Tíminn - 17.08.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.08.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Föstudagur 17. ágúst 1973, Illllll 1.. kirkjunni fótleggi eða höfuð og siðan látið skera sig upp Myndirnar eru ófáar eins og sjá má á þessari mynd þvi varla mun hægt að koma fyrir fleiri myndum, en þegar eru komnar á veggina. t kirkju einni i Brasiliu má sjá gervifætur, handleggi, höfuð og ýmsa aðra likamshluta hanga niður úr loftinu allt i kring um ljósakrónurnar. Hér er um að ræða fórnir frá fólki, sem hefur verið i þann veginn að gangast undirstórar og smáar aðgerðir hjá læknum. Allt virðist benda til þess, að þegar bænin og siðan leikni skurðlæknisins sameinist megi ná góðum árangri og lækning sé vis, að þvi á veggjum kirkjunnar eru myndir af öllum þeim, sem náð hafa heilsunni eftir að hafa fært Á erfitt með að ákveða sig Kissinger ráðgjafi Nixons Bandarikjaforseta er sagður eiga mjög erfitt með að ákveða sig i kvennamálum, og hann er vist ekki við eina fjölina felldur þar. Hann skiptir stöðugt um vinkonur, og á sjaldnast sömu vinkonuna lengi. Hér er hann þó með einni, sem hann hefur látið sjá sig með alltaf annað veifið undanfarin ár. Það er leikkonan Jill St. John. Þau hafa verið vinir i nokkuð mörg ár, en litið sézt saman á milli. Kissinger er sérlega hrifinn af leikkonum, og vill gjarnan hafa þær með sér, þegar hann er úti að skemmta sér. Lincoln, sagði frúin Ó, sjáðu Abraham Lincoln! hrópaði amerisk kona, sem var á ferðalagi i Noregi, þegar hún kom til Eidsbugarden. Þar við hliðina á hótelinu stendur nefni- lega mannhæðarhá grásteins- mynd af mannsandliti. En eins og greinilegt er af myndinni er þetta ekki Abraham Lincoln, heldur sá Vinje, sem fyrstur manna byggði sér ból þar i Jötunheimum. DENNI DÆMALAUSI Þú kannt sannarlega ráð til þess að eyðileggja helgarnar fyrir manni mamma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.