Tíminn - 12.10.1973, Blaðsíða 1
\
fóðurvörur
ÞEKKTAR
UM
LAND
ALLT
ÍWmWFTLBOfí]
SUNDLAUGIN
er eitt af mörgu, sem „Hótel Loftleiðir
hefur til sins ágætis og umfram önnur
hótel hérlendis. En það býður llka afnot
af gufubaðstofu auk snyrti-, hárgreiðslu-
og rakarastofu.
VISIÐ VINUM A HÖTEL
LOFTLEIÐIR.
Fjárlagafrumvarpið fyrir 1974 lagt fram í gær:
Þáttaskil í framkvæmd
byggðasMnu
Nýmæli í gerð frumvarpsins,
að fjárlög og framkvæmdaáætlun
eru sameinuð
TK—Reykjavik. — Frumvarp til
fjárlaga fyrir árið 1974 var lagt
fram á Alþingi i gær, og hefur það
inni að halda margvislegan fróð-
leik, svo sem venja er um fjár-
lagafrumvarp. Þess er fyrst að
geta, að uppsetning á fjárlaga-
frumvarpi er nú breytt frá þvi
sem áður hefur verið, þar sem nú
er sameinaö inni i fjárlagafrum-
varpinu fjárlög og framkvæmda-
áætlun rikisstjórnarinnar, en
fram til þessa hefur þar veriö um
sérstaka lagasetningu að ræða.
Betri heildaryfirsýn
og aukin áhrif f jár-
veitinganefndar
Astæðan til þessarar breyting-
ar er sú, að þessir tveir megin
þættir i rikisbúskapnum eru felld-
ir saman i fjárlagafrumvarpinu.
Bóndinn á Særings-
stöðum i Vatnsdal varð
fyrir tilfinnanlegu tjóni i
fyrrinótt, þegar hann
missti átta kýr af völd-
um raflosts.
Þaö var heldur ófögur sjón,
sem blasti við heimilisfólkinu á
Særingsstöðum, þegar það kom út
i fjós á miðvikudagsmorguninn.
Atta af tólf kúm bóndans höföu
drepizt af raflosti um nóttina.
Talið er aö rafleiösla, sem lá út i
Með þessu móti fæst betri
heildaryfirsýn yfir rikisbúskap-
inn, og með þessu móti vinnur
fjárveitingarnefnd Alþingis að
heildarmeðferð rikisfjármála,
bæði til rekstrar og framkvæmda,
hvort sem um beinar fjárveiting-
ar er aðræða eða lán vegna fram-
kvæmdanna, eins og átt hefur sér
stað með lögunum um fram-
kvæmda- og fjáröflunaráætlun.
Fer mikið betur á þvi að fjár-
veitingarnefnd hafi þetta verk-
efni ein, en ekki fjárhagsnefndir
þingsins að nokkru, eins og átt
hefur sér stað við gerö laganna
um framkvæmda- og fjáröflunar-
áætlun.
Þá hefur við gerð þessa fjár-
lagafrumvarps verið haldið
lengra inn á þá braut, sem fylgt
hefur verið við gerð tveggja sið-
ustu fjárlaga, að fjármagna rikis-
framkvæmdir með samtima
nýbyggingu þar skammt frá,hafi
leitt út rafmagn i vatnsleiöslur
hjá kúnum.
Þetta tjón er mjög tilfinnanlegt
fyrir Jón Þorgeirsson bónda á
Særingsstöðum, og verður það
vart metið minna en ein milljón
króna.
Jón sagöi i viðtali við Timann
að kýrnar hefðu ekki veriö
tryggðar, en sagðist vona að
Bjargráðasjóður bætti að ein-
hverju leyti svona tjón.
Aö Særingsstöðum er blandað
bú, og er Jón aðallega með kind-
ur.
Halldór E. Sigurðsson.
tekjum, og hefur tekizt að ná
þessu marki að verulegu leyti.
Að öðru leyti má svo segja um
fjárlagafrumvarp þetta, að nú er
fylgt fastar eftir en verið hefur
þeim umbótum á sviöi félagslegr-
ar uppbyggingar, sem rikis-
stjórnin hefur þó unnið verulega
að, og svo hitt, að með þessu
frumvarpi er raunverulega haf-
inn nýr áfangi I framkvæmd
byggðastefnu þeirrar, sem rikis-
stjórnin markaði við upphaf
valdatöku sinnar.
Stóraukin stuðn-
ingur við stofnlána-
sjóði og fram-
kvæmdir
Meöákvörðun siðasta Alþingis,
um eflingu stofnlánasjóða at-
vinnuveganna, svo sem Stofn-
lánadeildar landbúnaðarins,
Fiskveiðasjóðs og sjóða iðnaðar-
ins með hækkuðu rikisframlagi
til þeirra, verða þáttaskil I starf-
semi sjóðanna. En hér er um
verulega fjárhæð að ræða eða yfir
300 millj. kr.
Sama er að segja um lög eins og
hafnalögin og heilbrigðisþjónust-
una. Nú veröur á árinu 1974 variö
miklu meira fé til hafnarmála
heldur en nokkru sinni fyrr I sögu
islenzku þjóðarinnar. Akveðið er,
með gerð þessa fjárlagafrum-
varps að greiða rikisframlag
vegna jarðræktarframkvæmda á
þvl ári, er framkvæmdin er gerð,
og er fjárveiting aö hluta til þess
á fjárlagafrumvarpi 1974.
Einnig verður það svo með
framkvæmdir I heilbrigöisþjón-
ustu, aö þar veröur um verulega
fjáraukningu að ræða. Sama er að
segja um flugvallagerð; fjárveit-
ing rikisins til flugvallagerða er
nú stórfelldari heldur en áður hef-
ur þekkzt.
Þá kemur það einnig fram I at-
hugasemdum f járlagafrum-
varpsins, að meö gerð þessa fjár-
lagafrumvarps er reynt að ná
sem mestu samræmi milli fjár-
lagagerðar og rikisreiknings.
Þess vegna eru nú tekin inn á
þetta fjárlagafrumvarp fjárút-
veganir, lánsfjárútveganir til
framkvæmda, eins og til hring-
vegarins og fleiri slikra, og tekin
inn á rekstrarreikning fjárlaga-
frumvarpsins, sem ekki hefur átt
sér stað áður, þegar um lánaút-
vegun hefur verið að ræða til
rikisframkvæmda.
Hins vegar er það stefna frum-
varpsins að reyna aö fjármagna
rikisframkvæmdirnar sem mest
meö eigin tekjum, þótt aðeins sé
um undantekningar að ræða i svo
stórfelldum aðgerðum sem hring-
Átta kýr drápust
af raflosti
Rætt við Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, um Bandaríkjaför hans
Næstu viðræðufundir verða
í Reykjavík í næsta mánuði
EJ—Reykjavik. —
Einar Ágústsson utan-
ríkisráðherra er nýkom-
inn úr ferð sinni til New
York og WashingtonJ í
New York sat hann á
allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna, en i
Washington ræddi hann
við fulltrúa Bandarikja-
stjórnar um framtið
varnarstöðvarinnar á
Keflavikurflugvelli.
Utanríkisráðherra
sagði i viðtali við blaða-
mann Timans i gær, að
Bandarikjamenn hefðu
lagt megináherzlu á
þýðingu varnarstöðvar-
innar, en um leið, að
þeir væru til viðtals um
ýmsar breytingar, sem
þeir eiga eftir að gera
nánari grein fyrir.
Hins vegar kvaðst
utanríkisráðherra hafa
lagt á það megináherzlu
að kanna þyrfti, hvort
ekki væri hægt að koma
þeim vörnum, sem nú
eru hafðar uppi hér,
annarsstaðar fyrir.
Fyrst var utanrikisráöherra
spuröur um viöræðurnar I
Washington, en slðan um alls-
herjarþingið, og fer viötaliö hér á
eftir.
— Hvernig gengu viðræðurnar
i Washington fyrir sig, utanrikis-
ráðherra?
— Fyrri daginn fór ég I Penta-
gon, eða hermálaráðuneytið. Þar
hitti ég fyrst Zumwalt aðmirál,
sem ég hafði áöur hitt, og ræddi
um málið viö hann. Hann endur-
tók áhyggjur Bandarikjanna
vegna ástandsins hér og þýðingar
yarnarstöðvarinnar. Siðar um
daginn hitti ég hermálaráðherra
Bandarikjanna, Schlesinger, sem
tók I sama streng og Zumwalt að
þvl leyti, að þaö væri þýðingar-
mikið aö hafa herstööina, en
sagöi, að Bandarikjamenn væru
Framhald á bls. 19
vegurinn, og að nokkru leyti
hafnargerðar vegna eldgossins,
eru.
Almannatryggingar
hækka um 1800
millj. kr. og laun
um 1200 millj. króna
1 heild hækka útgjöld fjárlaga-
frumvarpsins, miðað við sam-
bærilegan samanburð, um tæpar
5þús. millj. kr. Veldur þar mestu
hækkun til almannatrygginga um
tæpar 1800 millj. kr. og til launa
1200 millj. kr., auk þeirra verk-
legu framkvæmda, sem áður er
getið og eru um 30% af heildar-
hækkuninni.
Um tekjulið fjárlagafrum-
varpsins er tekið fram I greinar-
gerö þess, að hún sé byggð á gild-
andi lögum, að öðru leyti en þvi,
að tekið er tillit til þeirrar
rýrnunar á tolltekjum sem leiðir
af þeim samningum, sem Islend-
ingar hafa gert við EFTA og
Efnahagsbandalagið.
Enn fremur er gert ráð fyrir
þvi, að til að mæta þessu og nýj-
um útgjöldum rikissjóðs, verði
söluskattur hækkaður um 2%.
Hins vegar er á það bent I
Framhald á bls. 19
ólafur Noregskonungur.
Ólafur
Noregs-
konungur
til Islands
Skrifstofa forseta íslands til-
kynnti i gær, að Ólafur Noregs-
konungur hefði þegið boð um aö
koma I opinbera heimsókn til Is-
lands á næsta sumri. Fréttatil-
kynningin er svohljóðandi:
Hans hátign Ólafur Noregskon-
ungur hefir þegið boð forseta Is-
lands að koma i opinbera heim-
sókn til Islands á komandi sumri.
Ráðgert er, að Noregskonungur
komi til Reykjavikur 4. júni n.k.
og dveljist á Islandi til og með 6.
júnl.