Tíminn - 28.09.1974, Page 13
Laugardagur 28. september 1974.
TÍMINN
13
O Kvennaskólinn
vinnukennslu og það væri hennar
uppáhaldsgrein. Virtist hún alveg
sammála Auði kennara sinum i
þvi, að miður væri, hversu hlutur
handavinnunnar færi minnkandi.
Hún sagðist ekki hafa „nema” 5
stundir i viku i handavinnu þar af
3 f fatasaumi, sem væri skylda en
2 i útsaumi samkvæmt eigin vali
og þó að Kolbrúnu þyki þetta ekki
mikið, þætti vist sumri
stelpunni á hennar aldri alveg
nóg um. Annars kvaðst Kolbrún
mjög ánægð með val sitt á fram-
haldsskóla og alls ekki geta
hugsað sér að skipta yfir i annan
gagnfræðaskóla.
Steinunn sagðist hafa valið
Kvennaskólann að áeggjan
frændkvenna sinna, en þær
hefðu sótt skólann og verið mjög
ánægðar. Hún hefði þó alls ekki
verið ein á báti, þvi að mjög
margar stelpur úr hennar bekk
völdu lika að fara i Kvennó frem-
ur en einhvern annan gagnfræða-
skóla.
Báðar stúlkurnar virtust sam-
mála um, að andinn i skólanum
væri sérstaklega góður, litið um
klikumyndanir og allar
stelpurnar mjög samrýmdar.
Þær sögðu, að oftast væri reynt að
fara eftir þeim agareglum, sem
skólinn setti, þvi að nemendur
fyndu að þeim væri treyst
reyndu þvi að standa undir þvi
trausti.
Að lokum náðum við örstuttu
tali af dr. Guðrúnu P. Helga-
dóttur, skólastjóra, spurðum
hana um skólann og starfsemina.
Þvi miður var dr. Guðrún afar
timabundin og þvi gátu þær
upplýsingar ekki orðið itarlegar.
Guðrún sagði að reynt væri að
hafa skólann nútimalegan, en
halda jafnframti heiðri gömlum
Launadeild
fjármálaráðuneytisins.
Launadeild fjár-
málaráðuneytisins
Óskar að ráða starfsfólk tii starfa við
launaafgreiðslu og undirbúning
skýrsluvélavinnslu.
Laun samkvæmt kjarasamningum
fjármálaráðherra, B.S.R.B. og félags
starfsmanna stjórnarráðsins. Launa-
flokkur ræðst af menntun og fyrri störf-
um starfsmannsins.
Umsóknir er greini menntun og fyrri
störf sendist ráðuneytinu fyrir 5. októ-
ber n.k.
I '
$
U-Ls
'!? V
M
i, -T
; *. t
!?#
r-v
Ónæmisaðgerðir
fyrir fullorðna,
gegn mænusótt
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn
mænusótt hef jast aftur i Heilsuverndar-
stöð Reykjavikur, mánudaginn 7. októ-
ber og verða framvegis á mánudögum
kl. 17-18.
Vinsamlega hafið með ónæmisskirteini.
ónæmisaðgerðin er ókeypis.
Heilsuverndarstöð
Reykjavikur.
/W
y -
v>-.*
I
a
>‘V'
&
m
w V- ■
1 >w*
* H ;
ví
g'
s
\r"
Starf við
heyrnarmælingar
Starf við heyrnarmælingar á heyrnar-
deild Heilsuverndarstöðvar Reykjavik-
ur er laust til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi fóstru-,
þroskaþjálfa- eða aðra sambærilega
menntun. Laun samkv. kjarasamningi
Starfsmannafélags Reykjavikurborg-
ar.
-íív
a
m
u
n
A,V
y-'
v
Umsóknum með upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf sé skilað til
heyrnardeildar Heilsuverndarstöðvar
Reykjavikur fyrir 18. október n.k. v’.
Heilsuverndarstöð V'j
Reykjavikur.
hefðum. Aðspurð kvað hún
skólann tvimælalaust sanna
tilverurétt sinn með þvi, að
aðsóknin væri alltaf mjög mikil.
Ár hvert kæmust mun færri að en
vildu og þyrfti alltaf að visa fjölda
umsækjenda frá. Enginn væri
neyddur til að sækja frekar um
skólavist i þessum skóla, en
öðrum, og þvi væri augljóst, að
margar stúlkur sæktust fremur
eftir þvi að vera i Kvennaskólan-
um en öðrum gagnfræðaskólum.
Guðrún kvað nemendum ætið
sýnt traust og frekar vildi hún að
stúlkurnar skrökvuðu að sér, en
að hún rengdi þær að ósekju. Það
hefði llka sýnt sig, að stúlkurnar
reyndu sitt ýtrasta til að standa
undir þessu trausti og að það
vekti hjá þeim mikla ábyrgðar-
tilfinningu.
Umsjónarkennari er i hverjum
bekk skólans og litur hann á
stúlkurnar sem skjólstæðinga
sina. Mikil persónuleg tengsl eru
alltaf milli stúlknanna og
umsjónarkennarans og leita þær
mjög oft til viðkomandi
umsjónarkennara, þegar einhver
vandræði steðja að, sagði dr.
Guðrún.
í spjalli okkar við dr. Guðrúnu
kom fram, að Kvennaskólinn tók
upp þá nýbreytni árið 1960, að
bioða upp á einn„frjálsan tima” i
viku hverri hjá fjórða bekk. Sá
timi byggðist á þvi, að einhverj-
um utanaðkomandi er boðið til
skólans til þess að stúlkurnar geti
kynnzt ólikum viðhorfum. Oft eru
rithöfundar.skáld og listamenn
boðnir,og nú siðast var i
heimsókn hjá þeim hibýla-
fræöingur. Þessi hugmynd hefur
gefizt afar vel og virðist almenn
ánægja með þetta fyrirkomulag.
Að lokum kvaðst frú Guðrún
alltaf hafa haft það takmark, að
þær stúlkur, sem úr Kvenna-
skólanum kæmu væru „frjálsar
en prúðar”, og kvaðst hún vona
að sú væri raunin, þótt ekki væri
sitt að dæma.
Það er vist okkar að dæma, og
við getum ekki betur séð en þeir
nemendur, sem við höfum hitt að
máli séu bæöi mjög „frjálsir og
prúðir” og litur helzt út fyrir að
takmarkið hafi náðst allbærilega.
Að endingu þökkum við fyrir
góöar móttökur, óskum öllum að-
standendum skólans til hamingju
með afmælið og biðjum honum
allra heilla.
______________________-ILÞ
RÚSSI
TÝNDUR
Reuter—Dar es Salaam —
Lögreglan i Tansaniu leitar nú að
rússneskum blaðamanni, Boris
Moiciev, sem er blaðamaður fyrir
Tass fréttastofuna. Ekki hefur
verið gefin upp ástæðan til leitar-
innar.
Dagblöð i Dar Es Salaam, birtu
á föstudag myndir af Moiciev,
ásamt áskorunum til lesenda
sinna um að hjálpa lögreglunni
við leit að blaðamanninum.
Talsmaður sovézka sendiráðs-
ins sagði, að þeir vissu ekkert um
málið, og hefðu enga hugmynd
um hvers vegna væri verið að
leita aö Moiciev. Hann gat heldur
ekki upplýst hvort Moiciev væri
enn i Tansaniu, eða hvort hann
væri farinn til Sovétrikjanna.
„Strax og við fáum nánari fregnir
munum við segja frá þeim”,
sagði talsmaðurinn að lokum.
Bróður
forseta
rænt
Reuter Buenos Aires — Silvio
Frondizi, sem er bróðir fyrrver-
andi forseta Argentinu, var rænt
á föstudag, átta klukkutfmum eft-
ir að hægrisinnaður öfgahópur
hafði hótað honum Hfláti.
Lögreglan sagði, að Frondizi
hafi verið rænt eftir skotbardaga
milli lifvarða hans og ræningj-
anna, en i bardaganum særðist
kona hans og tengdasonur.
Silvio Frondizi er 67 ára
gamall, og er formaður
kommúnistaflokks Argentinu.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
SKRIFSTOFA v
RÍKISSPÍTALANNA
SKRIFSTOFUFÓLK Óskast nú
þegar eða eftir samkomulagi til
starfa á skrifstofunni, m.a. við
launaútreikning o.fl. Upplýsingar
veitir starfsmannastjóri, simi
11765.
DEILDARSTJóRI óskast nú þegar
eða eftir samkomulagi i sjúklinga-
bókhaldsdeild skrifstofunnar. Upp-
lýsingar veitir starfsmannastjóri,
simi 11765.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI.
SJÚKRALIÐAR óskast nú þegar,
einkum til starfa á næturvöktum.
STARFSSTÚLKUR óskast nú þeg-
ar, einkum til starfa á næturvökt-
um.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 42800.
LANDSPITALINN.
DEILDARSTJÓRI óskast til starfa
við eðlisfræði- og tæknideild,
RÖNTGENSKOR. Reynsla i við-
gerð og viðhaldi röntgentækja
nauðsynleg. Umsóknarfrestur er
til 27. október n.k.
SKRIFSTOFUSTÚLKA Óskast til
starfa við upplýsingaborð spital-
ans.
Starf hluta úr degi og um helgar
kemur til greina.
Upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri i sima 11765.
BLÓÐBANKINN.
MEINATÆKNIR eða liffræðingur
óskast til starfa nú þegar eða eftir
samkomulagi. Upplýsingar veitir
yfirlæknir Blóðbankans, simi
21511.
KÓPAVOGSHÆLIÐ.
AÐSTOÐARMENN við hjúkrun
sjúklinga óskast til afleysinga i
fast starf nú þegar. Upplýsingar
veitir forstöðumaður, simi 41500.
KLEPPSSPÍTALINN.
FóSTRA óskast á dagheimili fyrir
börn starfsfólks spitalans. Upplýs-
ingar veitir forstöðukona spital-
ans, simi 38160.
AÐSTOÐARMENN við hjúkrun
sjúklinga óskast til afleysinga eða i
fast starf nú þegar. Upplýsingar
veitir forstöðukonan, simi 38160.
STARFSSTÚLKUR óskast i eldhús
og borðstofu spitalans. Upplýsing-
ar veitir yfirmatráðskonan, simi
38160.
Reykjavik, 27. september 1974.
SKRIFSTOFA
RlKISSRTALANNA
EIRIKSGÖTU 5,SÍM111765