Tíminn - 03.07.1974, Blaðsíða 17

Tíminn - 03.07.1974, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 3. júli 1974. TÍMINN 17 KARFA SKORUÐ... i leik Reykjavikur og Helsinki. Tímamynd Jim. Heimsmet í Laugar- dolshöll — þegar finnskur dómari hagaði sér eins og trúður í körfuknattleiksleik, sem stóð yfir í 2 tíma! Finnskur körfuknatt- leiksdómari lék aðalhlut- GADDASKOR Einnig sérskór fyrir t.d. langstökk/ kringlukast, kúluvarp, hástökk, þri- stökk o. fl. Verð frá 1.940.- — 5.600.- PÓSTSENDUAA Sportvöruverzlun Ingólfs Oskarssonar KLAPPARSTÍG 44 SI/WI 1-17-83 • REYKJAVÍK verkið i „maraþonkörfu- knattleik", sem var leikinn á mánudaginn var i Laugardalshöllinni, en þá mættust úrvalslið frá Helsinki og Reykjavík. Þessi dómari hagaði sér eins og trúður og hann hreinlega skemmdi leikinn, sem stoð yf ir í tvo tíma. — Það er lengsti körfuknattleiksleikur sem hefur farið fram á islandi og jafnframt í heiminum. — HEIMS- MET. Finnski dómarinn byrjaði leikinn strax á því, að gefa leikmönnum Reykjavikurúrvalsins villurá brot, sem enginn í Laugardalshöllinni sá, nema hann. — Þegar á leikinn leið fóru leikmenn Reykjavíkurliðsins að tínast útaf með 5 villur og voru þeir, sem voru búnir að fá 5 villur, greinilega fegnir að yfirgefa völlinn og sleppa þar með undan finnska „trúðnum", sem dæmdi leikinn. Lokatölur leiksins urðu 84:58 fyrir Helsinki, en staðan i hálf- leik var 48:26 fyrir Finnana. -SOS. Færevfnaar vonast eftir lanabráðum sfarf.... — þegar þeir mæta íslendingum í kvöld í Þórshöfn Færeyingar eru ákveðnir I að veita islenzka iandsliðinu i knattspyrnu, sem leikur i ÞÓrshöfn f kvöld, harða keppni. Þeir vonast eftir fyrsta sigri Færeyinga yfir ís- lendingum i knattspyrnu, en það hefur verið langþráður sigur hjá Færeyingum. Færeyska landsliðið i knatt- spyrnu hefur sjaldan verið eins gott og það er i dag, og þess vegna binda Færeyingar miklar vonir við það. Leikurinn i kvöld fer fram i Þórshöfn og hefst hann kl. 20.00, i dagblaði i Færeyjum, var sagt fyrir stuttu, aö Bjarni Felixson hafði sagt, að is- lenzka landsliöið væri eitt það sterkasta, sem lslendingar hefðu átt í mörg ár. Þaö er mikill hugur i Færeyingum og má þvi búast við skemmtileg- um leik i kvöld, þegar frænd- þjóðirnar mætast. -SOS. Góður endasprettur færði æfingalausu Reykjavíkurúrvali sigur yfir Osló.... — þar með var fyrsti sigurinn í borgarkeppni í handknattleik staðreynd 23:17 Góður endasprettur færði Reykjavíkurúrvalinu í handknattleik, sætan sigur yfir úrvalsliði Oslóar í Laugarda Ishöl linni á mánudagskvöldið. Þegar aðeins voru 10 min. til leiksloka var staðan jöfn 15:15, en þá fór Reykja- víkurliðið i gang — leik- mennirnir léku á fullu og breyttu stöðunni í 19:15 og ieiknum lauk síðan með sigri Reykjavíkur 23:17. Þar með var fyrsti sigur Reykjavíkur í borgar- keppni staðreynd og sigur- inn var mjög sætur, því að leikmenn Reykjavikurliðs- ins eru ekki í mikilli æfingu um þessar mundir, enda hefur ekki handknattleikur verið leikinn hér um tveggja mánaða skeið. Einar Magnússon var at- hafnamestur í Reykja- víkurliðinu, hann skoraði 6 mörk, sum með þrumu- skotunum, sem hann er þekktur fyrir. Það var greinilegt i byrjun leiksins, að Reykjavikurliðið var ekki mjög samæft, en þegar á leikinn leið efldist það og sigraði örugglega hið sterka Oslóar-úr- val, sem er eingöngu skipað norskum landsliðsmönnum. Þaö sama er hægt að segja um Reykjavikurúrvalið, en i þvi lék aðeins einn leikmaður, sem ekki hefur leikið landsleik — það var hinn ungi og efnilegi Friðrik Frið- riksson, sem átti mjög góðan leik og hann gaf ekkert hirium reyndu landsliðsmönnum eftir. Það er greinilegt, að þarna er mikið efni á ferðinni, sem Þróttarar geta bundið miklar vonir við i framtið- inni. EINAR MAGNOSSON... sendi knöttinn 6 sinnum I netið. Beztu menn Reykjavikurúr- valsins voru þeir Björgvin Björg- vinsson, linumaðurinn snjalli sem aldrei bregzt, Einar Magnússon, Ólafur Jónsson, Ragnar Gunnarsson, sem varði markið mjög vel i siðari hálfleik og Frið- rik Friðriksson. Mörk Reykjavikurúrvalsins skoruðu þessir leikmenn: Einar 6 (2 viti), Björgvin 4, Gisli Blöndal. 3, Friðrik 3, Ólafur 3, Guðjón Magnússon, Stefán Gunnarsson, Gunnsteinn Skúlason og Brynjólf- ur Markússon, eitt hver. —SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.