Fréttablaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 6
6 4. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Taíland: Eins er enn saknað FLÓÐBYLGJAN Eins Íslendings er ennþá saknað í Taílandi og verður haldið áfram að reyna að ná sam- bandi við hann. Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri á almennings- skrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir sterkar vísbendingu um að Íslendingurinn sé á Pattaya- eða Bangkok-svæðinu. Fjölskyldurnar tvær sem sakn- að var höfðu samband við ætt- ingja sína með tölvupósti í nótt og amaði ekkert að þeim. Báðar höfðu þær verið utan alfaraleiðar, fimm manna fjölskyldan á Balí og þriggja manna fjölskyldan í heim- sókn hjá ættingjum í afskekktu þorpi í Taílandi. Utanríkisráðu- neytinu bárust síðan upplýsingar um það seinni partinn í gær að einstaklingur sem ekki hafði frést af væri heill á húfi. Hann hringdi heim til sín. Margir Íslendinganna, sem hafa verið á hamfarasvæðunum, eru þegar komnir heim en átta manna hópurinn sem er á ferða- lagi í Taílandi heldur uppruna- legri áætlun og kemur heim um miðjan janúar. - ghs Lifandi eftir vikutíma á pálmatré úti á sjó Fregnir berast enn af björgun eftirlifenda sem ganga krafaverki næst. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir aðstoð ganga vel. Bandaríkin veita minna fé en Japan til aðstoðar á hamfarasvæðinu. HAMFARIR Enn finnst fólk á lífi eftir hamfarirnar á annan dag jóla við Indlandshaf. Engu að síður hækkar tala látinna sífellt og benda líkur til að allt að hundrað og fimmtíu þúsund manns verði talin af. Fregnir bárust þó af björgun eftirlifenda sem ganga krafta- verki næst. Fjórir Indónesar fundust á lífi eftir að hafa verið á reki á opnum bát í meira en viku nærri hinum afskekktu eyjum Andaman og Nicobar á Indlands- hafi. Þá bjargaði túnfiskveiðiskip frá Malasíu konu úti á rúmsjó. Hún hafði náð að halda sér á floti á pálmatré sem rak undan veðri og vindum. Þá komu bandarískir hermenn sextíu manns til bjargar sem lifað höfðu af hamfarirnar á afskekktum hluta Súmötru. Fólkið var matarlaust í algjörri einangr- un og mjög af því dregið þegar bandarískar þyrlur björguðu því. Flytja þurfti marga á brott á bör- um enda margir beinbrotnir eða með lungnabólgu. „Við reynum að halda fólkinu á lífi,“ sagði William Griggs úr ástralska flughernum á færanlegu sjúkrahúsi þar sem hlúð er að fólkinu. Indónesíustjórn telur nú að hundrað þúsund manns hafi farist í landinu í hamförunum og nálgast heildartala látinna á svæðinu hundrað og fimmtíu þúsund. Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og Jeb Bush, ríkisstjóri Flórída og bróðir Bandaríkjaforseta, eru komnir á hamfarasvæðið en þeir munu sitja ráðstefnu í Jakarta, höfuð- borg Indónesíu, sem hefst á morg- un. Fyrir ráðstefnunni liggur til- laga Indónesíuforseta um viðvör- unarkerfi til að hægt verði að verjast áföllum af völdum jarð- skjálfta og flóðbylgja. Bandaríski utanríkisráðherr- ann sagði fréttamönnum að vel gengi að koma neyðaraðstoð til skila: „Ég býst ekki við að Banda- ríkjastjórn greiði hærri fjárhæðir í neyðaraðstoð“. Bandaríkjamenn hafa verið gagnrýndir fyrir að bregðast seint og illa við. Alls hef- ur verið lofað 120 milljarða að- stoð. Þar af greiða Japanir fjórð- ung, talsvert meira en Banda- ríkjamenn, auðugasta þjóð heims. a.snaevarr@frettabladid.is Heilbrigðisstofnun: Hætt við gjaldtöku ÍSAFJÖRÐUR Heilbrigðisstofnun Ísa- fjarðar hefur fallið frá áformum um innheimtu gjalds fyrir þvott á einkafatnaði vistmanna öldrunar- lækningardeilar, að því er segir á heimasíðu stofnunarinnar. Jón Fanndal Þórðarson, formað- ur Félags eldri borgara á Ísafirði, sem gagnrýndi gjaldtökuna harð- lega, segist fagna ákvörðun stjórn- enda stofnunarinnar. Til stóð að taka 5.500 króna gjald af vist- mönnum frá og með 1. janúar. Þótt stofnunin telji sér ekki skylt að kosta þvott á persónulegum flíkum vistmanna ætlar hún ekki að inn- heimta gjald sem sakir standa. - th Sjómenn semja: Skýrist á morgun KJARAMÁL Atkvæði sjómanna um kjarasamning þeirra við útgerð- armenn verða talin á miðviku- dag. Forystumenn hópanna und- irrituðu samninginn 30. október. Hólmgeir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sjómannasam- bands Íslands, segir atkvæðun- um safnað í hús. Væntanlega verði ekki talið fyrr en á mið- vikudag. Hann vildi ekki tjá hug sjómanna til samningsins: „Nú bíðum við eftir niðurstöðunni og ekki er hægt að segja meira um það.“ Aðildafélög að Sjómannasam- bandinu eru 26. Kosið var í hverju þeirra. - gag LEITAÐ AÐ LÍKUM Phatong-ströndin í Taílandi leit illa út eftir flóðbylgjuna sem reið þar yfir á annan dag jóla. Tugþúsundir manna létust. Íslendingarnir í Taílandi: Höldum áætlun FLÓÐBYLGJAN Átta manna hópurinn sem var á Phatong-ströndinni í Taílandi þegar flóðbylgjan reið yfir á annan dag jóla hefur hald- ið ferðalagi sínu áfram. Hópur- inn er nú kominn inn í landið og ætlar að dveljast þar í nokkra daga og eyða tímanum í skoðun- arferðir. „Okkur líður svo miklu betur hér. Hér erum við ekki nálægt neinni strönd og það er mikill léttir. Við ætlum að halda áætlun og koma heim 15. janúar,“ segir Margrét Þorvaldsdóttir, sem er í hópnum. - ghs METÁR Í MORÐUM Yfirmaður lögreglunnar í Kingston, höfuð- borg Jamaíku, hefur sagt starfi sínu lausu í ljósi þess að aldrei hafa fleiri morð verið framin í landinu en í fyrra. Íbúar Jamaíku eru 2,6 milljónir tals- ins en fyrra voru 1.145 manns myrtir. ■ KARÍBAHAF ■ LEIÐRÉTTING VEISTU SVARIÐ? 1Hvað slösuðust margir við flugeldafiktum áramótin? 2Hvað dvöldu margar konur í Konu-koti yfir jólahátíðina þegar mest var? 3Hvað kostar að hringja í 118? Svörin eru á bls. 30 STOKROTKA Pólsk matvöruverslun Hvaleyrarbraut 35, Hafnarfirði • sími 517 1585 Opið virka daga frá 12.00 til 19.00, laugardaga frá 12.00 til 18.00 og sunnudaga frá 12.00 til 16.00. NIZSZA CENA WEDLIN ! 40 % OBNIZKI WSZYSTKICH WEDLIN. LÆGRA VERÐ Á PYLSUM ! 40 % AFSLÁTTUR Á ÖLLUM PYLSUM. GÍSLI VÍKINGSSON Segir hrefnunum hafa verið fylgt að vetrar- slóðunum í mislangan tíma. Einni í tvo daga, annarri í viku, þriðju í þrjár vikur og þeirri fjórðu í þrjá mánuði. Vetrardvöl skíðishvala: Ekki spurst til hrefnanna RANNSÓKNIR Ekki hefur spurst til hrefnanna, sem Hafrannsókna- stofnunin merkti, frá því í byrjun desember. Merkjunum var skotið í sjö hrefnur í lok ágúst til að kanna hvar þær héldu sig yfir vetrartímann. Merki frá fjórum þeirra fundust í gegnum gervi- hnött. Gísli Víkingsson hvalasérfræð- ingur segir ekki búist við frekari merkjum frá hrefnunum. Tveim- ur þeirra hafi verið fylgt úr land- helginni. Önnur hafi mælst við Flæmingjagrunn og hin við Græn- höfðaeyjar. Frekari rannsókna þurfi til að fá niðurstöðu. Stefnt sé að því að merkja önnur dýr í haust. - gag Impregilo keypti auglýsingu um lausar stöður hjá Impregilo í Morgunblaðinu fyrir jól, ekki í kjölfar neikvæðrar umsagnar frá ASÍ um atvinnuleyfi til kín- verskra starfsmanna Impregilo eins og kom fram í Fréttablaðinu fyrir áramót. Þetta leiðréttist hér með. - ghs FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E . Ó L. Utanríkisráðuneytið: Þrjár leiðir notaðar TAÍLAND Starfsmenn utanríkis- ráðuneytisins hafa einkum notað þrjár leiðir til að finna og stað- setja Íslendingana 130, sem sakn- að hefur verið á hamfarasvæðun- um í Taílandi. Pétur Ásgeirsson, skrifstofu- stjóri í utanríkisráðuneytinu, seg- ir að í nokkrum tilvikum hafi Ís- lendingarnir farið inn á íslensku vefmiðlana, séð að þeirra hafi verið leitað og sent ráðuneytinu tölvupóst. Í öðrum tilvikum hafi ræðismenn Íslands í Taílandi ver- ið í sambandi við menn sem „þekkja marga“ í Taílandi og þannig hafi tekist að finna Íslend- inga. Í þriðja lagi hafi fólk á end- anum verið í sambandi við fjöl- skyldur sínar og látið vita af sér. Spurður um það hvort aðrar leiðir hafi verið notaðar, t.d. kortanotkun, segir Pétur að ýms- um ráðum hafi verið beitt en vill ekki segja neitt meira um það. Ráðuneytið hafi fylgt þeirri stefnu að gefa allar upplýsingar en tala varlega. Þegar 30 Íslend- inga hafi verið saknað hafi um tíma verið ástæða til að hafa áhyggjur en það hafi reynst ástæðulaust. - ghs PÉTUR ÁSGEIRSSON Tveggja Íslendinga er enn saknað í Taílandi og verður haldið áfram að reyna að ná sambandi við þá. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L HJÁLPARSTARF Í TAÍLANDI Utanríkisráðuneytið hefur fylgt þeirri stefnu að tala varlega þegar fjallað hefur verið um þá Íslendinga sem hefur verið saknað á hamfarasvæðum. ÞÖGULL VITNISBURÐUR Dúkka marar í hálfu kafi nærri Kalkudah á Sri Lanka og minnir á harmleikinn á annan í jólum. M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.