Tíminn - 20.07.1973, Síða 2
2
tímínn
Föstudagur 20. júli 1973.
Laust starf
Starf húsvarðar við Kópavogsskóla i
Kópavogi er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst n.k. og
skal senda umsóknir til fræðslustjórans i
Kópavogi, sem ásamt undirrituðum veitir
allar nánari upplýsingar um starfið.
Kópavogi 10. júli 1973.
Bæjarritari.
■
K JM .Hb! 1 IIIII,
Hvernig getum við spornað gegn siysunum?
Mann setur hljóðan við þessi
óskaplegu slys, sem sifellt dynja
yfir. Fyrir fáum dögum sögðuð
þið frá þvi i Timanum, að tvöfalt
fleiri Islendingar hefðu farizt af
slysum á þessu ári heldur en á
sama tima i fyrra og eina vikuna
rak hver fréttin aöra um börn,
sem farizt höfðu á voveiflegan
hátt. Og svo bættist ofan á allt
saman þetta átakanlega flugslys.
Sérleyfis- oq Reykjávik — Laugarvatn — Geysir — Gullfoss
. 1 \. um Grimsnes, Biskupstungur, Laugardal
SKemmtireroir ai|a daga — engin fri við akstur
BSI — Simi 22-300 — ólafur Ketilsson
Styrkveitingar til
norrœnna gestaleikja
Af fé þvi, sem Ráðherranefnd Norður-
landa hefur til ráðstöfunar til norræns
samstarfs á sviði menningarmála á árinu
1974, er ráðgert að verja um 643.000 dönsk-
um krónum til gestaleikja á sviði leiklist-
ar, óperu og danslistar. Umsóknir um
styrki til slikra gistisýninga á fyrra hluta
ársins 1974 eiga að hafa borizt Norrænu
menningarmálaskrifstofunni i Kaup-
mannahöfn fyrir 1. október 1973 á tilskild-
um umsóknareyðublöðum, sem fást i
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið,
18. júli 1973.
Til sölu
traktor árg 72, 55 ha,
með ámokstur-
tækjum.
Upplýsingar i sima
3-30-79.
Vestmannaeyjar
fyrst um sinn er
simanúmer mitt
99-6946
Bjarni Jónasson
flugmaður,
eyjum
Vestmanna-
.Þessi geigvænlegu tiðindi
vekja þá spurningu, hvort ekki sé
kleift að gera eitthvað meira en
gert er til þess, að hamla gegn
þvilikum voða. Er ekki skylt að
reka meiri áróður — vara fólk
rækilegar við alls konar hættum,
herða boð og bönn, sem geta kom-
ið I veg fyrir slys, og til dæmis
mismuna þeim meira en nú er
gert, sem eiga sök á bifreiða-
árekstrum, og hinum, sem ekki
eru valdir aðsliku ár eftir ár?
Mér finnst tímabært að taka
allt þetta og margt annað til at-
hugunar og endurmats. Það er að
visu of seint að byrgja brunninn,
þegar barnið er dottið ofan i. Orð-
in slys verða ekki aftur tekin. En
slysin halda áfram, börnin halda
áfram að detta i brunninn. Og það
er einmitt það, sem við verðum af
fremsta megni að vinna gegn.
Þess vegna kasta ég fram þess-
um linum, ef þú vilt birta þær,
Landfari sæll, i þeirri von, að ein-
hver, sem nokkurs má sin i þessu
efni, renni augum yfir þær og vilji
taka til umhugsunar og at-
hugunar. Slys eru ævinlega sorg-
leg, og þjóðfélagið má ekki við þvi
að missa allt þetta fólk á svona
válegan hátt, ef nokkur ráð eru til
þess að fækka slysunum.
Akurnesingur.
Hundavinafélagið
skerst í
Húsavíkurmálið
4
SKIPAUTfitRB RIKISINS
AA/s Hekla
m/s Hekla fer frá Reykjavik
miðvikudaginn 25. þ.m.
austur um land i hringferð.
Vörumóttaka föstudag,
mánudag og til hádegis á
þriðjudag til Austfjarðar-
hafna, Þór.shafnar, Raufar-
hafnar,.Húsavikur og Akur-
eyrar.
STJÓRN Hundavinafélas tslands
mótmælir harðlega ofbeldisverki
þvi, sem tveir lögreglumenn á
Húsavik frömdu á 8 ára dreng og
ungum hvolpi hans, þriðjudaginn
3. júli, s.l. þegar lögreglu-
mennirnir, annar óeinkennis-
klæddur og utan vinnutlma, óöu
inn I garð, þar sem drengurinn
var að leik með hv. Ipinum leystu
hann frá staur I nærveru
drengsins, tóku hann á brott með
sér án undangengins dóms-
úrskurðar og skutu.
Verknaður þessi ber vott um
algert virðingarleysi fyrir þeim
réttindum, sem sérhverjum
fréttunum?
Mltu fá þærheim tilþín samdægurs? Eðaviltu bíða til
næsta morguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins í dag!
Fyrstur meó
fréttimar
vtsm
islenzkum borgara eru tryggð f
stjórnarskránni, og tilraunir
lögreglumannanna til þess að
réttlæta þessa andlegu
misþyrmingu á barninu með
skipunum frá handhafa dóms-
valdáins á staðnum er háðung við
islenzkt réttarfar.
I lögum þeim, sem heimila
bæjarstjórnum og sveitarfélögum
að takmarka eöa banna hunda-
hald, eru skýr ákvæði um opin-
bera málshöfðun gegn þeim, sem
brýtur lögin, og eru viöurlögin
sektir. Það hlýtur þvi að vekja
furðu hugsandi manna, að yfir-
völd þessara staða geti kveðið
upp sameiginlega dauðadóm yfir
öllum hundum á viðkomandi
stöðum á grundvelli reglugerða
og lögreglusamþykkta, sem
ganga miklu lengra en lögin
leyfa, eða gefið út hótunarboð um
liflát hundanna i skjóli slikra
reglugerða.
Stjórn Hundavinafélags Islands
skorar á yður, herra dómsmála-
ráðherra, að stöðva þegar I staö
þessar ómannúðlegu aðfarir að
mönnum og dýrum inafni rétt-
visinnar, á sama hátt og fyrr-
verandi dómsmálaráðherra,
Jóhann Hafstein, stöðvaði yfir-
vofandi hundadráp i Kópavogi
árið 1969. Jafnframt krefst stjórn
félagsins tafarlausrar opinberrar
rannsóknar á þessum atburði.
Ofbeldisverknaðurinn á Húsa-
vik er óhugnanlegt dæmi um
fáranleik hundabannsins og
vanmat manna á tilfinninga-
legum áverkum. Hundabönnin á
íslandi eru löngu úrelt og
óraunhæf fyrirbæri haldið er uppi
af þvermóðsku og hleypidómum,
þrátt fyrir gjörbreyttar aðstæður
og kröfur timans. Þau hafa valdið
íslandi alvarlegum álitshnekki á
erlendum vettvangi sakir
mannúðarleysis og grimmdar,
enda minna framkvæmdir þeirra
á galdraofsóknir miðalda. Þau
eru smánarblettur á islenzkri lög-
gjöf, þar sem þau meina
islenzkum borgurum sömu rétt-
indi og allar menningarþjóðir fá
að njóta og verða ekki
framkvæmd nema með broti á 8.
gr. Mannréttindasamnings
Evrópuráðsins. Þau brjdta i bága
við mannlegt eðli og munu þvi
aldrei ná tilgangi slnum, en hafa
á hinn bóginn valdið fjölmörgum
andlegum meiðslum, þótt menn
beri slik sár ekki utan á sér.
f.h. stjórnar Hundavinafélags
tslands.
Jakob Jónasson,
formaður,
VW BILALEIGAI
JóiuisaiiV'líaiisl
ARMULA 28
II 81315