Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.01.2005, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.01.2005, Qupperneq 2
2 4. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR TAÍLAND, AP Óttast er að 12 ára sænskum dreng, Kristian Walker, hafi verið rænt á sjúkrahúsi í Taílandi. Sænskir lögreglumenn eru nú á leið til Taílands til að rannsaka málið. Þetta kom fram í sænskum fjölmiðlum í gær. Strákurinn lá á sjúkrahúsinu Taimueang fyrir utan Khao Lak. Óþekktur maður, evrópskur yfir- litum með yfirvaraskegg, ku hafa komið í tvígang með Kristian til sjúkrahússins. Eftir að gert hafði verið að sár- um Kristians fór maðurinn með hann af sjúkrahúsinu í síðustu viku og hefur ekki spurst til hans síðan. Faðir og bróðir Kristians höfðu leitað hans eftir að flóð- bylgjan reið yfir og gengið á milli sjúkrahúsa með mynd af honum. Þeir segja að starfsfólkið á sjúkrahúsinu sé visst í sinni sök, Kristian hafi komið þangað og farið aftur. Því miður eru þó eng- in gögn til um hann. Kristian Walker var með systkinum sínum, móður og kærasta hennar í Taílandi um jól- in. Móður hans og kærasta hennar er enn saknað en systkini hans eru komin heim til Stokk- hólms. Faðirinn leitar nú sonar síns með aðstoð sænsku lögreglu- mannanna. ■ HAMFARIR Svíarnir sem Íslending- ar fljúga með heim frá Taílandi í dag eru mikið slasaðir en þó eng- inn í bráðri lífshættu. Gera má ráð fyrir að andleg líðan farþeg- anna sé slæm, en Friðrik Sigur- bergsson, læknir og leiðangurs- stjóri, segir að allir farþegarnir hafi misst ættingja eða jafnvel alla fjölskylduna auk þess sem munaðarlaus börn séu um borð. „Við höfum ekki hitt þetta fólk en við höfum verið á fundi í sænska sendiráðinu í Bangkok og þar var farið í gegnum þetta verkefni og ástandið á fólkinu út- skýrt. Þetta ætti að vera einfald- ur sjúkraflutningur miðað við veikindi fólksins og áverka. Um borð er þó fólk sem hefur gengið í gegnum hörmungar sem orð fá ekki lýst,“ segir hann. Í gær var tíminn notaður til að koma upp lyfjastöðvum í flugvél- inni, ganga frá súrefniskútum, festa sjúkrarúm og skipuleggja verkefni dagsins. Sjúklingarnir eru 18 rúmliggjandi og 40-50 sitj- andi sjúklingar og aðstandendur. Fyrstu sjúklingarnir áttu að koma um borð klukkan níu í morgun að staðartíma og vélin átti að fara í loftið klukkan eitt. Sjö tíma munur er milli Íslands og Taílands. Vélin millilendir í Dubai og lendir svo í kvöld í Stokkhólmi. Flugið tekur 15-16 tíma. Tíu manna áhöfn er um borð auk 25 manna liðs lækna, hjúkrun- arfólks, slökkviliðsmanna og sjálfsbjargarmanna. Friðrik segir að reynt verði að þjónusta og koma eins vel fram við Svíana eins og hægt er en þeir muni burðast með þessa reynslu alla ævi. „Við komum þeim til síns heima og önnumst þá með tilliti til þess að þeim líði eins vel og frekast er unnt. Maður getur ekki gert neitt annað en haldið í hönd þessa fólks, talað við það og sýnt samkennd og það munum við gera,“ sagði hann. Friðrik kveðst ýmislegt hafa séð og reynt en aldrei hafi hann séð fullorðið, reynt og vant fagfólk jafn slegið og nú. Með íslensku vélinni er búið að flytja alla þá Svía heim sem vildu flutning. Eftir eru menn sem leita ættingja sinna auk þess sem sjúk- lingar á gjörgæsludeild eru ekki flutningsfærir. ghs@frettabladid.is Erlent: Líkin flutt heim 827 SAKNAÐ Staðfest er að 827 Svía er saknað eftir hamfarirnar í Suð- austur-Asíu. Þetta þýðir að ættingj- ar hafa í flestum tilfellum séð þá deyja. Ekki er vitað hvað hent hefur 1.495 einstaklinga til viðbótar. FYRSTU LÍKIN FLUTT TIL SVÍÞJÓÐAR Fyrstu líkin af Svíunum sem fórust í flóðbylgjunni í Indlandshafi verða flutt heim í dag. Minningarstund verður á flugvellinum áður en flug- vélin fer í loftið og einnig þegar vél- arnar lenda. Tvær flutningavélar sjá um flutningana. MUNAÐARLAUS BÖRN SELD Börn sem saknað er á hamfarasvæðunum við Indlandshaf geta orðið fórnar- lömb mansals. Nú þegar eru teikn á lofti um að munaðarlaus börn á Sri Lanka og í Indónesíu hafi orðið fyr- ir því. Í sumum tilvikum verða börnin fyrir ólöglegri ættleiðingu og í öðrum tilfellum eru þau hrein- lega seld. Mörg norræn börn hafa orðið munaðarlaus í hamförunum en þó er ekki vitað hversu mörg. Ekki er óttast að þau hafi lent í mansali. Á LISTA YFIR ÞÁ SEM SAKNAÐ ER Fréttir í norskum fjölmiðlum hafa greint frá því að 99 Norðmenn hafi verið á listanum yfir saknaða þó að þeir væru sprelllifandi. Þannig voru t.d. menn á listanum sem voru á ferðalagi í Egyptalandi, aðrir voru á ferðalagi í Víetnam og enn aðrir annars staðar. Sumir voru jafnvel heima í Osló og höfðu alls ekkert verið í Taílandi. Vefútgáfa Dagbladet segir frá því að listi yfir þá sem er saknað sé kolvitlaus. Ekki hafi verið hirt um að uppfæra listann og því séu upp- lýsingarnar rangar um tvo þriðju hluta fólksins á listanum. GAGNRÝNI Í NOREGI Norska lögreglan hefur gagnrýnt utanríkisráðuneytið vegna þess hvernig staðið hafi verið að því að safna nöfnum á lista yfir þá sem saknað er. Utanríkisráðuneytið hef- ur svarað á móti að lögreglan hafi ekki mótmælt því hvernig staðið skyldi að skráningu á listann. 183 ENN SAKNAÐ 183 Finna er ennþá saknað í Taílandi. Finnska símafyrirtækið Telia Sonera hefur komið upp sér- stöku SMS-kerfi sem nær til allra Finna á ákveðnu svæði. Þegar hafa ein skilaboð verið send til þeirra sem eru á hamfarasvæðinu við Ind- landshaf og þeirra sem voru þar en eru komnir heim. ■ Hamfarir í Asíu: Forsetar safna fé BANDARÍKIN George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kom fram á blaða- mannafundi í gær með tvo fyrir- rennara sína sér við hlið og hvatti Bandaríkjamenn til að láta fé af hendi rakna til fórnarlamba ham- faranna við Indlandshaf annan jóla- dag: „Ég hvet alla Bandaríkjamenn til að leggja sitt af mörkum.“ Bill Clinton, forveri Bush, og George Bush eldri stóðu við hlið Banda- ríkjaforsetans núverandi þegar hann hvatti fjölskyldur og fyrirtæki til að koma bágstöddum til hjálpar. „Næstu daga munu forsetarnir fyrrverandi Clinton og Bush fara þess á leit við Bandaríkjamenn að þeir leggi fé til áreiðanlegra hjálp- arsamtaka,“ sagði George W. Bush. Áhersla er lögð á fjárgjafir fremur en varning sem erfitt kann að vera að koma til skila. Stjórn Bush hefur sætt ámæli fyrir að bregðast seint og illa við hörmungunum. ■ Söfnunarsíminn er 907 2020 Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is, eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN kostar birtingu auglýsingarinnar „Jú, ég verð að svara því játandi.“ Jón Fanndal Þórðarson, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði, gagnrýndi harðlega fyrirhugaða gjaldtöku fyrir þvott á fatnaði vistmanna öldrunar- deildar Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðar. Stofnunin hefur nú dregið gjaldtökuna til baka. SPURNING DAGSINS Jón, var þetta ekki skítamál? KRISTIAN WALKER Óttast er að Kristian Walker, 12 ára sænsk- um dreng, hafi verið rænt af sjúkrahúsi í Taílandi eftir að flóðbylgjan reið yfir. Ekkert er vitað um afdrif móður hans og unnusta hennar en systkini hans björguðust. Sjúkrahús í Taílandi: 12 ára Svía rænt SNJÓFLÓÐ Nokkrir íbúa þriggja húsa við Dísarland í Bolungarvík neituðu að yfirgefa heimili vegna snjóflóðahættu þegar lögreglu bar að garði síðasta sunnudags- kvöld. Alls voru það sex sem ekki yfirgáfu heimili sín, þar á meðal eitt barn, þrettán ára gömul stúlka. Gylfi Þór Gíslason, varðstjóri hjá lögreglunni í Bolungarvík, segir að í kjölfarið verði heimilis- feðurnir á hverjum stað boðaðir til skýrslutöku um málið, en gerði ekki ráð fyrir frekari eftirmálum. „Það eru engin viðurlög við þessu,“ segir hann og bætir við að ákveðið hafi verið að grípa ekki til handtaka á sunnudagskvöldið, en lögregla hefur til þess heimild fari fólk ekki að boðum hennar. „En það er háð mati hverju sinni.“ Ásgeir Sólbergsson sparisjóðs- stjóri var einn þeirra sem ekki fóru að heiman, en hann segir ekki hafa verið hættu á ferðum í norðaustanáttinni sem var ríkj- andi þá um kvöldið. „Það var okkar mat, sem höfum búið þarna í 25 ár,“ sagði hann og taldi að ekki væri hætta á ferðum nema að fennti í norðanátt. „Það var hins vegar hætta á gamlárskvöld og menn hræddir fram undir kvöldmatarleyti, en þá var ekkert rætt um rýmingu húsa,“ sagði Ásgeir. - óká LEIDD BURT AF FLUGVELLINUM Prestur leiðir sænska stúlku burt af flugvellinum Landvetter í Gautaborg í Svíþjóð. Stúlkan var á hamfarasvæðunum við Indlandshaf. Fólkið hefur þolað hörmungar Allir farþegarnir sem Íslendingar flytja frá Taílandi til Svíþjóðar hafa gengið í gegnum hörmungar. Sálrænt ástand farþeganna er slæmt. „Maður getur ekki gert neitt annað en haldið í hönd þessa fólks,“ segir leiðangursstjóri LSH. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P Snjóflóðahætta í Bolungarvík: Neituðu að fara að heiman Breytingar hjá DV: Illugi fer í útvarpið FJÖLMIÐLAR Illugi Jökulsson hefur látið af störfum sem ritstjóri DV og tekur við útvarpsstjórastöðu á nýrri talútvarpsstöð í eigu Íslenska út- varpsfélagsins. Mikael Torfason situr áfram sem ritstjóri DV, en þar til í gær rit- stýrðu þeir blaðinu báðir. „Við mun- um bara halda áfram því góða starfi sem hafið var fyrir rúmu ári síðan,“ sagði Mikael og átti ekki von á frek- ari breytingum. Illugi vonast til að útsendingar geti hafist á næstu vikum, en enn á eftir að finna stöðinni nafn og tíðni. Meðal starfsfólks verða Hallgrímur Thorsteinsson, Sigurður G. Tómas- son og Ingvi Hrafn Jónsson, þrír af fjórum stofnendum Útvarps Sögu. - óká – Sjá síðu 30 Ísafjörður: Terta í jarð- göngum LÖGREGLA Um hálf ellefu að kvöldi nýársdags kom lögreglumaður frá Ísafirði að þar sem einhverjum hafði dottið það í hug að kveikja í flugeldatertu í jarðgöngunum, Breiðadalslegg. Þykkur reykjar- mökkur var í göngunum, svo þykkur að hann hindraði útsýni. Voru blás- arar ræstir til að hreinsa göngin. Lögreglan á Ísafirði hafði í fleiru að snúast um og upp úr áramótun- um. Í fyrrinótt kom dyravörður úr Krúsinni og kærði árás. Þar hafði einn dansgestur skallað hann í and- litið. Fór dyravörðurinn á sjúkra- húsið á Ísafirði til skoðunar og að- hlynningar. -jss ENGINN HÆTTI VIÐ Enginn út- skriftarnemanna í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja sem ætluðu til Taílands fyrir áramótin hætti við för sína, að sögn Tómasar Þórs Tómassonar, framkvæmdastjóra Langferða og Kuoni á Íslandi. Hann segir áhrifa hamfaranna á annan í jólum ekki gæta þar sem nemarnir eru um 100 kílómetra frá Bangkok. ■ ÚTSKRIFTARNEMAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.