Tíminn - 17.08.1973, Page 8
8
TÍMINN
Föstudagur 17. ágdst 1973.
Gerð nýs þjóðveg-
ar um Norðurórdal
í aðsigi > hefst næsta sumar
MARGIH eru orftnir langþreyttir
á krókunum á þjóðveginum i
Norðurárdal, þar sem sums
staðar er ekið fyrir klettanef, er
byrgja með öllu sýn fram á
veginn. En það er viða, sem vega-
bætur eru aðkallandi, og ekki
verður allt i cinu gert. Og nú
verður senn hafi/.t handa um ný-
byggingu þjóðvegarins i
Norðurárdal, og þegar svo stend-
ur á, tekur þvi ekki að gcra
minni háttar lagfæringar.
— Vegagerð i Norðurárdal er á
vegaáætlun árin 1974 og 1975,
sagði Rögnvaldur Jónsson verk-
fræðingur, er Timinn átti tal við
hann i Borgarnesi, og nú um
mánaðartima hefur flokkur
manna verið að mælingum á
þessum slóðum, állt frá Hreða-
vatni og fram að Króki.
Þessar mælingar verða grund-
völlur ákvörðunar um vegarstæð-
ið, og verður það endanlega
ákveðið i haust eða vetur, þegar
ölium gögnum hefur verið safnað,
rætt við bændur i dalnum og
samið við þá um landspjöll, sem
vegágerðinni kunna að fylgja.
Yfir ræktað land þarf annars litið
að fara i Norðurárdal.
Segja má, að vegurinn verði i
stórum dráttum á svipuðum stað
og hefur verið, nema beinni að
sjálfsögðu, og svo hagað til, að
vatnsflóð og snjóalög torveldi
miklu siður umferð en áður.
Samkvæmt vegaáætluninni á
að byrja á nýjum kafla innan frá
Hvammi og niður fyrir Hreims-
staði og gera nýja brú á Bjarnar-
dalsá i stað tveggja gamalla, sem
þar eru nú. Annars verður vega-
áætlunin sjálf endurskoðuð
næsta vetur, og þeirri endurskoð-
un kunna að fylgja nýjar
ákvarðanir um verkhraða.
-J.H.
ÍBÚAR GETA EKKI FLUTT
INN I FULLGERÐ HÚSIN
— því hitaveitan hefur enn ekki verið lögð
„OKKUR VAR sagt að hitaveitan
yrði komin i hverfið i byrjun júli
mánaðar. Siðan varð einhver töf
á þvi og þá var sagt að hún kæmi
1. september, en nú eru litlar lik-
ur á þvi að hún komi fyrr en rétt
l'yrir áramótin. Þetta hefur haft
gifurlegt óhagræði i för ineð sér,
lólk hefur ckki getað flutt inn
nema leggja út i aukaf járfestingu
upp á tugi þúsunda, fjárfestingu
sem vcrður óþörf þegar fram á
vetur kemur”.
Þetta sagði einn væntanlegur
ibúi i hinu nýja Efstalandshverl'i,
sem nú er hvað óðast að risa i
austurhluta Kópavogskaupstað-
ar, ofan Nýbýlavegar. Eins og
komið hefur fram i fréttum verð-
ur hitaveita lögð i þetta nýja
hverfi og voru gerðir samningar
um lögn hennar milli bæjaryfir-
valda i Kópavogi og Hitaveitu
Reykjavikur.
Mörg húsin I hverfinu eru þegar
orðin tilbúin til ibúðar, nema
hvað hitaveitulögnin er enn ekki
frágengin. Hafa sumir þvi tekið
þann kost að kauparafmagnstúpur
eða oliukyndingu og ætla að nota
slik hitunartæki unz hitaveitan
kernur. Þessu fylgir óhjákvæmi-
lega nokkur stofnkostnaður og
gizkaði viðmælandi blaðsins á að
hann væri um 50.000 kr. að meðal-
tali á ibúð og auk þess væri rekst-
urskostnaðurinn til muna meiri
en við hitaveituna.
Timinn hafði samband við Jón
Guðlaug Magnússon, bæjarritara
i Kópavogi og spurði hann að þvi
hvernig samningunum um hita-
veitulögnina væri háttað og hvort
bæjaryfirvöld i Kópavogi hefðu
gefið loforð um að henni yrði lokið
fyrir ákveðinn tima.
— Samningarnir eru á þá lund,
að Hitaveita Reykjavikur tók að
sér að leggja hitaveitu i þetta
hverfi og skyldi verkinu lokið fyr-
ir áramótin 1973-74, sagði Jón.
Samkvæmt samningum stendur
þvi Hitaveitan við sinn hluta
samningsins, þótt hún geri ekkert
fyrr en seint i haust, svo framar-
lega sem verkinu verður lokið
fyrir áramót. Embættismenn
kaupstaðarins hafa ekki mér vit-
anlega gefið út nein ákveðin lof-
orð um hvenær lögninni skyldi
vera lokið, heldur aðeins bent
fólki á þennan samning okkar við
Hitaveitu Reykjavikur.
— Hitt er svo annað mál, sagði
Jón, að það kann að vera að ein-
hverjir bjartsýnismenn, sem fást
við bæjarstjórnarmál I Kópavogi,
hafi sagt i einkasamtölum við
einhverja ibúanna, að þetta hlyti
að verða komið áður en þeir flyttu
inn, en slikt hefur einungis verið
þeirra persónulega skoðun, en
hvorki verið gert i nafni eða um-
boði bæjarins. —gj.
. Við velium
þaS borgcnr slg
PWM - OFN&R H/F,
< ,_____SíSumula 27 » Reykiavik
Simar 3*55-55 oq 3-42-00
Vélritunarstúlkur
Óskum eftir að ráða vélritunarstúlkur
Góð vélritunar- og íslenzkukunnátta nauðsynleg
Upplýsingar í síma 8-52-33
BLAÐAPRENT H/F
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess fáið
þér frían álpappír með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville í alla einangrun.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
JIS
JÚN LOFTSSON HF.
Hringbrout 121 . Sími 10-600
Lúðuveiði i Breiðafirði. Konráð Júliusson aðstoðar stangveiðimenn.
Fyrsta stórlúðu-
mótið á íslandi
ÞANN 1. sept n.k.er fyrirhugað
stór-lúðumót i Breiðafirði og
munu taka þátt i þvi tólf útlend-
ingar og álika margir félagar úr
Sjóstangafélagi Reykjavikur. Á
laugardagskvöld verða svo eitt
verðlaun fyrir stærstu lúðuna, en
þau eru gefin af Morgunblaðinu.
Útlendingarnir koma þann 25.
þ.m. og munu reyna við lúðuna i
heila viku fyrir mótið. I Stykkis-
hólmi eru nú þegar tveir Þjóð-
verjar við lúðuveiðar, blaða-
maður og gerðabókaútgefandi
ásamt Gunnari V. Jóhannssyni
forstjóra Flugfélags Isl. i Frank-
furt.
Upphaf þessa lúðu-móts i
Breiðafirði, er það, að i fyrra
sumar komu hingað blaðamenn
frá Angling Times i Bretlandi og
Illustrated Sport Magazine i
Bandarikjunum, ásamt veiðisér-
fræðingi Hardy Ltd. i Londón og
fleiri harðsnúnum stangveiði-
mönnum. Eftir þessa veiðiferð
voru menn á einu máli um, það,
að ekki fyndust betri lúðumið en
Breiðafjörður, og eftirleiðis mun
Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur
halda stór-lúðumót árlega á
Breiðafirði. _
Annað sjóstangaveiðimót er
einnig i undirbúningi, en það er
árlegt mót Sjóstangveiðifélags
Akureyrar, sem er tiu ára i sum-
ar. Þeirra mót verður laugardag-
inn 25. þ. mán. Mótið verður sett á
föstudagskvöld I Sjálfstæðis-
húsinu, siðan er róið frá Dalvik á
laugardagsmorgun og verðlauna-
afhending verður um kvöldið.
Sjóstangveiðimót þeirra Akur-
eyringa hafa alltaf tekizt mjög
vel. Veðurbliða og góður afli ein-
kenna mótin. Bátarnir við Eyja-
fjörð eru sérlega heppilegir og
stutt er á miðin.
Þeir stangveiðimenn, sem ætla
sér að taka þátt i þessum mótum,
á Breiðafirði og Akureyri, verða
strax að hafa samband við
Halldór Snorrason.
Veljið yður í hag —
Nivada
©IIII
OMEGA
Jtlpina.
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Sími 22804
úrsmíði er okkar fag
PIERPODT
Traktorsgrafa
John Deere ’65, i góðu standi, til sölu
Upplýsingar i sima 82126 og 86500.
Laus störf
Störf fangavarða við Hegningarhúsið i
Reykjavik eru laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf sendist skrifstofu Sakadóms
Reykjavikur, Borgartúni 7 fyrir 28. ágúst
næstkomandi.
Yfirsakadómari.