Tíminn - 06.06.1973, Side 16
Miövikudagur 6. júni 1973.
Auglýsingasími
Tímans er
mi:
MERKIÐ, SEM GLEDUR
HHtumst í haupfélaginu
’GOÐI
L -A fyrirgóúan mat
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
FISCHER TEFLIR
ALDREI FRAAAAR,
segja þeir, sem gerst þekkja til
HEIMSMEISTARINN I skák,
Róbert Fischer, tefiir ef til vill
aldrei framar. Sá er aö
minnsta kosti grunur vina
hans. Hann hefur einangraö
sig sföan hann vann Bóris
Spasskl i Reykjavik f fyrra-
sumar, og einskis virt, þótt
honum hafi veriö boöin ein
milljón dala, auk fjögur
hundruö þúsund dala handa
andstæöingi hans, fyrir skák-
keppni svonefndra Hiltonsam-
taka i Las Vegas. Keppi-
nauturinn mátti vera Spasski
eöa hver annar, sem Fischer
kaus sér. Hafi hann ekki bein-
linis hafnaö þessu boöi, hefur
hann iátiö eins og hann viti
ekki um þaö.
Eftir heimkomuna frá Is-
landi brá Fischer aðeins fyrir i
sjónvarpi vestra, en siöan hef-
ur hann til skamms tima hald-
ið sig i ibúð sinni i Pasadena i
Kaliforniu, þar sem eru höfuð-
stöövar trúflokks þess, sem
hann aðhyllist. Hann lætur
helzt ekki sjá sig á almanna-
færi, og hann vill ekki ræða við
nokkurn mann frá fjölmiölum.
Nú sem stendur er hann i Den-
ver með manni, sem nákom-
inn er trúflokknum.
Fischer hefur látiö i veðri
vaka, að hann kynni að vera
tilleiðanlegur til þess að tefla
fyrir tiu milljónir dala", uni
einn milljarð islenzkra
króna. Vinur hans einn hefur
látið þau orö falla, aö þessa
kröfu beri ekki að túlka sem
taumlausa fégræögi, heldur sé
Fischer vitandi vits að spenna
bogann svo hátt, aö enginn
treysti sér til þess að uppfylla
óskir hans. „Þegar hann kom
frá tslandi i fyrra”, segir þessi
kunningi hans, „stóðu honum
óskaplegar fjárhæðir til boða.
Menn stóðu með pennann i
hendinni, og hann þurfti ekki
annaö en skrifa nafnið sitt. En
hann gerði það ekki”.
A tslandi áskotnaðist Fisch-
er tiu sinnum meira en nokkur
maður hefur áöur hlotið fyrir
Framhald á bls. 15.
VÆNDISKONUR I
WATERGATEMÁLINU
NTB-Washington — Endurkjörs-
nefnd Nixons kom á fót hring
simavændiskvenna tit aö útvega
sér leynilcgar upplýsingar frá
MARGT A FOÐR-
UM í SJÓBÚRI
FIMM þúsund laxaseiöi hafa ver-
iö á fóörum I flotkvi i Ilvalfiröi nú
um eins árs skeiö. Er þetta til-
raun, sem Ingimar Jóhannsson
fiskifræöingur hefur séö um og
beindist meöai annars aö þvi aö
sjá, hvaöa þroska lax, sem
fóöraöur er i siikum flotkvium,
getur náö.
Ingimar skýrir suttlega frá
árangrinum i Arbók félags
áhugamanna um fiskrækt. Flot-
kviin eða flotbúriö, sem seiðin
voru látin i er viö Hvammsey i
Kjós. Hafa þau vcið alin á þurr-
fóðri, sem Jónas Bjarnason efna-
fræöingur hefur búið til I rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins.
Afföll hafa oröið litil, segir Ingi-
mar, og eftir sjö mánaða eldi
voru stærstu fiskarnir orðnir 400-
500 grömm, en meöalþyngd var
350 grömm. Upphaflega voru
seiðin aðeins 25 grömm að þyngd.
Að vetrinum var vöxtur að
sjálfsögðu hægur, þar sem sjór-
inn var kaldur, en þá nærist
fiskurinn litið.
Gert er ráð fyrir að fara að
fóðra fiskinn á loðnu, þegar
meðalþyngd er orðin 700-800
grömm, en ef allt verður meö
felldu á laxinn i flotkviunum að
hafa náð nokkurra punda þyngd
næsta haust.
Bandaríkjamenn harðir d fiskveiðiráðstefnu:
Takmarka verður veiðar
við austurströnd USA
Hóta að segja sig úr NA-Atlanzhafsnefndinni, að öðrum kosti
N T B- Wash i ngton —
Bandarikin hótuðu í gær að
segja sig úr Norðaustur-At-
lantshafsnefndinni/ ef ekki
næst samkomulag um tak-
mörkun fiskveiða við
austurströnd Bandaríkj-
anna. Viðskiptamálaráð-
herra Bandarik janna
sagði, að bandarísku full-
trúarnir myndu taka málið
upp á fundi nefndarinnar,
sem hófst í Kaupmanna-
höfn í gær. Hann sagði í
gær, að fiskistofnar á þess-
um slóðum væru í alvar-
legri hættu vegna ofveiði
og bæri brýna nauðsyn til
að veiðar erlendra skipa
yrðu þegar í stað tak-
markaðar.
Aðrir aðilar fiskveiði-
nefndarinnar eru island,
Noregur, Kanada, Bret-
land, Búlgaría, Danmörk,
V-Þýzkaland, Frakkland,
italía, Japan, Pólland,
Portúgal, Rúmenía, Sovét-
ríkin og Spánn.
Samgönguáætlun Norðurlands 1973:
Nýir flugvellir á
Sauðárkróki og Blönduósi
SB-Reykjavik — t samgönguáætl-
un Noröurlands, sem komin er á
lokastig, cr gcrt ráö fyrir 24
milljóna króna framlagi til flug-
mála á framkvæmdaáætlun rikis-
ins. Megináherzla er lögð á gcrð
nýrra flugbrauta á Sauðárkróki
og Blönduósi og öryggisbúnað á
smærri flugvöllum. Þá verða
gerðar endurbætur á flugbraut-
um á Ólafsfirði og Þórshöfn.
Er gert ráð fyrir að nýja flug-
brautin á Sauðárkróki kosti rúm-
ar 14 milljónir króna, en sú á
Blönduósi hálfa þriðju milljón.
Núverandi flugbraut á Sauðár-
króki er ekki talin hentug til
frambúðar, vegna skipulags
kaupstaðarins og einnig vegna
nálægðar við Tindastól. Gert er
ráð fyrir að framkvæmdum við
hina nýju flugbraut, þannig að
hún verði nothæf ekki siðar en á
næsta ári.
Ný flugbraut á Blönduósi leysir
af hólmi eldri braut, sem snýr
rangt við vindátt og er óheppilega
staösett aö ýmsu öðru leyti. All-
veruleg umferð hefur verið um
Blönduósflugvöll, en hann er á
Akri, um 12 km. frá Blönduósi.
Nýja flugbrautin verður á Hjalta-
bakkamelum. Aætluð lengd henn-
ar er 800 metrar með möguleik-
um til lengingar i 1200 metra sið-
ar meir.
t áætluninni er gert ráð fyrir
endurbótum á flugbrautinni við
Þórshöfn og föstum flugbrautar-
ljósum á Húsavikurflugvöll.
Einnig er áætlað að segja færan-
leg ljós á nokkra aðra flugvelli
norðanlands.
Þar sem komiö hefur i ljós, að
framkvæmdir við flugvöllinn i
Ölafsfirði verða kostnaöarsam-
ari, en reiknað hafði verið með,
verður verkið aðeins undirbúið i
ár, en mun hafa algjöran forgang
á áætlun næsta árs.
TUPOLEV-SLYSIÐ
VAR OKKAR VERK
— segja samtök um frelsun Rudolfs Hess
NTB-Paris — Samtök, sem kalla
sig „Framkvæmdanefnd frelsun-
ar Rudolf Hess" skýröu frá þvi i
gær, að þaö væru þau, sem orsak-
að heföu flugslysiö viö Paris á
sunnudaginn, þegar hljóöfrá
Tupolev-þota hrapaði á flugsýn-
ingu og fjórtán manns fórust.
t vélrituðu bréfi, :tilí frétta-
stofu Reuters i Paris, sagði, að
félagar úr samtökunum hefðu
skemmt vélina, þar sem hún stóð
á jörðu niðri á svæði flugsýn-
ingarinnar i Paris i fyrri viku.
Þegar Reuters skýrði sovézka
sendiráðinu frá bréfinu i gær,
'sagði talsmaöur, að þetta væri i
fyrsta sinn, sem heyrzt hefði um
nokkuð slikt. Hann vildi þó ekki
segja neitt um, hvort þetta væri
bragð samtakanna til að vekja at-
hygli á málstaö sinum, sem er
frelsun Hess úr Spandau-fangels-
inu, en hann var staðgengill
Hitlers.
t bréfinu, sem var óundirritað
að öðru leyti en með nafni sam-
takanna, sagöi að þau hefðu
skemmt Tupolevflugvélina vegna
þess aö Sovétrikin hafa alla tið
verið andvig þvi aö Hess yröi lát-
inn laus. Hann var dæmdur við
Nurnberg-réttarhöldin eftir strið-
ið og hefur verið fangi siðan, sá
eini f hinu stóra fangelsi.
Franska lögreglan og sovézkir
sérfræðingar héldu i gær áfram
rannsókn slyssins, en enn er allt á
huldu með hvaða hætti það varö.
Flugritahlutar hafa fundizt, en á
þeim er ekkert að græða. Segul-
band það, sem leyst gæti gátuna,
finnst hins vegar ekki ennþá.
tbúar Goussainville, þar sem
flugvélin hrapaði, hafa mótmælt
þvi, að framar verði haldnar flug-
sýningar yfir byggðum svæðum
við Le Bourget-flugvöll, en sam-
göngumálaráðherrann svaraði
þvi til, að áætluð flugsýning 1975
yrði samt haldin.
demókrötum á landsþingi demó-
krata i Miami á Fiórida i fyrra,
segir hinn kunni blaðamaöur
Jack Anderson i Washington Post
i gær.
Ekki hefur þó rannsóknanefnd
komizt að þvi, í hve miklum mæli
stúlkurnar voru notaðar i þessum
tilgangi. Rannsóknarnefnd
Watergatemálsins, hóf i gær yfir-
heyrslur að nýju eftir 10 daga hlé.
Einn þeirra sjö manna, sem
dæmdir hafa veriö fyrir innbrotið
i Watergate-bygginguna, Gordon
Liddy, lagði áætlunina um
vændiskvennahringinn fyrir John
Mitchell, fyrrum dómsmálaráð-
herra, sem var formaður endur-
kjörsnefndarinnar.. Mitchell og
John Dean, ráðunautur Nixons,
voru á móti þessu, en samt sem
áður komst það i framkvæmd, að
sögn Andersons.
Pompidou
heldur
kyrru fyrir
NTB-París — Pompidou
Frakklandsforseti hefur hætt
við að taka þátt i öllum opin-
berum athöfnum fyrst um
sinn, öðrum en þeim, sem
fram fara i Elyseehöll. Þetta
er haft eftir áreiðanlegum
heimildum i Paris.
A næstu vikum eru áætlað-
ar fjórar opinberar athafnir,
sem forsetinn ætlar ekki að
vera við. Hann mun þó fara i
heimsókn sina til Bonn 21. og
22. þm. Sem kunnugt er hafa
undanfarið verið uppi sögu-
sagnir um að Pompidou
gangi siður en svo heill til
skógar, og meira að segja,
að hann sé alvarlega sjúkur.
Um þetta hafa þó engar
opinberar tilkynningar verið
út gefnar.
Agnar Ingólfsson.
Prófessor
í vistfræði
Forseti tslands hefur að tillögu
menntamálaráöherra skipað dr.
Agnar Ingólfsson, dósent, pró-
fessor i vistfræði i verkfræði- og
raunvisindadeild Háskóla tslands
frá 15. maf 1973 að telja.