Tíminn - 28.09.1974, Síða 11

Tíminn - 28.09.1974, Síða 11
Laugardagur 28. september 1974. TÍMINN_________________________________________________________________________1J Stjórn KSÍ samþykkti samhljóða: Víkingur og Akureyri glata 1. deildarsætum sínum mæti liðin ekki til leiks í dag „Stend og fell með þessari ókvörðun" segir Ellert B. Schram, formaður KSÍ í gær hélt Ellert B. Schram, formaður KSÍ, blaðamannafund, þar sem hann gerði grein fyrir afstöðu stjórnar KSÍ, vegna þeirrar ákvörðunar Vikings og ÍBA, að neita að leika aukaleik, sem skeri úr um það, hvort liðið held- ur sæti i 1. deild. Sagði Ellert, að stjórn KSÍ, hefði skýra og af- dráttarlausa skoðun á þessu máli og um hana væri einhugur i stjórn- inni, enda þótt mönnum gæti hugsanlega sýnzt sitt hvað um dómsniður- stöðu. Sú skoðun er, að ,,hún, (stjórn KSÍ) hvorki eigi né geti haft afskipti af dómum, sem kveðnir eru upp hjá dómstólum knatt- spyrnuhreyfingarinn- Ellert B. Schram. ar”, eins og segir i bók- un stjórnarinnar um þetta mál. í samræmi við þessa skoðun hefur mótanefnd KSÍ sett leik Víkings og Akureyrar á i dag og á hann að hefjast klukkan 14 i Keflavik. Stjórn KSl litur svo á, að mæti liðin ekki til leiks, eins og þau hafa bæði tilkynnt, hafi þau firrt sig rétti til að taka þátt i 1. deildar keppni frekar að ári. ,,Ég mun standa og falla með þessari ákvörðun”, sagði formað- ur KSÍ á blaðamannafundinum I gær. Hér á eftir fer bókun stjórnar KSÍ um málið: „Eftirfarandi bókun var sam- þykkt samhljóða á fundi stjórnar Knattspyrnusambands tslands, 26. sept. en fyrir fundinum lá skeyti frá Iþróttabandalagi Akur- eyrar þess efnis, að lið þeirra mundi ekki mæta til aukaleiks gegn Vlkingi, 28. sept. n.k. „Tildrög þessa máls eru þau, að ágreiningur reis um, hvort Elmar Geirsson væri hlutgengur með Knattspyrnufélagi Fram i þeim þrem leikjum, sem hann lék með félagi sinu i 1. deild I sumar. Elmar hefur um nokkurt skeið stundað nám i V-Þyzkalandi og leikið með þarlendu liði, Hertha Shelendorf. Á sumrin hefur hann leikið með Fram hér heima og hefur það verið látið óátaliö þar til I sumar, að þátttaka hans var kærð til héraðsdómstóls KRR. Mál þetta hefur verið tekið til meðferðar i dómstól KRR og dómstól KSÍ. Knattspyrnufélagið Vlkingur hefur ekki unað niður- stöðum dómstólanna, svo og, að þvl er virðist, tþróttabandalag Akureyrar, en þessir aðilar eiga einmitt að taka þátt i áðurnefnd- um aukaleik um sæti I 1. deild. íslenzka landsliðið í knattspyrnu valið: Jón Gunnlaugsson bætist í hópinn Sem kunnugt er, mun ís- lenzka landsliðið leika tvo landsleiki erlendis á næst- unni gegn Dönum 9. októ- ber og gegn Austur-Þjóð- verjum 12. október. Bóðir þessir leikir eru liðir i Evrópukeppni landsliða. Landsliðsnefnd KSI hefur nú valið landsliðshópinn og eru 17 leikmenn i honum. Engar breyt- ingar eru á hópnum frá siðasta landsleik, nema hvað Jóni Gunn- laugssyni hefur verið bætt við. Leikurinn gegn Dönum verður háður i Álaborg, en leikurinn gegn Austur-Þjóðverjum i Magdeburg. Eftirtaldir 17 leikmenn skipa landsliðshópinn: Markverðir: Þorsteinn Olafsson, IBK, Magnús Guðmundsson KR. Aðrir leikmenn: Jóhannes Eðvaldsson, Val. Mar- teinn Geirsson, Fram. Jón Pét- ursson, Fram. Björn Lárusson, 1A. Eirikur Þorsteinsson, Viking. Jón Gunnlaugsson, 1A. Gisli Torfason, IBK. Guðgeir Leifsson, Fram. Grétar Magnússon, IBK. Karl Hermannsson, IBK. Asgeir Eliasson, Fram. Teitur Þórðar- son, IA. Matthias Hallgrimsson, 1A. Atli Þór Héðinsson, KR, Ás- geir Sigurvinsson, Standard Liege. Línurnar í hand- boltanum skýrast núna um helgina Bæði Valur og Fram áttu ekki i neinum erfiðleikum með mótherja sina I Reykjavikur- mótinu i handknattleik, sem var fram haidið i fyrrakvöld. Þannig sigraði Valur Þrótt með 35:19, en Fram sigraði KR með 22:14. Nú um þessa hclgi byrjar fyrst spennan i sambandi við mótið, þvl að þá mætast sterku liðin. Á sunnudags- kvöld mætast 1R og Valur og strax á eftir Fram og Viking- ur. Er hér um úrslitaleiki að ræða i riðlunum. Engu skal spáð um úrslitin, en sigurvegararnir mætast i úrslitaleik eftir helgina. i dag verða tveir leikir háðir. Ar- mann ieikur gegn KR og Þróttur gegn Fylki. Þessir leikir hefjast klukkan 13.30 i Laugardalshöllinni. Vlkingur skaut málinu til framkvæmdastjórnar ISI, en hún hefur visað málinu frá. Hvaða skoöun, sem stjórn KSl, eða einstakir stjórnarmenn KSt, kunna að hafa á dómsniðurstöð- um, er stjórnin á einu máli um, að hún hvorki eigi né geti haft af- skipti af dómum, sem kveðnir eru upp hjá dómstólum knattspyrnu- hreyfingarinnar. Slikt kynni að draga ófyrirsjáanlegan dilk á eft- ir sér og leiða til stjórnleysis. Stjórn KSt minnir á að það er þing Knattspyrnusambands Is- lands, sem setur lög og ákveður verkefnin, þar er kosin stjórn, sem annagt framkvæmd knatt- spyrnumála og þingið kýs sjálf- stæða dómstóia til að skera úr um ágreiningsmál eða túlkun laga. Þessa þriskiptingu hefur knatt- spyrnuhreyfingin valið sér og henni verður að hlita. Meðan áðurnefnt deilumál var enn óútkljáð hjá dómstólum, beið mótanefnd KSI með að ákvarða leikdag á aukaleik milli Vikings og IBA um áframhaldandi þátt- töku i 1. deild. Nú, þegar málið hefur gengið I gegnum bæði dómstig og niðurstaða liggur fyr- ir er það rétt og eðlileg ákvörðun Frh. á bls. 15 Elmar Geirsson, leikmaðurinn. sem allur styrrinn hefur staðið um. Leikir Fram voru dæmdir ógildir sökum þess, að formsatriðum i sam- bandi við levfi til handa Elmari hafði ekki verið fram fylgt, að þvi er talið var. En það voru fleiri en Fram, sem duttu I þessa gildru. Víking- um láðist að senda kæru sina á hendur Fram nógu snemma.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.