Tíminn - 05.12.1974, Blaðsíða 9

Tíminn - 05.12.1974, Blaðsíða 9
8 TÍMINN Fimmtudagur 5. desember 1974. Fimmtudagur 5. íslenzki dansflokkurinn: Frumfluttur ballett eftir Alan Carter Tvær sýningar í Þjóðleikhúsinu gébé Reykjavik — Föstudaginn 6. desember kl. 20:00 og sunnudag- inn 8. desember, ki. 21. 00, verða balletsýningar i Þjóöleikhúsinu. Þaö er tslenzki dansflokkurinn sem þar er á ferö, undir forystu Alans Carter. Sýndir veröa þrir ballettar, Höfuöskepnurnar, viö tónlist eftir Askel Másson, og Tilbrigöi viö tónlist eftir Brahms, báöir eru ballettarnir eftir Alan Carter og voru sýndir á listahátiö i ár. Þriöja verkiö, Svart og hvitt, viö tónlist eftir Áskel Másson, ballettinn er einnig eftir Alan Carter, verður frumsýnt á föstu- dagskvöldiö. Alan Carter mun nú i fyrsta skipti dansa opinberlega hér á landi, en i dansflokknum eru auk hans átta dansarar, auk aukadansara úr Ballettskóla Þjóöleikhússins Jón Sigurbjörns- son syngur viö tónlist Askels, en hann kemur þó ekki fram heldur er þaö Alan Carter sem „dansar” rödd hans. Hugmyndina að ballettinum Svart og hvitt, fékk Alan Carter er hann dvaldist á Bahama-eyj- um og fékk þar mikinn áhuga á negra sálmum, en ballettinn er einmitt byggður upp á negra- sálmum. Þetta er einstakt tækifæri fyrir ballett-unnendur, og eru án efa fáir, sem vilja láta það fram hjá sér fara. Islenzki dansflokkurinn á erfitt uppdráttar, sökum fjárskorts. Vinna dansaranna er geysilega mikil, og æfingar langar og strangar. Þegar dansflokkurinn er svo litill, eru miklar kröfur geröar til hvers einstaklings. A þessu ári fékk tslenzki dans- flokkurinn 6 milljónir króna á fjárhagsáætlun, en nú á næstunni verður framtiö flokksins ákveðin, þvi að þá veröur ákveðið hve mikla upphæð flokkurinn fær á fjárhagsáætlun, en fariö hefur verið fram á niu milljónir króna, sem er algjör lágmarksupphæö. Þaö er þvi i rauninni barizt fyrir lifi ballett-flokksins islenzka þessa dagana, en flokkurinn hef- ur nú starfaö i hálft annaö ár, en þaö var i marz ’73 sem Alan Carter kom hingaö til lands og tók viö stjórn flokksins. tslenzki dansflokkurinn hefur tekið þátt i fjölmörgum sýningum i Þjóöleikhúsinu, auk þess sem hann hefur haft sjálfstæöar sýn- ingar, bæöi i Reykjavik og úti á landsbyggðinni, en i sumar fðr flokkurinn viöa um land i sýn- ingarferöalagi, og var aösókn yfirleitt góö á flestum stööum. Ef dansflokknum veröur borgið og ákveöið veröur aö halda starf- semi hans áfram, — sem furöu- legt má telja ef ekki veröur gert, þar sem þetta er eini flokkurinn sinnar tegundar hér á landi, — mun hann sýna Coppeliu-ballett- inn seinna i vetur á fjölum Þjóöleikhússins og veröur þá fengin islenzki dansarinn Þór- arinn Baldvinsson, sem nú starf- ar sem ballett-dansari i Bret- landi. Sýningar ættu aö geta haf- ist i febrúarlok, en æfingar eru þegar hafnar. Þetta mun vera i fyrsta skipti sem ballett er hugs- aður sem liöur I venjulegri verk- efnaskrá Þjóðleikhússjns. Hér eru þaö Alan Carter og Julie Clair, sem dansa steppdans f byrjun ballettsins, Svart og hvitt, sem án efa á eftir aö njóta mikilla vinsælda. Vöröurinn er vel á verði, þrffur byssuna og skýtur litlu negrasteipuna. Timamyndir: GE. Negrastelpan reynir aö blföka vöröinn og dansar vlö hann. LitU negrastelpa kemur aö, þar sem fangavöröurinn sparkar f einn negrann. Nú á aö stela lyklunum af fangaveröinum til aö geta leyst fangana, sem bföa ieftirvæntingu. Fangavöröinn dansar Krfstin Björnsdóttir, og hér skipar vöröurinn föngum sfnum áfram, en þeir eru' heidur tötralegir og allir bundir. TÍMINN 9 ——I AAargt og smátt Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka: ÞJÓÐLEGAR SAGNIR Bókaútg. Skuggsjá 191 bls. ÍSLENDINGAR eru miklir sagnamenn. öldum saman var þaö ein helzta skemmtan manna að segja sögur á vetrar- kvöldum, og reyndar hvar annars staðar, þar sem maöur hitti mann. Það veröur hverj- um að list, sem hann leikur, og þvi ber sizt að neita, að þjóðin eignaöist marga ágæta sögu- menn, og áreiðanlega miklu fleiri en við nútimamenn höfum spurnir af. Og enn er farinn vegur. Enn þykir íslendingum gaman aö segja sögur, og kennir þá oft margra grasa. Viðsegum sögur af sjálfum okkar og náunganum — og þykir þá ekki alltaf saka, þótt vakin sé athygli á þvi, sem okkur finnst skringilegt i fari samferðamannsins. Bókin, sem hér er til umræðu, hefur að geyma mikinn fjölda þjóölegra sagna af ýmsu tagi. Safnarinn, Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka, hefur flokkað sögurnar eftir eðli þeirra, og er nú bezt að gera grein fyrir þeirri niöurskipan, svo að væntanlegir lesendur bókarinnar, fái gleggri hugmynd um innihald hennar. ALFASOGUR eru sextán, DULRÆNAR SÖGUR fjörutiu og fimm, ÖRLAGASÖGUR tuttugu og fimm. REYNSLU- SöGUR nitján, DÝRASöGUR fimm, ÆVINTÝRI tólf, og SKRINGISÖGUR fimmtán. Eins og sjá má, er hér ekki neitt smáræöis efni saman komið. Sé rétt talið, munu sögurnar vera hart nær eitthundrað og fjöru- tiu, kannsi fátt I þrem. Efniö I þessum sögum er eins og vera ber með slikar sagnir: Mennskur prestur eða yfirsetu- kona bjarga huldukonu I barnsnauð og hlýtur rikuleg laun, þvl að álfar kunna að meta þaö sem þeim er vel gert. Ferðamaður villtist i hrið, ei lendir óvart inn I álfakirkju o; hlýöir þar á messu. MaÖur finnur huliðsstein, en skilar honum til rétts eiganda, og verður hamingjumaður til ævi- loka fyrir vikiö. Harðbrjósta og nlzkur bóndi lætur skipast og verður nýr og betri maður eftir aö framliðnir hafa veitt honum verðuga ádrepu. Sögumanni gefst sýn aftur I aldir. Svona mætti lengi telja, þvi eins og nærri má geta, er hér aöeins drepið á fátt eitt af þvi sem lesa má i þessum mörgu, en stuttu sögum. Um sannleiks- gildiö þarf auðvitað ekki að fara mörgum orðum, viö tök- um sögurnar eins og þær eru, og spyrjum ekki um vottfestar sannanir. Þó væri fásinna aö segja það allt skynvillur eöa skrök, sem maöur hefur ekki reynt sjálfur. Viö vitum að kynjasögur veröa til með ýmsu móti, meðal annars þvi, að sá er söguna nemur, tekur skakkt eftir þvi, sem hann heyrir. Svo skemmti- lega vill til, að bókin flytur aö minnsta kosti eitt dæmi af þessu tagi: A bls. 14 er frá þvi sagt, að kotbóndi einn i Jökuldalsheiði hafi veitt marga laxa i ársprænu skammt niður undir bæ sínum, og er sagt, að þetta sé „sögn aldraðs Austfirðings.” — Ég þori að ábyrgjast, að enginn Austfirðingur hefur nokkru sinni sagt Ingólfi Jónssyni eða neinum öðrum frá laxveiði i Jökuldalsheiðinni, enda væri fróðlegt að vita hvernig vesa- lings skepnurnar heföu átt að komast þangað til þess að láta veiöa sig. Ætli það séu ekki gamalkunnir vantasilungar, sem þarna hafa allt i einu orðið að löxum? Sumar þessara sagna eru svo ungar, að núlifandi menn kannast mætavel við fólkið, sem þar á hlut að máli. Satt að segja þykir mér þar sums staðar vera höggvið óþarflega nærri sum- um, sem enn eru mitt á meðal okkar, en hér er þó sú bót I máli, að Ingólfur Jónsson er göfug- Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka. menni, sem engan vill særa með skrifum sinum. Mun þvi varla koma að sök, þótt sumar sögurnar nái allt til siðustu ára. Um mál Ingólfs og stil er óþarft að fara mörgum orðum, svo kunnur sem hann er orðinn af skrifum sinum Mál hans á þessari bók er viðfelldið og lipurt, hvorki stórskorið né rishátt, en llka blessunarlega laust við alla tilgerö og uppskrúfun. Sama er að segja um stilinn. Hann er blátt áfram og býður af sér góðan þokka eins og höfundurinn sjálfur. Þó er á stilnum einn agnúi, sem ég get ekki stillt mig um að nefna, samkvæmt þeirri fornu venju, að segja bæði kost og löst á hverjum hlut. Höfundur ofnotar mjög orðin ,,sá sem hér ritar”. (þó er ýmist sagt „sem” eða „er”). Sem dæmi um þetta má nefna upphaf sögu, neðan til á bls. 127, en annars gerist þess ekki þörf, dæmin blasa alls staðar við, svo aö segja hvar sem bókin er opnuð. Það getur aö visu farið vel á sliku stöku sinnum, en þegar sömu orðin eru notuð eins viða og hér er gert, verkar það óþægilega á lesandann.. En svona ójöfnur er hverjum höfundi vandalaust að hefla af, og sjálfsagt verður þetta ein- kenni ekki fyrir hendi i næstu bók Ingólfs Jónssonar. Éins og menn geta séð með þvi að bera saman blaösiöutal þessarar bókar og fjölda sagnanna, sem hún hefur að geyma, eru margar þeirra mjög stuttar. Sumar eru fyndnar og hnyttnar og njóta sin vel i þessu knappa og stuttorða formi. Margar safnanna hafa áður birzt'I Sunnudagsblaði Timans, og ef mig ekki misminnir, fylgdu þeim oft teikningar, sem lifguðu mikið upp á efnið. Þess- ar myndir eru aftur á móti ekki i bókinni, og er að þvi mikill skaði, þvi satt að segja veitir ekkert af þvi að hressa upp á slika bók með myndum. Sög- urnar eru svo margar og smáar og oft hver annarri likar. Auð- vitað er myndskreyting bóka orðin óguðlega dýr, eins og allt annaö á okkar dögum, en þó er ég alveg sannfærður um að út- gefendur græða ekki á þvi að spara myndir, þar sem þær eiga við. Söfnun þjóðlegs fróðleiks er á marganháttnytsamt verk. Það eru alltaf einhverjir frásagna- verðir hlutir aö gerast, og oftast mun vera betra þann fróðleik að kunna, en án hans að vera, einkum þegar frá liður. En hins vegar græða bækur venjulega á þvi að efni þeirra sé sem sam- felldast — að bitarnir i þeim séu fáir og stórir, fremur en margir og smáir. — V.S. LJÚFUR ÞOKKI í LJÓÐAKVERI ísland I ljóðum sautján nútima- skálda. TIL LANDSINS Jóhann Hjálmarsson valdi Hörpuútgáfan Akra- nesi 1974. Til landsins heitir bók, sem Hörpuútgáfan lætur frá sér fara. Svo erhún kynnt að þar sé tsland I ljóðum sautján nútima- skálda, og valdi Jóhann Hjálmarsson þau i tilefni 1100 ára afmælis íslandsbyggðar. Veljandinn skrifar inngang að bókinni, og er þar sitthvað um- hugsunarvert. Þar segir, að skáldin kjósi að yrkja ljóð sin til landsins án þess tilbúna hátið- leiks, sem settur er á svið til að minnast dauðra ártala. Þá veit maður það, að þjóðminningar- dagar eru ekki til, — það er að- eins verið að minnast dauðra ártala, — dauðra talna, og hátiðleikinn er tilbúinn. Siöar segir, að skáldum takist bezt, þegar ljóðin vitna um samruna manns og lands. „Þá finnum við að landið er hluti af skáldinu, ekki sparifatnaður, sem klæðzt er til að dyljast.” Liklega væri meiri von til að ég skildi, ef skáldið væri hluti af landinu. En sleppum þvi. Elzt þessara 17 skálda eru Jó- hannes úr Kötlum og Tómas Guðmundsson, en Nina Björk Arnadóttir og Jóhann Hjálmarsson yngst. Ekki hef ég séö neina skilagrein um þaö, hvenær ljóðin eru gerð. Þetta er þokkaleg bók, en vissulega finnstmér að eins vel hefðimátt hafa með ýms skáld, sem vant- ar. Or þeim hópi nefni ég Hall- dór Laxness, Guðmund Fri- mann, Ölaf Jóhann Sigurðsson, Þorstein Valdimarsson, Þórodd frá Sandi og Heiðrek bróður hans, Braga Sigurjónsson. — En auðvitað er bókin engu siðri fyr- ir þvi, að hægt hefði verið að gera aðra jafngóða eftir önnur 17 skáld. Bókin er prýdd myndum af þremur málverkum eftir Sverri Haraldsson, hver mynd yfir eina opnu. Þær eru að visu ekki með litum, en þær halda sinum linum, og linurnar eru úr is- lenzku landslagi, enda þótt myndirnar séu nokkuð stilfærð- ar. Þessar myndir eru þvi bókarprýði. Það er að visu litið af landi voru I sumum þessum ljóðum. Ég hygg, áð ljóð Sigfúsar Daða- sonar: Ég lagði leið mina um þetta land, gæti verið samið hvar sem væri. Að mínum skiln- ingi er það um viðhorf mannsins til umhverfis hans. Ljóð Vil- borgar Dagbjartsdóttur, Vor, er lika að minu viti ekki sérstak- lega um islenzka náttúru eða is- lenzkt umhverfi. Það mætti finna margt úr íslenzkum ljóða- bókum, sem jafnvel félli að nafni þessarar bókar. En auð- vitað finnast ekki egg og hreiður nema á einhverju, og að þvi leyti veit þetta til landsins. En kverið er snoturt og hefur ljúfan þokka. Og er það ekki fyrir mestu? H.KR. Æviþættir tuttugu mikilmenna sögunnar — fróðleg bók og skemmtileg AFBURÐAMENN og örlaga- Þó var öldin önnur — Darraðardansinn í og fleiri þættir valdar nefnist þriðja bókin i þátt- unum um æviþætti mikilmenna sögunnar. t þessu þriðja bindi eru raktir æviþættir tuttugu mikil- menna, þeirra Virgil Maro, Atla Húnakonungs, Dante, Kristófer Kolumbus, Desiderius Erasmus, William Shakespeare, Samuel Johnson, Friðriks mikla, James Cook, George Washington, James Watt, Robespierre, Shelley, Abraham Lincoln, Richard Wagner, Graham Bell, Tagore, Orville og Wilbur Writht, Marconi og Franklin D. Roosevelt. Af þessari upptalningu má sjá, að hér segir frá mönnum, sem áttu mikinn þátt i sköpun nútima- veraldar. Bókin er fróðleg og eiguleg, en jafnframt ósvikinn skemmtilestur. Stjórnmálamenn, þjóðhöfðingj- ar, landkönnuðir, tónskáld, vlsindamenn, já, það kennir margra grasa i þessari bók og ætti hún að vera til i hverjum bókaskáp. Bókina þýddi Bárður Jakobs- son, en útgefandi er Ægisútgáfan. Um setningu og prentun sá Prent- smiðjan Oddi hf. en bókband Sveinabókbandið hf. Þá var öldin önnur, nefnist siöasta bók Einars Braga. Er þetta annað bindi sagnaþátta úr Austur-Skaftafellssýslu. Ókunnugum lýkur þessi bók upp heimi, sem ekki verður séöur i gegnum bilrúður, þótt kominn sé hringvegur, og sjálfir hitta Skaft- fellingar fyrir forfeður sina i þessari bók. Einar Bragi er gagnkunnugur mannlifi og sögu þessara sveita og er raunar ættaður þaðan. Hér segir hann m.a. frá breyskum Suðursveit stórbokkum á borð við sýslu- mennina Jón Helgason i Hoffelli og Kristján Vigfússon á Kálfa- fellsstað. Þau Sveinn og Rann- veig á Felli setja allt á annan endann með ótimabærri dirfsku i ástamálum — á þeim timum er öxin og Stóridómur vöktu yfir siðferðinu. í þessari bók Einars Braga bætist nálega öld viðbyggðarsögu S iðursveitar. Atvikin raðast saman i annálsformi og verða að eins konar innansveitarkróniku. Útgefandi er tsafold.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.