Tíminn - 03.07.1974, Qupperneq 9

Tíminn - 03.07.1974, Qupperneq 9
TÍMINN 9 Miðvikudagur 3. júll 1974. Wmmm Ctgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — greiðslusimi 12323 — auglýsingaslmi 19523. - af- - 1 Blaðaprenth.f. Öflugasta fram- faraaflið Framsóknarflokkurinn átti að þvi leyti óhægari aðstöðu en aðrir flokkar I nýlokinni kosninga- baráttu, að gerð var skipulögð tilraun til að kljúfa hann innan frá og stóðu einkum að þvi menn, sem töldu framavonum sinum ekki hafa verið fullnægt nógu fljótt innan flokksins. Margir óbreyttir kjós- endur töldu hér vera á ferðinni miklu alvarlegri klofning en raun varð og hefur þetta vafalitið fælt ýmsa frá þvi að veita flokknum brautargengi að þessu sinni. Þrátt fyrir þetta, urðu úrslit kosninganna þau, að flokkurinn hélt öllum þingsætum sinum og nokkurn veginn óbreyttu atkvæðahlutfalli. Hann fékk nú 25.9% greiddra atkvæða, en fékk 26.3% i kosningunum 1971. Þess munu ekki mörg dæmi, að flokkur, sem verið hefur fyrir jafn alvarlegri klofningstilraun, haldi eins vel hlut sinum. öllu betur verður það ekki leitt i ljós, hve sterkur og samstæður flokkurinn er, enda þótt innan hans riki fullt skoðanafrelsi og mismunandi afstaða til ýmissa dægurmála. Það er hins vegar sameigin- leg grundvallarstefna, sem hefur tengt og tengir flokkinn saman, en hún var i stuttu máli orðuð þannig i upphafi, að það væri markmið flokksins að vinna að framför alls landsins og allrar þjóðarinnar. Vegna þessarar stefnu sinnar, er Framsóknarflokkurinn eini flokkurinn, sem hefur haldið uppi merkjum byggðastefnunnar frá upphafi Svo vel hefur Framsóknarflokkurinn rækt þetta hlutverk sitt, að hann hefur um meira en hálfrar aldar skeið verið stærsti flokkur ihaldsand- stæðinga og umbótamanna i landinu. Þeirri stöðu heldur hann óumdeilanlega enn. Hann kemur langnæst Sjálfstæðisflokknum að þingsætatölu og atkvæðamagni. Þótt oft hafi verið reynt að kljúfa flokkinn, eins og iðulega er hlutskipti þeirra flokka, sem standa nærri miðju stjórnmálanna, hefur hann jafnan haldið þvi trausti kjósenda vegna umbótastefnu sinnar, að enginn flokkur ihaldsandstæðinga hefur náð nálægt þvi eins miklu fylgi og hann. Þessi staða hans er óbreytt enn. Eftir kosningarnar hefur sá flokkur, sem telur sig vera ihaldsandstæðing, og næst kemur Fram- sóknarflokknum að fylgi, Alþýðubandalagið ekki nema 18% greiddra atkvæða. Fylgi Alþýðuflokks- ins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna er enn minni. Það hefur stundum verið notað gegn Fram- sóknarflokknum að hann væri orðinn gamall að árum og nauðsynlegt sé fyrir flokka að skipta um nafn og númer, þótt stefnan sé óbreytt, eins og bæði Sjálfstæðisflokkurin og Alþýðubandalagið hafa gert. En Framsóknarflokkurinn hefur ekki þurft og þarf ekki á slikum fataskiptum að halda. Hann hefur sannað og sýnt óbreytta framfara- stefnu sina með verkum. Hann knúði fram marg- háttaðar framfarir i fyrstu rikisstjórninni, sem hann tók þátt i á árunum 1917-1920, enda þótt hann yrði þá að vinna með ihaldssömum öflum, og hann hefur i núverandi stjórn haft forustu um meiri framfarasókn en áður er dæmi um i sögu hins nýja lýðveldis. Framfarastefnan, sem Framsóknar- flokkurinn fylgir, verður alltaf ný, þvi að jafnan er nóg verk að vinna til eflingar lands og lýðs. Spartak Beglov: Sérhver fundur æðstu manna er viðburður Mikið unnið á þriðja fundi Nixons og Brezjnefs 1 sIAastiiöinni viku hófst I Moskvu þriöji viöræöufundur þeirra Nixons og Brezjnefs, en Nixon hélt til Moskvu eftir aö hafa undirritaö I Brussel hina nýju yfirlýsingu Atlantshafs- bandalagsins. Viöræöurnar hafa mest snúizt um takmörk- un á tilraunum meö kjarn- orkusprengingar og samdrátt I kjarnorkuvopnabúnaöi. Þótt ekki náist samkomulag um beina samninga, þykir liklegt aö nokkuö þokist I samkomu- lagsátt. Þá hafa þeir Nixon og Brezjnef undirritaö 10 ára samning um eflingu efnahags- samvinnu, og auk þess þrjá samninga, sem varöa sam- starf á sviöi orkumála, hús- bygginga og rannsókna á notkun gervihjarta. Sam- kvæmt þessum samningum veröa settar upp sérstakar samstarfsnefndir, og eru þá nefndirnar orönar þrettán talsins, sem vinna aö sérstöku samstarfi milli þjóöanna. Llk- legtþykir, aö sllk nefndarstörf auki verulega gagnkvæm kynni. Yfirleitt er þaö dómur heimsblaöanna, aö sllkir fund- ir æöstu manna séu gagnlegir, þótt oft náist ekki beinn árangur. Rússneskir fjölmiöl- ar ræöa mjög mikiö um fund þeirra Nixons og Brezjnefs og falla dómar þeirra yfirleitt á svipaöa leiö og I eftirfarandi grein eftir Spartak Beglov, sem er einn helzti fréttaskýr- andi APN, en greinar hans eru nú farnar aö birtast I blöðum viöa um heim, t.d. New York Times og Information i Kaup- mannahöfn. ÞRIÐJIJ viöræður æðstu manna Sovétrikjanna og Bandarikjanna einkennast af þeirri ákvörðun beggja aðila að halda áfram eflingu sovézk-bandarlskra sam- skipta, en á það var lögð áherzla I yfirlýsingum L. Brézjnefs og R. Nixons I upp- hafi viðræðnanna. Úskin um að gera viðræðurnar árangursrlkar hefur verið staðfest með undirskrift tvi- hliöa samninga þegar á fyrsta stigi viðræðnanna. Verið er að vinna að sam- eiginlegri lausn á knýjandi stjórnmálavanda, eins og kjarnorkuafvopnun, mögu- leika á sameiginlegri afstööu til þýðingarmikilla alþjóða- mála, takmörkun strategiskra vopna og fl. Á hinn bóginn eru samstarfsáætlanir á ýmsum sviðum þjóðarbúskapsins, vls- inda- og tækniframfara og heilsuverndar settar I samn- ingsform. Þessi samræming stórra og smárra mála er þýð- ingarmikill þáttur I hinu mikilvæga starfi, sem tengt er sovézk-bandarlsku viðræðun- um. SKIPTING starfsins I stórmál og smá mál er mjög skilorðis- bundin I sjálfu sér, sem hver samningur um sérstakt vandamál eflir sameiginlegan grundvöll friðsamlegrar sam- vinnu og samstarfs. Jafnvel hinir reyndustu stjórnmála- sérfræðingar, þ.á.m. þeir barnarísku hafa komizt að þessari niðurstöðu. Um þetta hef ég sannfærzt af tali mlnu við leiðandi fréttaskýranda frá stórri sjónvarps- og út- varpsstöð I Bandarlkjunum, sem kom til Moskvu vegna viðræðnanna. Varðandi texta fyrstu þriggja samninganna, sem gerðir voru á sviði orku- mála, húsbygginga og rann- sóknir á gervihjörtum, sagði hann: ,,Þó að þessir samning- ar llti út fyrir að vera glöggt afmarkaðir og þröngir við fyrsta tillit, þá merkja þeir I raun og veru þrjú ný skref I átt til að fylla upp I, þar sem skörð voru á samvinnu okk- ar”. Það má geta þess hér, aö I kjölfar þessara samninga veröa stofnaðar sovézk- bandariskar nefndir til sam- vinnu á ýmsum sviðum. Heildarfjöldi sllkra nefnda, að meðtöldum þeim, sem áður höföu verið stofnaðar, veröur nú 13. Það má geta þess, að diplómatar, þingmenn, kaup- sýslumenn, verkfræðingar, visindamenn, geimfarar, læknar og menningarfrömuðir fara smám saman að taka þátt I hinu yfirgripsmikla starfi, sem tengt er endur- skipulagningu sovézk-banda- rlskra samskipta. ÞETTA ER bezta sönnunin á þeirri staöreynd, að yfirstand- andi breytingar I sovézk- bandariskum samskiptum ákvarðast ekki af huglægum þáttum, ekki af duttlungum eða hagsmunum einstaklinga, heldur af nauðsyn á varanleg- um friði, vegna hagsmuna beggja þjóðanna. Fyrir nokkrum dögum beindi W. Fulbright, öldunga- deildarþingmaður þeim orð- um til þeirra Bandarlkja- manna, sem enn styðja þrýsti- aðferðir og vilja koma i veg fyrir einstaka samninga undir þvi yfirskini, að þeir séu að- eins hagkvæmir fyrir Sovét- rlkin, að I húfi væru stærri vandamál, vandamál sem vörðuðu hagsmuni Bandarikj- anna. Það væri að koma á ein- drægni og öryggi á alþjóða- vettvangi, þar sem smám saman væri hægt að draga úr hættunni á kjarnorkustyrjöld. Meginatriöið, sem nú er á dagskrá sovézk-bandarlskra samskipta er að tryggja var- anlegan frið milli Sovétrlkj- anna og Bandarlkjanna. L. Brézjnef lagði áherzlu á þessa hugmynd, þegar hann heilsaði Bandarikjaforseta I Kreml. SÉRHVER fundur æðstu manna er viðburður. Það sem mikilverðast er, er að viðræð- urnar eru orðnar reglulegar, en ekki einstakir einangraðir atburðir. Sérhver samningur eflir á- kvörðunina um að koma I veg fyrir nýja styrjöld og er mikil- vægur fyrir þá undirstöðu, sem varanlegur friður er byggður á. Nixon og Brezjneff ræðast við I Moskvu. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.