann áherzlu á, að hann mætti ekki bera hefndarhug i brjósti og hann ætti frekar að vinna að sáttum en hið gagnstæða. Þessari stefnu hefur Childers fylgt og boðaði hana ekki sizt nú i forsetakosningunum. Það mun ekki sizt hafa aflað hon- um fylgis, að margir töldu hann vænlegan til þess, þar sem hann væri mótmælenda- trúar, að bera sáttarorð milli kaþólskra manna, sem eru i meirihluta i trlandi og mót- mælenda, sem eru i meiri- hluta i Ulster. ERSKINE Hamilton Child- ers er fæddur 11. desember 1905. Móðir hans var amerfsk, dóttir læknis i Boston. Þess má geta, að móðir de Valera var einnig amerisk. Föðurættin hefur getið sér gott orö i enskri sögu. Einn af náfrændum hans, Hugh Child- ers, var kjörinn þingmaður 1972 og var siðan hermálaráð- herra, fjármálarétherra og innanrikisráðherra i ráðu- neytum Gladstones. Þar sem Erskine Childers var kominn af efnuðu fólki fékk hann menntun i hefð- bundnum enskum stil. Hann gekk fyrst á þekktan einka- skóla, en las siðan sögu við Trinity College i Cambridge. Að námi loknu var hann um skeið framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu i Paris. Að áeggjan föðurömmu sinnar, sem var irsk.sneri hann til tr- lands, en hann hafði ekki áður verið búsettur þar. Hann gerðist þá auglýsingastjóri við aðalblað Fianna Fail, The Irish Press. Fram að þeim tima hafði hann látið sig stjórnmál litiu skipta, en eftir komuna til trlands tók hugur hans að hneigjast að þeim. Fianna Fail taldi sér einnig gagn af þvi að geta notað sér hið fræga nafn hans. Arið 1938 gaf hann kost á sér til þing- mennsku, en áður varð hann að fá irskan borgararétt, en hann hafði verið brezkur rikis- borgari Iram til þess tima. Hann náði kosningu og helur átt sæti á þingi siðan. Hann fékk bráttsæti i rikisstjórninni og hefur gegnt ýmsum ráð- herraem bættum undir leiðsögn þriggja forsætisráð- herra. Hann var varaforsætis- ráðherra i rikisstjórninni, sem lét af völdum, i febrúarmánuði siðast liðnum. Erskine Childers er tvikvæntur. Fyrri konan var amerisk. Hún lézt 1950. Þau áttu limm börn. Elzti sonur þeirra vinnur á vegum Sameinuðu þjóðanna i Thai- landi. Annar sonur þeirra er læknir við Mayostofnunina i Minnesota. Childers giftist aftur irskri konu 1952 og eiga þau eina dóttur. ERSKINE Childers er hæg- látur maður i framgöngu og hefur þótt frekar hlédrægur. |Það kom þvi næstum á óvart, hve vel hann stóð sig i kosningabaráttunni, en hann mætti á hundruðum funda viðs vegar um landið. Vegna ætt- ernis sins og trúarskoðana, hefur hann haft betri aðstöðu til að gagnrýna framkomu trúbræðra sinna i Norður-lr- landi en aðrir ráðherrar irsku stjórnarinnar. Það hefur hann lika gert óspart. t kosninga- baráttunni lagði hann áherzlu á, að hann vildi vinna að bættri sambúð landshlutanna. Sigur hans bendir til þess, að sú stefna hans eigi fylgi að fagna i Irlandi. Embætti forseta i trlandi er valdalitið og helzt fólgið i þvi aðkoma opinberlega fram við hátiöleg tækifæri. t sambandi við utanrikismál getur forset- inn þó oft haft tækifæri til að hafa áhrif á gang mála, ef samstaða er hjá honum og rik- isstjórninni. I tómstundum sinum stundar Childers gönguferðir og garðyrkju. Þ.Þ. Hópar unglinga í hafnarvinnu — ÞVÍ er ekki að lcyna, að það hefur lengi verið hörgull á hafnarverkamönnum, sagði As- geir Jónsson hjá Eimskipafélagi tslands, og það eru unglingarnir, sem oft hlaupa undir bagga, bæði i páskaleyfum og jólaleyfum og svo á sumrin, þegar skólahaldi er lokið. Nú er til dæmis verið að vinna við fimm skip hjá okkur, auk ann- arra skipa, sem eru i Reykjavikurhöfn, og þaö er tals- vert margt af unglingum i þessu, einkum við lestarvinnu. Við tök- um þá ekki nema þeir séu orðnir fimmtán til sextán ára, þvi að bæði getur þetta veriö nokkuð erfið vinna á köflum, og svo þarf varúöar við. En þessir strákar geta verið anzi liðtækir, einkum ef það eru hóflega margir meö vönum mönnum. Stúlkur höfum við ekki tekið i þessa vinnu, sagöi Asgeir að lok- um. Ætli það væri heppilegt að hafa bæði kynin saman við svona vinnu.?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.