Tíminn - 12.10.1973, Síða 10

Tíminn - 12.10.1973, Síða 10
10 ' TÍMÍNN Föstudagur 12. október 1973 Guftmundur G. Þórarinsson, verkfræftingur, borgariulltrúi Framsóknarfiokksins. t bakgrunni sést „Geirshólmi” og aftrar dularfullar framkvæmdir vift ósa Eiliftaár. Þarna virftist „kerfift” bara sjálft hafa fapftkaf staft og sturtaft sorpi, bilflökum og jarftvegsefnum I hundruðum þúsunda tonna yfir merk jarftlög og fært I kaf að eilifu. Enginn kannast vift að hafa leyft, efta fyrirskipað þessi iandsspjöli. Engir uppdrættir fyllingarinnar finnast á skipulagsdeild borgarinnar, efta hjá þróunarstofnun. Engir uppdrættir hafa verift lagðir fyrir skipu- lagsnefnd efta náttúruverndarnefnd. MERK TILLAGA í BORGARSTJÓRN Framsóknarmenn ieggja fram tillögu um framtíð Elliðaónna Rætt við Guðmund G. Þórarinsson, borgarfulltrúa um stórmerka tillögu er varðar framtíð Elliðaónna og varðveizlu fagurra landsvæða A fundi borgarstjórnar síöast- liöinn fimmtudag, lögöu borgar- fulltrúar Framsóknarflokksins, þeir Guömundur G. Þórarinsson, Kristján Benediktsson og Alfreö Þorsteinsson fram merkilega til- lögu um framtiö Elliöaánna, og Elliöavatns. Mælti Guðmundur G. Þórarinsson, borgarfulltrúi fyrir tillögunni, en hún hljóöar svo: Borgarstjórn felur þróunarstofn- uninni og skipulagsstjóra aö undirbúa og láta fara fram hug- myndasamkeppni um heildar- skipulag og framtiöarþróun umhverfis Elliftaánna og Elliöa- vatns. Til meðferöar skal taka meöal annars: 1. Framtiöarmótun Eiliöaárósa ásamt bökkum Elliöavogsins. 2. Umhverfi ánna allt frá ósum aö EUiðavatni. 3. Mótun umhverfis Elliftavatns i samráfti viö Kópavog. 4. Tenging svæftisins vift Heið- mörk. í þessu sambandi skal meöal annars meta: a. Nýtingu landsvæöis. b. Mótun útivistarsvæöa c. Lagningu gangstiga. d. Aöstööu til veiöa og fiskiræktar e. Varöveizlu mannvirkja og nýt- ingu þeirra f. Byggingu nýrra mannvirkja, er setja mættu svip á umhverfiö. g. Staðsetningu listaverka. h. Trjárækt og mótun gróðurreita og annars jurtalifs. i. Varðveizla sérkennilegra jarö- laga og jarðmyndana. j. Samræming og tengsl Arbæjar- safns viö útivistarsvæöiö. Skal öll samkeppnin miöast viö, aö fá fram sem flestar hugmyndir til mótunar heildarmyndar af þessu svæöi. Æskilegast er aö viö hugmynda- myndunina starfi sérfræöingar á þeim sviöum, sem þar aö lúta, s.s. arkitektar, jaröfræðingar, náttúrufræftingar o.s.frv., þannig aö tryggja megi, aö Elliöaárnar og umhverfi þeirra veröi áfram um ókomna framtfö perla borg- arinnar. Kvað Guðmundur tillögu þeirra borgarfulltrúa vera fram komna af gegnu tilefni og óskaði þess að þróunarstofnun náttúruverndar- nefndar borgarinnar og skipu- lagsnefnd fjölluðu um tillöguna, sem fyrst og fremst væri ætlaö aö vera stefnumótandi i þessum efnum. Vettvangskönnun með Guðmundi Þórarins- syni Blaöiö átti tal við Guðmund G. Þórarinsson verkfræðing og borgarfulltrúa, vegna þessarar merku tillögu, og fór hann i stutta ferö með blaöamann, til glöggv- unar á staöháttum: en viö nánari athugun á svæði þessu, sér hver maður, aö þetta er timabær til- laga. Aöurnefnt svæöi er í um- talsveröri hættu. Flóft I Elliftaánum I aðalatriðum fórust Guömundi orö á þessa leiö: — Elliðaárnar og vatnasvæðiö þar fyrir ofan, verða um ókomna framtíð eitt fegursta útivistar- svæði borgarinnar. Þetta er ein af perlunum i borgarlandinu og tillaga okkar er einkum hugsuö til þess, aö koma á samstarfi til aö móta stefnuna gagnvart þessu svæði. Ef ekkert veröur að gert, þá er framtið | svæðisins stefnt I voöa. Skipulag falið einum manni — Mér er kunnugt um, að staðið hefur yfir um nokkurt skeiö skipulagsvinna á vegum borgarinnar, þar sem Vilhjálmi Sigtryggssyni, skógfræðingi hefur verið falið af borginni að skipuleggja Elliðaársvæðið. Ég hefi ekki séð árangur þessa skipulagsstarfs og vil fyrir mitt leyti ekki vanmeta þaö, entelhins vegar, aö máliö sé i eðn sinu umfangsmeira en svo, að þaö heyri undir skógræktarfræðina eina, eða nokkurn einn, einstakan mann. Elliðaárnar og þetta svæöi hefur um langt skeiö veriö eitt aöalútivistasvæðið og margir borgarbúar eiga við svæðiö bundnar minningar. Þetta eru æskustöðvar þúsunda manna, sem verið er aö fjalla um, framtiö þeirra og varöveizla til komandi kynslóöa. Þessvegna ber okkur aö vanda til allrar tillögugeröar og ekkert að spara. Einskis má láta ófreistaö til þess aö vel takist til, enda aldrei tekiö aftur ef umhverfinu er breytt. Elliðaárnar og rafmagnsveitan Vatnasvæöi Elliöaánna hefur þegar breytzt mikið af manna- völdum. Um það verður ekki deilt. Þarna var virkjað i fyrsta sinn til að sjá bænum fyrir raf- orku. Auðvitaö haföi þaö rask á staöháttum i för meö sér. Árnar voru stiflaöar á tveim stööum og þrýstivatnsleiösla flytur ána aö mestu leyti á alllöngum kafla, þegar minnst er i ánni. Raf- magnsveita Reykjavíkur hefur þó umgengizt ána að öðru leyti með mikilli virðingu og framsýni. Túrbinustöðin, með viðeigandi svartoliugeymumvar sett niður á árbakkann austanmegin . Það orkar aftur meira tvimælis, og hætta er mikil á ferðum fyrir um- hverfið ef þessir geymar biluðu af einhverjum ástæðum og olian rynni á árnar. Þessu þyrfti að gera betri skil. Nú hefur hitaveituleiðsla verið lögð þvers og kruss um árfar- veginn, vegna hitaveitunnar i Breiðholtshverfi. Það er hroðalegt mannvirki. Svo má minnast á jarðefna- tekju i Rauðhólum, sem er lands- spjöll og alls konar akvegagerð um viökvæmt land. Ekki megum viö þó dæma þetta of hart, þvi að þetta gerist áður en almennt er farið aö gera sér grein fyrir land- vernd og náttúruvernd, og að unnterað þyrma fögru umhverfi, þótt stórborg sé i næsta nágrenni. Allt þetta sýnir okkur þó, að nauðsyn er á að marka heildar- stefnu, þar sem almennir borg- arar eru kvaddir til, ásamt þeim mönnum er lagt geta fram sér- þekkingu. Stórframkvæmdir i Elliðaárósum — tilviljun? Gott dæmi um þróun mála, eru uppfyllingarnar við Elliðarárós- ana, þar sem stórframkvæmdir hafa gjörbreytt náttúrulegri gerð ósanna. Elliðaárósar og Elliðaárnar renna i mjög sérkennilga saman- settum jarðlögum, frá jarðfræði- legu sjónarmiöi. Um þetta segir Þorvaldur Thoroddsen meðal annars á þessa leið: „Sumstaðar liggja hvitgrá leir- lög frá isöldinni ofan á móberginu og dó.leritinu, t.d. við Elliðaár og Leirvogsá. Við Elliðár hefur hraun runnið yfir leirinn, og um hraunið renna árnar. Þar eru við árfarveginn stórir skessukatlar, holaðir af iðukastinu. Aldurshlut- föllin milli jarðlaganna við Reykjavik eru þá þessi: elzt og neðst er basalt, eins og I Viðey: siðan dólerit: þá ungt móberg og móhella: þá jökulleir og efst hraun i farvegi Elliðaánna.” Nú hefur verið ekið miklu magni jarðvegsefna i Elliðárósa. Hraunklappir og leirur^ eru komnar undir bilflök, grjót og rusl, og mold hefur verið ekið yfir og sáö hefur verið grasi. Það merkilega við þessar miklu fram- kvæmdir er að hvergi er að finna stafkrók, þar sem framkvæmdir þessar eru fyrirskipaðar,. eða leyföar. Virðist eins og menn hafi aðeins notað Elliðaárvog sem sorphaug og til að sturta þar jarð- vegsefnum, sem losna þyrfti við. Það verður að móta stefnu — framtið dýralifs Þetta nær vitanlega ekKi nokk- urri átt. Þarna hefur glatast dýr- mætur hluti af náttúru þessa lands, fyrir glundroða og skipu- lagsleysi hjá borginni. Það er til aö hindra slikt, sem við gerðum tillögu okkar. Nú eiga menn að setjast niður og ræða málið og safna hugmyndum og móta stefnuna. Meban tillaga okkar er I rannsókn og mótun hjá stofn- unum borgarinnar, verður að halda i horfinu og leyfa ekkert, sem raskar hag þessara svæða, eða vatni. — Ég get, segir Guðmundur G. Þórarinsson að lokum, ekki lokið þessu spjalli, án þess að minnast ögn á' vistfræði og dýralif við Elliðaár. Fuglamenn telja að raskazt hafi fuglalif við jarðvegs- framkvæmdirnar við ósa Elliða ánna. Laxinn er að visu enn i Elliðaánum en. liklega ekki i eins miklu mæli og verið geti — , gengi hann hindrunarlaust alla leið upp I Hólmsá og upp I Lækjarbotna. Þá var (og er) þetta ein mesta veiðiá þessa lands.Ef til vill, ber aö kanna, hvort ekki er i þesu sambandi unnt að breyta málum þannig, aö unnt sé að færa Elliða- árvatnasvæðið i það horf, sem var áður en áin var virkjuð. Þá kæmu hinar frægu Elliðavatns — engjar aftur upp úr djúpinu, en þær voru vist einhverjar drýgstu slægjur hér á landi um aldir. — Og þetta allt blandast svo inn i mótandi hugmyndir, sem nú eru á dagskrá um fólkvang i Rauöhólum, Heiðmörk og Blá- fjallasvæði. Þessi fólkvangur á að ná frá Elliðárvogi, upp vatna- svæðiö og i Heiðmörk, segir Guömundur G. Þórarinsson að lokum. JG

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.