Tíminn - 14.07.1973, Qupperneq 2
tíMínn
Laugardagur u! júli 1973.
Messías
endur-
fluttur
haust
i
1 júni s.l. var haldinn hinn árlegi
aöalfundur Söngsveitarinnar Fil-
harmoniu. Fráfarandi formaöur
söngsvcitarinnar, Markús Á. Ein-
arsson veðurfræöingur, flutti yf-
irlit yfir s.l. starfsár. Bar þar
hæst flutning óratoriunnar
„Sköpunin” eftir Haydn, 22. og 24.
febrúar s.l.
Þá skýrði formaður frá þvi, að
ákveðið væri i samráði viö Sin-
fóniuhljómsveit tslands, að flytja
„Messias” eftir Hándel undir
stjórn dr. Róberts A. Ottóssonar
næétahaust, nánar tiltekið 29.
nóvember. Munu æfingar hefjast
i september.
A þessu ári eru 10 ár siðan
Söngsveitin Filharmónia flutti
„Messias” og þótti þvi timabært
að gefa islenzkum tónlistarunn-
endum kost á að hlýða á þetta
stórverk aftur, enda hafa margar
áskoranir borizt þess efnis. Verk-
ið verður flutt á islenzku eins og
áður og hefur Þorsteinn Valdi-
marsson búið ritningartexta til
söngflutnings i samráði við dr.
Róbert A. Ottósson.
Formannsskipti urðu á aðal-
fundinum og i stað Markúsar A.
Einarssonar var séra Jón Bjarm-
an kosinn formaður. Aðrir i stjórn
eru: Bjarni Kristmundsson,
Helga Guðmundsdóttir, Ingibjörg
Björnsdóttir og Reynir Þórðar-
U bdbd bdbU KUbU UMMM MWMM MMItMMM MMMM WUHU MW
T rúlof unarhringar
bJbJbd bJbJ bJbJbJbJ bJbJ bJbJ bJbJ bJbJ bJbJbJ bJbJ bJbJ bJbJ
n
bJ
P*J
bJ
r**
v
- Fjölbreytt úrval af gjafavörum ur £3
gulli/ silfri, pletti, tini o.fl. önnumst £3
r*a
bJ
r*a
bJ
r«a
bj
r*i
bJ
r*i
bj
viögerðir á skartgripum.
Sendum gegn póstkröfu.
Gullsmíðaverkstæði ólafs G.
Jósefssonar
Óðinsgötu 7 (Rafhahúsinu) ( Sími 20032 m
MMM'N^MMMPIMMPaPI MPIMP'JP'JMMMPJP'IP’JP'JPl
bJbJbJbJbJbJbJbJbJbJbJbJbJbJbJ bJbJ bJbJ bJbJ bJbJbJbJbJ
Fyrirligg jandi
og
væntanlegt
Nýjar birgðir
teknar
heim vikulega
Spónaplötur 8-25 mm
Plasthúðaðar spóna-
plötur 12-19 mm
Harðplast
Hörplötur 9-26 mm
Hampplötur 9-20 mm
Birki-Gabon 16-25 mm
Beyki-Gabonl6 22 mm
Krossviður:
Birki 3-6 mm, Beyki
3-6 mm, Fura 4-12 mm
Harðtex með rakaheldu
lími 1/8' '4x9'
Haröviður:
Eik (japönsk, amerísk,
áströlsk), Beyki
(júgóslavneskt, danskt),
Teak, Afromosia, Iroko,
AAaghony, Palisander,
Oregon Pine, Gullálmur,
Ramin, Abakki, Amerísk
hnota, Birki 1 og 1/2"
til 3", Wenge
Spónn: Eik, Teak, Pine,
Oregon Pine, Fura,
Gullálmur, Almur, Beyki,
Abakki, Askur, Afromosia
Koto, Amerisk hnota,
AAaghony, Palisander,
Wenge
Verzlið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin bezt
JÓN LOFTSSON HF
Hringbraut 121 fS? 10 600
FASTEIGNAVAL*
Skólavörðustig 3A (il. hæðlj
Simar 2-29-11 og 1-92-55
i^asteignakaupendur
Vanti yður fasteign, þá hafiö
amband við skrifstofu vora.
Fasteignir af öllum stærðumi
og geröum, fullbúnar og i
iniðum.
Fasteignaseljendur
Vinsamlegast látið skrá fast-
eignir yðar hjá okkur.
Aherzla lögð á góða og
órugga þjónustu. Leitið upp-
ýsinga um verð og skilmála.
Makaskiptasamningar oft
mögulegir.. ,
önnumst hv'árs konar samn-
ngsgerð fyrir yður.
Jón Arason hdl.
Málflutningur, fasteignasala
IIBíiBÍ. h1X.I8.IJk..
Gömul hús og ný höll
Benedikt frá Hofteigi hitti nagl-
ann á höfuðið eins og stundum áð-
ur, þegar hann i „beinni 1 inu” (4.
júli að mig minnir) lét orð að þvi
liggja, að meira grin hefði ekki
átt sér stað i Reykjavik á seinni
árum, en þegar nokkrir sérvitr-
ingar tóku upp á þvi að mála
sterkum litum þær hliðar kofa-
garmanna á brekkubrúninni við
Bankastræti sem snúa að Lækjar-
götunni, liklega i þeim tilgangi að
þeir fengju að hanga þar eitthvað
lengur. — Það er naumast að
málararnir halda að ráðherrann,
sem umráð hefur yfir þessum
húsum, sé litilþægur og auðvelt
að slá ryki i augun á honum. Auð-
vitað tekur enginn heilvita maður
mark á þessu uppátæki þeirra.
Kofarnir eru jafn ónýtir eftir sem
áður og eiga að hverfa af balan-
um sem allra fyrst, hvort sem
nokkuð verður byggt á honum eða
ekki.
Ef einhver eða einhverjir vilja
eignast kofana á að gefa þeim þá,
gegn þvi að þeir fjarlægi þá i
skyndi og komi þeim fyrir á af-
viknum stað, þar sem eigendurn-
ir sjálfir hefðu þá sér til augn-
ayndis, en þeir særðu ekki dag-
lega fegurðarsmekk fjölda
manna. —- Menningarsögulegt
gildi hafa þeir ekkert. Þótt ein-
hvern tima hafi verið hnoðaður
saman i þeim danskur þrumari —
kannski ekki alltaf úr fyrsta
flokks efni — hefur það ekkert að
segja. Eitthvað hefur verið að-
hafzt i hverju einasta húsi sem
reist hefur verið á tslandi. Og ef
ekki mætti hreyfa við nokkrum
kofa i landinu, fyrir hrópum ein-
hverra „listamanna” færi að
vandast málið.
Að Arbæ mega þeir ómögulega
fara. Þangað er búið að flytja of
mörg hús og hálfeyðileggja með
þvi staðinn. En Arbæ og umhverfi
hans má enn bjarga, ef ekki verð-
ur þrengt að honum með fleiri
húsum.
Þá ætla sumir menn að ærast út
af því, að Seðlabankinn vill
býggja ýfir sig i norðanverðum
Arnarhólnum. Ég sé ekkert sem
mælir á móti þvi að bankinn
byggi þar, ef hann þarf nauðsyn-
lega að byggja. En það kann að
vera álitamál. Heilbrigðisyfir-
völd borgarinnar ættu að skera úr
þvi, hvort bankinn býr við svo
heilsuspillandi húsnæði að starfs-
mönnum hans stafi hætta af, eða
of þröngt sé á seðlunum sem hann
geymir. Ef svo reyndist ekki
vera, á hann ekki að fáaðbyggja
meðan marga vesalinga vanhag-
ar sárlega um húsnæði.
Margt kann að kalla á aurana
sem Seðlabankinn geymir.
Er ekki þörf á aö láta smiða
stærri og hraðskreiðari varðskip
en þau sem fyrir hendi eru? Svo
mun reynast, hvernig sem fer um
allar landhelgislinur, að ærin
ásókn verði á landgrunn okkar og
fiskimið af erlendum og innlend-
um ránsmönnum og veiðiþjófum
meðan nokkur branda fæst þar.
öllum dómbærum mönnum ber
saman um, að áhafnir varðskipa
okkar standi frábærlega vel i
stöðu sinni. Þeim á'að skaffa við-
unandi tæki áður en Seðlabankinn
fær að byggja.
Læknar kvarta mjög undan
þrengslum á sjúkrahúsum sinum.
Ekki sizt þeir sem geðrænum
súkdómum sinna. Yfir þá sjúku á
að byggja áður en bætt er við
einni nýrri bankahöll i Reykjavik.
Svo þarf nokkrar krónur til að
græða upp landið, ekki sizt ef svo
skyldi kólna tiðarfarið, að gróður
allur verði seinvaxnari en verið
hefur um sinn. — Seðlabanka-
stjórnin ætti að sjá sóma sinn i
þvi, að gefa svo sem helming af
þeirri fjárhæð sem höllin á að
kosta til landgræðslu áður en hún
fer að byggja yfir sig. Það mundi
mælast vel fyrir. Ekki mun okkur
veita af að nytja og bæta landið,
ef fiskimiðin ganga meira úr sér
en orðið er vegna rányrkju. —
Menn hafa verið að tala um
fagurt útsýni af Arnarhóli. Það
var að visu, þegar Ingólfur kom
hér og hólnum var gefið nafn. En
fyrir löngu hefur verið dregið fyr-
ir þann glugga. Húshlussa, sem
nefnt hefur verið „Sænska frysti-
húsið” tekur fyrir alla útsýn af
hólnum til norðurs og hefur lengi
gert. Þar er fegurðin: sundin,
eyjarnar, fjöllin i fjarska.
Enginn þarf að segja mér, aö
bankajöfrarnir, sem setjast að i
höllinni, sem eflaust ris þarna
hvað sem raular og tautar, hafi
það „sænska” lengi við nefið á
sér. Sennilega láta þeir rifa það
áður en þeir stiga fæti sinum inn
fyrir yzta þröskuld nýju hallar-
innar. Og þótt ekki sé ástæða til
að ætla, að þarna risi neitt
skrauthýsi til augnayndis þeim
sem ekki eiga innangengt i pen-
ingamusterið, þá verður það
varla ljótara en „sænska” hluss-
an og aðrir kofar, sem nú byrgja
alla fagra útsýn af Arnarhóli.
10/7 1973.
B.Sk.
Útvarp Matthildur, sem veriöhefur á dagskrá útvarpsins að sumarlagi I þrjú ár, hefur notið feikna vin-
sælda útvarpshlustenda. i kvöld heyrist Útvarp Matthildur i næst siðasta sinn á þessu sumri.A myndinni
sjást starfsmenn Matthildar, þeir Þórarinn Eldjárn, Hrafn Gunnlaugsson og Davið Oddsson. Þórarinn
heldur á hljómplötunni Gunnar póstur, sem kemur viö sögu i þættinum i kvöid. Ef vel er rýnt á myndina,
má sjá sjálfan Þórð Breiðfjörð, hálfboginn yfir stjórntækjum bak við glerrúðuna, sem er til hægri á
(Tímamynd Gunnar)
Auglýsid' íTÍmanum
myndinni.
Fjölþættar veitingar. Vörur fyrir
ferðafólk i úrvali. Benzin og oliur.
— Þvottaplan.
Leggjum áherzlu á fijóta og góða
afgreiðsiu i nýju og failegu húsi.
Verið velkomin.
VEITINGASKALINN BRÚ,
Hrútafirði.