Tíminn - 14.07.1973, Page 9

Tíminn - 14.07.1973, Page 9
Laugardagur 14. júli 1973. TÍMINN 1.1. ..Hi.. 111111 i 1"1M i .1 1111 Sjávarþorp og útgerðar- bæir á íslandi hafa sinn sérstaka svip — og þau andlit, sem þú minnist, eru yfirleitt tengd fram- leiðslunni og sjávarafla. Rithöfundar eru þar ekki margir, en þó má finna þá einnig þar. Suður i Keflavik hitt- um við einn að máli, sem vissulega hefur sett svip sinn á bæinn, en það er Hilmar Jónsson, bókavörður. Hilmar er þó ekki fæddur Kefl- víkingur, heldur er hann Aust- firðingur, fæddur í Jökulsárhlíð, einu sterkasta vigi Eysteins Jóns- sonar, eins og hann orðar það, en árið 1946 fluttu foreldrar hans til Keflavikur, þar sem móðurafi hans, Guðlaugur Eyjólfsson, skipa — og siðar húsasmiður hafði þá búið all lengi. Hilmar gekk i menntaskóla i Reykjavik, en missti heilsuna i 6. bekk. Fékk slæma hjartabólgu upp úr hettusótt og var veikur lengi, en frá þessu segir i siðustu bók hans „Kannske verður þú” og ennfremur frá þvi, þegar hann fór að hjarna við i skógrækt hjá Sig- urði Blöndal og i „akademiu” frænda hans, Runólfs Pétursson- ar, sem óneitanlega kemur oft við sögu i skrifum Hilmars. Úr skógræktinni fór Hilmar til Parisar, til að sjá sig um i heiminum og þar var hann einn vetur. Þaðan lá leiðin i bóka- vörzlu, fyrst i Reykjavik og siðar i Keflavik. Hilmar gaf út sina fyrstu bók árið 1955, en það voru ritgerðir, sem hétu „Nýjar hugvekjur fyrir kristna menn og kommúnista”, en um þær sagði Morgunblaðið m.a„ að höfundurinn væri montn- ari en Þórbergur. Siðan hafa komið frá hendi hans fjórar bækur. Ein stutt skáldsaga, Foringjar falla, endurminningar og ritgerðir. Skrifar á nóttunni i stuttu samtali við blaðið, sagði Hilmar frá högum sinum á þessa leið: Vinnutimi minn er breytilegur. Oft er ég á bókasafninu á kvöldin til klukkan 10. Þegar ég kem heim, þá sezt ég gjarnan við sjón- varpið, eða spila jatsi við konuna, llilmar Jónsson, ásamt fjölskyldu sinni. Talið frá vinstri eru: Klísabet Jensdóttir, (iuðlaug Jóna, Jens Jón Rúnar og Hilmar. Hilmar Jónsson skrifar á nóttunni eftir að hafa spilað jatsi við konuna unz klukkan er tólf, en þá sezt ég niöur og skrifa i tvo klukkutima, eða svo. Þetta hentar mér ein- hvernveginn vel. í Keflavik er vakað yfir öllum mikilsverðum hlutum, vakað yfir konum og vakað yfir fiski og þvi skyldi maður ekki vaka fyrir ritstörfum lika? Mér finnst það, að sameina borgarlegt starf ritmennskunni að sjálfsögðu ekki það erfiðasta, heldur hin skipulagða barátta til aö koma þeim rithöfundum á kné, sem óháðir vilja teljast og eru þjóðfélagslega sinnaðir. Ég hefi ætið verið herskár i skrifum. Hefi skrifað af fullri einurð um kommúnista t.d, og ég tel mig hafa goldið þess i rikum mæli. Neikvæð áhrif fjölmiðla á bókmenntir og listir Klikuskapurinn er allt að drepa á Islandi. Hér gilda engar siða- reglur, heldur er aðeins spurt um það, i hvaða kliku þú sért. Ef þú ert i réttri kliku þá stendur ekki á vegtyllum, styrkjum og svo framvegis. Einn ágætur höfundur orðaði það svo, að hann hefði haldið, að aðalatriðið til þess að komast i tölu rithöfunda væri að skrifa góðar bækur, en sér til skelfingar hefði hann komizt að þvi, að það væri beinlinishættúlegt fyrir rithöfund að skrifa vel, þvi þá fengi hann alla upp á móti sér. Aðalatriðið væri að koma sér upp kliku og berjast til áhrifa. Næsta bók min mun fjalla um þessa grátbroslegu baráttu. Eitt þekkt- asta skáld okkar skrifaði ekki alls fyrir löngu lærða grein um kjötát Islendinga og taldi, að þess vegna kæmumst við ekki á blað i bók- menntakeppni Norðurlandaráðs. Svo virðist, sem þau hrossakaup, sem hér gilda i listum og bók- menntum, séu ekki iðkuð I eins rikum mæli meðal frændþjóða okkar og þvi skila sér betri verk þar tii keppninnar, en frá okkur, þar sem klikurnar ráða öllu. Þá hlýtur að vera hæpin sú stefna, að hafa ávallt sömu mennina — ár eftir ár — til að skrifa bókmenntagagnrýni, enda þótt þeir hafi gerzt sekir um gróf- ar, persónulegar ofsóknir á hend- ur einstökum listamönnum. Skoðanafrelsi er ekki á öllum dagblöðunum, þegar listir eru annars vegar. Ég get nefnt sem dæmi, að laugardaginn 12. mai siðastliðinn var ég viðstaddur frumsýningu á leikriti Jökuls Jakobssonar norður á Akureyri. Þessi sýning hefur vakið blaða- skrif, vegna framkomu nokkurra leiklistargagnrýnenda úr Reykjavik, er þar voru staddir og hefur komið fram gremja út i þá, — nema Halldór Þorsteinsson. Þar eð ég hafði ekkert sérstakt að gera eftir sýningu, þá hripaði ég nokkrar linur um sýninguna og var farið viðurkenningarorðum um sýninguna, um leikritið og leikendur, og þá sér i lagi Sögu Jónsdóttur og Þórhöllu Þorsteins- dóttur og þann er lék atómskáld- ið. Grein þessa sendi ég Alþýðu- blaðinu til birtingar, en gagnrýn- andi hafði ekki verið sendur norður. Ég hafði haft viðskipti við Alþýðublaðið i áraraðir, en nú sagði blaðið nei takk. Sigurður A. Magnússon skrifar um leikhús hjá okkur. Ný bók i smiðum. — Bókasafnslögin — Er ný bók i smiðum? — já, vonandi kem ég henni á markað i haust. Þetta er að meginmáli minn gluggi á Suður- nesjum. Hún á að heita fólk án fata og verður bezta og mesta „skandal”bók þessa áratugs, en ég veit ekki hvort ég á að fara nánar út i þá sálma hér að þessu sinni. Við skulum heldur tala um bókasöfnin. Fyrrverandi menntamálaráð- herra, Gylfi Þ. Gislason skipaði nefnd rétt fyrir kosningarnar 1971, til að endurskoða lög um al- menningsbókasöfn. Þessari nefnd var lika falið að kanna kröfu rit- höfunda um tiltekin kaup is- lenzkra bóka til bókasafna. 1 þessari nefnd voru Stefán Július- son, Eirikur Hreinn Finnbogason, Matthias Jóhannessen, örn Marinósson og ég. Við unnum verk okkar mjög vel að minum dómi, þótt formaður bókavarða- félagsins segi annað og hafi kom- ið þeirri ófrumlegu skoðun á framfæri i erlendu blaði, sjálfsagt i þeim tilgangi að tefja fyrir mál- inu. Núverandi menntamálaráð- herra, Magnús Torfi Ólafsson, sem er athugull og greindur mað- ur i bezta lagi, lofaði i vetur að flytja málið á alþingi. Siðan höf- um við ekki heyrt hósta, né stunu. Er þetta mjög bagalegt, eink- um fyrir sveitabókasöfnin, sem eru að geispa goiunni vegna fjár- skorts. 011 vonum við, sem i al- menningsbókasöfnum störfum, að I vetur verði frumvarpið lagt fram á alþingi og samþykkt. —JG llátún 27, heimili þeirra liilmars og Elfsabetar i Keflavik. Tíminn ræðir við Hilmar Jónsson og bókavörð í Keflavík rithöfund

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.