Tíminn - 03.08.1973, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Föstudagur 3. ágúst 1973.
AUKAATRIÐI
AÐALATRIÐI
„Alltaf öftru hverju veröa á vegi ökumanna hæöir, beygjur, ræsi og brýr. Þá veröur aö meta aöstæöur,
en til þess aö vera viö öllu búinn er langbezta úrræöiö aö draga úr ferö áöur en aö þessum stööum er
komiö”.
ÞAÐ ER víst sama hvert
menn snúa sér þessa
dagana, alls staðar kveður
við sama tóninn, fólk spyr
hvert annað sömu spurn-
ingarinnar: ,,Hvert á að
fara um verzlunarmanna-
helgina?". Og svörin eru
misjöfn eins og fólkið, en
markmiðiðerþaðsama hjá
öllum, sem sé að skemmta
sér. Unglingarnir miða
flestir að því að komast f
eitthvert f jör þar sem hægt
er að skemmta sér eins og
sál og líkami leyfa, f jalla-
geitur athuga bakpoka eða
jeppana og foreldrarnir
reyna að upphugsa ein-
hvern rólegan stað, sem
þeir hafa ekki komið lengi
á, til þess að geta verið í ró
og spekt með börnin sín. En
allt þetta fólk er þátttak-
endur í hinni miklu umferð
helgarinnar, og þó að það
líti margt hvert aðeins á
hana sem aukaatriði,
aðeins sem tengilið milli
brottfararstaðar og
ákvörðunarstaðar, verður
þar að sýna meiri varúð en
annars staðar. Þessi
„aukaþáttur" getur hæg-
lega orðið til þess að binda
endi á annars ánægjulega
ferð.
Vlst er þaö vföa, sem mannsllf
eru I veöi en ef hugaö er aö feröa-
lagi I bifreiö nú um verzlunar-
mannahelgina, getur llf feröa-
fólksins veriö komiö undir
ástandi hennar. Hvaö þarft þú aö
gera til þess aö auka líkurnar fyr-
ir þvl aö skila þér og þinum far-
þegum aftur heilum heim? Svariö
getur aldrei oröiö 100%, en ef
fylgt er nokkrum grundvallar-
atriöum eru all sterkar llkur fyrir
aö ljúka feröinni meö óskemmda
bifreiö og heilan farm.
Aður en lagter af stað
Fyrst skal þá nefna skoöun bif-
reiðarinnar sjálfrar, þvi á henni
mæöir mikið. Athuga þarf vand-
lega öryggisbúnaö hennar,
hemla, stýri, hjólabúnaö og loft I
hjólbörðum, einnig ljós, rúöu-
sprautu, oliu, eldsneyti o.fl. Þetta
er ekki mikil vinna ef hún er unn-
in markvisst. Þá er aö athuga
hvort ýmis verkfæri og varahlutir
séu meö og I lagi: Lyftari, skrúf-
járn og lyklar, viftureim,
kveikjulok, kveikjuhamar,
platinur og kerti, og ekki má
gleyma varahjólinu. Ofhleðsla
getur breytt aksturseiginleikum
bifreiöarinnar og þvi riöur á aö
hlaöa hana rétt. Þá er ekkert eftir
annaö en að setjast inn, börnin I
aftursætið og fulloröna fólkiö
fram i með spennt bilbelti.
Ferðin
er hafin
Fyrsta atriði, sem stilla þarf á
áður en bifreiöin er gangsett, er
auðvitað feröaskapiö, þaö má alls
ekki vanta. Og þegar komiö er út
úr þéttbýlinu, liggur þjóðvegur-
inn framundan og þá er aö velja
ökuhraðann. Hann skal valinn
með hliðsjón af ástandi vega og
umferöinni og haga honum ávallt
þannig, að sem minnst verði um
framúrakstur. Sem sé, eðlilegur
og góður umferðarhraöi, hvorki
of hratt né of hægt. Hvað gerist
svo ef bifreiö kemur á móti? Ekk-
ert að óttast, ef rétt er aö farið.
Vist má búast við steinkasti, en
ekki þarf að kasta grjóti llka.
Bezt er að draga úr ferð, vikja vel
til hægri og gefa ekki inn aukið
benzin fyrr en mæting hefur farið
fram. Ósköp einfalt, ekki satt? Og
alltaf öðru hverju verða á vegi
ökumanna blindhæðir, beygjurv,
ræsi eða brýr. Þá verður að meta
aðstæður, en til þess að vera við
öllu búinn er langbezta úrræðið að
draga úr ferð áður en að þessum
hættustöðum er komið. Það er
sem sé ýmislegt, sem varast ber,
en ef ábyrgðartilfinningin og til-
litssemin hefur ekki gleymzt á
eldhúsborðinu, þá ætti allt að
ganga að óskum.
Til vonar
og vara
Að lokum nokkur minnisatriði I
samanþjöppuðu máli:
1. Aður en lagt er af stað, þarf að
athuga bifreiðina vel, öryggis-
útbúnað, loft I hjólbörðum,
hvort bifreiðin sé rétt hlaðin
o. s.frv.
2. I akstri eiga bilbeltin að vera
spennt og börnin að sitja I
aftursæti.
3. Á þjóðvegunum á að halda
jöfnum hraða I samræmi við
umferðina: ekki aka of hratt og
ekki of hægt og haga akstrinum
miðaö við aðstæöur.
4. Þegar bifreiðum er mætt, þarf
að vikja vel til hægri, draga úr
ferð og gefa ekki inn aukið
benzin fyrr en mæting er af-
staðin. Með þvi minnka likurn-
ar á þvi, að brotnar séu fram-
rúður hjá öðrum.
5. Ef stanzað er éinhvers staðar,
má bifreiðin aldrei vera þannig
á veginum, að hætta geti stafað
af.
6. Verið I góðu skapi og litiö ekki á
umferðina sem kappakstur,
heldur sem skemmtilegt ferða-
lag.
GÓÐAFERÐ
GÓÐA HEIMKOMU
verzlið á 5 hæðum í -húsinu
©5
‘JIh
;@íí
m
É
fá$.
Sgf
&
w
m
-tí
uW:
m
m
'M
m
&
ggs
4
i
©c
m
m
Éb
m
m
M
m
m
Éh
sf|
§
i
sB
m
s
4
m
jm
sí
.(o);
fgi
;(o;>
ia.J'
vra
annari
hæð
Skoðið hina nýju ATON-DEILD
ATON-húsgögnin eru
sérstæð
glæsileg
°9
alíslenzk
Skoðið renndu
vegghúsgögnin
skápana og
skattholin
Engir víxlar heldur
mánaðargreiðslur með
póstgíróseðlum sem
greiða má í næsta banka,
pósthúsi eða sparisjóði
Næg bílastæði
Opið til kl. 7 í dag föstudag og til kl. 12 d hddegi laugardag
JON LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 . Sími 10-600
(Frá Umferðarráði).