Tíminn - 03.08.1973, Side 6
6
TÍMINN
Föstudagur 3. ágúst 1973.
Auglýsing
Skoðun fer fram sem hér segir:
Gerðahreppur:
Mánudagur
Þriðjudagur
Skoðun fer fram við barnaskóiann.
Miðneshreppur:
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Skoðun fer fram við Miðnes h.f.
13. ágúst
14. ágúst
15. ágúst
1G. ágúst
Njarðvikurhreppur og Hafnahreppur:
Föstudagur
Mánudagur
Skoðun fer fram við samkomuhúsið Stapa.
17. ágúst
20. ágúst
Grinda vikurhreppur:
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Skoðun fer fram við barnaskólann.
Vatnsleysustrandarhreppur:
Fimmtudagur
Skoðun fer fram við frystihúsið I Vogum.
Seltiarnarneshreppur:
Föstudagur
Mánudagur
Skoðun fer fram við fþróttahúsið.
21. ágúst
22. ágúst
23. ágúst
24. ágúst
27. ágúst
Mosfells- Kjalarnes- og Kjósarhreppur:
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Skoðun fer fram við Hlégarð i Mosfellssveit.
28. ágúst
29. ágúst
30. ágúst
31. ágúst
Hafnarfjörður, Garða- og Bessastaða-
hreppur:
Föstudagur 7. sept. G- 1-200
Mánudagur 10. sept. G- 201-400
Þriðjudagur 11. sept. G- 401-600
Miðvikudagur 12. sept. G- 601-800
Fimmtudagur 13. sept. G- 801-1000
Föstudagur 14. sept. G-1001-1200
Mánudagur 17. sept. G-1201-1400
Þriðjudagur 18. scpt. G-1401-1600
Miðvikudagur 19. sept. G-1601-1800
Fimmtudagur 20. sept. G-1801-2000
F'östudagur 21. sept. G-2001-2200
Mánudagur 24. sept. G-2201-2400
Þriðjudagur 25. sept. G-2401-2600
Miðvikudagur 26. sept. G-2601-2800
Fim mtudagur 27. sept. G-2801-3000
Föstudagur 28. sept. G-3001-3200
Mánudagur 1. okt. G-3201-3400
Þriðjudagur 2. okt. G-3401-3600
Miðvikudagur 3. okt. G-3601-3800
Fimmtudagur 4. okt. G-3801-4000
Föstudagur 5. okt. G-4001-4200
Mánudagur 8. okt. G-4201-4400
Þriðjudagur 9. okt. G-4401-4600
Miðvikudagur lO.okt. G-4601-4800
Fimmtudagur 11. okt. G-4801-5000
Föstudagur 12. okt. G-5001-5200
Mánudagur 15. okt. G-5201-5400
Þriðjudagur lG.okt. G-5401-5600
Miðvikudagur 17. okt. G-5601-5800
Fimmtudagur lS.okt. G-5801-6000
Föstudagur 19. okt. G-6001-6200
Mánudagur 22. okt. G-6201-6400
Þriðjudagur 23. okt. G-6401-6600
Miðvikudagur 24. okt. G-6601-6800
Fimmtudagur 25. okt. G-6801-7000
Föstudagur 26. okt. G-7001-7200
Mánudagur 29. okt. G-7201-7400
Þriðjudagur 30. okt. G-7401-7600
Miðvikudagur 31. okt. G-7601-7800
Fimmtudagur 1. nóv. G-7801-8000
og þar yfir.
Skoðun fer fram við bifreiðaeftirlitið
Suðurgötu 8.
Skoðað er frá kl. 8.45-12 og 13-17 á öllum
áðurnefndum skoðunarstöðum.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full-
gild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að ljósatæki
hafi verið stillt, að bifreiðaskattur og vátryggingariðgjöld
ökumanna fyrir árið 1972 séu greidd og lögboðin vátrygg-
ing fyrir hverja bifreið sé i gildi. Hafi gjöld þessi ekki ver-
ið greidd eða ljósatæki stillt, verður skoðun ekki fram-
kvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd.
Gjöld af viðtækjum i bifreiðum skulu greidd við skoðun.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á rétt-
um degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um-
feröalögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin
úr umferð, hvar sem til hennar næst. — Geti bifreiðaeig-
andi eða umráðamaður bifreiðar ekki fært hana til
skoðunar á áöur auglýstum tfma, ber honum að tilkynna
það.
Athygli skal vakin á því, aö umdæmismerki bifreiða skulu
vera vel læsileg og er þvi þeim, er þurfa að endurnýja
númeraspjöld bifreiða sinna ráðlagt að gera það nú þegar.
Eigendur reiðhjóla með hjálparvél eru
sérstaklega áminntir um að færa reiðhjól
sin til skoðunar.
Þetta tilkynnist hér með öllum sem hlut
eiga að máli.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Sýslumaðurinn i Gullbringu-
og Kjósarsýslu, 31. júli 1972.
Einar Ingimundarson.
Aðstoð íslands við þróunar-
löndin tekur til starfa í
félagi við önnur Norðurlönd
ÓV-Reykjavík: Hver vill fara til
Tanzaniu eöa Kenýa fyrir skatt-
frjáls hundrað þúsund á mánuði?
Hver vill fá ókeypis húsnæði I tvö
ár? Hver vill fá friar ferðir fyrir
sig og fjölskyldu sina fram og til
baka til annars hvors þessara
landa? Þessu kostaboði fylgir að
vfsu sá böggull, að viðkomandi
þarf að vera hæfur til að vinna að
framkvæmd norrænnar leiðbein-
ingarstarfsemi um samvinnu-
rekstur í þessum löndum.
Það er stofnunin „Aöstoð ts-
lands við þróunarlöndin”, sem
auglýsir eftir hæfu fólki i 24 stöð-
ur — en um leið er sams konar
auglýsing birt á öörum Norður-
löndum og er sótzt eftir fólki i 12
stöður i hvoru landi. Alls ekki er
vist, að íslendingar verði ráðnir
og að sögn stjórnarmanna i „Að-
stoð tslands við þróunarlöndin”,
þá óttast þeir helzt aö enginn hér-
lendur fáist til að sækja um.
tsland hefur nýverið gerzt aðili
aö samnorrænni áætlun um
nefndan samvinnurekstur i
Kenýa og Tanzaniu en yfirstjórn
áætlunarinnar er i höndum
Danida, dönsku þróunarlanda-
stofnunarinnar. Nú er auglýst eft-
ir fólki til starfa suður þar — en
hugsjónafólk, sem ekki hefur afl-
að sér töluverðrar sérþjálfunar,
getur alveg eins hætt að hugsa um
máliö, þvi samkvæmt auglýsingu
frá islenzku þróunaraðstoðar-
stofnuninni eru stöðurnar eftir-
farandi:
NIu fyrir leiðbeinendur um
rekstur og skipulagningu sam-
vinnufyrirtækja, þrjár fyrir leið-
beinendur um reikningsfærslu,
fjórar fyrir leiðbeinendur um
bankarekstur I dreifbýli, þrjár
fyrir kennara I viðskiptagreinum,
þar af ein staða við bréfaskóla,
ein fyrir leiðbeinanda um sam-
Rafstilling
Kafstilling hefur
opnað að
Dugguvogi 19.
Viðgerðir á rafkerfum bif-
reiða.
Simi á vcrkstæði
8-49-91.
Ileimasimi 3-23-85.
BiLASALA
TIL SÖLU:
VOLVO 144 ’72
VOLKSWAGEN ’72
FIAT 125, Berlina ’71
VAUXHALL VIVA ’70
TAUNUS 17 M ’70
FIAT 850 ’71
— BiLASALA —i BÍLA-
SKIPTI —BILAKAUP -
OPIÐ VIRKA DAGA 6-10 e.h.
LAUGARDAGA 10-4 e.h.
BILLINN BILASAIA
AÍÓP
HVERFISGÖTU 18-simi 14411
vinnutryggingar, þrjár fyrir
ráðunauta stjórnvalda um
áætlanagerð og skipulagningu og
er til þeirra starfa krafizt há-
skólaprófs i viðskiptafræði eða
hagfræði og loks ein staða, þar
sem krafist er háskólaprófs i töl-
fræði.
Umsækjendur skulu vera vel
mælandi á enska tungu, þar sem
leiöbeiningarstarfsemin fer fram
á þvi máli. 1 auglýsingunni segir
einnig, að æskilegt sé, að um-
sækjendur hafi um skeið starfað i
þágu samvinnufélaga hér á landi,
þótt það sé ekki skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 23.
ágúst næstkomandi, en nánari
upplýsingar er að fá á skrifstofu
stofnunarinnar (Aðstoð tslands
við þróunarlöndin) á Lindargötu
46, 2. hæð, herbergi 12, þar sem
opið er á miðvikudögum og föstu-
dögum kl. 13-16. Umsóknir skulu
siðan sendar „Aðstoð Islands við
þróunarlöndin”, pósthólf 4065,
Reykjavik.
Þeir, sem hljóta stöðurnar,
munu siðan taka þátt i þjálfunar-
námskeiði I byrjun næsta árs, lik-
lega I Danmörku. Ráðningartimi
er 2-2 1/2 ár og tekur gildi frá
næstu áramótum, en árslaunin
eru, sem fyrr segir, 1 milljón og
258 þúsund krónur, miðað við nú-
verandi gengi bandarikjadals eða
14.000 dollarar.
Aðstoð við heyrnar
daufa úti á landi
FÉLAGIÐ Heyrnarhjálp sendir
að venju fólk til aðstoðar heyrn-
ardaufum út um land og verður
farið um Austur- og Norðurland
nú i ágúst.
Að þessu sinni verður læknir
með i förinni, og er það i fyrsta
sinn, að félagið hefur átt þess kost
að fá lækni með i slíka ferð. Er
það Einar Sindrason, sem stund-
ar sérnám i háls- nef- og eyrn-
lækningum i Alaborg, er þetta
tekst á hendur.
Að venju verður fólki veitt að-
stoð i sambandi við notkun og val
heyrnartækja og heyrn mæld.
Skal fólki sérstaklega bent á að
nota þetta tækifæri til að láta
heyrnarmæla börn, leiki grunur
á, að um heyrnardeyfu sé að
ræða.
A undanförnum árum hafa orð-
iö miklar framfarir i gerð heyrn-
artækja og mikilvægt er fyrir
fólk, sem fengið hefur heyrnar-
tæki, en hefur ekki getað felit sig
við þau, að láta athuga hvort
nýrri gerðir tækja geta komið þvi
að notum.
Ávallt eru einhver brögð að þvi,
að sjúklingar leggi tæki sin til
hliöar vegna smávægilegra byrj-
unarörðugleika eða vöntunar á
leiðbeiningum, og vill félagið ein-
dregið hvetja það fólk til að leita
sér frekari aðstoðar.
Félagið Heyrnarhjálp hvetur
alla, sem vinna i miklum hávaða,
til að láta fylgjast með heyrn
sinni svo sem kostur er og láta
ekki hjá liða að nota heyrnarhlif-
ar við slik vinnuskilyrði. Minnt
skal á, að heyrnarskemmdir af
völdum hávaða eru óbætanlegar.
H.S.
Engin áfengisneyzla í
skemmtiferðalögum
EIN MESTA ferðahelgi ársins
— verzlunarmannaheigin — er á
næsta leiti. Eftir þjóðvegunum
þjóta þéttar fylkingar bifreiða,
með konur og karla, unga og
aldna.
1 slikri umferð, sem reynsla
liðinna ára, hefur sýnt að er um
þessa helgi og eykst ár frá ári,
er eitt boðorð öðru æðra: —
öryggi — en að það boðorð sé
ekki brotið, getur gætnin ein
tryggt.
Það eru ömurleg ferðalok
hvildar- og fridags, þeim sem
veröur, vegna óaðgæzlu, valdur
að slysi á sjálfum sér, ástvinum
sinum, kunningjum eöa sam-
ferðafólki Sá, sem valdur er að
sliku, biður þess aldrei bætur.
Einn mestur bölvaldur i
nútima þjóðfélagi, með tilliti til
margþættrar og siaukinnar
vélvæðingar, og þá ekki hvað
sizt i hinni miklu umferð á
hátiðar- og fridögum, er
áfengisneyzlan.
Það er dæmigert ábyrgðar-
leysi, á hæsta stigi, að setjast að
bilstýri undir áhrifum áfengis.
En dæmi þar um og afleiðingar
þess, eru hins vegar þvi miður
deginum ljósari og birtast oft i
hryllilegum dauðdaga eða lifs-
tiðarörkumli.
Áfengisvarnarnefnd Reykja-
vikur skorar á alla þá, sem nú
hyggja á feröalög um þessa
verzlunarmannahelgi, að sýna
og sanna umgengismenningu
jafnti umferð sem á dvalarstöð-
um, svo sem frjálsbornu og sið-
uðu fólki sæmir.
En þvi aðeins verður það, að
hafnað sé allri áfengisneyzlu i
skemmtiferðalögum.
(Frá Afengisvarnarnefnd
Reykjavikur).
Fjölbreytt
HÚSAFELL
1973
og samfelld skemmtidagskrá í tvo daga!
Eitthvað fyrir alla, unga og gamla!
Dans á þremur pöllum þrjú kvöld i röð!
Sex hljómsveitir!
Sparið ykkur áfengiskaupin,
njótið öryggis og ánægju!
Sumarhátiðin Húsafelli.