Tíminn - 19.09.1973, Page 10

Tíminn - 19.09.1973, Page 10
10 TÍMINN Mi&vikudagur 19. september 1973 Er nazisminn að ná tökum á fólki á ný? — eða er ástæðan sjúkleg þörf einstaklingsins , að svala ofbeldisáráttu sinni? Eftir ýmsu aö dæma virðist sem áhuginn á Hitler fari mjög vaxandi i Evrópu. Einn- ig er áhuginn mikill i Amc- riku. Li&in eru 28 ár, sí&an „Der Fiihrer” skaut sig (aö þvi er allflestir álita!) og nú „streyma” alls kyns „Hitler- bókmennntir” frá forlögun- um, kvikmyndafélögin kepp- ast um a& framlei&a Hitler- myndir og sjónvarpsþættir um Hitler eru sendir út I griö og erg. Fólk kaupir nazistatákn, hakakross, hnifa meö nazista- táknum, þýzka stálhjálma og fleira. Reyndar má ekki verzla meö þessa hjálma I Þýzkalandi, en þýzkir feröa- menn kaupa þá bara I öörum löndum, þar sem þeir eru viöa á boöstólum. „Maöurinn meö hattinn”, 1927 Ekki er hægt aö segja meö vissu, hvers vegna Hitler vek- ur skyndilega sllka forvitni. Ein skýringin getur veriö sú, aö þaö langt er liðiö frá siö ari heimstyrjöld, að bein áhrif hennar veröa trauöla merkt lengur. Þannig getur unga fólkiö i dag litiö á Hitler hrein- lega sem sögulega persónu með kostum sinum og göllum. Og hluti ungmennanna, sem er i andstööu við eldri kynslóö- ina, gagnrýnir það að dæma Hitler sem erkiglæpamann. Þess i stað kann þetta fólk að lita á hann sem „hetju, er var misskilin”, „þjóðarleiötoga, sem vildi allt hið bezta”. Þeir V-Þjóöverjar, sem taka þátt i „Hinni nýju Hitlers- dýrkun” eru að likindum aö hluta til úr hópi þessara ung- menna, en eflaust einnig að hluta úr sjálfri Hitler-kynslóð- inni. Vafalaust er enn I dag að finna þaö fólk I V-Þýzkalandi, sem litur á Hitler-timann sem hápunkt ævi sinnar, bezta tima ævi sinnar. Andnazismi I mörg ár var vestur-þýzka stjórnin mjög aktiv I þvi að bæla niður sérhvern vott um Hitlersdýrkun. Þessi stefna er enn við lýði, en hagfræðileg þróun síðari ára f landinu ásamt fleiru hefur gert daga Hitlers svo fjarlæga, að bar- áttan gegn nýnazismanum er ekki lengur svo stórt atriði hjá yfirvöldum. Það verður að viðurkennast, að hluti hinna nýju bóka og rita um Hitler eru hreint vis- indalegar, sem ekki er ástæða að fetta fingur út I. önnur rit eru eingöngu sett á markaðinn i gróðaskyni: til að svala for- vitni fólks um þennan fyrrum volduga mann, sem leiddi þýzku þjóðina út i hörmungar. Svo mikill er áhuginn i V- Þýzkalandi, að bókaforlagi einu bárust 50 þúsund pantan- ir þegar I stað, eftir aö tilkynnt hafði verið, að ný bók um Hitl- er væri i prentun. Hve „Hitler-áhuginn” er mikill i A-Þýzkalandi vita menn ekki svo gjörla, þar sem þar koma engar bækur út um Hitler. Eftir þvi sem bezt er vitað, hefur engin bók komið út i A-Þýzkalandi um ævi Hitl- ers eftir stið, enda þótt mætti imynda sér, aö sú bók gæti verið skrifuð með marxiskri gagnrýni og bókin látin vera yfirleitt á allan hátt neikvæö. Ef til vill er orsakanna að leita til þess, að valdhafana gruni, að áhuginn sé fyrir hendi, sem þeir vilja á engan hátt ýta undir. 1 fyrra höfðu komið út sam- tals 19 mismunandi bækur um Hitler i Bandarikjunum. Sett hefur verið upp leikrit þar vestra um Hitler og kvikmynd gerð um hann með heitinu „Það vorar fyrir Hitler.” „Mein Kampf" I Bretlandi, á Norðurlönd- unum og á itaiiu fer áhuginn fyrir Hitler sivaxandi. 1 Teatro Laboratorio i Feneyj- um hefur „Mein Kampf” I leikformi verið sett upp, og sjálf bókin kemur út i nýrri út- gáfu i fjölda landa, m.a. i Danmörku. Fiol-Biblioteket þar i landi gaf út „Mein Kampf” i 13 þúsund eintökum árið 1967 og eru þau nú næst- um öll uppseld. Ahuginn virð- Hitler gegnum 20 ár. Hér 32 ára flokksleiðtogi i MUnchen 1921. ist þó ekki vera svo áberandi nú, en menn minnast svo sem mótorhjólagæjanna fyrir fá- einum árum með nazista- merki sin, náunga úr sveitum „Villtu englanna”. 1 BBC-sjónvarpinu er verið að sýna mynd um Hitler i 26 þáttum. Öháða, brezka sjón- varpsstöðin ITV hefur sýnt „Dauöi Adolfs Hitlers”og ný- lega var lokið við kvikmynd- ina „Hitler — síðustu 10 dag- arnir,” þar sem hinn ágæti leikari Alec Guinness leikur „Der Fiihrer”. Maður nokkur i Bandarikj- unum keypti nýlega Mer- cedes-bifreið Hitlers fyrir nær 15 milljónir (isl. króna), sem mun vera hæzta verð, sem Rikiskanzlari 1937 nokkurn tima hefur verið gefið fyrir notaðan bil. A uppboði i Miinchen fór frumrit að ræðu eftir Hitler á um 60 þúsund . krónur og árituð mynd af leið- toganum á um 75 þúsund. „Ég sá Hitler7' í bókunum um Hitler er far- ið misjöfnum höndum um efn- ið. Sumir höfundanna, eins og Walter Kampowski, hafa far- ið þá leið að hafa eftir fjölda fólks ummæli þeirra um þau áhrif, sem „Der Fuhrer” hafði á þaö. Þar koma lýsingar eins og þessi: „... og þar kom lest harðvopnuð i bak og fyrir. Lúxusvagninn var úr gleri og þar inni sat Hitler og át epli. Augu hans voru heiðblá....” Sumir rithöfundar reyna að vinna heimildirnar um ævi Hitlers alveg upp á nýtt, og forlög, sem ekki hefur tekizt að ná i „Hitler-höfunda” gefa gamlar bækur um hann út á ný, eins og til dæmis bók brezka sagnfræðingsins Hugh Trevor-Ropers „Síöustu dagar Hitlers,” hina sálfræðilegu greinargerð Langers um Hitl- er, sem gerð var fyrir banda- risku stjórnina i striðinu og loks má nefna bók Gerhardt Boldts „Si&ustu tlu dagarnir”. Gefin hafa verið út söfn efÞ irlikinga af höfuð málg. naz- ista á sinum tima, „Völkischer Beobachter,” og fyrirtæki eitt hefur sent frá sér sex kvikmynda„kasettur” („súper-8”) með kvikmynd Erwin Leisers, er gerð var uppúr „Mein Kampf”.Þannig er hægt að telja áfram. Þessi vara selzt vel og vaxandi. Meðal athyglisverðustu bóka um Hitler, er komið hafa út, má telja bók Werner Mas- ers, er heitir þvi óskáldlega nafni „Ævisaga Hitlers”. 1 þeirri bók koma fram margar nýjar upplýsingar, sem höf- undurinn hefur grafið upp. Þær leiða meðal annars i ljós, að lýsing Hitlers á sér ungum sem bóhema, atvinnuleys- ingja og bláfátækum manni i Vin á að nokkru leyti við alls engin rök að styðjast. Hitler hafði i rauninni, upplýsir Mas- er, allgóðar vaxtatekjur af fé látinna foreldra sinna, þegar hann var 17 ára. Og hann svindlaði reyndar á yfirvöld- um með þvi að lýsa systur sina, Paulu, tveim. árum yngri, en hún var i reynd. Ot á það náði hann ýmsum friðind- um handa henni. 1 Vin slæptist Hitler og nennti ekki að búa sig undir upptöku i listaakademiuna, en vilaði ekki fyrir sér að stofna til kunningsskapar við áhrifa- rika menn, sem gætu orðið til að koma honum inn. Um tima hafði hann einn vin sinn, Gyð- ing (!) i þvi að selja vafasöm málverk sin. Af þeim tekjum framfleytti hann sér tima og tima, er fyrrnefnt fé hrökk ekki til, enda þótt það væri all- mikið. Og þegar kalla átti hann i herinn, flýði hann til Þýzka- lands og skýrði blátt áfram frá þvi við vin sinn, að það væri heimskulegt að láta taka sig i herinn, þegar hægt væri að komast undan þvi. Seinna full- yrti hann opinberlega i bók sinni „Mein Kampf”, að flótti sinn hefði stafað af þvi, að hon- um hefði fundizt virðingu sinni sem þýzkum borgara misboð- ið með þvi að láta taka sig i keisaraherinn, þar sem hann væri „Babýlonskynflokkur”. Bók Masers e'r eitt af þvi mik-- ilvægasta, er fram hefur kom- ið með hinni nýju bylgju. Mas- er var austur-þýzkur borgari og starfaði við Humboldt- háskólann i A-Berlin, þar til hann flýði vestur fyrir múr- inn. Hafði hann þá i fórum sin- um þau gögn, sem hann nú hefur gert opinber i bók sinni og umbylta allmjög öllum fyrri „Hitler-bókmenntum”. Hinn snemmaldni Hitler með gleraugu, 1942. Að svala leyndri áráttu Sumir visindamenn, sagn- fræðingar og fleiri, hafa látið það álit I ljós, að ýmisl. i naz- ismanum höfði til vissra „tendensa” i fólki, er komi i ljós á ýmsan hátt. Benda þeir á sem dæmi herinn. I hinum vestræna heimi er hernaðar- sigur talinn gefa til kynna, að hermennirnir eða stjórnendur hans séu duglegir, en ósigur hið gagnstæða. Þetta hefur m.a. leitt til þess, að harð- neskja og ruddaskapur i hern- aði (og fleiri sviðum) fer stöð- ugt vaxandi. Ofbeldið laðar menn og þeir fá leyndum fýsn- um sinum eða áráttu fullnægt meira og minna. Þessa sama leita menn i nazismanum, óafvitandi. Fyrir nazistana gilti að vera harðir og sterkir og berja á lit- ilmagnanum. Það var næg sönnun þess, að þeir væru miklir menn. Þá koma bönnin inn i myndina. Menn mega ekki lýsa þvi yfir opinberlega, að þeir séu nazistar. Þá kemur nazisminn sem söluvara til. Menn lesa æsibækur, um það, sem SS-mennirnir gerðu, kaupa hakakrossa og safna öðrum nazistatáknum. Þetta geta menn gert óáreittir. Þess vegna er „hin nýja nazista- bylgja” liður i laumuspilinu með leyndar ofbeldistilhneig- ingar. Það má bæta þvi við i lokin, að á siðastliðnum vetri komst undirritaður af tilviljun á snoðir um „samtök” ung- menna hér i borg, sem aðhyll- ast og dýrka nazismann „gamla”. Höfðu þeir i hyggju að stofna sérstakan flokk um málefnið, að þvi er einn istinn sagði. Annars vildi hann helzt ekkert um málið segja. Lét hann þess þó ummælt á tæpi- tungu, að „samtökin” (hve stór og öflug sem þau nú eru) „stæðu á bak við ýmsa óknytti” i borginni, svo sem likamsárásir og innbrot. Um sannleiksgildi þessa er ekki vitað, en hjá umræddum virt- ist nazistaandinn alla vega vera til staðar. —Stp— (tók saman)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.