Tíminn - 20.07.1973, Blaðsíða 20
Augiýsingasími
Tímans er
195»
i I i i
MERKID SEM GLEDUR
Htttumst i kaupfélaginu
GBÐI
fyrir gúöan mat
^ KJÖTIÐNAOARSTÖÐ SAMBANDSINS
írar vilja
ekki eitur
30 þúsund Líbýumenn
á leíðinni til Kaíró
NTB-Dublin — Irland mótmælti
þvi formlega i gær við Danmörku,
að Grinsted-lyfjaverksmiðjan i
Esbjerg skuli hafa fengið leyfi til
að sökkva úrgangi i Atlantshafið.
Tvö stærstu blöð írlands, Irish
Independant og Irish Press gagn-
rýndu dönskustjórninaharðlega i
gær að leyfa þetta.
Þá hafa samtök irskra sjó-
manna mótmælt og njóta þeir
stuðnings umhverfismálaráð-
herra landsins, sem vill banna
alla losun eiturefna i Atlantshaf-
ið. Skip frá lyfjaverksmiðjunni
mun nú vera á leið út á hafið með
12000 lestir af úrgangi frá verk-
smiðjunni, en nú fyrir skömmu,
lokuðu danskir sjómenn skipið
inni i Esbjerghöfn, vegna þess að
þá var áætlað að sökkva úrgang-
inum i Norðursjóinn.
NTB-Kairó — Meira en 30 þúsund
Libýumenn héldu I gær áfram
göngu sinni til Kairó, þar sem
þeir ætla að setjast niður framan
við forsetahöllina og krefjast
þess, að rfkin verði sameinuð 1.
september. Gangan, sem fer
raunar að mestu fram í bilum og
strætisvögnum, fór I gær siðdegis
framhjá hafnarborginni Beng-
NTB-Aþenu — Ungur
Palestinuskæruliði tók i
gær 17 manns i gislingu
á hóteli i Aþenu. Hann
lét fólkið laust eftir fjór-
ar klukkustundir, eftir
að honum hefði verið
lofað að fara frjálsum
ferða sinna úr landinu.
hazi og var búizt við henni að
landamærum Egyptalands I gær-
kvöhli.
Þátttakendur eru fastákveðnir i
að halda áfram alla leið til Kairó,
en egypzk yfirvöld hafa fullan
hug á að stöðva gönguna i hafnar-
bænum Mersa Matruh, sem er
um 190 km. innan landamæranna.
Maðurinn kom hlaupandi inn i
hótelið, sem er i miðborg Aþenu,
eftir að honum hafði mistekist að
sprengja i loft upp skrifstofur Is-
raelska flugfélagsins E1 Al, sem
voru yfirfullar af fólki. Hann var
vopnaður handsprengju og vél-
byssu.
Þegar hann hafði sleppt gislun-
um, varhonum ekið út á flugvöll i
bifreið Irakska ambassadorsins.
Hann hafði hótað að skjóta gisl-
Samkvæmt fréttum frá frétta-
stofu Mið-austurlanda, mun þess
verða farið á leit við Libýumenn-
ina, að þeir velji 100 manns úr
hópnum til að afhenda Sadat for-
seta skjal með kröfunum. Libýu-
menn munu skrifa skjalið með
blóði, en ekki er vitað, hvort 100-
menningarnir eiga að fá að fara
alla leið til Kairó með það.
ana hvern eftir annan, ef griski
aöstoðarforsætisráðherrann
Pattakos, kæmi ekki i eigin per-
sónu og veitti honum ferðafrelsi.
Pattakos neitaði að koma og þá
voru það irakski ambassadorinn
og egypski sendifulltrúinn, sem
töluðu um fyrir skæruliðanum.
Meðal gislanna voru tveir yfir-
menn i lögreglunni og bandarisk
hjón, en hitt vóru Grikkir, þar af
þrjú börn.
Mistókst sprenging
-hótaði að myrða 17
Morðið í Fort Lauderdale:
Það var
bara spaug!
NTB-Washington — Sam
Ervin, formaður Watergate-
nefndarinnar, tilkynnti I gær-
kvöidi, að Nixon hefði sam-
þykkt, að opinbcraðar yrðu
segulbandsspólur með sam-
tölum hans við Dean og fleiri
ráðgjafa.
Skömmu slðardró Ervin til-
kynninguna til baka og sagði,
að þetta væri vitleysa. Þarna
hefði verið prakkari á ferð
með gróft spaug.
Konan ætlaði að
bregða sér til
vinkonu sinnar
Lykillinn stóð í hurðarskránni og
hundurinn fannst í bílnum
NANARI fregnir hafa fengizt af
hinum óhugnanlega atburði, er
islenzk kpna var myrt I Banda-
rikjunum fyrir fáum dögum. Fort
Lauderdale, þar scm bún átti
heima, er smábær I grcnnd við
Miami, og þar hafa hvorki meira
né minna cn tuttugu konur veriö
myrtar á skömmum tima, allar
með svipuðum bætti. Itikir mikil
skelfing á þessum slóðum, og er
enginn óhultur um sig.
Sú missögn var i fréttinni, sem
blaðið fékk frá sendiráðinu i
Washington I fyrrakvöld, að kon-
an hefði ekki látiö mann sinn vita
hvert hún ætlaði, er hún fór út um
kvöldið. Þvert á móti er kunnugt,
að hún ætlaði til vinkonu sinnar,
sem átti heima um tiu minútna
akstur frá heimili hennar. Virðist
hún hafa verið gripin við hús-
dyrnar heima hjá sér, því að lyk-
illinn stóð i hurðarskránni. Hund-
ur, sem hún átti og ætlaði að hafa
með sér fannst lifandi i bilnum.
Þessir atburðir hafa eins og áð-
ur er sagt vakið mikla skelfingu,
og hefur mikið verið frá þeim
sagt i sjónvarpi og blöðum vestra
eins og að likum lætur. Morðing-
inn eða morðingjarnir virðast
alltaf haga sér eins. Sér ekki á
likum fórnarlamba þeirra, nema
hálsinum, og hefur lögreglan
staðiö ráðalaus uppi fram að
þessu. En á ferli eru óþekktir
menn, sem grunur hvilir á. Hefur
annar hringt dyrabjöllum um
miðja daga og beðið um vatns-
glas, en hinn virðist vera á ferli á
kvöldin. Að sjálfsögðu er þessara
manna og annarra, sem við þetta
kynnu að vera riðnir, leitað af
kí;ppi, þótt sú leit hafi ekki borið
árangur fram að þessu, þrátt fyr-
ir siendurtekin glæpaverk. Er þvi
ekki enn séð, hvenær þessari
óhugnanlegu morðöldu linnir.
Getty vill
ekki borga
Koma fingurnir í pósti?
NTB-Róm — Gail Harris, móðir
Pauls Getty III, sem hefur verið
rænt, sagði i gær, að hún hafi
fengið hótum um að fingur verði
höggvinn af drengnum og sendur
henni til sönnunar.
Afi drengsins, oliumilljarða-
mæringurinn Paul Getty segist
ekki munu greiða lausnargjaldið
fyrir drenginn undir nokkrum
kringumstæðum.
— Mér er vel við strákinn, en ég
er á móti þvi að borga peninga,
segir gamli maðurinn. — Ef Paul
bæði mig um aðstoð i einhverju
skynsömu máli, fengi hann hana,
en ef honum hefur verið rænt, er
það lögreglumál.
MEÐ VEIZLU
í FARANGRINUM
',' ' í IIMS
|
^Auglýsmgadeild
Híttumst í haupfélagínu