Tíminn - 28.09.1974, Qupperneq 16

Tíminn - 28.09.1974, Qupperneq 16
Laugardagur 28. september 1974. Tíminn er peníngar Auglýsnf iHmanum 1 I SÍS-FÓlHJll SUNDAHÖFN i m . \.jéá 1 H iTT" Ðl fyrir góóan maM $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Þannig var umhorfs uppi á þökum viölagasjóðshúsanna i Mosfellssveit i gær. Þar hefur veriö hlaöiö sandpokum. Einnig má sjá, hvernig skin I beran viöinn. Bundiöhefur veriöyfir eldhúsglugga, sem er á þakinu. _Timamynd: GE. Hvassviðrið í Mosfellssveit í fyrrakvöld: Reykháfar, þakplötur og eld- húsgluggar tættust burt Gsal-Reykjavík. — Viö Tima- menn fórum I gær upp I Mosfells- sveit en i raöhúsum viölagasjóös sem standa viö Arnartanga, höföu plötur rifnaö af þökum i snörpum vindhviöum, sem gengu yfir sveitina siöari hluta fimmtudags. Á öllum viölaga- sjóös-húsunum haföi veriö komiö fyrir sandpokum á þökunum til aö foröa frá enn meira foki, ef ske kynni að hvessti meira. Við tókum strax eftir þvl, aö eitt raðhúsanna hafði orðið verst úti í þessum vindhviðum. Plötur og annað dót lá eins og hráviði I kring um húsin og á þökum raðhússins voru sandpokar og plastdúkar. f húsinu númer 67 var húsmóöirin að tala við börnin sin úti I anddyri, en þau voru auðsjáanlega að fara ut til leikja. Eins og flestir, sem I þessu fimm Ibúða raðhúsi búa, er hús- móðirin á 67 Vestmannaeyingar, og heitir hún Þyrl ólafsdóttir. — Þetta gerðist allt um klukkan hálf fimm. I raun og veru fylgdi þessu enginn óskaplegur hávaði, en þegar við litum út um gluggana, sáum við hvers kyns var. Þetta voru snarpar vind- hviður, en svo lygndi nokkuð á milli. t þessu húsi fuku af bæði plötur og eins klæðningin. — Fór ekki lika skorsteininn? spyrGréta Gunnarsdóttir, en hún býr I næsta raðhúsi, I húsinu númer 59, og er komin I heimsókn til Þyriar. — Jú, það er rétt, segir Þyrl og bætir við: I þessum húsum er glugganum á eldhúsinu komið fyrir I þakinu, og I einni vindhvið- unni tók gluggann hérna af. 1 þessum fimm ibúöum, sem eru I þessari lengju, fóru þrlr eldhús- gluggar, en gluggi Ibúanna hérna I næsta húsi hreyfðist ekki. Úti gnauðaði I vindinum. Plast- dúkurinn á þakinu smáll I þakið annað slagið, enda var nokkuð hvasst. — Það er þó ekki næstum þvl eins hvasst og I gær, sagði Þyrl. — Þá var svo hvasst, aö við sáum varla yfir götuna fyrir moldar- mökk, sagöi Gréta. Sem betur fór, urðu engin slys á mönnum I þessum veðurofsa, en það var mesta mildi, því að börn voru að leik utan dyra, þegar hvessti. Þyrl sagðist ekki vita neinar teljandi skemmdir, en bilar hefðu þó eitthvað skemmst, þegar þakplötur fuku á þá. — Inn um eldhúsgluggann kom mikið af sandi, en strax og vind- inn lægði aðeins, byrjuðu hús- eigendur, ásamt mönnum úr Reykjavík og smiðum hérna úr hverfinu, að setja sand I poka og hlaða þeim á þakplöturnar. Sagði Þyri, að I dag yrði svo endanlega gengið frá þökum hús- anna, til aö fyrirbyggja að slíkt geti gerzt aftur. — Þótt plötur hafi ekki fokið af nema fáum þökum, voru þær áreiðanlega farnar að losna á mörgum öðrum húsum, og þvi voru settir sandpokar á öll viðlagasjóðshúsin, sagði Gréta Þyrl sagðist hafa búið I þessu viðlagasjóðshúsi frá því I april slðastliðnum, og sagði hún, að sér llkaði mjög vel að búa I húsinu. — Auðvitað eru smágallar, en þeir eru svo litlir að þeir koma ekki að sök. Og ég vil nefna, að hér er mjög góður hiti. Hjá Veðurstofunni fengum við þær upplýsingar að á fimmtu- daginn hefðu mælzt 7 vindstig I Reykjavík en eitthvað hvassara hefði verið I hviðunum. Astæöan fyrir þessari miklu norðanátt er sú, að geysimikið lægðarsvæði er austan við landið, og mikil hæð yfir Grænlandi og þar suður af. — Hæðin virðist heldur þokast I áttina til okkar og pressar á lægðina, og þá myndast mikill norðanstrengur þar á milli, sagði veðurfræðingurinn, sem við töluðum við. Norðanátt mun rlkja á landinu eitthvað áfram, en þó er búizt við að dragi úr veöurofsanum, frá og með deginum I dag. Sífelldar sjónvarps truflanir eystra Seyðfirðingar hafa litil not eða skemmtun af að eiga sjónvarp Truflanir eru þar miklar, alls konar rákir og blettir eru á skerminum, svo að illsjáaniegt er hvað þar er að gerast. Þegar byrjað var að sjónvarpa eftir sumarfri þeirra sjónvarps- manna, 1. ágúst voru truflanir þessar mjög miklar, og var þvl kvartað úr hverju horni, og daginn eftir var hafin viðgerð. Unnu menn við að grafa skurð einn mikinn, sem var sjötíu til áttatlu metrar á lengd. Byrjuðu þeir vinnu kl. átta um morguninn og héldu áfram langt fram á kvöld. Þreyta hefur sennilega sótt á mennina, því að ekki hafa þeir sézt síðan, og sjónvarps- truflanirnar eru jafnmiklar eftir sem áður. Það, sem kom !• ljós við uppgröft þenna, var að vatn hefur komizt inn á kapalinn, sem liggur frá sjónvarpsmastrinu á Botna- brún, að sendinum á Seyðisfirði. Leiðir kapallinn út frá sér, og or- sakar það truflanirnar leiðinlegu. Vonast Seyðfirðingar til að snarlega verði bætt úr þessu leiðindaástandi og haldið verði á- fram að vinna við lagfæringar sem allra fyrst. — Til hvers,spyrja menn hér, er verið að borga afnotagjald af sjónvarpi ef ekki er svo hægt að horfa á það? -GéBé- Gallupkönnun: Hver fer í forsetakjör? Reuter — Washington — Samkvæmt skoðanakönnun Gallupstofnunarinnar á föstudag, er þvl spáð að George Wallace verði frambjóðandi demókrata I forsetakosningunum 1976. Skoðanakönnunin var gerð áður en Edward Kennedy tilkynnti um þá ákvörðun sina að gefa ekki kost á sér til forsetakjörs. George Wallace, hefur veriö I hjólastól og er að nokkru lamaður slðan hann varð fyrir morðtilraun fyrir tveimur árum, en þá varð hann fyrir tveim skotum. Wallace fékk 27% I skoðanakönnuninni, sagði blaðið Washington Post. öldungadeildarþingmennirnir George McGovern og Edmund Muskie fengu hver 17% fylgi I könnuninni, á eftir þeim komu Henry Jackson, 14%, Eugene McCarty William Proxmire 7%, William Proxmire 5%, og Walter Mondale 2%. 7% gátu ekki ákveð- ið sig. Stjórnarfundur norræna iðnþróunarsjóðsins i Reykjavík: Island aðili að fjórum verk- efnum BH—Reykjavík. — Stjórn nor- ræna iðnþróunarsjóðsins kom saman I Reykjavik I gær, og er það I fyrsta sinn, sem það gerist utan Svíþjóðar, cn þar hefur sjóð- urinn höfuðstöðvar sinar og skrif- stofur, ásamt rannsóknarráði Norðurlanda. Að loknum fundi sjóðsstjórnarinnar gafst blaða- mönnum kostur á að kynnast starfsemi og tilgangi sjóðsins nokkuð. Norrænni iðnþróunarsjóðurinn var stofnaður I Osló 1. júli 1973. Tilgangur hans er að stuðla að betri nýtingu norrænna starfs- krafta I þágu tækni- og iðnþróun- ar, m.a. með því að styðja fjár- Lóðasamningur um læknamiðstöð BH-Reykjavik — Á fundi borgar- ráös slþriðjudag var lagður fram kaupsamningur á hluta húsnæðis að Hraunbæ 102D og E fyrir heilsugæzlustöð og læknamiðstöð I Árbæjarhverfi. mögnun verkefna, sem varða iðn- aöinn I tveim eða fleiri aðildar- löndum. Sjóðurinn er fjár- magnaður með framlögum, sem Noröurlöndin leggja fram eftir sérstökum reglum. A fyrsta fimm ára tlmabilinu hefur hann alls 50 milljónir sænskra króna til umráða þar af 10 milljónir á fyrsta árinu, þ.e.a.s. frá stofndegi til 31. des. 1974. Frá því starfsemin hófst hafa sjóðnum borizt 64 umsóknir. Hafa verið veitt úr honum allmörg lán og styrkir, eða alls fyrir 5 milljón- ir sænskra króna. Danmörk er aöili að 12 verkefnum, Finnland að 13 verkefnum, Island að 4, Noregur að 14 og Sviþjóð að 15. Verkefnin fjö'gur, sem Island er aðili að, eru I stuttu máli Nortest, sem hefur með höndum yfirgripsmikla rannsókna- og tilraunastarfsemi, sem ekki verð- ur skýrð nánar hér, I öðru lagi gerð neyðartalstöðva- og siglingaútbúnaðar, I þriðja lagi tilraunir með trefjasteypu og loks tilraunir með tæki fyrir blinda og heyrnarlausa. Verður nánar um verkefni þessi fjallað hér I blaðinu siðar, svo og önnur, sem á döfinni eru. Hvað varðar möguleika Islands til að njóta góðs af starfsemi sjóðsins er það ljóst, að mjög fá verkefni geta fullnægt skilyrðun- um um, að verkefnið leiði til árangurs i a.m.k. tveim Norður- löndunum. Hefur þvl komiö til tals, að útvikka starfsramma sjóðsins gagnvart íslandi. Sam- kvæmt samþykkt sjóðsstjórnar getur sjóðurinn stutt sérstak- lega verkefni á Islandi, sem varða uppbyggingu tækniþjón- ustu og eflingu iðnaðar hérlendis. Yrði það m.a. gert með fjárhags- legum stuðningi við samskipti is- lenzkra stofnana, sem starfa i þágu iðnaðar- og hliðstæðra stofnana á Norðurlöndum, t.d. með þvi að kosta kynnis- og námsferðir á fundi og ráðstefnur og með stuðningi við störf nor- rænna ráðgjafaaðila á Islandi, með þvi að kosta þýðingu náms- efnis til notkunar á námskeiðum og með stuðningi við tækni- þjónustuverkefni fyrir einstakar iðngreinar. Þetta er gert i þeim skilningi, að slikur stuðningur leiði til útbreiðslu norrænnar tækniþekkingar til íslands. Fulltrúi Islands I sjóðsstjórn- inni er Árni Snævarr, ráðu- neytisstjóri, og varamaður hans er dr. Vilhjálmur Lúðvlksson. KÓPAVOGUR Tímann vantar blaðburðarbörn f eftirtaldar götur: Kársnesbraut, Þinghólsbraut, Hraunbraut, Kópavogsbraut og víðsvegar um bæinn Hringið í sima 42073

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.