Tíminn - 14.07.1973, Blaðsíða 11
Laugardagur 14. júli 1973.
TÍMINN
11
Iteyftarvatn 1970: Vciði i Reyðarvatni getur oft verið ágæt eins og sést á þessari mynd. Særsta bleik ja. sem vegin hefur verið úr vatninu var 1« pun<l, en algengasta þyngd er þó 2
til 3 pund, þó veiðast alltaf nokkrar 7-S punda á hverju suinri.
Við höfum áður rætt um ásókn
erlendra laxveiðimanna i árnar
okkar. Við höfum nákvæmlega
sömu möguleika, og raunar miklu
meiri, á að fá mjög mikinn fjölda
erlendra stangaveiðimanna i
veiðivötnin okkar, ef við getum
tryggt þeim vænni fisk, en þeir fá
i heimalandinu.
Þessir stangaveiðimenn hafa
litinn áhuga á laxveiðum.
Silungsveiði með réttum tækjum
er ekki siður spennandi en lax-
veiði og ég hef leyfi til að segja
frá, að stangaveiðisamböndin á
Norðurlöndum eru reiðubúin til
að senda hingað hópa af veiði-
mönnum strax á næsta sumri, ef
við getum útvegað þeim mögu-
leika á að veiða væna fiska, þótt
smælki væri innan um, en þess
ber að geta,að 1-2 punda fiskur er
vænn fiskur i þeirra augum, hvað
þá stærri.
Eigendur veiðivatna verða þeg-
ar i stað að taka á þessum mál-
um, ef þessi verðmæti þeirra eiga
ekki að fara forgörðum og yfir-
völd verða að veita veiðimál-
stofnuninni nægilegt fé, til þess að
geta sinnt þessum málum — það
fé mun skila sér margfalt á
skömmum tima.
Móttaka veiðimanna
Nú munu einhverjir segja, að
við getum ekki tekið á móti veiði-
mönnum i vötnin i stórum stil.
Þetta er alrangt. 1 fyrsta lagi eru
margir skólar.sem ekki eru nýtt-
ir á sumrin. t sveitum eru viða
stórhýsi, féiagsheimiiin, sem
auðvelt er að nota i þessu skyni.
Mörg sveitaheiinili eru vel hýst
og eiga auðvelt með að taká á
móti gestum. Koma má upp með
tiltölulega litlum tilkostnaði
skýlum við veiðivötnin og einnig
mætti leigja góð tjöldog fleiri úr-
ræði eru til taks.
Ef skriður kæmist á þessi mál,
þarf ekki að óttast að aðstaða
skapaðist ekki eins og annars
staðar.
Ég ræddi við ferðaskrifstofu i
Danmörku, þá þriðju stærstu i
landinu, sem ekki taldi nokkra
erfiðleika á að skipuleggja veiði-
ferðir til Islands, einmitt fyrir
veiðimenn, sem ekki kæra sig um
dýr hótel, en vilja gjarnan upplifa
frumstætt ævintýri, sem ekki má
að sjálfsögðu kosta alltof mikið.
Ekki þarf að óttast andúð is-
lenzkra veiðimanna, vegna þess
að til þess kæmi aldrei, að ekki
yrði nóg rúm fyrir þá.
Þetta gæti hins vegar orðið til
þess að bjarga vötnunum okkar
frá eyðileggingu, fyrir utan hinn
mikla gjaldeyri, sem þjóðin fengi
fyrir veiðileyfi, þjónustu og eðli-
lega eyðslu ferðamanna utan hins
venjulega veiðitima, sem er
veruleg. íslenzku veiðivötnin geta
tekið við þúsundum veiðimanna á
dag.
Sjóstangaveiði
Þótt sjóstangaveiði sé hér
nefnd á eftir laxveiði og silungs-
veiði, er ekki þar með sagt, að
möguleikarnir séu minni á þvi
sviði en hinum tveim.
Sjóstangaveiði hefur rutt sér
mjcg til rúms á siðari árum.
Bandarikjamenn hafa stundað
þessa iþrótt um langt skeið, eink-
um i Kyrrahafi, þar sem túnfisk-
ur og aðrir stórfiskar hafa verið
bráðin.
Þessi grein sportveiði hefur svo
breiðzt út viða um lönd og eru þá
veiddar allar tegundir fiska.
Mjög mikið er um það, að fólk
reyni við fisk frá ströndum, en
venjulega er árangur litill. Bátar,
sem eru mannaðir 5-7 mönnum
eru vinsælastir og þurfa þeir að
vera þokkalega útbúnir með
sæmilegum lúkar.
Óhætt er að fullyröa, að ekkert
land á norðurhveli jarðar hefur
aðra eins möguleika á þessu sviði
og tsland. Reynslan hefur skorið
úr um það, að hér veiðist miklu
meira magn en annars staðar. Ég
get ekki stillt mig um að nefna
sem dæmi, að á siðasta ári var
keppni á Bretlandseyjum i sjó-
stangaveiði. Tveir bræður i
London eru þekktir sem miklir
veiðimenn og hafa hlotið nafnið
„hinir hræðilegu tviburar”.
1 blaði sjóstangaveiðimanna,
Angling Time, var sagt frá
keppni, sem þessir bræður unnu
og fengu 100 sterlingspunda verð-
laun fyrir. Veiðin var fjórir
þorskar á mann og vigtin var
rúmlega lbs, samtals fyrir hvorn.
Var birt mynd i blaðinu af
bræðrunum með veiðina.
1 Bretlandi einu er um tvær
milljónir félagsbundinna sjó-
stangaveiðimanna.. Ekki er of
mikið i lagt að telja að veiði hér
sé tiföld á við það, sem gerist við
Evrópustrendur og auk þess eig-
um við beztu lúðumið i heimi á
Breiðafirði, einkum vegna þess,
að enginn annar fiskur er á þess-
um miðum, þegar lúðuveiðitima-
bilið stendur yfir.
1 Kattegat og Eystrasalti er svo
komið, að fiskur, sem veiðist er
stórskemmdur af mengun.
Likami þeirra er alsettur kaunum
og vantar oft stóra likamshluta.
Hér er enn eitt eigamikiö atriði,
sem skiptir máli, en það er, að
með þvi að vinna markað fyrir
slika sportveiði er hægt að lengja
ferðamannatimabilið um 1-2
mánuði á háða enda.
Væri freistandi að fara fleiri
orðum um þetta mál, en ef ekki
verður hafiz.t handa um að hag-
nýta þessa miklu möguleika, má
segja að þeir,er stjórna ferðamál-
um á tslandi séu afglapar, sem
ekki er viðbjargandi.
1 næstu grein munum við ræða
um laxeldi i sjó og um það,
hvernig hægt verði að hagnýta
betur en gert er þessi miklu
náttúruauðæfi.
Páll Finnbogason
Þessir sjóstanga veiðimenn eru alsælir með feng sinn, ekki siður en lax-
veiðimennirnir, eftir góða veiði.
Urriðahrygna komin að hrygningu
L'rriðahængur i gothúningi.
f'j ■
■
,^'v
r---y Framkvæmir:
1 f Járnsmiði - Rennismíði - Alsmíði
Vélaverkstæðið Véltak hf
Dugguvogur21 - Sími 86605 - Reykjavík
vjí/ vr/ vr/ vr/ vy / v
mIIÍ^IwC Auglýsingastofa Tímans er i
** Aðalstræti 7 ®
endur
Símar 1-95-23 & 26-500
D <SD<Í