Tíminn - 06.06.1973, Síða 12
12
TÍMINN
Miövikudagur 6. júni 1973.
— Lea? Kristin lá hreyfingar-
laus i fangi hans, og hann gat
einfaldlega fundiö hvernig ljós
sannleikans rann upp fyrir henni.
— Jú, hún gerði það, hvislaöi
hún.— Hún sagöi ekkert beinlinis,
en hún fékk mig til að finnast, að
ég yrði að gera eitthvað fyrir
hana, og mætti einu gilda hve
hryllilegt það væri, aðeins ef þvi
yröi beint gegn Sheridu. Sherida
hefur alltaf veriö svo góð við mig.
Eg hef veriö að hugsa um hana i
allan dag. Ef ég hefði bara
hugsaö mig svolitiö um, mundi ég
hafa skilið, að hún gefði aldrei
gert það, sem Lea ásakaði hana
fyrir. Hefur hún gert það?
— Nei. Það er svo margt, sem
öröugt er aö skilja hjá náunga
vorum, en hvaö sem öðru liður er
það algjörlega útilokað, að
Sherida mundi nokkurn tima gera
það, sem Lea ásakar hana fyrir.
Það vissi Lea vel.
Kristin lá svo hreyfingarlaus i
fangi hans, að hann var farinn að
haida að liöið hefði yfir hana, en
allt i einu fór hún að tala: — Nú
finnst mér ég skilja þetta allt. Lea
vildi bara sjá, hve langt hún gæti
sigað mér. Pabbi, ég vil helzt ekki
sjá hana framar.
t hinu hrjáða andliti gat hann
lesið, að sjálf hefði hún dæmt sig i
langtum þyngri refsingu en
honum sjálfum hefði nokkurn
tima hugkvæmzt að gera. Hin
geislandi gyðjumynd Leu, sem
hún hafði tilbeðið alla ævi sina,
var hrunin af stallinum. Hún
hafði trúað á og lifað fyrir þessa
mynd, en á einni nóttu breyttist
þessi mynd i illgjarnt lygakvendi.
— Við sjáum nú til hvað við
getum gert, sagði hann. —
Hvernig mundi þér lika að
heimsækja Meg frænku i Exeter?
— Ég get hringt til hennar.
— Já, en ég get ekki búið lengi
hjá henni.
— Nei, þaðer rétt hjá þér, en þú
getur þó verið hjá henni stuttan
tima. Svo get ég sent þig á Somer-
setskólann með haustinu. Þú
þekkir sumar stúlkurnar sem þar
eru. Ég hef trú á, að þú hafir gagn
og gaman af dvöl þar.
— Ó það verður svo gaman.
Heldurðu. aö ég fái inngöngu i
skólann?
— Það held .'Ef kemur til
styrjaldar, þarft þú auðvitað að
gera eitthvert gagn eins og aðrir,
og i skólanum færðu undirstöðu.
— Ég geri vist ekki mikið gagn
eins og er, sagði hún stiliilega. —
Pabbi, er Sheridu kunnugt um
málavexti? Ég held aö hún viti
þetta allt eins og það er.
— Það held ég lika. Þú verður
sjálf að tala við Sheridu um þetta
I þvi efni get ég ekki hjálpað þér.
Allt, sem ég get sagt er að
Sherida er alveg óvenjulega góö
og skilningsrik stúlka, en enginn
getur búizt viö þvi, að hún striki
allt þaö út, sem skeö hefur. Hann
stóð á fætur. — Jæja, ég hringi þá
til Meg frænku, þú getur svo farið
með morgunlestinni.
— Pabbi. Hún rétti fram aðra
höndina, en dró hana svo að sér
aftur. — Þú talaðir um aö Sherida
mundi kannski fyrirgefa mér, en
getur þú gert það? Ég held ekki
út....
— Það tekur sinn tima, Kristin,
svaraði hann. — Þú ert ekkert
barn lengur, og þú veizt vel hvað
þú hefur gert. Ég get ekki breytt
við þig, eins og að þú værir 6 ára,
og værir aö skrifta fyrir mér
smásyndir. Það, sem þú hefur
gert, getur hvorki gleymzt né
fyrirgefizt á fáeinum minútum.
Ég get aðeins sagt, að ég veit og
skil hvernig þetta gat átt sér stað.
Góða nótt.
Hann stanzaði sem snöggvast
utan við hurðina til þess að vita
hvort hún færi aö gráta aftur.
Ekkert slikt heyröist. Hann gekk
hratt eftir ganginum að dyrum
Leu, bankaði og gekk inn. Hún lá
út af og las i bók, en lagði bókina
frá sér þegar hann kom. Hún
haföi jafnað sig allvel, að honum
fannst. Andlitið hafði sinn venju-
lega, friska litarhátt, hið gullna
hár strokið aftur frá sterku
enninu, og hún brosti til hans
vingjarnlega.
— Halló, minn kæri, ég vona að
þú komir með góð tíðindi. Hvað
segir Simon?
— Hún er betri, hún er komin úr
allri hættu. Hún varpaði öndinni
eins og henni létti mikið við þessa
frétt.
— Það var yndislegt. Þetta var
hræðileg nótt, og alveg sérstak-
lega fyrir þig, kæri. Ég vona að
þetta verði i siðasta sinn, sem við
stöndum öll á öndinni af ótta
vegna svona lagaðrar óheppni.
Hún er alveg ótrúlega kjark-
mikil og kaldrifjuð, hugsaði hann,
nú lætur hún, sem hún sé
skilningsrik og áhyggjufull
húsmóðir. Hún sat uppi i rúminu
og horfði á hann kærleiksrikum
augum, eins og ekkert hefði
Iskorizt.
— Það vona ég lika af heilum
hug. Ég hef kveðju til þin frá
Kristinu. Hún vill aldrei sjá þig
framar, segir hún.
Ahrif þessarar kveðju voru
stórfengleg. Hún sat kyrr með
opinn munninn, andlitið var með
öllu liflaust og augun störðu á
hann tóm og skilningslaus.
— Kristin skilur nú hvað hún
hefur gert, sagöi Mallory. — Hún
skilur, að hún hefur með köldu
blóði reynt að fyrirfara
manneskju meö eitri. Mjólkur-
glasið, sem hún færði Sheridu
innihélt fimm verónaltöflur, og til
viðbótar fékk hún Sheridu til að
gleypa eina til. Þú vissir þetta allt
fyrir, gerðir þú það ekki? Og nú
er Kristinu ljóst, að undir niðri
varst það þú, sem fékkst hana til
þess að gera þetta, og að þú hefur
af ásettu ráði og nákæmri áætlun,
notfært þér þann kærleika, sem
hún alla stund hefur borið til
þln.— Þú hraktir hana til
moröstilraunar, og nú loksins
hafa augu hennar opnazt. Kristin
fer meö lestinni i fyrramáliö til
Meg systur minnar og verður hjá
henni þangað til hún kemst i
Somersetskólann með haustinu.
Leu var tregt tungu að hræra,
varirnar voru stirðnaðar og til-
finningalausar, og andar-
drátturinn sem ósýrilátur hiksti.
— Kristin er gengin af
göflunum...Mallory, þú trúir þó
iiklega ekki.
— Ég veit vel, að þú skipaðir
henni ekki beinlinis að setja
þessar fimm töflur i mjólkur-
glasið, en þú lézt hana skilja að
henni bæri að gera það. Þú taldir
henni trú um að Sherida og ég
ættum ástafundi rétt fyrir framan
augun á þér, er það ekki satt?
— Ég hélt.....það léit þannig
út...Hún hikstaöi og stamaði, og
greip örvæntingarfullt um
hálsinn á sér.
— Þú hefur að sumu leyti rétt
fyrir þér, sagði Mallory — Ég
elska Sheridu, og ég leyfi mér að
halda, að henni sé ekki alveg
sama um mig. En það er nú bara
byrjunin og endirinn fyrir okkur.
Ég fer i herinn, en hún mun gefa
þér?
sig fram við herflokk kvenna.
Hann tróð vandlega i pipu sina. —
Þú færð Bastions fyrir þig sjálfa. SjS
Ég fer mina leið, Logan fer og Sx
Kristin fer. Þá er bara Jana eftir, nx
og hún hefur engu minni ástæðu SS
en við hin, til að yfirgefa þig. Ég Kx
mun útvega þér duglega SSJ
ráðskonu, og að öðru leyti sjá þér
farborða á allan hátt. Þú þarft W
þess vegna ekki að hafa .neinar w
efnislegar áhyggjur, enda þótt
styrjöld brjótist út. Góða nótt. 5»
Þegar Sherida opnaði augun
eftir langan og draumlausan
svefn, sá hún Mallory við fótagafl SS
rúmsins. Sx
— Hjúkrunarkonan leyfði mér
aö lita inn til þin. Hvernig liður Sx
Þakka fyrir, það gengur vel W
með heilsuna að ég held. Hún w
teygði sig svo brakaði i rúminu. w
Ég fer á fætur á morgun. Ég er
svo leið yfir allri þessari fyrirhöfn
og umstangi, en....
Hún hætti i miðri setningu, þvi
hann horföi svo hvasst framan i
hana.
— Það er nú þaö, Sherida. Þú
áttenga sök á þvi, sem kom fyrir.
Kristin er búin að segja frá öllu
saman. Hún getur ekki hafa vitað
hvað hún gerði, hún var algjör-
lega á valdi þess, vilja, sem var
sterkari en hennar eigin. En nú er
haun laus undan okinu, og skilur
fullkomlega það, sem hún hefur
gert. Hvað viltu gera við
Kristinu?
— Gera við Kristfnu? Sherida
lokaði augunum. — Það er ekkert
viö þetta að gera, Mallory. Ég
skil hana svo vel. Vesalings
Kristin. Hún þurfti einmitt á
taugaáfalli að halda eins og
þessu, til þess að gera sér ljóst
hvar hún stæði sjálf. Segðu við
IIII Hl
i
i
1417
Lárétt
1) Land.-6) Svif.-7) Stafur,-9)
Poka.- 11) Tónn,- 12)
Drykkur.- 13) Frysta.- 15)
Sjö.- 16) Mann,- 18) Land,-
Lóörétt
1) Alfa.- 2) Eldur,- 3) Hasar.-
4) Lærði.- 5) Slæma,- 8) Tini,-
10) Óhreinki,- 14) Ensk. sam-
tenging.- 15) Skjól.- 17) öfug
röö.-
Ráöning á gátu Nr. 1416
Lárétt
1) Oldur,- 6) 111,- 8) Téð.- 9)
Lag.- 10) Uni.- 11) Nag,- 12)
Nói.- 13) Unn,- 15) Fráir,-
Lóörétt
2) Liðugur.- 3) DL.- 4) Ullinni.
5) Stund,- 7) Agnir.- 14) Ná.
é
■
7 X
H
/3
u
TT
t>'
i
/O
r
te
I
1
i
HVELL
Ég er Obiju, af y
Oogaanannkyn^
þættinum.Ég kemj
til að hitta Dreka
rvrvgm"
^jr -i •*c''
Við jaðar frum
skógarins.
|
!
MIÐVIKUDAGUR
6. júní
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttirog veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar
14.30 Siödegissagan: ,,Páf-
inn situr enn I Róm” eftir
Jón óskar. Höfundur les
(8).
15.00 Miödegistónleikar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.25 Popphorniö
17.10 Tónleikar
18.00 Eyjapistiil. Bænarorö.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Bein lina. Umsjónar-
menn: Árni Gunnarsson
og Einar Karl Haraldsson.
20.00 Kvöldvaka a. Ein-
söngur Þuriður Pálsdóttir
syngur islenzk visnalög.
Jórunn Viðar leikur á
pianó. b. Þcgar ég var
drengur. Þórarinn Helga-
son frá Þykkvabæ flytur
sjötta og siðasta hluta
minninga sinna. c. Ferm-
ing fyrir hálfri öld Agúst
Vigfússon kennari flytur
frásöguþátt. d. Kórsöngur
Stúdentakórinn syngur lög
eftir Emil Thoroddsen,
Hallgrim Helgason og
Ingibjörgu Siguröardótt-
ur, dr'. Halldrimur Helga-
son stjórnar.
20.55 Á aidarafmæii Guö-
mundar Finnbogasonar.
Lesnir verða kaflar úr
verkum hans, valdir og
kynntir af dr. Finnboga
Guömundssyni. Flytjend-
ur: Andrés Björnsson út-
varpsstjóri og óskar
Halldórsson lektor.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir „Tennur
þinar eru eins og hópur af
nýklipptum ám’.’Þorgrim-
ur Jónsson tannlæknir
flytur siðara erindi sitt um
tannholdssjúkdóma.
22.40 Nútimatónlist Halldór
Haraldsson kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskráriok.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Mannslikaminn 7.
þáttur. Sjón og heyrn.
Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
20.45 Þotufóikiö. Þýöandi Jón
Thor Haraldsson
21.15 Nýjasta tækni og visindi
Hestar sýktir meö
infiúensu. Vistfræöi eyöi-
merkur greind meö tölvu.
Heila- og mænusigg (multi-
ple sclerosis) Tæknibrögö i
kvikmyndagerö. Hjartaaö-
geröir i Arizona. Umsjónar-
maður örnólfur Thorlacius.
21.40 Hæliö Leikrit eftir Ninu
Björk Árnadóttur, endur-
sýnt vegna mikilla út-
sendingartruflana við frum-
sýningu 21. mai sl. Leik-
stjóri Helgi Skúlason.
Leikendur: Þorsteinn
Gunnarsson, Valgerður
Dan, Hjalti Rögnvaldsson,
Ragnheiður K. Steinþórs-
dóttir, Borgar Garöarsson,
Þórhallur Sigurðsson,
Sigurður Karlsson,
Guðmundur Magnússon,
Sveinbjörn Matthiasson,
Valdemar Helgason, Bryn-
dis Pétursdóttir, Gisli Hall-
dórsson, Karl Guð-
mundsson, Guðmundur
Pálsson, Skúli Helgason
o.fl. Tónlist Karl Sig-
hvatsson. Kvikmyndun
Haraldur Friöriksson.
Hljóðupptaka Oddur
Gústafsson og Sigfús Guð-
mundsson. Lýsing Haukur
Hergeirsson. Leikmynd Jón
Þórisson. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup.
22.40 Dagskrárlok.