Tíminn - 28.09.1974, Síða 9
8
TÍMINN
Laugardagur 28. september 1974.
Laugardagur 28. september 1974.
TÍMINN
9
°o A
Tónlistarlækningar á Islandi:
EFLING SKAPGERÐAR-
ÞROSKA MED TÓNLIST
— hs segir frd ndmskeiði, sem haldið var í sumar,° og ræðir við
Geir V. Vilhjdlmsson M.A., forstöðumann Rannsóknarstofnunar
vitundarinnar
UM miOjan júni sl. birtust I dag-
blöðum fréttir af því, að banda-
riskur tónlistarlæknir héldi fyrir-
lestur og námskeið um tóniistar-
lækningar á vegum Rannsókna-
stofnunar Vitundarinnar. Fyrir-
lesturinn var haldinn I sal Tón-
listarskólans við Skipholt að
kvöldi dags þann 14. júni, og brá
undirritaður undir sig betri fætin-
um til að kynnast fyrirbærinu.
Mikill fjöldi fólks var þar sam-
ankominn til að kynnast þvl, sem
um var að vera, eða um 70
manns. Þar var fólk á öllum
aldri. Þar voru nokkrir hæru-
skotnir kollar, mikill fjöldi af
ungu fólki og svo auðvitað allt þar
á milli.
Geir Vilhjálmsson, sálfræðing-
ur og forstöðumaður Rannsókna-
stofnunarinnar Vitundarinnar,
byrjaði á þvi að kynna hinn
bandariska gest, sem var Helen
Bonny, music therapist eða tón-
listarlæknir, sem er raunar alls
endis ófullnægjandi hugtak, þvl
að hér er um ýmislegt annað að
ræða en lækningar, þ.e.a.s. meö-
ferö sjúks fólks, eins og hér kem-
ur fram síðar. Geta má þess hér,
að stór hluti áheyrenda var fólk,
sem starfar á einn eða annan hátt
viö tónlist, kennarar og hljóð-
færaleikarar.
A fyrri hluta þessarar aldar
hófst þróun tónlistarlækningaað-
ferðarinnar á Vesturlöndum, en
Grikkir til forna munu hafa notaö
tónlist til lækninga i nokkrum
mæli, svo að aðferð þessi er slður
en svo ný af nálinni. Þróun
greinarinnar hafði náð þvi stigi
árið 1950, aö stofnuð voru samtök
tónlistarlækna I Bandarikjunum,
sem höfðu þaö að markmiði, að
þróa notkun tónlistar til lækninga
á sjúkrahúsum I menntunar- og
félagslegum tilgangi.
Nú eru um það bil 2 tugir há-
skóla i Bandarikjunum, sem út-
skrifa fólk meö B.A.- eða mast-
ers-gráðu I þessari grein. I
Evrópu er það fyrst og fremst há-
skólinn i Vinarborg, sem þekktur
er fyrir námsbraut sina I tón-
listarlækningum. Námið I þessari
grein tekur frá þremur og upp I
fjögur og hálft ár og eru náms-
greinar þessar helztar, þ.e. I
Bandarikjunum: Aðaláherzla er
lögð á tónlistarnám, þá kemur
tónlistarlækning sem slik, sál-
fræði tónlistar, þ.á.m. áhrif henn-
ar á hegðun og sálarlif, val tón-
listar til lækninga og siöan starfs-
þjálfun. Þar að auki kemur
menntun i sálarfræði, almennri
og afbrigðilegri, uppeldissálar-
fræði, félagsfræði og mannfræði,
svo eitthvað sé nefnt.
A fyrirlestrinum kynnti Helen
Bonny tónlistarlækningarnar og
þá aðferð, sem hún hefur þróað
upp, og er að fróðra manna mati
mjög merkilegt framlag til
greinarinnar. 1 lok fundarins var
viðstöddum gefinn kostur á að
hlusta á eitt tónlistar-,,pró-
gramm”, en þau eru til I nokkrum
mismunandi gerðum, sem gert
veröur grein fyrir siðar. Nokkrir
viðstaddra gerðu svo grein fyrir
þvi, sem fyrir þá bar i þessari
tónlistarupplifun og urðu þær frá-
sagnir þess valdandi, að undirrit-
aöur ákvað að draga upp kr.
2500,- úr aðþrengdri pyngju sinni,
og fara á eins dags námskeið dag-
inn eftir, til að kynnast þessu nán-
ar.
Námskeiðið hófst svo með þvi,
aö þeim 30 manneskjum, sem þar
voru, voru kenndar slökunaraö-
ferðir, svo áhrifarikar, að undir-
ritaður missti um tima þann
sjálfsagða eiginleika frétta-
iiíanns, að vera sifellt vakandi
fyrir þvi sem er að gerast kring-
um hann. Verður frásögnin af
námskeiðinu af skornum
skammti af þeim sökum.
Á námskeiðinu var fólkinu skipt
niöur i smærri hópa og siðast
unnu tveir og tveir saman, þar
sem annar var leiðbeinandi hins,
meðan hann lét tónlistina flytja
sig um i nokkurs konar dag-
draumaástandi. Sumir voru mót-
tækilegri fyrir áhrifum tónlistar-
innar en aðrir, og bar hún þá á
fjarlæga staöi, þeir sáu alls kyns
táknmyndir og draumsýnir. Þeir,
sem ekki voru svo heppnir að fara
I ferö eða sjá sýnir, fengu allténd
geysilega góða afslöppun, og ljúfa
tónlist til að hlusta
1 lok námskeiðsins ræddu menn
um reynslu sina og tjáðu hana
með margvislegum litum á
pappirsarkir.
FYRIR skömmu leitaði undirrit-
aður til Geirs Vilhjálmssonar,
sem ásamt með Helen Bonny var
leiðbeinandi á fyrrgreindu nám-
skeiði, og bað hann að skýra það
nánar, hvað tónlistarlækningar
væru. Geir fórust svo orð:
— Tónlistarlækningar hafa ver-
ið skilgreindar þannig, að þær séu
notkun tónlistar i lækningaskyni,
til þess að endurhæfa eða bæta
geöheilsu eða likamlegt ástand.
Algengast er, að tónlistarlækn-
ingar séu notaðar við sállækning-
ar, þar sem markmiðið með meö-
höndluninni er að veita einstakl-
ingnunum meiri innsýn i
sjálfansig og heiminn sem hann
lfiri I. Tvö aðalafbrigði tónlistar-
lækninga eru til, annars vegar að
láta þann sem lækna á flytja
tónlist, en hins vegar að láta hann
hlusta á tónlist.
Við geðlækningar og endurhæf-
ingu geðsjúkra og vangefinna
hefur reynzt mjög vel að láta við-
komandi framleiða tónlist. En við
sállækningar og til þess að veita
heilbrigðu fólki dýpri innsýn i
sálarlif sitt, er mjög heppilegt aö
láta fólkið hlusta á vel flutta, sér-
staklega valda tónlist.
— Þú minnist þarna á að veita
heilbrigðu fólki dýpri innsýn i
sálarlif sitt. Nú gefur hugtakið
tónlistarlækning það i skyn, að
um sjúklinga sé að ræða. Er hér
þá ekki um að ræða lækningu
sjúkra I fyllstu merkingu þeirra
orða?
— Tónlist er fyrir alla, bæði
sjúka og heilbrigða. Þær aðferöir
sem þróaðar hafa verið i tón-
listarlækningum geta hjálpað
bæði sjúkum og heilbrigðum til
dýpri innlifunar I tónlist, sem
bæði getur svo leitt til aukins
skilnings á tónlist og aukinnar
innsýnar viðkomandi i sitt eigið
sálarlif.
Frá námskeiðinu. Tveir og tveir vinna saman þar sem annar leiöbeinir en hinn lætur tónlistina hrifa sig og slakar vel á.
Dæmi um notkun
- Hvernig fara tónlistarlækming-
ar fram?
— Við skulum taka tvö dæmi.
Ef þú færir i heimsókn inn á
Kópavogshæli, gætir þú séð
hvernig Eyjólfur Melsteð, sem er
sérmenntaður i tónlistarlækning-
um frá háskólanum I Vin, hefur
kennt vangefnum að spila saman
einföld lög, þeim sjálfum til
ánægjuauka, til örvunar tauga
kerfis og sjálfsvirðingar. Hitt
dæmið er hvernig við Helen
Bonny beittum tónlistarlækning-
um á námskeiðinu (sem sagt er
frá hér að framan).
Venjulega aðferðin er sú að fá
viðkomandi til að slaka vel á með
viðeigandi slökunaraðferð. Siðan
eru honum gefnar leiðbeiningar,
sem I stuttu máli ganga út á það,
að beina athyglinni sem mest að
tónlistinni, reyna að fara inn i
tónlistina og skynja þær tilfinn-
ingar, táknmyndir og hugsýnir,
sem hún framkallar. Fólki er
bent á að láta tónlistina leiða sig I
eina reynslu af annarri. Það er
örvaö til að tjá þær tilfinningar,
sem upp kunna að koma.
Val tónlistar
Tónlistin er venjulega leikin af
segulbandi og i þeirri tónlistar-
lækningaaðferð, sem Helen hefur
þróaö upp og ég siöan lært af
henni, notum við mest kafla úr
verkum klassiskra meistara, 5-10
minútna kafla, sem raðað er
saman þannig, að tónlistin mynd-
ar einhvers konar sálræna heild.
Sem dæmi get ég nefnt það, að
tónlistin I einu „prógramminu”
er valin með það fyrir augum, að
örva útrás sterkra tilfinninga s.s.
reiði, hugrekkis og hetjulundar.
Meðal þeirrar tónlistar, sem þar
er notuð má nefna kafla úr 5.
sinfóníu Beethovens, „Orlaga-
sinfóniunni”, kaflann um Mars úr
„Pláneturnar” eftir Holts o.fl.
Eftir þessa magnþrungnu tónlist
kemur svo blið, róleg og huggandi
tónlist til mótvægis.
Sem dæmi um önnur „pró-
grömm” má nefna það, sem á að
framkalla jákvæðar og háleitar
tilfinningar. Þar er að finna hug-
ljúf verk eins og hæga kaflann úr
„Keisarakonsert” Beethovens,
„Friður á jörðu” úr „Gloria” eft
ir Vivaldi og „1 paradis” úr re-
quiem eftir Fauré o.fl.
Ein átta mismunandi „pró-
grömm” hafa verið gefin út á
vegum stofnunar þeirrar, sem
Helen Bonny veitir forstöðu, og
stöðugt er verið að hanna ný
„prógrömm”.
— Hvað er langt siðan þú kynnt-
ist tónlistarlækningum, og notar
þú þessi „prógrömm” I starfi
þinu sem sálfræðingur?
— Það eru nú liðin um þrjú og
hálft ár siðan ég kynntist þessari
meðhöndlunaraðferð og siðastlið-
in tvö ár hef ég i vaxandi mæli
notað tónlist Helenar I minu
starfi. Auk þess vel ég sjálfur
saman tónlist sniðna að þörfum
ákveðinna einstaklinga, sem til
mln leita.
Slökun og hagnýting
ímyndunaraf Isins
— Þú sagðir áðan, að fólki væri
bent á að láta tónlistina leiða sig
inn á einhverjar ákveðnar braut-
ir. Er þá ekki um að ræða sams
konar hlustun og þegar hlýtt er
t.d. á tónleika?
— Það er mjög mismunandi
hvernig fólk hlustar á tónlist t.d.
þegar um tónleika er aö ræða.
Sumir endurspegla blæbrigði tón-
listarinnar i svipbrigðum sinum,
aðrir eru með lokuð augu og djúpt
niðursokknir og einstaka virðast
hafa meiri áhuga á fólkinu i
kringum sig, heldur en tónlist-
inni.
Tónlist hefur bæði hugarleg og
tilfinningaleg áhrif. Oftast þegar
fólk hlustar á tónlist, er það I
venjulegu vökuástandi og hinn
rökræni hugur er starfandi. Fólk
leggur þá hugarlegt og fagur-
fræðilegt mat á verkið og flutning
þess.
Ef hins vegar á að nota tónlist
til að kynnast dýpri hliðum sálar-
lifsins, er nauðsynlegt að komast
út fyrir ramma hinnar venjulegu
rökrænu hugsunar. Þetta. gerum
við með þvi að hjálpa fólki til að
komast i djúpt slökunarástand,
sem likist dagdraumaástandi eða
ástandi milli svefns og vöku. Þá
verða viðkomandi miklu næmari
fyrir tilfinningarlegum og öðrum
sálrænum áhrifum tónlistarinn-
ar. Ýmiss konar táknmyndir
koma auöveldlega fram og oft
getur tónlistin leyst úr læðingi
dagdrauma eða sterkar tilfinn-
ingar. Dýpri svið sálarlifsins og
dulvituð svæði vitundarinnar geta
þannig komizt betur i tengsl viö
meðvitundina.
Oftast þarf svo að ræða um
reynsluna, merkingu hennar og
gildi, — vinna úr reynslunni og
koma þeirri innsýn, sem einstakl-
ingurinn öðlaðist fyrir milligöngu
Helen Bonny. Myndina tók G.V. á
Þingvöllum I sumar.
tónlistarreynslunnar i tengsl við
meövitaðan persónuleika og sjálf
hans.
Efling sjálfsþekk-
ingar og andlegs
heilbrigðis
— Hvaða gagn hefur svo heil-
brigt fólk af þessu?
— Þú gætir eins spurt að þvi,
hvaða gagn fólk hafi af þvi að
læra að þekkja sjálft sig. Þessi
aðferð hagnýtir sér tungumál
tónlistarinnar og hin sterku áhrif
hennar á sálarlifiö og við vinnum
úr þeim upplýsingum og þeirri
reynslu, sem tónlistin kallar fram
i meðvitundina. Þannig aukum
við þekkingu okkar á sjálfum
okkur, en það að læra að þekkja
sjálfan sig, skapgerð sina og eig-
inleika, er ef til vill aðalmarkmið
mannlegs lifs. Til dæmis öðlast
fólk ekki ósjaldan innsýn i hæfi-
leika og eiginleika, sem það hafði
ekki enn virkjað eða jafnvel ekki
vitaö um. Aukin innsýn i tilfinn-
ingarnar getur auðveldlega
hjálpað til við að fyrirbyggja til-
finningaleg vandamál seinna
meir, eða auðveldað að greiða úr
félagslegum ágreiningsmálum.
Margir tala um það, að þeir hafi
öðlazt aukna hæfni til þess að
njóta tónlistar með dýpri skiln-
ingi og innlifun.
Það eru einnig möguleikar á
hagnýtingu þessarar aðferöar i
sambandi við tónlist sem slika.
Islenzkur hljóðfæraleikari nefndi
það við mig, að þessi reynsla
hefði opnað augu hans betur fyrir
mikilvægi uppröðunar tónverka i
efnisskrá hljómleika og tónlista-
kennarar hafa látiö i ljós áhuga á
þvi, að nota þessa aðferð sem lið i
tónlistarkennslu.
Fleiri námskeið
— Nú má ef til vill búast viö þvi,
að einhverjir fái áhuga á þvi að
kynnast þessu nánar, við aö lesa
þessar linur, og á að eignast þessi
ákveðnu tónverk á hljómplötum
eða segulbandsspólum. Hvaö er
til ráða fyrir hugsanlegt áhuga-
fólk, verður eitthvert framhald
námskeiða á vegum Rannsókna-
stofunar Vitundarinnar?
— Við erum að fara af stað núna
þessa dagana með vetrardag-
skrána og hefst námskeiö i tón-
listarlækningum laugardaginn 5.
október og stendur i hálfan mán-
uð. Námskeiðið tekur yfir laugar-
dagseftirmiðdag, þrjú kvöld og
lýkur siðan með laugardagseftir-
miðdeginum 19. október. Há-
marksfjöldi þátttakenda á þessu
námskeiði verður 12-14 manns.
A þessu námskeiði mun þátt-
takendum gefast kostur á að
kynnast af eigin raun flestum tón-
listar-,,prógrömmum” sem Hel-
en Bonny hefur gefið út. Þeir,
sem áhuga hafa á þátttöku geta
náö i mig i sima Rannsóknastofn-
unar vitundarinnar. Annaö tón-
listarlækninganámskeið verður
svo haldið eftir áramótin.
1 sambandi við það, hvar fólk
geti fengið þessi tónlistarlækn-
inga-,,prógrömm”, þá er þeim
dreift af Institute for Conscious-
ness and Music 1 Baltimore i
Bandarikjunum, og er hægt að fá
Geir Vilhjálmsson. — Fleiri námskeiöi tónlistarlækningum I vetur. Timamynd: Róbert.
nánari upplýsingar um þetta hjá
Rannsóknarstofnun vitundarinn-
ar. Þess ber þó að geta, að til þess
að þessi tónlist komi að fullum
notum, þarf fólk að hafa lært þær
aðferðir og fengið þá leiðsögn,
sem ég greindi frá hér á undan.
Margir eiga lika góð hljóm-
plötusöfn, sem þeir gætu hagnýtt
sér, og er I bók Helen Bonny,
„Music and your Mind” (Harper
and Row 1973), að finna greiningu
á sálrænum áhrifum margra
þekktra kafla úr tónverkum. Vert
er þó að minnast þess, að túlkun
og flutningur getur breytt miklu
um sálræn áhrif tónverks.
— Eru einhver fleiri og þá ann-
ars konar námskeið á döfinni hjá
Rannsóknastofnun vitundarinnar
á næstunni?
— Fjögur annars konar nám-
skeið verða á næstunni, sem öll
snerta það, sem viö gætum nefnt
þróun sálarlifsins og eflingu
sjálfsþekkingar.
Miðvikudaginn 9. október hefst
2ja vikna námskeið i stjórn vit-
undarinnar, fjögur kvöld og einn
eftirmiðdagur, þar sem fjallað
verður um aðferðir eins og slök-
un, sjálfssefjun, tjáskipti, stjórn
tilfinninga hugleiðslu o.fl.
Þann 27. nóvember hefst svo 3
mánaða sálvaxtarnámskeið fyrir
þá, sem áhuga hafa á langtima
vinnu að eigin þroska. Þar verða
notaðar ýmsar hópaðferðir
mannúðarsálfræðinnar til þroska
persónuleikans, svo og margs
konar æfingar úr Psychosyntesis-
kerfi italska geðlæknisins dr.
Assagioli.
Þann 29. nóvember hefst stutt
námskeiö um drauma og sál-
fræðilega túlkun þeirra, en föstu-
daginn 20. desember verður svo
undirbúningsfundur aö námskeiði
fyrir kennara og kennaranema,
sem stendur yfir i janúar og
febrúar. Þar verða kynntar
mannúðlegar hópaðferöir, hóp-
efli, tjáskiptaaöferðir og annaö
sem getur stuðlað að þróun opn-
ari og frjálslegri kennsluhátta.
Eftir áramót verða fleiri nám-
skeið, sem of snemmt er að segja
frá i smáatriðum nú. Hámarks-
fjöldi þátttakenda á öllum þess-
um námskeiðum er 12-14 manns
og gagnkvæm tjáning og umræð-
ur um eigin reynslu er undir-
stöðuþáttur i tilhöguninni.
Að lokum mætti geta þess að á-
hugi tslendinga á eflingu skap-
geröarþróunar og félagsþroska
með námskeiöum af þessu tagi
fer ört vaxandi. Má marka það
bæði af aukinni aðsókn að nám-
skeiðum okkar, sem við höfum
verið með i sivaxandi mæli siðan
haustið 1972 og eins á þvi hvernig
opinberar stofnanir eru byrjaðar
aö bjóða starfsfólki, eins og kenn-
urum og starfsfóli á sviði geöheil-
brigöismála, uppá hópnámskeið
af þessu tagi, einkum námskeið i
hópefli og i tjáskiptum. Viröist
mér sem tilkoma tónlistarnám-
skeiðanna sé áhugafólki kærkom-
in aukin fjölbreytni á þessu sviði.
Að lokinni tónlistarreynslunni útskýrði fólk hvaöfyrir þaðbar og tjáöi meö myndum.