Tíminn - 26.02.1974, Page 12

Tíminn - 26.02.1974, Page 12
16 TÍMINN Þriðjudagur 26. febrúar 1974. Þegar þeir höfðu lokið máltíðinni, sneri Jónas sér að Eiríki. Hann hafði naumast mælt orð f rá vörum, eftir að hafa kvatt Svölu og föður hennar. — Jæja, og hvað f innst þér svo um hana? spurði hann. — Um hverja? — Svölu. Eiríkur, sem var að skera tóbak niður, svaraði ekki strax. V. Skrimsli með fálmara Svo sagði hann: — Ég er nú frekar að hugsa um þig en hana. Hvers vegna spyrzt þú ekki fyrir: — Hvað áttu við? — Hvers vegna spyrzt þú ekki fyrir um manninn, sem er trúlofaður henni? — Um Ólaf Guðmundsson? — Já. Jónas ók sér órólega á stólnum. — Um hvað ætti ég að spyrja? — Um hvað ættir þú að spyrja? Ef ég væri i þínum sporum, þá myndi ég reyna að komast yfir alla hugsanlega vitneskju um hann. Þú veizt ekki einu sinni, hvenær ætlunin er, að þau gif tist. Þú veizt ekki einu sinni nema þau séu nú þegar gift. — Það eru þau ekki, sagði Jónas ákveðið, — og hvað því viðvíkur, hvenær ætlunin sé, að þau giftist...Hann þagnaði, en sagði svo skyndilega æstur: — Sérðu ekki, hversu langt í burtu hún er núna? Hún er gjörbreytt og langt upp yfir mig hafin. Sérðu ekki, að hún er orðin hefðardama? Eiríkur hló. — Það er ekkert slíkt til. Það er bara kvenfólk í þessum heimi — og þær eru allar eins. Rödd hans var eins og beitt stál. Það var eins og hann væri að tala um fólk, sem hann hataði og nauðaþekkti. Það var ekki að furða, þótt Svala hefði fundið til f jand- skapar í augnaráði hans, því að það var einmitt í henni, sem hann hafði f undið endurholdgun þessarar óræðu til- f inningar, sem hann bar til alls kynsins. Hún var f remsti fulltrúi kvenkynsins — sigrandi með fegurð, æsku og yndisþokka og auk þess — eins og til að kóróna fyrir- brigðið —sú kvengerð, sem var ofar honum í þjóðfélags- stiganum. Meira þurfti ekki til, svo að allt í eðli hans, sem hét kvenhatur, greip til vopna. Hann leit á Jónas og bar hann saman við hana. Hvar sem á Jónas var litið, var hann sjóari, og það inn að innstu rótum. Svala var svo sem sprottin úr sama jarðvegi, en hún var einmitt dæmi þess sannleika, að í samkvæmisheiminum getur kona náð hæðum, sem maðurinn nær aldrei. Með aðstoð dömuklæðskera í Reykjavík og skilningi á tízkunni í Kaupmannahöfn var Svala, með sinn góða smekk, fær um að skipa sér á pall með hverri, sem var. Hún var kannski ekki beinlínis í tízkunni, og eitt eða annað í f ari hennar var kannski sér- kennilegt, en því fór f jarri, að hún vekti andúð. Hefði átt að gera Jónas frambærilegan hefði þurft að f lá hann — og jafnvel þá hefði hann ekki verið boðlegur. Eiríki var Ijóst, hversu gífurlegt hyldýpi var á milli þeirra, og sú staðreynd, að hann sjálfur skyldi vera röngu megin hyldýpisins ásamt Jónasi, gerði honum sízt glatt í geði. Nei, því fór víðs f jarri, það kveikti aðeins hjá honum þá djöfullegu ósk að reka Jónas út í að freista gæfunnar. Hvers vegna skyldi hún leggja fæð á fiski- mann — mann af hennar eigin tagi? Hugsa sér aðra eins frekju! Hann ætlaði einmitt að fara að segja meiningu sína umbúðalaust, þegar forstöðukonan, maddama Sturlu- son, kom inn til þess að taka af borðinu. Hún var frá Reykjavík og hafði aðeins búið í hálft annað ár i Skarðs- stöð, svo að hún þekkti Jónas ekki. — Ölafur Guðmundsson! sagði hún, þegar Eiríkur haf ði spurt hana um manninn. Jú, það er alveg rétt, hann er trúlofaður Svölu, dóttur Stefáns Gunnarssonar. Það er verið að segja, að þau ætli að gifta sig í haust, aðrir segja, að það verði í sumar, og enn aðrir halda, að það verði ekki fyrr en á næsta ári. En hvað er um þetta að segja? Fólk talar svo mikið. Hann er eldri en hún, en hann er eini maðurinn hér af sömu stigum og hún. Ef hún giftist honum ekki, hverjum ætti hún þá að giftast. Sjómanni? Hún er langt yf ir slíka haf in. I fyrravetur var hún hjá frænku sinni í Kaupmannahöfn, og þá voru þeir margir, sem báðu hennar. — Margir? spurði Jónas. — Já, f jölmargir, það get ég fullvissað yður um. Ég spurði hana sjálf, hvers vegna hún hefði ekki valið sér mannsefni í Kaupmannahöfn, í stað þess að koma aftur hingað til þessa skuggalega lands, og vitið þér, hverju hún svaraði? — Nei. — Hún sagðist ekki geta verið án hafsins. Verið án hafsins! hreytti maddama Sturluson út úr sér hæðnis- lega og breytti um raddblæ, eins og Svala stæði fyrir framan hana— Ég sagði: Guð minn góður, hafið þér þá ekki sjóinn hjá Kaupmannahöfn? Ög vitið þér, hverju hún svaraði? — Nei. — Hún sagði: Jú, en ekki Breiðaf jörð og mávana. Er þetta ekki fáranlegt? Svo kemur hún hingað og trúlofast Ý'Við erum ''ff konnir. félaei! ^Komnir hvert. Það er spurningin v Þú ert svart’sýr.ismaður. f \ Ekki með\ | Geimskyldur! Skyldur eru minni heppni, betri en þjálfunarbjóðir. Kenoma. iiiiiiiiyi Þriðjudagur 26. febrúar 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Guðrún Svava Svavarsdóttir les fyrsta hluta „Vinanna”, sögu eftir Kerstin Matz, i þýðingu sinni. Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir.kl. 9.45. Létt lög á milli liða. Ég man þá tið kl. 10.25: Tryggvi Tryggva- son sér um þátt með frá- sögum og tónlist frá liðnum árum. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Dönsk dægurlagatónlist örn Petersen kynnir. 14.30 Anna Sullivain Bryndis Viglundsdóttir flytur þriðja og siðasta hluta erindis sins um kennara Helenar Keller. 15.00 Miðdegistónleikar: islenzk tónlist 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15. Veðurfregnir. 16.25 Popphornið 17.10 Tónlistartimi barnanna Ólafur Þórðarson sér um timann. 17.30 Framburðarkennsla i frönsku 17.40 Tónleikar. 18.00 Barnið og samfélagið Umsjón: Margrét Margeirsdóttir og Pálina Jónsdóttir. 18.15 Tónleikar tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Fréttaspegill. 19.40 Úr tónlistarlifinu Halldór Haraldsson sér um þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins Ragn- heiður Drifa Steinþórsdóttir kynnir. 20.55 „Rauðu húsin kóngs- ins”, smásaga eftir Jón óskar. Höfundur les. 21.30 Á hvitum reitum og svörtum. Ingvar Ásmunds- son flytur skákþátt. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Lestur Passiusálma (14). 22.25 Kvöldsagan: „Vöggu- vísa” eftir Elias Mar. Höfundur byrjar lestur sög- unnar. 22.45 Harmonikulög Tommy Reilly og félagar leika létt lög frá Paris. 23.00 Á hljóðbergi.Canterville- draugurinn eftir Oscar Wilde. Anthony Quayle les fyrri lestur. 23.40 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Þriðjudagur 26. febrúar 20.00 Fréttir ' 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 SkákStuttur, bandarisk- ur skákþáttur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.40 Valdatafl Bresk fram- haldsmynd. 3. þáttur. Akvarðanir 21.30 Heimshorn Frétta- skýringaþáttur um erlend málefni. Umsjónarmaður Sonja Diego. i hverra þágu? Sænsk fræðslumynd um friðsam- lega nýtingu kjarnorku og tilraunir manna til að leysa vanda þann, sem skapast, þegar losna þarf við geisla- virk útgangsefni. Þýðandi og þulur Guðrún Jörunds- dóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) Jóga til heilsubótar Banda- riskur myndaflokkur með kennslu i jógaæfingum. Þýðandi og þulur Jón O. Ed- wald. Dagskrárlok

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.