Tíminn - 17.07.1973, Síða 2

Tíminn - 17.07.1973, Síða 2
TÍMINN Þriöjudagur 17. júli 1973 Varahlutir í gamla bíla Stýrisendar, benzindælur og sett i dælur, slitboltar og fóðringar, hjöruliðir, loftþurrk- ur, hraðamælisbarkar, pakkdósir, vatnslás- ar, höggdeyfar, felguboltar og rær, hurða- húnar og upphalarar. Gömul verð - takmarkaðar birgðir ARMULA 7 - SIMI 84450 r*i CmS M (nl P*1 (ol Trúlof unarhringar Fjölbreytt úrval af gjafavörum úr M gulli, silfri, pletti, tini o.fl. önnumst E3 viðgerðir á skartgripum. Sendum gegn póstkröfu. Gullsmíðaverkstæði ólafs G. Jósefssonar Óðinsgötu 7 (Rafhahúsinu) ( Sími 20032 SS Cnl _______JP'JMPOP'IPIMMPIP'JMP'JPIMMMMMPIMP'JM CtdMMMbdbiSbiUMUMKMlbJbiUtdMMbilMbilMbaMbdlidMbdbú P*J bJ M bJ M bil P1 bJ P1 bd EVINRUDE >SÁ STÓRI NÚ NÆST SÁ STÓRI NÚ MÁ >SÁ STÓRI FARA AÐ VARA SIG Lítill mótor,hraóskreiður, hljóðlátur.laus við titring léttbær og gangviss, 4 sparneytin hestöfl Bygginga- vörudeild verður lokuð til 7. dgúst SEEVINRUDE FREMSTIR í flokki FYRSTIR af stað P ÞORHF ■ —■'Armúla11 Skólavörðust.25 JON LOFTSSON HE Hringbraut 121*0“ 10 600 ■ VATNS- HITA- lagnir og síminn ér 2-67-48 Öræfagrillur Björns Egilssonar Björn Egilsson hefir fundið sig ónotalega snortinn af Landfara- pistli mínum 4. maí siðastliðinn. — Hann vistar mig tafarlaust i flokk svonefndra Sósialdemó- krata eða Sósialista og er það meinlaus staðhæfing i minn garð, — og lika hans. Umtalsefnið er, hvort menn eru samfélagslega sinnaðir. — En hann kemur ekk- ert að þvi meginatriði málsins, hvort yfirtaka öræfa landsins, aðalhálendi þess, ásamt jöklum, skaði bændur landsins minnstu vitund. Hann sleppir auðvitað þvi meginatriði að samkv. frumvarpi þvi, sem lá fyrir siðasta alþingi hér aö lútandi, er talið fullvist að harðnytjar einstakra bújarða með tilheyrandi veiðiréttindum, skaði eigi bændur minnstu vit- und. Þar við bætist svo, að bænd- ur er upprekstrarland eiga skuli njóta ókeypis beitar fyrir fénað sinn. — Það er hvort tveggja aöalatriði málsins. Björn virðist ganga með einskonar hugmynda- pest, er hann horfir blindum aug- um á imyndaða réttarskerðingu bænda i þessum efnum. Deilum hans og Eyfirðinga og Skagfirðinga og Eyfirðinga skipti ég mér ekki af, en óþarfi er af honum að dylgja fyrirfram um niöurstöðu Hæstaréttar i þessum efnum. Hann mun væntanlega fyrst og fremst fjalla um hagnýtt gildi þessa máls. Þetta minnir óneitanlega allmikið á eignarréttinn yfir Grænland hér á árunum, sem enginn minnist nú þótt máske sé nokkuð óliku saman að jafna. Þegar öræfamál þessi hefir borið á góma kemur mér i hug at- vik frá löngu liðnum árum. Árið 1926 var ég á ferð með farþegabát suður með Noregsströndum. I Namsos kom i skipið unglings- maður, mjög þekkilegur. Hann kom á tal við mig, er hann heyrði að ég var Islendingur. Kvaðst hann áður hafa verið skrifstofu- maður i Þrándheimi, en orðið leiður á þvi starfi, enda illa laun- að. Hann kvaðst þá hafa frétt, að á svæðinu fyrir norðan Þránd- heimsfjörð og til Bodö væri að finna eðalsteina svonefnda i ám er falla fram af bröttum fjöllum og helst í farvegum þeirra á slétt- lendi. Hann kvaðst hafa fengið pilt á aldur við sig i félag með sér til að leita fágætra steina. Slikt gæfi mikla peninga. Svo mikið væri víst, að þá iðraði þess ekki að hafa gefið upp skrifstofuvinn- una. Vita þykist ég að um slika eðalsteina sé ekki að ræða hér- lendis. Silfurbergið er sennilega búið að lifa sitt fegursta, þótt eng- inn geti sagt um, hvort það verður aftur eftirsótt. En það er ein tegund grjóts, sem mér kemur i hug að vekja at- hygli á. Það eru basalthellur, sem er að finna á nokkrum hálsum og fjöllum Vestfjarða. Þær er ofur- lítiö tekið að nota til að klæða inn- an anddyri ibúðarhúsa, en aðeins á byrjunarstigi. Hefi ég séð slika hellu i anddyri nýbyggðs húss, og sýndist hún fara vel. Vil ég vekja athygli á þessu. Mér kemur i hug, að leynast kunni á öræfum lands- ins merkilegir steinar eða önnur eftirsótt verðmæti. Þetta er máske ekki aðsteðjandi mál dagsins, en enginn veit hvað framtiðin ber i skauti sér i þessu efni. Svo mikið er vist að bændur nálægt öræfunum myndu ekki láta sér til hugar koma að hefja steinaleit. Og ég tel sjálfgefið að öll slik verðmæti, er finnast kunna, séu eign þjóðarinnar,en ekki þeirra, er land eiga næst öræfunum. Þeir hafa ekkert til þess unnið, að njóta slíkra hugsanlegra verðmæta umfram aðra þjóðfélagsþegna, hvar sem þeir kunna að vera búsettir á landinu. Bændur yrðu eftir sem áður kóngar i sinu riki, það er að segja á sínum bújörðum. Og ég hygg að þeir uni þvi vel, að örfá- um einstaklingum undanskildum. Þetta minnir talsvert á deiluna um yfirráð Grænlands hér á ár- unum. Þar voru margir mikilhæf- ir gáfumenn að verki og reyndu að sameina þjóðina um nauðsyn íslands á yfirráðum Grænlands, sem átti,hygg ég,að vera nokkurs konar nýlenda lands vors. — Þeir töluðu i tugi ára út i blátt loftiö vegna þess að tal þeirra var byggt á óraunhæfum grunni, sem þjóðin gat ekki tekið alvarlega. — Björn og hans samhyggjendur mega nú vara sig á að lenda ekki i svipaðri klipu. —Kr.G. Bótaskylda vinnuveitenda „Er vinnuveitendum skylt að bæta starfsfólki hluti, svo sem gleraugu, sem glatast eða eyði- lagðir eru á kaffistofu á vinnu- stað? Verkakonur i fiskvinnu leggja sér sjálfar til vinnu- svuntur. Ef þessum svúntum er stolið, er vinnuveitanda skylt að bæta þær?” Jóhanna ólafsdóttir Gnoðarvogi 28 Hjá verkakvennafélaginu Framsókn fengum við þær upp- lýsingar að vinnuveitendum er ekki skylt að bæta starfsfólki hluti, sem stolið er frá því á vinnustað. Mjög er ábótavant um vinnuaðstöðu hjá ýmsum at- vinnufyrirtækjum, en þó hefur starfsfólk viða læsta skápa, þar sem það geymir ýmsa hluti. Margar verkakonur merkja vinnusvuntur sinar og er það nokkur vörn gegn þjófnaði. Oft er aðstaðan slæm á sumrin þegar fjöldi starfsfólks er meiri en ella á ýmsum vinnustöðum. Hins vegar er skylt að bæta starfsfólki ef t.d. gleraugu eða armbandsúr skemmast eða eyðileggjast, þar sem það er að vinnu. GliJÖN SraKÁBSSOC hæstaréttarlögmaður Aðalstræti 9 — Simi 1-83-54 -------------i EffiEEÖ Framkvæmir: Zf Járnsmíði - Rennismíði - Alsmíði Vélaverkstæðið Véltak hf! Dugguvogur 21 - Sími 86605 - Reykjavík RAFGEYMAR Öruggastí FRAMLEIÐSLA _ RAFGEYMIRINN á markaðnum || Fást í öllum kaupfélögum || og bifreiðavöruverzlunum ||J NOTIÐ AÐEINS ÞAÐ BEZTA P0LAR H.F. :::::::::::::::::: lllllll: fH iilll

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.