Tíminn - 17.08.1974, Blaðsíða 5
Laugardagur 17. ágúst 1974.
TÍMINN
5
Gagnfraeðaskólinn á Sauðórkróki:
• • r
FÆR STJORNUKIKI
AÐ GJÖF
Gó-Sauðárkróki — Föstudaginn
9. ágúst sl. barst Gagnfræðaskól-
anum á Sauðárkróki vegleg gjöf,
stjörnukikir, sem gefinn er til
minningar um Jón Þ. Björnsson,
fyrrverandi skólastjóra á Sauðár-
króki, en hann var skólastjóri
Barna- og ungmennaskóla Sauð-
árkróks um hálfrar aldar skeið.
Gefendurnir eru synir Jóns, þeir
Björn Jónsson læknir i Kanada og
Stefán Jónsson arkitekt i Reykja-
vik.
Björn afhenti gjöfina fyrir hönd
þeirra bræðra að viðstaddri
skólanefnd, skólastjóra, bæjaryf-
irvöldum og nokkrum vina sinna.
Skólastjóri, Friðrik Margeirsson,
veitti stjörnukikinum viðtöku fyr-
ir hönd gagnfræðaskólans og
þakkaði gefendum rausnarlega
gjöf, sem er stórt framlag til
aukningar tækjakosti skólans.
Við þetta tækifæri minntist skóla-
stjóri Jóns Þ. Björnssonar, sem
var á sinum tima meðal fremstu
skólamanna landsins, og mun svo
verða talinn á spjöldum sögunn-
ar.
Að afhendingu lokinni bauð
bæjarráð Sauðárkróksbæjar til
kaffidrykkju að Hótel Mælifelli.
Undir borðum flutti Guðjón Ingi-
mundarson formaður skólanefnd-
ar, ræðu, þar sem hann minntist
Jóns Þ. Björnssonar sem borg-
ara á Sauðárkróki og starfa hans i
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNIR Óskast til
starfa á Barnaspitala Hringsins
frá 1. desember n.k. Staðan er 12
mánaða staða með möguleika á
framlengingu i aðra 12 mánuði.
Umsóknarfrestur er til 16. septem-
ber n.k. Nánari upplýsingar veitir
yfirlæknir Barnaspitalans.
RITARI (læknaritari) óskast til
starfa við FÆÐINGARDEILD frá
1. september n.k. Umsóknarfrest-
ur til 26. þ.m. Stúdentspróf eða
sambærileg menntun, ásamt vél-
ritunarkunnáttu, nauðsynleg.
Upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri.
HJÚKRUNARKONUx. óskast til
starfa á eftirtaldar deildir: Barna-
spitala Hringsins, gjörgæsludeild,
handlækningadeild, kvensjúk-
dómadeild, lyflækningadeild og
taugalækningadeild. Til. greina
kemur vinna hluta úr fullu starfi og
á kvöld- og næturvöktum sérstak-
lega. Upplýsingar veitir forstöðu-
konan, simi 24160.
VERKAMAÐUR óskast i fast starf
á spitalanum. Upplýsingar veitir
tæknifræðingur spitalans, simi
11765 eftir kl. fjögur á daginn.
STARFSSTÚLKA óskast til starfa i
borðstofu GEÐDEILDAR
BARNASPÍTALA HRINGSINS við
Dalbraut. Upplýsingar veitir yfir-
hjúkrunarkona deildarinnar, simi
84611.
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á
ýmsum deildum spitalans.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 24160.
ÞVOTTAHÚS RíKISSPÍTALANNA:
ÞVOTTAMAÐUR óskast til starfa
hið fyrsta i þvottahúsið við Tungu-
háls 2 i Árbæjarhverfi. Mötuneyti á
staðnum og ókeypis ferðir.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 81714.
Reykjavik, 16. ágúst 1974.
SKRIFSTOFA
R í KISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
þágu staðarins á ýmsum sviöum. hlýhug þeirt'a og ræktarsemi við gjöf bæri vott um, jafnframt þvf
Svo og þakkaði Guðjón gefendum heimabyggð, sem hin veglega að heiðra minningu föður þeirra.
Við afhendingu stjörnukikisins: Talið frá vinstri Guðjón Ingimundarson, formaður skólanefndar, Friðr-
ik Margeirsson skólastjóri og Björn Jónsson læknir.
FARMALL
HYDROIOO
145 hestöfl — með húsi
SJÁLFSKIPTUR
VÖKVASTÝRI
TVÖFALDIR
HJÓLBARÐAR
Höfum fengið sendingu af þessum stórkostlegu traktorum
sem henta vel fyrir búnaðarfélög eða ræktunarsambönd eða
verktaka í landbúnaði við jarðræktarframkvæmdir
Vélarnar afgreiddar með fullkomnasta búnaði og vönduðu húsi
Samband íslenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármula 3 Reykjavik simi 38900
Vélarnar nýkomnar
til afgreiðslu
beint úr verksmiðju í
Bandaríkjunum