Tíminn - 26.11.1974, Side 6
TÍMINN
Þriftjudagur 26. nóvember 1974.
HEYKÖGGLAVERK-
SMIÐJA Á HJÓLUM
Nýtt ráð fit þess að spara gjaldeyri vegna
innflutnings á gripafóðri?
„BRATT ER LIÐINN áratugur
frá þvl er ýmsir bændur hér á
landi byrjuöu aö vélbinda hey-
feng sinn. Eftir aft hafa kynnzt
þróun I grasköggiamálum og
einkum þó eftir aö hafa fylgzt
meö nýrri tækni hér vestra.sem
gerir mönnum kleift aö flytja af-
kastamikla kögglavél auöveld-
lega á milli staöa og köggla þurr-
hey, vaknar sú spurning, hvort
ekki sé rétt aö vera stórstígari og
köggla heyiö I stað þess aö vél-
binda þaö."
Þannig byrjar Olafur Guð-
mundsson, sem er að ljúka
doktorsgráðu i fóðurfræði við
fylkisháskólann i Fargo, Norður
Dakota i Bandarikjunum, mjög
fróðlega og timabæra grein til
blaðsins á þessum timum hækk-
andi kjarnfóðurverðs.
Og hann heldur áfram:
„Þó að margir kostir séu þessu
samfara, þá mundi hver bóndi
liklega ekki köggla nema hluta
þess fóðurs, sem hann aflaði til
notkunar fyrir eigin búfénað.
Þetta getur þó verið töluvert
magn af heyi, sérstaklega i góð-
um heyskaparárum, en til þess að
þetta sé framkvæmanlegt þarf
kögglaverksmiðja að vera stað-
sett I nágrenninu eða kögglaverk-
smiðja á hjólum sem færi milli
bæja, að vera fyrir hendi.
Þó bændur almennt hafi ekki
tækifæri til að köggla sitt hey , þá
hefur áhugi undanfarin ár á
kögglun gróffóðurs aukizt mjög
mikiö og nú eru starfræktar fjór-
ar kögglaverksmiðjur i landinu
og verið er að byggja eina.
Aformað er að byggja tvær i við-
bót. Tvær hreyfanlegar
kögglunarvélar eru lika til i land-
inu og nú er i athugun að flytja inn
fullkomna verksmiðju á hjólum
sem kögglar þurrt hey .
Vegna þessa aukna áhuga á
kögglun grass og heys, hef ég
tekið saman nokkur atriði um
fóðrun köggla, sem gæti ef til vill
orðið til gagns fyrir þá bændur
sem koma til með að köggla hey
eða kaupa grasköggla. Flestar
upplýsingarnar eru byggðar á er-
lendum rannsóknum og tilraun-
um, vegna þess að mjög tak-
markaöar tilraunir hafa verið
gerðar hér á landi með fóðrun
köggla.
Vegna þess hve mörg atriði
hafa áhrif á kögglun fóöurs, þá er
mjög varasamt að taka það sem
sagt er um kögglun gróffóðurs al-
mennt, sem ófrávikjanlega staö-
reynd. 1 fyrsta lagi er um tvenns
konar kögglun gróffóðurs að
ræða, kögglun á vélþurrkuðu
grasi (graskögglar) og vall-
þurrkuöu eöa súgþurrkuöu heyi
(heykögglar). 1 öðru lagi er gras
og hey mjög misjafnt að gæðum
og I þriðja lagi er grasið og heyið
malaö misjafnlega fint áður en
þaö er kögglað. Þessi atriði og
mörg önnur, valda þvi, að til-
raunum með gróffóöurköggla ber
ekki alltaf saman.
Fóðurfræðilegir
kostir og gallar
við kögglunina.
Aukning fóöurgildis við kögglun
kemur ljósast fram i auknum af-
urðum. Þessi aukning er undir
þvi komin fyrir hvaða tegund bú-
fjárkögglarnir eru ætlaöir, og
byggist að mestu leyti á efnis-
fræöilegum og eðlisfræðilegum
breytingum fóöúrsins. Þótt
afuröaaukning verði alla jafna
meiri eftir þvi sem hráefnisgæði
til kögglagerðar vex, þá er
munurinn á köggluðu og óköggl-
uðu grasi og heyi mikið meiri
þegar fóðrið er af lakara taginu.
Með kögglun er þvi oft hægt að
minnka gæðamun góðs og slæms
heys. Það er þó ekki þar með sagt
að þroskastig grasanna við slátt,
ásamt verkun og meðferð grass
og heys ráöi ekki mestu um gæði
kögglanna, þvi að aldrei er hægt
að framleiða betri köggla en hrá-
efniö gefur tilefni til.
Ólafur Guömundsson
fóðurfræðingur
Þótt erlendum tilraunum beri
illa saman, þá hefur það sýnt sig
að kostirnir við kögglun, eru fyrst
og fremst aukning i fallþunga.
Þetta virðist vera að mestu leyti
vegna þess að skepnan innbyrðir
meira fóður ef það er kögglað,
heldur en ef það er ekki kögglað,
eða allt að 25 prósent meira.
Efnistap er mikið minna frá
kögglum en heyi vegna flutninga,
geymslu og gjafar. Kögglun úti-
lokar lika að búféð geti valið úr
þau grös, sem þeim likar bezt og
skiliö eftir eða slætt hinum. Þann-
ig eykst nýting fóðursins allveru-
lega. Sérstaklega er þetta mikil-
vægt við fóðrun sauðfjár og
hrossa.
Mörg önnur atriði gætu verið
talin upp sem kostir við kögglun
gróffóðurs, svo sem að þeir eru
auðveldari I flutningi, og spara
geymslurými og vinnu, þau verða
ekki rædd nánar hér.
Eins og við svo marga hluti,
virðast kostum alltaf fylgja
ókostir. Svo er einnig með köggl-
að gróffóður. Til dæmis eykur
kögglun hættu á sárum i vömb
jórturdýra. Þetta er þó auðvelt að
varast með þvi að gefa ókögglað
hey að einhverju leyti, ef fóðrað
er á kögglum yfir lengri tima (60
til 90 daga).
Komið hefur i ljós, að ef
mjólkurkýr eru fóðraðar á köggl-
um eingöngu þá lækkar það fitu-
innihald mjólkurinnar. Vafasamt
er þó hvort þetta komi að mikilli
sökhér á landi, þar sem litill akk-
ur er talinn i mjög feitri mjólk og
smjörfituframleiðsla er gjörn á
að mynda „fjöll”. Þær fáu til-
raunir, sem gerðar hafa verið hér
á landi með grasköggla handa
mjólkurkúm hafa lofað mjög
góðu. Verður fróðlegt að sjá
hvernig þurrheyskögglar reynast
i framtiðinni.
Prótein og bætiefni skemmast
auðveldlega með of miklum hita.
Hiti, notaöur við þurrkun grass,
getur breytt próteini og bætiefn-
um þannig að þau verði tormelt
eða jafnvel ónýtanleg fyrir
skepnurnar. Hiti, sem myndast
við kögglunina getur, þó i minna
mæli sé, einnig verkað i þessa átt.
Tap, af siðarnefndu ástæðunni
kæmi þvi jafnt niður á gras- og
heykögglum.
1 mörgum tilraunum hefur það .Mr .
sýnt sig að meltanleiki gróffóðurs jjjjjj rKAMLbltJsLA
minnkar við kögglun. Þetta á sér-
staklega við, þegar skepnurnar fá
að éta eins mikið og þær geta.
Yfirleitt eru ókostirnir af völdum
minni meltanleika við þessar að-
stæður og, sökum tækniframfara
siðustu ára, skemmdir á fóður-
efnum óverulegir i samanburði
við kosti þá, sem áður eru nefnd-
ir.
Nokkur atriði
um fitu
i fóðri búfjár.
Bandarlkjamenn nota mikið
melassa til að auðvelda kögglun,
en einnig vatn eða gufu, þó
að það sé tæplega eins gott. 1
staðinn fyrir melassa er mjög llk-
legt að hægt væri að nota dýrafitu
frá sláturhúsunum eða jafnvel
lýsi ef hagkvæmt þykir.
Erlendis hefur reynslan sýnt,
að 2 til 4 prósent fitu má bæta i
fóðrið, en ef meira er notað er
ekki hægt að ná viðunandi
árangri við kögglunina. Frá
fóðurfræðilegu sjónarmiði getur
þetta verið nokkuð mikilvægt, þar
sem fita hefur að meðaltali 2.25
sinnum meiri orku heldur en
prótein og kolvetni. Þess vegna
ætti fitan að auka fóðurgildi gróf-
fóöurkögglanna vegna þess að
þeir hafa tiltölulega litla orku
miðað við flestar aðrar tegundir
fóðurs. Sérstaklega ætti þetta að
gefast vel hér á landi, þar sem
próteinmagn grassins er
tiltölulega mjög hátt. Samkvæmt
erlendum tilraunum er þó varla
ráðlegt að nota mikið yfir 5% fitu
i fóöur jórturdýra. Sé fitan meiri
er hætt við að fóðurnýtingin og
afuröirnar, einkum þó mjólkin,
versni.
Mikið meira er aftur á móti
hægt að nota i fóður svina og
hænsna heldur en i fóður jórtur-
dýra, og vegna þess hversu
tiltölulega litils magns af
gróffóðurkögglum þessar
dýrategundir neyta, mun
iblöndun fitu aldrei geta orðið
nema til bóta. Þess vegna virðist
takmörkun fyrir þvi hve mikla
fitu er hægt að nota I gróffóður-
köggla fyrir þessar dýrategundir,
fremur vera kögglunar heldur
en fóöurfræðilegt vandamál.
Hverjir eru möguleikar
islenzkra bænda á
notkun kögglaðs
gróffóðurs?
Hér verða aðeins talin nokkur
atriði, sem vakna við þessa
spurningu. Aðal möguleikar
islenzkra bænda i sambandi við
kögglun grass og heys eru fólgnir
i kögglun vetrarfóðurs fyrir
kindur, kýr og hesta. Einnig gefur
þetta tækifæri til að bæta efnum I
heyiö ef svo sýnist, til dæmis
orkurlkum efnum fyrir svin og
hænsni. Sauðfjárbændur geta
sparað sér kjarnfóðurkaup að
mestu eða öllu leyti, hafi þeir
gróffóðurköggla handbæra.
Fæstir bændur hafa nægileg
hús til að láta allt féö bera inni og
vegna þess hve kögglarnir eru
auðveldir i meðförum gætu þeir
minnkað vinnuna all verulega
yfir þennan annatima, til dæmis
ef fóörað er úti við.
Gróffóðurkögglar geta lika
veriö notaðir fyrir mjókurkýr, þó
töluvert magn heys þurfi lika eins
og áður er getið, til að fitumagn
mjólkurinnar lækki ekki. Vegna
þess hve orkusnautt hey er
almennt, er mjög mikill fóður-
bætir notaður fyrir hámjólka kýr,
sem i flestum tilfellum er flutt til
landsins. Verð á þessum fóður-
bæti hefur hækkað mjög verulega
undanfarið og þess vegna væri
það hagkvæmt fyrir bændur og
þjóöfélagiö i heild, ef hægt væri,
aö láta gróffóðurköggla koma að
einhverju leyti i staðinn fyrir
þetta dýra fóður, ekki sízt ef fitu
er blandað i þá.
Meira gróffóður er lika hægt að
nota i hænsna- og svinafóður,
þegar það er kögglað, heldur en
þegar það er til dæmis malað.
Sama er að segja um hestafóður,
þar getur kögglað gróffóður verið
notaö i mjög ríkum mæli. Þetta
mundi þvi bæði hjálpa hrossa-
ræktendum I kaupstöðum og
annars staðar, sem geta ekki
ræktað sitt eigið fóður, og
bændum sem rækta hross og/eða
selja fóður til áður nefndra
hrossaræktenda.
Gildi og möguleikar við
kögglungróffóðurs eykst jafnvel
meira þegar litiö er á útflutning á
gróffóðri Bandarikjamenn flytja
ár hvert út mikið af kögglaðrí
lúsernu (alfalfa) og heyi, bæði tíl
Evrópu og til annarra
heimshluta. Þetta fóður hefur i
mörgum tilvikum lægra fóður-
gildi heldur en það fóður, sem við
getum framleitt hér á landi með
vélþurrkun og jafnvel með
kögglun úrvals þurrheys. Þessir
erlendu markaðir munu eflaust
aukast samfara aukinni
iðnvæðingu og sérstaklega vegna
þess hve korn til fóðrunar búfjár
er nú af skornum skammti og
dýrt. Bræðurnir Páll og Jón
Ölafssynir, I Brautarholti á
Kjalarnesi, hafa flutt út eitthvað
af grasmjöli og kögglum og eiga
þeir þakkir skildar fyrir braut-
ryðjendastarf i þessum
efnum.
Hér hafa verið taldir
upp nokkrir möguleikar i notkun
gróffóöurköggla hér á landi. Það
er mjög aðkallandi að auka
tilraunir til að sannprófa aö hve
miklu leyti við getum notað
kögglað gras og hey til gjald-
eyrissparnaðar i islenzkum land-
búna^
ÞURRKUR ALLA DAGA —
í HÚSINU ER Creda
ÚTSÖLUSTAÐIR:
(áöur Parnall þurrkar-
inn).
Auðveldur í notkun
Þér snúið stillihnappi
og þurrkarinn skilar
þvottinum þurrum og
sléttum.
Framleiddur í 2 stærö-,
um:
TD 275/2,75 af þurr-
um þvotti, h. 67,5 - br.
49 og d. 48 sm.
TD 400/4 kg af þurrum
þvotti, h. 85 - br. 59
OG d 58 sm.
„Trommla" er úr ryð-
fríu stáli
RAFHA, Óðinstorgi,
sími 10-322
SMYRILL, Ármúla 7,
sími 8-44-50.
STAPAFELL, Keflavík,
sími 1730 —
og hjá okkur.
örugg ábyrgöar- og varahlutaþjónusta
á Parnall og Creda er hjá okkur.
Löng og farsæl reynsla
Parnall — og síöar Creda
Þurrkaranna sanna gæðin.
VERÐIN HAGKVÆM.
Raftækjaverslun íslands h.f.
Ægisgötu 7 - Símar 17975 - 17976
Tónleikar
Hóskólabíói
i
fimmtudag 28. nóvember kl. 20.30. Stjórnandi Vla-
dimir Ashkenazy og einsöngvari Sheila Armstrong
sópransöngkona. Fluttar veröa arlur eftir Mozart
og Tasjaíkowský, Sinfónla nr. 40 I G moll eftir
Mozart og Sinfónia nr. 4 eftir Sibelius.
AÐGÖNGUMIÐASALA:
Bókabúð Lárusar Blöndal
Skólavörðustig og Veslurveri
Símar: 15650 — 19822
Bókaverzlun
Siglúsar Eymundssonar
Austurstræti 18
Simi: 13135
jlll
SINFÓNÍI’HLIOIVISX EIT ÍSLANDS
KÍKISl IAARPIÐ
iSiSiiitSSiSiSiiSStSUSSiiiiHHSiUHSSSSSiH^UsaaHUaUSSiSSSirHSHSSBHiSiWaSH!
RAFGEYMAR
P0LAR H.F.
Oruggasti
RAFGEYMIRINN
á markaðnum
Fást í öllum kaupfélögum ||jj
og bifreiðavöruverzlunum jjjjjj
UHU *
tsHitiittijjttt:
HsiiH
NO TID AÐEINS ÞAD BEZTA
iíilÍÍSSiiÉStSiíÍtitiiiSÍ
tttstiiiiii
•sttstts:::