Tíminn - 14.07.1973, Síða 5

Tíminn - 14.07.1973, Síða 5
Laugardagur 14. júli 1973. TÍMINN 5 Trén notuð í baróttunni gegn mengun Nú er svo komið, að Þjóðverjar hafa byrjað á þvi að planta skipulega trjám i stórborgum sinum i þeim tilgangi einum, að nota.'þau i baráttunni gegn mengun andrúmsloftsins. 1 Olympiuborginni Munchen er ráðgert að planta að minnsta kosti eitt þúsund trjám árlega i þessum tilgangi, og i stað hvers einasta trés, sem af einhverjum ástæðum þarf að fella, hefur verið fyrirskipað, að plantað verði tveimur nýjum. Hafa sér- fræðingar reiknað út,að eitt full- vaxið tré, eins og þau, sem sjást meðfram breiðgötum stórborg- anna erlendis, geti með starf- serni sinni unnið nægilegt súr- efni fyrir þrjár manneskjur dag hvern. Þá hefur iðnaðar- og verzlunarráðið þýzka hvatt öll fyrirtæki i landinu, að gera sem mest af þvi að gróðursetja tré og annan gróður umhverfis verksmiðjur og önnur iðnfyrir- tæki til þess að sporna þannig við mengun að eins miklu leyti og hægt er. Annars er mengun viða svo mikil,að tré þola hana ekki og veslast jafnvel upp og deyja. t Ungverjalandi hefur mönnum þó tekizt að finna af- brigði t.d. af akasium, sem þola bensinstybbu frá bifreiðum bet- ur en venjuleg akasiuafbrigði, og er stöðugt unniö að þvi að gera trjágróður þar þolnari og sterkari, svo hann geti staðizt árásir mengunarinnar. & Of eða van Það má með sanni segja, að það er bæði hægt að vanrækja og of- rækja likama sinn. Flestum okkar hættir liklega lil að gera það fyrrnefnda. Hér á myndun- um eru þó herrar, sem aldrei mundu samþykkja, að þeir hefðu vanrækt likamann. Hann virðist vera þrautþjálfaður, en þó er það svo, að mörgum þykir þeir hafa þjállað sig einum um of kappsamlega. En til þess að sýna ykkur sitt lilið af hverju, birtum við hér mynd af ungri iþróttakonu, sem viröist hafa ratað meðalveginn, svo likami hennar er ekki eitt vöðvabúnt, heldur léttur og fjaðurmagnað- % ur og fallega lagaður. A annarri myndinni sjáið þið svo þokkadis á milli tveggja karla, og að lok- um er það þriðja myndin. Hún er af (lergio Oliva, sem kallaður er Cuba. Hann mun hafa náð langt á þeirri braut að gera lik- ama sinn að sýningargrip, sem sennilega einhverjir vilja sjá — og þó? mann Michaelis fékk hugmynd- ina i þurrkunum 1968. Þá las hann, að búpeningi i Bandarikj- unum væri gefin viðarkvoða. Dagblaðapappirinn er búinn til úr trjákvoðu, sagði Hermann, svo hann fór aö gefa henni Búkollu sinni og systrum henn- ar dagblöðin. Kúnum féll þessi nýbreytni mætavel. Þegar þurrkarnir hættu sá hann ekki ástæðu til þess að hætta að gefa kúnum blöðin, og i meðfylgjandi myndatexta segir, að kúnum þyki Lundúnablöðin bezt, og þau fá þær i sunnudagsmatinn, og á stórhátiðum. * Að melta fréttirnar Það er stundum talað um, að þessi eða hinn eigi erfitt með að melta fréttirnar. Það má með sanni segja, að fréttirnar, sem er hér verið að tyggja verða sennilega seinmeltar þeim, sem tyggja þær og jóðla upp i sig. Myndirnar eru teknar á búgarði við Rustenburg i Suður-Afriku, en þar er kúnum daglega færður góður skammtur af nýjustu fréttablöðunum. Bóndinn Her-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.