Tíminn - 26.02.1974, Side 6
6
TÍMINN
Þriðjudagur 26. febrúar 1974.
Olía til húsahitunar
verðurgreidd niður
Rikisstjórnin lagði fram á
Alþingi i gær frumvarp til laga
um álagningu sérstaks gjalds til
að draga úr áhrifum oliu-
verðhækkana. Skal eitt prósentu-
stig i söluskatti ganga til þess að
greiða niður verðhækkanir á oliu
til hitunar ibúðarhúsnæðis, og
skal gjaldið innheimt frá 1. marz
n.k. til 28. feb. 1975. Þetta gjald
kemur i stað hálfs viðlagagjalds,
en eins og kemur fram i annarri
frétt hér á siðunni er ráðgert að
fella niður helming viðlagagjalds,
1. marz . n.k.
Olafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra, mælti fyrir þessu frum-
varpi i neðri deild i gær. Óskaði
hann eftir að málinu yrði hraðað,
þannig aðþað gæti átt samflot '
með viðlagasjóðsfrumvarpinu.
t greinargerö, sem frum-
varpinu fylgir, kemur þetta
fram:
„Vegna hinnar gifurlegu
hækkunar á oliuverði er nauðsyn-
legt að gera ráðstafanir til að
létta byrðina á þeim hluta lands-
manna, sem búa við oliu-
kyndingu. Þess vegna er lagt til
með þessu frumvarpi að fram-
lengja um eitt ár annað prósentu-
stig viðlagagjalds. Skal tekjum af
gjaldi þessu ráðstafað til að
draga úr áhrifum verðhækkunar
á oliu til hitunar ibúðarhúsnæðis,
en þær eru áæltaður um 700 millj.
kr. á ársgrundvelli.
Vegna verðhækkunarinnar á
oliu, hefur aðstöðumunur lands-
manna vaxið m jög eftir þvi, hvort
þeir búa við oliukyndingu eða
hitaveitu. Áæltað hefur verið, að
kyndingarkostnaðurmeðoliu hafi
verið um 50% meiri á meðalibúð
árið 1972 heldur en hitaveitu-
kostnaður. Nú stefnir hins vegar
að þvi, að oliukyndingin verði
preiait dyrari heldur en hita-
veitukostnaðurinn.
1 árslok 1973 bjuggu um 109 þús.
manns i sveitarfélögum, þar sem
ibúöarhús eru að einhverju leyti
hituð upp frá hitaveitu. Er þá
Kópavogur meðtalinn, þótt enn sé
aðeins litill hluti húsa þar tengdur
hitaveitu. Að öðru leyti er aðal-
lega um að ræða fjóra staði á
Norðurlandi, Sauðarkróki, Ólafs-
fjörð, Húsavik og Dalvik, og á
Suðurlandi kauptúnin Selfoss og
Hveragerði, auk Reykjavikur og
Seltjarnarness. Áætlað er, að á
þessum stöðum búi um 97 þúsund
manns i ibúðum, sem tengdar
eru hitaveitu en 12-13 þús. manns
búa þar enn við aðra hitagjafa,
aðallega oliukyndingu. Nú eru
ákveðnar framkvæmdir á vegum
Hitaveitu Reykjavikur, sem
munu tengja Kópavog, Hafnar-
fjörð og Garðahrepp hitaveitu á
næstu þremur árum auk þess sem
áform eru uppi um hitaveitu á
Suðurnesjum. Af þeim nálægt 116
þús. ibúum landsins, sem ekki
hafa hitaveitu, er áætlað að um 14
þús. búi vð rafhitun og um 102
bús. (48%) við oliuhitun.
Hér fer á eftir lausleg áætlun
um skiptingu ibúafjölda eftir hita
gjafa i árslok 1973 og um heildar-
kostnað við kyndingu ibúða á ár-
unum 1973 og 1974:
Núverandi
hitaveitu- Aðrir
Frumvarp þetta er lagt fram
samtimis frumvarpi til laga um
breyting á lögum nr. 4 frá 7.
febrúar 1973 um neyðar-
ráðstafanir vegna jarðelda á
Heimaey, en bæði frumvörpin
þurfa að afgreiðast fyrir 1. marz
1974. Frumvarp um ráðstöfun á
tekjum af þvi gjaldi, sem þetta
frumvarp fjallar um, verður lagt
fyrir Alþingi innan skamms.”
Bjarni Guðnasonságði að oliu
verðhækkunin væri ekki þjóðar-
Áætlaður heild
arkyndingar-
kostnaður ibúða
svæði staðir Samtals 1973 1974
Hitaveita 97.000 - 97.000 350 mkr. 440 m.kr.
Rafhitun frá rafveitum (1.000) 12.000 13.000 120 m.kr. 145 m.kr.
Rafhitun frá einkarafst. Oliukynding 11.000 1.000 91.000 1.000 102.000 620 m.kr. 1350 m.kr.
Samtals 109.000 104.000 213.000 1090 m.kr. 1935 m.kr.
voði á borð við eldgosið i Vest-
mannaeyjum. Taldi hann vafa-
samt að koma með sérstakt sölu-
skattsstig til að jafna þennan
verðmun. Með þessu ætti að
halda þessu söluskattsstigi um
aldur og ævi. Sagði hann, að
skynsamlegra væri, að helming-
urinn, af þessu fé yrði ekki
greiddur til þeirra, sem nota oliu
til húshitunar, heldur lagður i
sérstakan sjóð til að styðja
sveitarfélög til að koma upp hita-
veitu. Kvaðst hann vera sammála
þvi, að reynt væri að jafna þann
aðstöðumun, sem þeir, sem nota
yrðu oliu til húshitunar yrðu fyrir
barðinu á, en á móti þvi að þetta
söluskattsstig yrði notað til þess,
heldur ætti að skera niður úr f jár-
lögunum, og fá þannig pening i
oliujöfnunarsjóð.
Ingólfur Jónsson, lýsti sig
samþykkan tekjuöflun til
jöfnunar oliuverðs, en kvaðst
hafa fyrirvara á um fram-
kvæmdina. Kvaðsthann vilja láta
þessa jöfnun ná til alls húsnæðis,
en ekki aðeins til ibúðar-
húsnæðis, eins og frumvarpið
ráðgerir. Taldi hann, að jafna
þyrfti einnig aðstöðumun i at-
vinnurekstri I þessu sambandi.
Ólafur Jóhannesson sagði að
gert væri ráð fyrir þvi að hafa
samráð við stjórnarandstöðuna
um lagasetningu um ráðstöfun
þessa fjár, sem aflað verður til
niðurgreiðslu á oliukostnaði.
Vegna hinnar miklu hækkunar á
oliu hefði með skjótum og óvænt-
um hætti myndazt mikill aðstöðu-
munur i þjóðfélaginu, sem
nauáynlegt væri að jafna.
Guðlaugur Gílsason kvaðst
hlynntur fjaröflun til niður-
greiðslu á oliu.
Sveitarfélögum verði tryggðir
tekjustofnar til gatnagerðar
Alexander Stefánsson mælti i
gær fyrir frumvarpi, er hann flyt-
ur um gatnagerðargjöld i sveitar-
félögum. Er það meginefni frum-
varpsins, að sveitarstjórnum
verði tryggðir tekjustofnar til
gatnagerðarframkvæmda.
Frumvarpið er svohljóðandi:
„1. gre. Heimilt er sveitar-
stjórn að ákveða með sérstakri
samþykkt, sem ráðherra stað-
festir, að innheimt skuli gatna-
gerðargjald af hverri lóð, áður en
þar er veitt byggingarleyfi.
Heimilt er krefja gatnagerðar-
gjald, ef reist er nýtt hús á lóð,
sem áður var byggð. Sama gildir,
ef hús er stækkaö, að þvi er
stækkunina varðar.
2. gr. Gatnagerðargjaldi skv. 1.
gr. skal varið til gatnagerðar-
framkvæmda i sveitarfélaginu,
og má það nema allt að áætluðum
meðalkostnaði við að undir-
byggja götu með tilheyrandi
lögnum og slitlagi.
1% violagagjald
til 1. marz 1975
Þingmenn úr öllum flokkum,
þeir Eysteinn Jónsson, Ingólfur
Jónsson, Gils Guðmundsson,
Gylfi Þ. Gíslason, Halldór S.
Magnússon og Bjarni Guðnason,
lögðu i gær fram á Alþingi frum-
varp um að Viðlagasjóði verði
tryggður áframhaldandi tekjur,
en skv. lögum átti 2% Viðlaga-
sjóðsgjaldið aö falla niður 1. marz
n.k. Þingmennirnir leggja til, að
frá 1. marz n.k. til 28. feb. 1975
verðilagt 1% Viðlagagjald á sölu-
skattsstofn.
Þá eru i frumvarpinu ákvæði
um að vanskil sveitarfélaga á
innheimtu Viðlagagjalds skuli
tekin af hluta þeirra I jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga.
Eysteinn Jónsson mælti fyrir
þessu frumvarpi i neðri deild i
gær, og er ætlunin aö reyna að af-
greiða frumvarpið sem lög i dag
eða á morgun.
t ræðu Eysteins Jónssonar kom
þetta m.a. fram:
„Það má nú kalla kraftaverk,
hversu úr hefur rætzt i Vest-
mannaeyjum miðað við það,
hvernig horfði þar fyrir 13
mánuðum þegar eldgosið hófst á
Heimaey. A.m.k. helmingur
Eyjabúa er kominn heim, og
framleiðsla þessarar miklu afl-
stöðvar i þjóðarbúskapnum er
þegar rekin af miklu fjöri og
þrótti, svo sem áður hefur tiðkazt.
Baráttan við gosið verður ekki
rakin hér af mér, en stórmerki tel
ég, að komið hefur i ljós, að unnt
er að hafa veruleg áhrif á hraun-
straum i kröftugu eldgosi með
öflugri vatnskælingu, og helzt er
að sjá, að stórmyndarlegar fram-
kvæmdir af þvi tagi hafi átt sinn
þátt i þvi að bjarga Vestmanna-
eyjahöfn og mörgu öðru I bænum.
Verður það hreinlega ekki i tölum
talið, hverja þýðingu það hefur
fyrir íslendinga, eða alla afkomu
þjóöarbúsins, að höfnin slapp. Sú
reynsla, sem hér hefur fengizt i
viðureigninni við hraunstraum-
inn, hefur einnig ómetanlegaþýð-
ingu framvegis i baráttu við elds-
umbrot, og verður það ekki nánar
rakið hér. Hér verður heldur ekki
reynt að gera grein fyrir þvi
margbrotna starfi, sem fram-
kvæmt hefur verið til bjargar og
uppbyggingar i Vestmannaeyj-
um, t.d. með stuðningi Viðlaga-
sjóðs, sem Alþingi stóð að með
lögum um ráðstafanir vegna
jarðeldanna á Heimey. Það gerir
stjórn Viðlagasjóðs að sjálfsögðu
jafnóðum og timabært er talið.
Það var upphaf þessa máls,
sem hér er flutt I frumvarpsformi
nú, aö stjórn Viðlagasjóðs sneri
sér til hæstvirts forsætisráðherra
og gerði honum grein fyrir þvi, að
tekjur Viðlagasjóðs myndu alls
ekki hrökkva til þess að kosta þær
framkvæmdir, sem gera'þarf til
bjargar og viðreisnar i Vest-
mannnaeyjum samkvæmt lög-
gjöfinni, sem um þau efni hefur
verið sett, og það ekki heldur þótt
til komi allt það mikla fé, sem
Noröurlandamenn af stórum
höfðingsskap hafa framrétt I
þessu skyni, og þrátt fyrir aðrar
gjafir, sem einnig koma þarna til.
Óskaöi Viðlagasjóðsstjórnin eftir
þvi, að tekjustofn Viðlagasjóðs
þ.e.a.s. 2% á söluskattsstofninn,
yrði framlengdur til ársloka 1974.
Forsætisráðherra óskaði þess, að
flokkarnir settu nefnd i þetta mál.
Það var gert og hún hefur starfað,
og er frumvarp þetta ávöxtur af
þvi samstarfi á milli allra flokka
þingsins. Nefndin hefur undan-
farið kynnt sér nokkuð fjárhag
Viðlagasjóðs i samráði við ýmsa
af ráðherrunum og reynt að
mynda sér skoðun á þvi, hvað lik-
legt sé, aö mikið fé þurfi fram að
leggja úr Viðlagasjóði til þess að
standa við þau fyrirheit, sem fel-
ast i lögum um neyðarráðstafanir
vegna jarðelda á Heimaey. En
það veit ég, að allir þingmenn
leggja kapp á, að við þau fyrirheit
verði fullkomlega staðið.
í ljós kom, að ógerningur er að
gera sér þess nú fulla grein,
hversu mikið fé þarf til að koma.
En svo mikið er ljóst, að dómi
flutningsmanna, að Viðlagasjóö-
ur má ekki missa allar tekjur
sinar núna um næstu mánaða-
mót. Hefur þvi orðið samkomulag
um að flytja þetta frumvarp, en
efniþess er að leggja 1% Viðlaga-
gjald á söluskattsstofn næstu 12
mánuði I staðinn fyrir tvö, sem nú
er. Flutningsmenn álita, að siðar
verði að afla þess fjár enn til
viðbótar i Viðlagasjóð ef i ljós
kemur, að þetta fé nægir ekki til
þess að hægt sé að standa við fyr-
irheit laga um stuðning við upp-
bygginguna i Vestmannaeyjum.
Það skal tekið fram, að þess er
vænzt, að Seðlabankinn aðstoði
Viðlagasjóð framvegis eins og
hingað til, þannig að greiðslur úr
sjóönum geti orðið með eðlilegum
hætti.
Samvkæmt yfirliti, sem við
höfðum til skoðunar, hafa útgjöld
sjóðsins fram að þessu orðið 3
milljarðar 216 milljónir. Þessu
hefur verið mætt fram að þeim
tima, að uppgjörið er dagsett,,
með Viðlagagjaldi er miðast við
útsvarsstofn 177 millj., en með
Viðlagagjaldi, sem leggst á sölu-
skattsstofn og eignarskattsstofn,
og rikissjóðsframlagið og fram-
lagið i Atvinnuleysistrygginga-
sjóði 979 milljónir. Frá Norður-
löndum hafa komið 1181 millj.,
hvorki meira, né minna, og annað
gjafafé hefur verið 179 millj. Þá
var skuld við Seðlabankann 784
millj.
Heildarútgjöld Viðlagasjóðs
verða aldrei undir hálfum 5ta
milljarði, og þó gætu þau orðið
mun meiri, en þetta fer að sjálf-
sögðu mikið eftir þvi, hvernig til
tekst með sölu Viðlagasjóðshús-
anna. Hér veltur á stórum
fjárhæðum til og frá. Ber að
leggja sérstaka áherzlu á þá sam-
eiginlegu skoðun allra flutnings-
manna að komi það i ljós, að
þessir f jármunir duga ekki, verð-
ur aö bæta við þvi, sem þarf. Það
er aðalatriðið.
Þá er þvi við að bæta, að það
hefur dregizt hjá sveitarfélögun-
um að skila Viðlagagjaldinu, sem
lagt er á útsvarsstofninn og
sveitarfélögin innheimta fyrir
Viðlagasjóð. Þvi er lagt til að
heimilt verði að tryggja þessi skil
með þvi að framlög til sveitar-
Framhald á bls. 19
3. gr. Sveitarstjórnum er heim-
ilt að ákveða með sérstakri sam-
þykkt, sem ráðherra staðfestir,
að innheimta sérstakt gjald, sem
varið skal til framkvæmda við að
setja bundið slitlag á götur i
sveitarfélaginu og til lagningar
gangstétta.
Heimild til að leggja á slfk gjöld
er bundin við það, að sveitar-
félagið hafi ekki áður innheimt
gatnagerðargjald skv. 1. gr. af
hlutaðeigandi fasteign.
4. gr. Gjald skv. 3. gr. má inn-
heimta af öllum fasteignum við
þær götur, sem bundið slitlag er
sett á og þar sem gangstéttir eru
lagðar. Má gjaldið nema allt að
áætluðum meðalkostnaði við
þessar framkvæmdir.
5. gr. Við ákvörðun gjalda skv.
1. og 3. gr. laga þessara skal miða
við lóðarstærð og/eða rúmmál
bygginga, eftir þvi sem nánar er
ákveðið I samþykkt. Gjöld mega
vera mismunandi eftir notkun
húss, t.d. eftir þvi, hvort um er að
ræða hús til ibúðar, verslunar,
iðnaðar o.s.frv. Þá mega gjöld af
Ibúðarhúsum vera mismunandi
eftir þvi, hvort um er að ræða ein-
býlishús, raðhús, fjölbýlishús
o.s.frv.
6. gr. Gatnagerðargjald skv. 1.
gr. skal vera gjaldkræft, þegar
sveitarstjórn krefst, eftir þvi sem
nánar er ákveðið i samþykkt.
Sérstakt gatnagerðargjald skv.
3. gr. skal gjaldkræft, þegar lagn-
ingu bundins slitlags og gang-
stéttar við hlutaðeigandi götu er
lokið. Þó skal sveitarstjórn heim-
ilt að ákveða i samþykkt, að
greiðslu sliks gjalds sé dreift á til-
tekið árabil, eftir þvi sem nánar
er tiltekið i samþykkt.
7. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi.”
I greinargerð segir Alexander:
„Samkvæmt 10. gr. sveitar-
stjórnarlaga er það eitt af höfuð-
verkefnum sveitarfélaga að ann-
ast gatna- og vegagerð. Er þetta i
dag eitt af meiri háttar verkefn-
um flestra þéttbýlissveitarfélaga
á Islandi.
Umhverfi mannsins hefur á sið-
ustu árum gefið tilefni til endur-
mats á mörgum sviðum i þjóðlif-
inu. Mengun er nú talin einn af
verstu vágestum mannkynsins,
og óhætt er að fullyrða, að rykið
og forin á götum og vegum sé
mikill mengunarvaldur á tslandi.
Auknar kröfur um þrifnað eru
háværar og sérstaklega um
hollustuhætti i matvælaiðnaði.
Nýjar reglur þar um krefjast
verulegra framkvæmda á vegum
sveitarfélaga, þar sem staðsett
Framhald á bls. 17