Tíminn - 26.02.1974, Side 4

Tíminn - 26.02.1974, Side 4
4 TÍMINN Þriöjudagur 26. febrúar 1974 Ég er dóttir AAorilyn Monroe t Hollywood veltir fólk þvi nú fyrir sér, hvort Janet Raymond, sem er tuttugu og eins árs gömul, sé dóttir hinnar látnu leikkonu Marilyn Monroe. Janet var kjörin Ungfrú Santa Monica árið 1971. Margt bendir til þess, að Janet sé i raun og veru dóttir leikkonunnar. Hún var tekin i fóstur af núverandi foreldrum sinum fyrir 21 ári, einmitt um svipað leyti og Marilyn Monroe hvarf á dularfullan hátt frá Hollywood, og margir töldu að hún hefði farið i burtu til þess að eiga barn. Janet Raymond tekur fram málbandið máli sinu til sönnunar. Ennið er jafnhátt og enni Marilyn, mjaðmamálið og fótleggirnir mjög likir, og bilið milli augnanna er það sama. Tennurnar eru hvitar og fallegar og likjast mjög tönnum Marilyn Monroe. Janet hefur gert allt, sem hugsazt getur, til þess að sannfæra bæði sjálfa sig og aðra um, að hún sé i raun og veru sú, sem hún segist vera. Hún hefur meira að segja gengið svo langt, að fara i kvik- myndasafnið i Hollywood, og tekið mál af vaxbrúðunni af „móður” hennar, sem þar er og sýnt á þann hátt fram á hversu likar þær eru. Það vakti mikla athygli fyrir nokkru, er haldið var uppboð á ýmsum hlutum, sem sagðir voru úr eigu Marilyn Monroe. Þar á meðal voru bréf, sem ungur kaupsýslumaður Sænska þjóðin eignast Sofiero Þegar Gústaf Sviakonungur lézt,arfleiddi hann Helsingborg að höllinni Sofiero, sem fram til þess tima hafði verið 1 eigu konungsfjölskyldunnar. Kon- ungurinn arfleiddi Helsingborg að höllinni með þvi skilyrði, að borgaryfirvöld sæju um, að garðarnir 1 kring um höllina yrðu vel hirtir, og leyfðu hverj- um sem væri, að ganga þar um sér til skemmtunar, þannig að þarna verður i framtiðinni al- menningsgarður. Fólk hafði velt þvi fyrirsér, þar til frá þvi var skýrt opinberlega, hver ætti að fá höllina. Sumir höfðu haldið, að Christina prinsessa fengi hana, eða jafnvel Ingiriður Danadrottning, sem er, eins og kunnugt er, dóttir konungsins, heitins. Konungurinn hafði ekki gleymt starfsfólki þvi, sem i langan tima hafa unnið i höllinni. Hann tryggði þvi öllu áframhaldandi störf við viðhald hennar og umsjón. Sem dæmi má nefna Ingvar Danielsson trjágarðsmeistara, sem undan- farin tólf ár hefur stjórnað garðræktinni i kringum höllina. Konungurinn sá til þess, að hann verður nú ráðinn til þess að halda þessu starfi áfram, og þiggur hann framvegis laun úr sjóðum Helsingborgar. Þessi mikla gjöf mun kosta borgina um 300 þúsund sænskar krónur á ári, en það er rekstrar- kostnaður og eftirlit hallar- innar, sem kostar svona mikið. Ekkert er ákveðið um framtið hallarinnar sjálfrar i erfðaskrá konungsins, en borgaryfirvöld kom með á uppboðið. Sagði hann að þessi bréf hefði faðir hansátt. Búastmenn við, að hér hafi verið á ferðinni óþekktur elskhugi Marilyn, sem um leið hafi verið faðir Janet. Bréfin eru skrifuð i litlum bæ i Texas þremur vikum áður en Janet fæddist. Janet hafði ætlað að kaupa þessi bréf, og hafði safnað sér um 8000 krónum með þvi að vinna aukavinnu og leggja allt fyrir, sem hún gat, en svo kom maöur um fimmtugt, og keypti bréfin, og bauð svo Janet að lesa þau fyrir einar 10 þúsund krónur. Janet segist ekki hafa neittsamvizkubitút af þvi, að hún eigi ef til vill eftir að hagnast fjárhagslega á sögu- hafa sagt, að enginn muni fá að búa i höllinni framvegis. öll húsgögn verða tekin úr henni og flutt til Stokkhólms og komiö fyrir i konungshöllinni þar'. Sagt er, að húsgögnin séu i mjög lé- legu ásigkomulagi. Konungur- inn mun hafa verið mjög hag- sýnn maður, og þess vegna hafði hann ekki eytt peningum i að láta breyta höllinni, og er hún mjög gamaldags i alla staði. Hafa borgaryfirvöld talað um að nota hana sem sýningar- sali. Görðunum vcvður haldið við i nákvæmlega þvi sniði, sem þeir voru, þegar konungurinn lifði, og þang.að eiga allir, sem vilja, að fá a’ð koma án þess að greiða aðgangseyri. sögnunum um, að hún sé dóttir Marilyn Monroe. Hún segist hafa orðið að vinna 10 til 12 tima á sólarhring undanfarin ár, til þess að geta staðið straum af skólagöngu sinni, og nú þyki sér gott að eiga von á að geta eignazt peninga á ofurlitið auðveldari hátt. Hún segist vilja verða fræg og dáð, eins og móðir hennar hafi verið. Janet Raymond er fædd i bænum Corpus Christi i Texas, en sá bær er skammt frá þeim stað, þar sem vitað er, að Marilyn lá á sjúkrahúsi einmitt fyrir 21 ári. 1 þá daga var sagt, að tekinn hefði verið botlanginn úr MM. Nokkrum vikum siðar tóku Raymond-hjónin Janet að sér, en þau skildu, og móðir hennar fluttist með hana til Los Angeles. Janet Raymond hefur siðustu 5-6 árin árangurslaust reynt að fá upplýsingar um hver móðir hennar var i raun og veru. Hún hefur snúið sér til yfirvaldanna, en þar hefur engar upplýsingar verið hægt að fá. DENNI DÆMALAUSI Brauð og smjör? Ég sagðist vera svangur en ekki sveltandi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.