Tíminn - 17.08.1974, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.08.1974, Blaðsíða 6
TÍMINN Laugardagur 17. ágdst »74. 6 Betri áheyrendur hefi ég aldrei haft.... Rætt við Þórodd Guðmundsson, skdld fró Sandi EITT kunnasta ljóð- skáld okkar er Þóroddur Guðmundsson frá Sandi, fæddur 18. ágúst 1904 og er þvi sjötugur um þess- ar mundir. Þóroddur gaf út sina fyrstu ljóðabók, Villifiug árið 1946 og siðan hefur hann gefið út einar 10 bækur, flest ljóðabækur og ennfrem- ur ljóðaþýðingar. Guðmundur Friðjóns- son, skáld og bóndi á Sandi i Aðaldal var faðir Þórodds og þvi hefur það án efa verið sérstök þrekraun fyrir hann og bræður hans að kveða sér hljóðs i riki skáld- skapar, þvi ljóð þeirra þurftu að vaxa og dafna, ekki aðeins i skjóli voldugrar eikur, heldur einnig i skugga hennar, — en siðan er langt um liðið og Þóroddur Guð- mundsson, Heiðrekur og þeir bræður hafa fyrir löngu haslað sér völl sem ljóðskáld. Viö hittum Þórodd Guðmunds- son á heimili hans á dögunum, til að inna hann eftir sumarstarfinu og hvað helzt væri á döfinni hjá honum þessa dagana og hafði hann þetta að segja: Rætt við Þórodd Guð- mundsson — Ég hefi nú átt við nokkra vanheilsu að striða undanfarna mánuði. Ég hætti að vinna að kennslustörfum fyrir tveim árum og hefi siðan reynt að helga mig öðrum áhugamálum minum eftir beztu getu. Ég hefi lokið við ferðabók, sem reyndar hefur ekki enn verið gefin út, en Baldur Pálmason las kafla úr henni i út- varp nú á dögunum. t sumar var ég á spitala og fékk ströng fyrirmæli um að taka mér aö minnsta kosti tveggja mánaða fri, eða sitja með öðrum orðum auöum höndum, en það tókst mér hins vegar ekki og hef ég setið að ljóðaþýðingum, þvi að mig hafði lengi langaö til að þýða nokkur skandinavisk skáld og nokkra Þjóðverja. Kvæði, sem ég hafði heillazt af á minum yngri árum. Þetta hefur verið helzta viðfangsefnið i þessu frii, sem læknarnir ráðlögðu mér. Mér er þaö auðvitað ljóst, að maður verður að hlita dómi lækna, en á hinn bóginn er mér lifsins ómögulegt að sitja auðum hönd- um og þá allra sizt á sumrin, þegar allt lif er með blóma. Tvær ferðir til Ameriku — Var einhver sérstök ástæða til þess aö þú fórst til Bandarikj- anna? — Nei. Ég fór þangað tvisvar og sem almennur ferðamaður. Ég var orðinn vel kunnugur i Mið- og Norður-Evrópu, en mig hafði þó alltaf langað til þess að heim- sækja Bandarikin. Langamma min fluttist þangað vestur með mörg ung börn, nema ömmu mina, sem hún kom i fóstur. Hún hét Sigriður Gunnlaugsdóttir, hún amma min, og hún fluttist vestur um haf skömmu eftir miðja siðustu öld. (ca. 1880). Þá voru erfiðir timar á tslandi og hún var nýorðin ekkja, þegar hún ákvað að flytjast vestur um haf og freista gæfunnar þar. Nú á ég marga frændur í Ameriku, sem gefur auga leið og ef til vill má lita svo á, að vegna þessara tengsla, blóðbanda, hafi Banda- rikin og Kanada verið mér hug- stæö á stundum. Ennfremur þekkti ég slangur af fólki þar vestra. Guttormur Guttormsson hafði komið á heimili mitt og þá ásamt dóttur sinni Bergljótu og heim- sótti ég hana fyrir vestan, en Guttormur var þá látinn. Bergljót og Guttormur bjuggu i Winnepeg. Félagsmálin — Nú lætur þú af formennsku i Félagi islenzka rithöfunda i vor, eftir langa setu í stjórn félagsins. Hversu lengi saztu i stjórn félags- ins? — Ég held að ég hafi verið með frá upphafi. Ég hafði kynnzt Guð- mundi Hagalin þegar ég var skóiastjóri i Reykjanesi og hann var þá bókavörður á tsafirði. Guðmundur bauð mér inngöngu i félagið, mig minnir að þaö hafi verið árið 1945. t stjórn félagsins var ég fyrst kosinn árið 1953 og siðan formaöur áriö eftir og þá til 1958. Siðan varð ég formaður félagsins aftur um skeið tvisvar sinnum, en aðrir gegndu formennsku i millitiðinni, Ingólfur Kristjánsson, Guðmund- ur Danielsson og Matthias Jóhannessen og ef til vill fleiri. — Telur þú að félög hafi mikifi gildi fyrir rithöfunda? — Á þvi er ekki minnsti vafi. Að visu má segja sem svo, að féiags- málastörfin hafi ekki orðið eins mikil, sem skyldi. Samt hefur orðið einhver ávinningur að þessu, fjárhagslegur og til álits- auka. En það er fleira. Margir höfundar eru kyrrlátir menn, sem hefðu naumast kynnzt stéttar- bræðrum sinum persónulega, nema á fundum félagsins. Margir hafa t.d. talað um, að það væri upplifgandi að koma á félags- fundi og skrafa þar um eitt og annað, sem liggur á hjarta. Margt af þessu fólki er einmana og gegnum þetta samband eign- ast þaö kunningja, sem hafa sam- eiginleg áhugamál. Umræðan er oft þroskandi. Þjóðhátiðarkvæði — saklaus af þvi — Ortiröu nokkuö i tilefni þjóö- hátiöarinnar? — Nei, ég er saklaus af þvi. Hefi legið i þýðingum. Verið að þýða ýmsa menn, sem ég hafði kynnzt i bókum fyrir löngu, en aldrei haft mig i að þýða þrátt fyrir áhuga. Þetta eru menn eins og Henrik Wergeland, sem var samtima- Kennari óskast að gagnfræðaskólanum i Mosfellssveit Kennslugreinar, stærðfræði og eðlisfræði Ennfremur vantar teiknikennara, tólf stundir á viku. Upplýsingar gefa Gylfi Pálsson skóla- stjóri, simi 66-153 og Haukur Þórðarson, yfirlæknir, Reykjalundi formaður skóla- nefndar, simi 66-200. Volkswagen til sölu árgerð 1955 — til niðurrifs — Góð vél. Billinn fluttur til kaupanda ef óskað er. Upplýsingar i sima 92-8321 milli kl. 8 og 10 á kvöldin, svo og 9 og 12 á daginn. Þóroddur Guömundsson, skáld frá Sandi maöur Jónasar Hallgrimssonar. En þjóðhátiðarkvæði gerði ég ekki, og telst þvi ekki i þeim hópi, sem ganga með slika hluti inn á sér. Annars er ég svo sem ekki sak- lausari en aðrir i þeim efnum, hefi nokkrum sinnum ort þjóð- hátlðarkvæði, eða það sem nefnt er ávarp fjallkonunnar hér i Hafnarfirði, en Hafnfiröingar hafa nokkrum sinnum farið þess á leit við mig, og þá hefi ég sett þetta saman og það svo flutt af tilvöldum konum á 17. júni skemmtunum. Ást á ljóðum — Nú ert þú alinn upp á heimili, þar sem skáldskapur var i háveg- um hafður. Ljóðagerð stunduö og kvæöi ort. Telur þú aö á vorum dögum sé eins mikill áhugi á ljóðinu og var á æskudögum þin- um I Þingeyjarsýslu? — Ég er þvi nú ekki kunnugur, en þó er mér óhætt að fullyrða, að meiri áhugi sé á ljóðinu nú, en margir vilja vera láta. Mér liggur við að segja, ást á ljóðum. Að visu finnst manni oft vera undarlega kyrrt i þessari veröld mannsins, ljóöinu. En það kemur fyrir, að óliklegustu menn, oft bláókunnugir menn gefa sig á tal við mann upp úr þurru og hafa þá annaðhvort lesiö, eða heyrt eitt- hvað ljóð eftir mann og vilja segja sitt um það. Oft eru þetta menn, er allt annað bera i fari sinu svona dags daglega en skáld skap, þannig að ljóðið á viða vini. Mér sýnist, að á timum, þar sem menn vilja vita staðreyndir allra hluta, þá þyrfti raunverulega að fara fram könnun á stöðu ljóðsins meöal almennings. Það væri verðugt viöfangsefni fyrir visindamenn og bókmennta- fræðinga og gagnlegt fyrir skáld- in, eða fyrir þá sem þetta listform nota. Þarna er i rauninni margs að gæta. Ég var um tima bókavörður hér I Hafnarfirði. Auðvitað var mest lánaö út af skáldsögum, ferða- sögum og allskonar fróðleiksbók- um, minna af ljóðabókum. Þar varð ég var við, að fólkið var hrætt við bækur þeirra skálda, sem lengst voru komin i form- byltingu þeirri, sem staðið hefur yfir seinustu áratugina i ljóðinu. Kynning á ljóðum — könnun á skáldskap Ljóðið verður til i kyrrðinni á vorum dögum og ef til vill er eftirvæntinginn minni. Samt er það ekki óalgengt að heyra menn fara með skáldskap (þá oftar við skál) og geta menn þá kveðist á, kastað fram stöku, eða haft yfir heilar bögur. Þetta sýnir okkur, aö ljóðiö er etm lifandi. Hvað slika könnun varðar, þá yrði að henni fengur bæði fyrir þjóðina og fyrir skáldin. Margir telja að búið sé að ganga af ljóðinu allt að þvi dauðu með nýj- um formum, að ljóð séu ekki jafn aðgengileg og i gömlum búningi. Ef til vill þarf að kynna ljóðið betur en gert er, birta þau meira i blöðum og fjölmiðlum og gefa skáldum, eða öðrum sem ljóð lesa upp fleiri tækifæri til að koma fram opinberlega. — Er engin skipulögö kynning- arstarfsemi á ljóöinu? — Það er mjög litið um það. Að vísu fer fram skipulögð bók- menntakynning i skólum og þar i talið, að skáld fara og lesa ljóð sin i skólum fyrir æskuna. Ennfremur er maður stundum beöinn að lesa i skólum og eru það þá einhverjir bekkir, eða félög, sem fara fram á það við einhver skáld að þau komi i heimsókn. Ég hefi verið beðinn um að koma fram á svona bókmenntakynn- ingum og það hefur satt að segja verið mjög uppörvandi. Ljóðum neytt upp á unglinga og börn —- Auk þess vinna skólarnir sjálfir, eða stjórendur þeirra að bókmenntakynningu. Kynningu á ljóðum, en þar er ég ekki eins sannfærður um leiðir. Ég tel t.d. mjög varhugavert að taka ákveðna, aðeins ákveðna höfunda og ákveðin ljóð þeirra og láta unga fólkið læra þau. Þetta er einstaklingsbundið og þvi þyrftu börnin og unglingar að geta valið úr. Það er mikil grimmd fólgin i þvl að láta manneskju læra, eða neyða hana til þess að læra ákveðið kvæði, sem sá hinn sami hefur ekki skilning, eða smekk fyrir. Það getur gert ljóðinu meiri skaðaengagn. Beinlinis orðið til þess að hrinda barninu frá þess- ari merkilegu veröld, ljóðunum. A þessu þyrfti að verða breyting, og það sem sett er fyrir i skólum ætti að vera, að læra sjálfvaliö ljóð utanbókar. — Hvernig er Ijóöskáldum tek- iö, þegar þau koma í skólana til þess að lesa upp ljóö sin? — Mér er óhætt að fullyrða að skáldunum hefur verið vel tekið i skólunum. Miklu betur liggur mér við að segja, en ég hefði gert ráð fyrir. Auðvitað eru kvæðin oftast vaiin þannig, að þau séu við hæfi barna, eða unglinga, en ég get sagt það með sanni, að betri áheyrendur hefi ég aldrei haft, segir Þóroddur Guðmundsson, skáld frá Sandi að lokum. — JG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.