Tíminn - 03.07.1974, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.07.1974, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 3. júll 1974. TÍMINN 3 Þjóðhátíð Borgfirð- inga og Akurnesinga A þjóðhátið Borgfirðinga og Akurnesinga fer Böðvar Guðmundsson með þjóðhátiðarljóð föður sins, Guðmundar skálds Böðvarssonar, sem fannst á náttborði hans að honum látnum. Þjóðhátiðarnefnd Borgfirð- inga hefur gefið ljóðið út I lýstri útgáfu skreytt mynd eftir Einar Hákonarson listmálara, sem hér má sjá. Þórshöfn: Ráðizt á fangavörð - tveim föngum sleppt HP-Reykjavik. — ölvaðir ofur- hugar á Þórshöfn tóku sig til á laugardagskvöldið s.l. og gerðu aðsúg að lögreglustöðinni, héldu þar fangaverði og leystu úr haldi tvo félaga sina, er lögreglumaður staðarins var fjarverandi við skyldustörf. Þá um kvöldið var haldinn dansleikur i félagsheimilinu á Þórshöfn og hafði samkomuhald- Hvað með Sólnes? BH-Reykjavik. — Moggi birti myndir og æviágrip nýju alþingismannanna á heilli siðu I morgun. Einn gleymdist, þó, og var rétt eins og Moggi áliti hann bezt gleymdan, þvi að hann var ekki einu sinni með I tölunni, þvi að Moggi fullyrti, að ekki væru nema 13 nýir þing- menn. Og nú er illt I efni, þvl að eins og allir sannir ihalds- menn vita, þá er allt satt og rétt, sem 1 Mogga stendur. Eða hvað? Þetta er Jón G. Sólnes, sem Mbl. vildi ekkert við kannast sem þingmann. ið farið nokkuð friðsamlega fram, allt til þess, að tveir samkomu- gesta, augljóslega drukknir tóku til við að brjóta rúður og fremja annan óskunda. Taldi lögreglu- maðurinn, Baldvin Elis Arason, það ráðlegast, að handtaka mennina og gerði hann það, með aðstoð dyravarða i félagsheimil- inu. Voru fangarnir fluttir i fangageymsluna og læstir þar inni. Um það bil varð árekstur i ná- grenni Þórshafnar og varð Bald- vin að sjálfsögðu að sinna skyldu- störfum sinum varðandi hann. Kona, sem var farþegi i öðrum bilnum, hafði slasazt litillega, og einnig varð að ljúka vissum mælingum. Á meðan þessu fór fram, höfðu drykkjulæti manna á götum úti i þorpinu aukizt og þóttust hinir drukknu hafa verið órétti beittir, er félagar þeirra voru læstir bak við lás og slá. Þróaðist smám saman sú hugmynd hjá múgnum, að gera aðför að lögreglustöðinni og leysa vini sina úr prlsundinni. Er það spurðist, að lögreglu- maður staðarins myndi vera fjar- verandi og vörður um fangana þvi fáliðaður, var ætlun þessi framkvæmd. Tekið var hús á fangaverðinum, honum haldið og að honum þjarmað, en föngum sleppt lausum. Þangað sem lögreglumaðurinn var önnum kafinn við mælingar, barst honum frétt af árásinni og hraðaði sér til stöðvarinnar. Var þá þar fyrir töluvert lið manna og lét það ófriðlega. Var þó hægt að fá seggina til þess að fara hvern til sins heima og sofa, en yfirvöld lita þetta mál mjög alvarlegum augum, sem von er. Að sögn Baldvins Elisar var fagurt veður á Þórshöfn á sjálfan kosningadaginn, kaffisala og allir i góðu skapi. — verður á laugardag, og þó verður m. a. flutt kvæðið „1974" eftir Guðmund Böðvarsson Laugardaginn 6. júll n.k. verð- ur haldin I Reykholti I Borgarfiröi þjóðhátlð Borgfirðinga og Akur- nesinga og stendur þvl að henni allt Borgarfjarðarhérað þ.e. Mýrasýsla, Borgarfjarðarsýsla og Akranes. Hátlðahöldin hefjast kl. 13.45 með lúðrasveitarleik. Klukkan 14 verður hátiðin sett af formanni þjóöhátiðarnefndar Borgfirðinga, Asgeiri Péturssyni, sýslumanni. Þá verður flutt kvæði, sem Guðmundur Böðvarsson, skáld frá Kirkjubóli, hefur sérstaklega ort fyrir þetta tækifæri, og flytur Böðvar sonur hans það. Jón Helgason, rithöfundur, frá Stóra Botni I Borgarfjarðarsýslu flytur ræðu og Ingibjörg Asgeirs- dóttir, kennari I Borgarnesi, flyt- ur ávarp fjallkonunnar. Mun hún slöan afhjúpa listaverk, sem stofnanir i Borgarfirði gefa lista- safni héraðsins. Er um að ræða málverk eftir Jóhannes S. Kjar- val, taliö gert 1938 og er nýfengið til landsins frá Noregi. Samkór Borgfirðinga, og Akur- nesinga syngur ættjarðarsöngva undir stjórn 5 söngstjóra úr Borgarfirði og frá Akranesi. Þá verða sýndir þjóðdansar og gllmusýning verður, sem Kjartan Bergmann frá Flóðatanga stjórn- ar. Ömar Ragnarsson flytur skemmtiþátt og Þorvaldur Þor- valdsson, formaður þjóðhátiðar- nefndar Akraness slitur hátiðinni. Hljómsveit skólanna á Akranesi leikur milli þátta. Þjóðhátiðarnefnd Borgfirðinga hefur látið gefa út i lýstri útgáfu kvæðið „1974” eftir Guðmund Böðvarsson. Einar Hákonarson, listmálari, myndskreytti en Litbrá prentaði. Á hátlðinni verða seld barmmerki úr málmi, sem Borgfirðingar og Akurnesingar hafa látið gera. m JtJYí Segir Björn Jónsson Alþýðuflokknum fyrir verkum? Svo virðist nú, að Björn Jónsson, fyrrv. ráðherra(sé orðinn mestj valdamaðurinn I Alþýðuflokknum. Alþýðublaðið birti I gær forsiðu- viðtal við þá Björn og Gylfa Þ. Gislason og skipaði viðtalið við Björn æðri sess. Björn kemst svo að orði I viðtalinu, að Alþýöuflokkurinn gegni bezt skyldum sinum utan stjórnar, eða m.ö.o., að flokkurinn eigi að vera I stjórnarandstöðu. Þá ályktun má ef til vill draga af þessu, að Björn telur flokkinn ekki liklegan til að hagnast á nýjum ráðherradómi Gylfa og kann það að vera rétt mat, en flokkurinn á fleiri forustumenn en Gylfa. Birni Jónssyni er ann- ars annað margt betur gefið en að vera ráðhollur, eða a.m.k. reyndust ráð hans illa hjá Sam- tökum frjálslyndra og vinstri manna, þvl að hann átti manna mestan þátt I þvi, að sundra þeim I marga parta. Mörgum Alþýðuflokksmönnum mun áreiðanlega þykja ráðlegt að fylgjast með þvi, hvort Björn Jónsson sé orðinn valdamesti maður flokksins og stjórni Gylfa. Mbl. óánægt yfir ósigri Möðruvellinga Mbl. getur ekki dulið óánægju sina yfir litlum árangri hjá Möðru- vellingum. Blaðið segir svo I forustugrein: „Framsóknarflokkurinn tapaði hlutfallslega atkvæðum I flestum kjördæmum landsins, þó ekki öllum, og raunar virðist flokkurinn hafa haldið hlut sinum mun betur en búast mátti við. Eftirtektar- vert er, að hinir svonefndu Möðruvellingar, vinstri sinnaðir Framsóknarmenn, sýnast ekki hafa náð nokkrum árangri, sem máli skiptir og Htið höggvið inn I raðir Framsóknarflokksins. Þeir eru með þessum kosningum úr sögunni sem pólitlskt afl, hafi þeir nokkru sinni verið það”. Gremja Mbl. yfir óförum Möðruvellinga leynir sér ekki. Til leið- réttingar skal þess aðeins getið, að innan Framsóknarflokksins hefur aldrei verið litið á Möðruvellinga sem neina sérstaka vinstri menn, heldur væri þar um að ræða unga metnaðargjarna menn, er hefðu blekkt fáeina eldri menn til liðs við sig. Þ.Þ. Stúlkurnar eru komnar fram en hvar er gólfteppið? HP-Reykjavík. —A mánudag var lýst eftir tveim stúlkum á aldrin- um 14-15 ára. Höfðu þær farið að heiman frá sér á laugardag, en ekkert til þeirra spurzt um alla helgina. Á mánudagskvöldið komu þær þó fram og höfðu þá veriö á flækingi vlðs vegar um, hjá vinum og kunningjum. Einnig var lýst eftir konu i hádegisút- varpi I gær, en hún kom fram strax sama dag. Rannsóknarlögreglan bað okk- ur hins vegar að hvetja fólk, sem hefði séð einhvern með marglitt gólfteppi, að hafa samband við sig. Gólfteppi, sem gert hafði ver- ið úr marglitum teppabútum, hefði nefnilega verið stolið að- faranótt sunnudagsins, þar sem þaö hafði verið hengt á grindverk viö hús á Holtsgötu 7. Lögreglumönnum þykir liklegt, að einhver hafi orðið var við tepp- ið, þar eð slikir hlutir eru kannski ekki mjög vanalegur varningur til aö hafa meðferðis að nóttu til. Eru þeir þá beðnir að láta lög- regluna vita. Emmi f JL hsí 10 JL .X Þverá i Borgarfirði Við fengum þær upplýsingar að Guðnabakka i gær, að veiði hefði verið allgóð I Þverá það sem af er, en hún hófst 5. júni. Eftir jarðskjálftana sem urðu I Borgarfirði fyrir stuttu, var áin mjög gruggug, og sást ekki til botns I henni I viku. Miklar rigningar voru bæði fyrir og eftir jarðskjálftana. Nú hefur verið þurrt siðastliðna fimm daga, og áin orðin tær aftur, nema á örfáum stöðum. Hátt á fimmta hundruð laxa eru komnir á land, þyngd þeirra fengum við ekki uppgefna, en hún er svipuð og hún hefur verið undanfarin ár, meðal- stærð 10-14 pund. Veiðisvæðin i Þverá eru tvö: Efra og neðra svæði og eru 12 stangir leyfðar I ánni. Grimsá 1 gær hafði Veiðihornið sam- band við Jón Gislason veiðivörð, og kvað hann veiöina hafa verið heldur dræma, og heldur minni held- ur en á sama tima I fyrra. En nú siöustu daga hefur heldur rofað til hjá veiðimönnum, og eru nú tæplega 150 laxar komnir á land Meðalþyngd þeirra er um 8-10 pund en þó hafa nokkrir 16 punda laxar veiðzt. Ekki er mikið um lax i ánni sagði Jón okkur, en eins og kunnugt . er, er bezti veiöitiminn i Grimsá um og eftir miðjan júli. Erlendir veiðimenn byrja að veiða i ánni um næstu helgi, og verða við veiði þar næstu vikurnar. Laxá i Dölum Við ræddum við Val, mat- reiðslumann i veiðihúsinu Þrándargil, og sagði hann, að veiöitíminn I ánni byrjaði 20. júni, en Bandarikjamennirnir, sem hafa ána á leigu, töfðust og gátu ekki byrjað veiði fyrr en I gær. Veiði fyrsta daginn varð lítil enda áin vatnslitil eins og er. Þrir laxar komu á land, sá stærsti tólf pund, en hinir minni. Við munum fljót- lega hafa samband við Þrándargil aftur og getum þá vonandi veitt skemmtilegri upplýsingar um veiði i ánni. Nú er veitt á þrjár stangir og var svo einnig i fyrra, en siðastliðið ár komu 1416 laxar á land I Laxá i Dölum. Langá. Ráðskonan I veiðihúsinu við Langá, Ragnhildur Jóhanns- dóttir, tjáði okkur i gær, að 126 laxar væru komnir á land, og er aðallega veitt á maðk. Þessir laxar veiddust á neðsta svæðinu, Langarfoss og við Anabrekku. Nú fara út- lendingarnir að þyrpast til þeirra I veiðihúsinu við Langá, en nær eingöngu útlendingar veiða I júli og fram i miðjan ágúst. Frá hinum svæðunum þrem i Langá, Jarðlangsstöð- um, Stangarholti og Grenjum, getum við vonandi sagt frá fljótlega.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.