Tíminn - 17.08.1974, Blaðsíða 11

Tíminn - 17.08.1974, Blaðsíða 11
Laugardagur 17. ágúst 1974. TÍMINN 11 Utverðir í vestri og austri mætast á mánudagskvöld Fimmti landsleikur tslands og Finnlands — útvarðanna i vestri og austri, sem þessi tvö Norðuriönd erú stundum nefnd — verður húður á Laug- ardalsvellinum n.k. mánu- dagskvöld og hefst kl. 19. ts- lenzka liðið hefur áður verið tilkynnt, en i þvi eru fjórir ný- liðar. Finnar hafa hingað til verið i hópi veikari knattspyrnu- þjóða Evrópu, enda eiga boltaiþróttir ekki upp á pall- borðið hjá hinni miklu frjáls- iþróttaþjóð, neina körfubolti. Hins vegar hafa Finnar spjar- að sig vel á knattspyrnusvið- inu undanfarið, eins og sigur þeirra gegn Norðmönnum i fyrrakvöld sannar, en þann leik unnu Finnar með 2:1. Þess má geta, að Norðmenn léku nýlega gegn Svium og töpuðu með sama markamun. Gefur þetta nokkra hugmynd um styrkleika finnska liðsins um þessar mundir. Sem fyrr segir, verður þetta 5. landsleikur tslands og Finn- lands á knattspyrnusviðinu. Fyrsta leikinn, sem háður var á Melavellinum i Reykjavik 1948, unnu tslendingar með 2:0, en í þremur næstu leikjum báru Finnar sigurorð af okk- ur, 1956 i Finnlandi 2:1, I æsi- spennandi leik, 1964 i Reykja- vik 2:0, og loks i Helsinki 1969, en þeim leik lyktaði 3:1. Frjálsíþrótta- fólk verður í sviðsljósinu Bikarkeppni FRI fer fram í Reykjavík og á Akureyri um helgina ^ ENSKA KNATTSPYRNAN „Ég vona að ég falli inn í leik City- liðsins" Bikarkeppnin i frjálsum Iþróttum verður háð i Reykjavik og Akureyri, nú um helg- ina. 1. deildarkeppnin hefst á Laugardals- vellinum i dag kl. 14.00, en 2. deildin fer fram á Akureyri á sama tima. Þetta er i 9. sinn sem bikarkeppnin . fer fram og taka sex félög; þátt i 1. deildarkeppninni: Ar- mann, KR, tR, UMSK, HSÞ og HSK. Sigur vegarinn öðlast titilinn Bikarmeistari i frjálsiþróttum 1974, en neðsta liðið fellur I 2. deild og keppir þar að ári. Jafnframt fer fram keppni um stigahæsta félagið I karla- og kvennaflokkum. i fyrra uröu IR-ingar bikarmeistarar og sigruðu einnig I karla- flokki, en Armann sigraði i kvennaflokki. 1. deildarkeppnin fer fram á Laugardals- vellinum i dag og á morgun. — Keppnin hefst kl. 14.00 báöa dagana, 2. deildar- keppnin fer fram á Akureyri i dag kl. 14.00 og keppa þar sex félög: HVt, ÚtA, FH, UMSE, UNÞ og HSH. Sigurvegarinn öðlast þátttöku I 1. deild að ári. Þorsteinn fer aftur í Fram... ASA HATFORD: Knattspyrnuferill hans var sagður á enda.... Leeds rifti kaupunum á honum en nú hefur Manchester City keypt hann Fyrir þremur arum var sagt að knattspyrnuferill Asa Hat- ford væri á enda, þar sem hann væri hjartveikur. Þessi ungi og efnilegi leikmaður, sem var þá aöeins 21 árs, varð þá fyrir miklu áfalli. Iiatford var keyptur til Leeds á 170 þús. pund frá W.B.A. — Aðeins örfáum timum áður en hann átti að leika sinn fyrsta leik fyrir Leeds, rifti Leeds kaup- unum á honum, þar sem lækn- ar kváðu upp þann úrskurð, aö Hatford væri alvarlega veikur — með hjartagalla. Já, það var mikið áfall fyrir þennan unga skozka landsliðsmann, scin var keyptur til I.ecds með þeim skiiyrðum, að hann klippti hár sitt. llatford var ætlað það hlutverk hjá Leeds, að taka stöðu Johnny Giles. Úr þvi varð ekki, þvi að Leeds rifti kaupunum, þvi að þá kom i ljós að hann var með hjartagalla, sem engjnn hefði vitað um áður. Rétt eftir að Hatford var skoðaður hjá Leeds, þá skoðuðu læknar West Bromwich Albion, hann og úrskurðurinn var: — það amar ekkert að Hatford, þetta er einhver misskilningur hjá læknum Leeds. En einn helzti hjartasérfræðingur Englands skoðaði siðan Hatford — hann sagði að gat væri á hjartaloku i Hatford, en það væri ekki svo alvarlegt, að það hindraði hann i að æfa og leika knatt- spyrnu. Já, Hatford hélt áfram að leika með félögum sinum i W.B.A. og hann varð einn bezti miðvallarspilari á Bretlandseyjum. Nú er þessi snjalli leikmaður. sem er að- eins 24 ára gamall, kominn i raðir Manchestier City og það má búast við. að hann eigi eft- ir að gleðja hjörtu áhangenda Citv-iiðsins með leik sinum. ,,Já, ég hef ákveðið að ganga aftur i raðir Framara og æfa og ieika með þeim i vetur”,,,,,sagi Þorsteinn Björnsson, fyrrum landsliðsmarkvörður I hand- knattleik. En eins og menn muna, þá lék Þorsteinn meö 2. deildar- liði Þróttar sl. keppnistimabil Iþróttasiöar hefur frétt, aö Þróttarar fái markvörð úr Armanni i staðinn fyrir Þorstein, en Þróttarar ætla sér aö tryggja sér 1. deildarsæti næsta keppnis- timabil. Eins og hefur áöur komið fram hér á siðunni, þá mun Bjarni Jónsson, sem lék með danska liöinu Arhus KFUM, þjálfa og leika með Þrótti næsta keppnistimabil. Hann á örugg- lega eftir að vera mikill styrkur fyrir Þróttarliðið, sem er ungt og efnilegt. ★ segir skozki landsliðsmaðurinn Asa Hatford, sem AAanchester City keypti fyrir 250 þús. pund Ensku landsliösmennirnir Nor- man Hunter og Alan Clark leika ekki með Leeds-liðinu i dag, þar sem þeir eru i banni tvo fyrstu leiki Leeds á keppnistimabilinu. Það má þvi búast við, aö leik- menn Stoke notfæri sér fjarveru þessara þriggja landsliðsmanna og leiki leikinn I dag til sigurs. Arsenal-liðið varð fyrir miklu áfalli i vikunni, en þá fótbrotnaöi fyrirliði liðsins Alan Ball og mun hann ekki leika meö liðinu aftur fyrr en eftir áramót. Arsenal mætir Leicester á útivelli i dag. Þessir leikir fara fram i 1. um- ferðinni og ætlum við þá að spá úrslitum þeirra, til gamans. 1 Birmingham - Middlesb. 1 Burnley - Wolves 1 Chelsea - Carlisle 2 Everton - Derby x Leicester - Arsenal ,,Ég vona að ég faili inn i leik City-Iiðsins”...sagði skozki iands- liðsmaðurinn Asa Hatford, sem Manchester City keypti frá West Bromwich Aibion á 250 þús. pund. Hatford ieikur með City-liðinu I dag, sem mætir Lúndúnaliðinu West Ham á Maine Road I Manchester. Baráttan um Engiandsmeistara- titilinn hefst i dag, en þá veröur ieikinn 1. umferðin I 1. dcildar- keppninni ensku og hefja Eng- landsmeistararnir frá Leeds, vörn sina I Stoke, en þar mæta þeir Stoke-liðinu á Victoria Ground. Leeds-Iiðið leikur án þriggja sinna sterkustu manna þ.á.m. fyrirliöans Billy Bremner, sem var dæmdur i þriggja leikja bann i vikunni, ásamt Kevin Keegan frá Liverpool. Þeim var visað af leikvelli i leik Liverpool og Leeds á Wembley sl. laugar- dag, en þann leik vann Liverpool 6:5 eftir vitaspyrnukeppni. 2 Luton -Liverpool 1 Man. City - West Ham 1 Newcastle - Coventry 2 Sheff. Utd - Q.P.R. 1 Stoke - Leeds 1 Tottenham - Ipswich Það veröur gaman aö fylgjast með nýliðunum i 1. deild, Middlesbrough, Luton og Carlisle. Það verður örugglega erfiður róður fyrir þessi lið i ensku 1. deildarkeppninni Francis Leed var seldur frá Manchester City til Derby nú I vikunni á 100 þús pund. Þessi snjalli enski landsliðsmaöur mun leika með Derby gegn Everton I dag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.