Tíminn - 26.11.1974, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 26. nóvember 1974.
TÍMINN
3
Lézt eftir ryskingar
— 48 ára gamall maður lézt eftir átök við kunningja
sinn í Vestmannaeyjum
STRANDAÐI VIÐ
SUÐURSTRÖNDINA
HJ—Reykjavik — Kl. 5 siðdegis á
sunnudag barst Slysavarnafélagi
tslands tilkynning um, aö Vest-
mannaeyjabáturinn Andvari VE
100 heföi strandaö viö
suðurströndina, u.þ.b. 3 sjómilur
austur af Ingólfshöföa. Þegar var
haft samband viö björgunarsveit-
ir Slysavarnafélagsins i
öræfum og á Höfn, og voru
sveitirnar komnar á strandstaö
um kl. C. Dráttartaug var skotiö
um borö, og kl. rúmlega 7 voru
allir skipbrotsmennirnir, 6 aö
tölu, komnir á land heilir á húfi.
Þegar standiö varð, var ágætis
veður, austan andvari en talsvert
brim við ströndina. Báturinn
stendur mjög grunnt, og ekki er
hægt að komast á öðrum bátum
svo nærri landi. Tilraunir hafa
verið gerðar til að ná bátnum út,
en þegar siðast fréttist, hafði það
enn ekki tekizt. Báturinn mun
lítiö skemmdur, og að likindum
hefur enginn sjór komizt um borð.
Andvari VE 100 er 100 tonna
eikarbátur, smiðaður i Sviþjóð
árið 1946, og hét hann áður Hafþór
RE.
Gsal-Reykjavik. — Aöfaranótt
sunnudags lézt maöur i sjúkra-
húsinu I Vestmannaeyjum, eftir
átök, sem uröu á milli hans og
kunningja hans eftir aö dansleik
var lokiö. Árásarmaöurinn til-
kynnti lögreglunni um atburðinn.
Han n hefur veriö úrskuröaöur i
sjö daga gæzluvaröhald.
Aðfaranótt sunnudagsins um
klukkan 03.50 kom maður á
lögreglustöðina i Vestmanna-
eyjum og tilkynnti, að hann hefði
lentiátökum við annanmann.og
lægi sá fyrir utan húsið nr. 24 við
Vestmannabraut.
Lögreglan fór þegar á staðinn
og sá þá mann liggja á gangstétt-
inni og var hann rænulaus. Var
maðurinn blóðugur á nefi og
munni.
Maðurinn var þegar fluttur á
sjúkrahús. Nokkru eftir að
maðurinn var kominn á sjúkra-
hús var tilkynnt um lát hans.
Hvenær er mæiirinn fullur? Aö undanförnu hafa birzt i blöðum
frásagnir um óhugnanlega tiö manndrpáp meöai Grænlendinga, og
raunar hvers konar slysfarir, sem eiga rót sina að rekja til yfir-
gengilegs drykkjuskapar. Nú hefur þaö gerzt, aö viö megum fara aö
lita nær okkur. Nú er um garö gengin fimmta helgin I röö meö
manndrápi eöa atvikum, þar sem tilviljun ein réöi, hvort mannslff
slokknaöi eða ekki.
Þegar er svo komið, að fólk spyr sjálft sig, þegar þaö hlustar á út-
varpsfréttir eöa tekur sér dagblað I hönd um helgar: Hvar hefur þaö
oröið núna? Þessi faraldur geigvænlegra ofbeldisverka, sem
viröast vofa yfir, hvenær sem fólk litur upp frá vinnu sinni, er
kominn á þaö stig, aö furöu gegnir, aö undir skuli setiö án þess aö
reynt sé aö leita orsakanna til þessa óhugnaöar, sem sjálfsagt eru
margar og samverkandi.
Engum getur dulizt, aö þessir hroöalegu atburöir eru aöeins
skuggaleg framhliö miklu djúptækara vandamáls, sem leynist aö
miklu leyti undir yfirboröinu, en hefur náö meiri og minni tökum á
óteljandi einstaklingum og teygir anga sina inn á fleiri heimili en
okkur grunar I fljótu bragöi og veldur mikilli óhamingju. Hvar er
slysavarnaáhugi fólks, þegar andspænis sliku er staöiö?
Og vilja menn renna huganum ofurlitiö fram á viö: Úr þvi aö
svona atburðir reka hvern annan um ofurvenjuiegar helgar,
hvernig veröur umhorfs I valnum um áramótin, þegar fólk sleppir
venju fremur fram af sér beizlinu?
GÆZLAN ÞAGÐIAF
ÖRYGGISÁSTÆDUM
— segir Pétur Sigurðsson
Gsal-Reykjavik — Timinn haföi i
gær tal af Pétri Sigurössyni, for-
stjóra Landhelgisgæzlunnar,
vegna töku þýzka togarans
Arcturus BX-739.
Við spuröum Pétur um
ástæðuna fyrir þvi, að Land-
helgisgæzlan hefði ekki viljað
segja neitt um töku togarans fyrr
en i gærmorgun og fyrstu fréttir
af atburðinum hefðu þvi borizt
hingað til lands gegnum erlendar
fréttastofur, flestar byggðar á
heimildum frá útgerðarfyrirtæki
togarans.
— Það er rétt. Við héldum þessu
innan Gæslunnar eins lengi og við
gátum, og það voru ýmsar
ástæður fyrir þvi. Við erum með 6
varðskipsmenn um borð i þýzka
togaranum, þar til hann er kom-
inn til Vestmannaeyja, og viö
svona togaratökur er aldrei að
vita hvað getur gerzt. Af okkur
hálfu var þessi þögn þvi
einvörðungu öryggisráöstöfun, og
viö vorum með ýmsar aðrar
hliöarráðstafanir. Þór var ekki
langt I burtu frá skipunum, og
siðar hjá skipunum, og við vorum
með flugvél og þess háttar.
— Má lita á töku togarans sem
tilviljun, eða er hér um aö ræða
beina afleiðingu þess, að
samningar viö V-Þjóðverja
strönduðu fyrir skömmu?
— Dómsmálaráðherra sagði
fyrir skömmu I viðtali við eitt
dagblaðanna, að eftirlit með
þýzku togurunum yrði hert, og þvi
má lita á togaratökuna sem beina
afleiðingu þeirrar ákvörðunar.
Hinn látni hét Þorleifur
Guðjónsson, 48 ára að aldri og
búsettur i Vestmannaeyjum.
Maðurinn sem tilkynnti um, að
hafa lent i átökum við Þorleif
hefur verið úrskurðaðuri sjö daga
gæzluvarðhald og málið er i
rannsókn.
Ekki er vitað um ástæðuna
fyrir átökunum, en mennirnir
voru góðkunningjar og báðir eitt-
hvað undir áhrifum áfengis er
atburðurinn gerðist.
Óskiljanlegir leiðbeinendur
Þaö veröur aö teljast siysni, þegar til viötals eru fengnir I útvarpi
eöa sjónvarpi þeir menn, sem einna helzt viröast vera ómælandi á
islenzka tungu. Sérstaklega er þetta hvimleitt, þegar þessir piltar
eiga aöskýra eitthvaö fyrir almenningi, til dæmis myndlist, þvi aö
mörgum manninum þykir súrt i brotiö aö hlusta á fræöarann, án
þess aögeta leitt aö þvi, getum, þegar upp er staöiö, hvaö hann hafi
eiginlega veriö aö fara.
Væri ekki heppilegra aö halda sig viö Björn Th. eöa einhvern,
sem komiö getur oröum aö hugsun sinni á þvi máli, sem talaö er I
landinu heldur en slægjast eftir leiösögumönnum meö þaö jargans-
mál, sem fer fyrir ofan garöog neöan á flestum bæjum?
—JH
Gatnagerðargjöld í borgarstjórn:
Féllust á lækkunartilögu
Framsóknarmanna
BH—Reykjavfk — A borgar-
stjórnarfundi sl. fimmtudag var
samþykkt ný gjaldskrá gatna-
gerðargjalda, eins og hún var af-
greidd frá borgarráöi 1 þessu
sambandi veröur aö athuga, aö
siöan 1969 hefur gjaldskrá veriö
ákveöinn hundraöshluti á rúm-
metra miðaö viö kostnaö viö visi-
töluhús, Þennan kostnaö reiknar
Þýzkir sjómenn hótuðu að kyrrsetja Snæfugl í Cuxhaven
ögra snúið frá Bremerhaven
— hafnarverkamenn hótuðu að raða bílum á flóðgáttina og loka þannig höfninni
OO—Reykjavlk — Talsveröar
reiöi gætti i gær i útgeröarbæjun
um Bremerhaven og Cuxhaven I
Þýzkalandi vegna töku togarans
Arcturus I islenzkri landhelgi.
Sjómannasambandiö i Þýzka-
landi hótaöi i gær aö koma i veg
fyrir, aö nokkurt islenzkt skip
gæti athafnað sig i höfnum i
Þýzkalandi og kváöust félags-
menn beita valdi til aö framfylgja
hótunum sinum, ef reynt yröi aö
afgreiöa islenzk skip. Meö þessu
vilja þeir mótmæla töku þýzka
togarans. 1 gærkvöldi átti togar-
inn ögri aö leggja aö bryggju i
Bremerhaven og selja þar 250
lestir i dag. En togaranum var
snúiö til Ostende I Belgiu og
kemur hann þangaö I dag, til aö
foröa vandræðum i Þýzkalandi.
1 fyrradag seldi vélbáturinn
Sæfugl afla I Cuxhaven og lestaði
salt i gær. Timinn haföi I
gærkvöldi samband við Ernst
Stabel ræðismann Islands þar i
borg, og sagði hann, aö félagar i
Sjómannasambandinu hafi ætlað
að meina Snæfugli að sigla út úr
fiskihöfninni og hótað aö raða
bilum á flóðgáttina, sem er fyrir
innri höfninni og fjölmenna á
sjálfri flóðgáttinni ef reynt yrði
að sigla bátnum út á ytri höfnina.
En lögreglan og hafnaryfirvöld
hefðu bent mótmælendum á, að
þetta athæfi væri andstætt lögum
og yrði flóðgáttin opnuð, hvað
sem á gengi og bátnum hleypt út.
tslenzkur fiskibátur I fiskihöfninni iCuxhaven. A þessum staö var hótaö aö kyrrsetja Snæfugl. Leiöin aö
flóögáttinni, sem þýzku sjómennirnir hótuöu aö loka, er til hægri á myndinni. Timamynd Oó.
Sigldi Snæfugl út úr innri höfninni
kl. 19 aö staðartima án þess að
hafnarverkamenn létu til skarar
skriða. Stabel sagöi, að örugg-
ara hefði þótt að beina ögra frá
Bremerhaven til að foröa
vandræðum, meðan blóðið væri
enn svo heitt i mönnum sem raun
bar vitni I gær. En hann kvaðst
vongóður um, að menn mundu
jafna sig á hlutunum innan
skamms og kvaðst vona að taka
þýzka togarans yrði til þess aö
flýta samningum milli vestur-
þýzku og islenzku rikisstjórnanna
um lausn deildunnar.
Togarinn Bjarni Benediktsson
var I gær i Hamborg og sagöi
Stabel, að skipið væri þar i
„opinni höfn” og enginn leið að
stööva ferðir þess, þótt Hamborg-
urum hitnaöi i hamsi. Snæfugl
heldur áleiðis til Islands i dag frá
Cuxhaven. Þá er togarinn Vigri i
Bremerhaven, en hann á ekki aö
fara þaöan fyrr en um næstu
mánaðamót.
Ingimar Einarsson
framkvæmdastjóri Sambands isl.
togaraeigenda sagði i gær, að
ekkert Islenzkt skip hefði verið á
leið til Þýzkalands I söluferð i gær
og ekki stæði til, að neinn togari
sigldi þangað i þessari viku. En
söluhorfur i Vestur-Þýzkalandi
eru mjög góðar næstu tvær vik-
urnar.
Engin vandkvæði eru á fyrir
islenzk skip að leggja upp afla i
Ostende og eru fiskkaupmenn þar
fegnir að fá afla einmitt núna,
þegar markaðurinn er svo góður
sem raun ber vitni og er ekkert
liklegra en að fiskurinn úr Ogra
verði seldur til Þýzkalands frá
Belgiu.
Hagstofan út þrisvar á ári, og er
rúmmetrinn núna kr. 13.526,00.
1 gjaldskránni, sem samþykkt
hefur verið. segir svo i 1. gr.:
„Hundraðshluti gjaldsins skal
vera sem hér segir:
Einbýlishúsallt að 550rúmm. 8%.
Einbýlishúsrými umfram 550
rúmm. 11%
Rað- og tvibýlishús 4%
Fjölbýlishús 4 hæðir og lægri 2%
Fjölbýlishús yfir 4 hæðir 1,5%
Verzlunar- og iðnaðarhús og
annað atvinnuhús skv. nánari
ákvörðun borgarráðs 10%
Taka skal sama gjald af lóðum
fyrir keðjuhús og „parhús” og
gildir um einbýlishús, nema
borgarráð ákveði sérstaklega
annað gjald
Þegar leyfð er litil ibúð i húsi,
sem er i skipulögðu einbýlishúsa-
hverfi, skal taka sama gjald og
um einbýlishús væri að ræöa.
Af bifreiðageymslu skal greiða
hálft gjald.
Borgarráði er heimilt að áætla
gatnagerðargjald, sem jafnfram
sé lágmarksgjald, enda sé þaö
miöaö við meðalnýtingu lóöar
samkv. skipulagi”.
1 borgarstjórn varð nokkur
ágreiningur um gjaldskrána,
hvaö varðar fjölbýlishúsin. I
borgarráði kom fram tillaga um,
að þau yrðu 2,5% og 2% en þar
bar Kristján Benediktsson,
borgarfulltrúi Framsóknar-
manna, fram tillögu um lækkun i
2% og 1,5%, sem meirihlutinn
féllst á.
Sigurjón Pétursson kom fram
meö tillögu um enn meiri lækkun,
sem sýnt þótti, að ekki hefði fylgi,
og gat Kristján Benediktsson
þess sérstaklega i ræðu sinni, að
hann teldi það mikinn áfanga-
sigur, þótt ekki næðist allt fram i
þessari lotu, ef lækkunartillaga
hans næði þó fram aö ganga.
Tillagan, eins og hún kom frá
borgarráði, var þannig samþykkt
Gatnagerðargjöld frá 19.
nóvember 1974 til 1. nóvember
1975 verða sem hér segir i kr á
rúmm.:
Einbýlishús allt að 550 rúmm.
1058.
Einbýlishús rými umfr. 550
rúmm. 1455
Raö- og tvibýlishús 529
Fjölbýlishús 4 hæðir 265
Fjölbýlishús yfir 4 hæðir 198
verzl- og iönaðarhús, allt að 1322