Tíminn - 14.07.1973, Blaðsíða 23

Tíminn - 14.07.1973, Blaðsíða 23
Laugardagur 14. júli 1973. TÍMINN 23 Flokkur ungra stúlkna æfir sig á sviðinu í Laugardalshöllinni. Þær gera allar sijnar æfingar við undirleik pop tónlistar. Nokkur hluti þátttakenda hlýða á kennara I áhaldaleikfimi. Þar eru karlmenn í miklum meirihluta. Æfingar með bolta og hringi verða mikið á dagskrá á sýningum flokkanna i Laugardalshöllinni um helgina. Gjöf frá BFÖ í Svíþjóð LANDSÞING MIIF Bindindis- félags ökumanna i Svíþjóð, var haldið i Landskrónu dagana 5.-8. júli s.l. Stjórn MHF óskaði eftir þvi við Ilelga Hannesson, forseta BFö hcr á landi, að hann yrði gestur þingsins og veitti móttöku fck er félagsmenn MFHs I Sviþjóð höfðu safnað handa Vestmanna- eyingum. Ansvar, tryggingafélag bind- indismanna i Sviþjóö, gerði samdægurs og gosið i Vestmannaeyjum hófst ráðstaf- anir til þess, að Abyrgð h/f., umboðsfélag þess hér á landi, veitti þá þegar fjárhagslega hjálp þeim Vestmannaeyingum, er voru með tryggingar hjá félaginu, og varð þannig hvati til skjótra viðbragða annarra aðila. Innanrikisráðherra Svia, Eric Holmqvist, setti landsþing MHF og fór setningin fram með mikl- um hátiðleik og glæsibrag. Við þingsetninguna af henti for- seti MHF, rikisráðsmaður Henrik Klackenberg, Helga Hannessyni, forseta BFÖ, bankaávisun að upphæð sænskar krónur 100.000.00, en það nemur rúmum 2.100.000.00 ísl. krónum til systur- félgsins BFö á tslandi i Vestmannaeyjasöfnunina til félagslegrar aðstoðar. Viðstaddur afhendinguna var Arne Prytz, aðalræðismaður tslands i Málmey. Er Helgi Hannesson haföi móttekið þessa höfðinglegu gjöf, ávarpaði hann þingið og mælti m.a.: „Það var Ansvar, samtök bindindismanna, sem fyrst allra rétti bróðurhönd til hjálpar fólki i Vestmannaeyjum. Og enn hafið þiö sænskir bindindismenn, félagar i MHF, sýnt samhug of fórnfýsi til hugsjónasystkina á Is- landi, þer er þið i dag hafið beðið mig að veita móttöku ávisun að upphæð sv. kr. 100.000.00 til að- stoðar Vestmannaeyingum. Þetta er höfðingleg gjöf og mikilsvirði, en enn meira virði tel ég hugsjónina, bræðraþelið, vin- áttuna og skilninginn að baki gjafarinnar. Með þessari stórmyndarlegu söfnun ykkar hafið þið staðfest að jafnframt þvi að vera hug sjónastefna, þá er bindindisstarf- semin aflvaki raunsærra dáða, sem snerta daglegt lif okkar. t nafni þjóðar minnar flyt ég ykkur hjartans þakkir og beztu óskir um dáðrik störf á sviði bind- indissamtakanna i Sviþjóð.” „Writing on the Wair' um Verzlunar mannahelgina r Bjóða Amunda „Wings" fyrir ca. 2 miiljónir! — ÞO manst eftir hljómsveitinni „Writing On The Wall”, sem komu hingað um árið, — ég ætla að láta hana koma fyrst, þ.e. um Verzlunarmannahelgina. Þetta sagði Amundi Amundason, er við fregnuðum hann um brezku hljómsveitinar, sem hann hugðist fá hingað til hljómleikahalds i sumar, þegar þær væru á leið vestur til Bandarikjanna. Sem sagt, nýta þær i „stop- over” , — Annars stend ég einmitt i * samningum við umboðsmenn ytra um áframhaldið á þessu, og ætti þetta að liggja ljóst fyri alveg á næstunni. En „Writing On The Wall” verður sem sé fyrst hverjar sem koma siðan á eftir. En það er búið að bjóða mér Wings, Chicago og fleiri og fleiri. En þær eru dýrar. Hve dýrar? — Ja, Wings mun taka 10.000.00 pund fyrir eina hljómleika. — Stp

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.