Fréttablaðið - 04.01.2005, Page 8
8 4. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
ÁSTRÖLSK KRAFTAKERLING
Kraftakerlingin Mellissa Fyfe í Circus Oz
heldur hér á félögum sínum Antonella
Casella, Michael Ling og Sosina Wogayehu
á forsýningu í Sydney í Ástralíu vegna
sirkussins sem er á ferðinni um þessar
mundir. Sirkusinn, sem er frægur fyrir fá-
ránleikaskop og lífshættuleg atriði, verður
með sýningar fram í byrjun febrúar.
VERSLUN Um áramótin féllu niður
tollakvótar á vefnað sem fram-
leiddur er í Kína og fluttur til Evr-
ópusambandslandanna. Samtök
verslunar og þjónustu telja þetta
geta haft hvort tveggja góðar og
slæmar afleiðingar í för með sér.
Annars vegar leiða samtökin
líkum að því að niðurfelling tolla-
kvóta auki innflutning á fatnaði
frá Kína til Evrópu og auki þannig
erfiðleika fataiðnaðarins í Evr-
ópu. Vegna þessa er hugsanlegt að
Evrópusambandið setji nýja
kvóta til að verja evrópska fata-
framleiðslu. Það gæti hins vegar
reynst erfitt vegna nýlegrar að-
ildar Kína að Alþjóðaviðskipta-
stofnuninni. Eins og staðan er í
dag eru um átján prósent af fatn-
aði sem seldur er í Evrópusam-
bandslöndunum framleidd í Kína
Hins vegar telja Samtök versl-
unar og þjónustu að niðurfellingin
hafi góð áhrif á íslenska verslun.
Aukinn innflutningur frá Kína
þýði lægra verð. Þá geti íslenskir
innflytjendur notið góðs af nýjum
tækifærum í Kína eftir að landið
gerðist aðili að Alþjóðaviðskipta-
stofnuninni. - th
U M H V E R F I S M Á L
Lofts lagsráð-
stefnu Samein-
uðu þjóðanna í
Búenos Aíres
lauk með mála-
miðlunum um
hvernig bregð-
ast eigi við hlýn-
un á jörðinni.
Einungis náðist
samkomulag um
hvernig viðræð-
um Evrópusam-
bandsins og
Bandaríkjanna
verði háttað á
næstunni. Fall-
ist var á nokk-
urra daga mál-
þing á næsta ári þar sem rætt
verður um vandann og möguleg
viðbrögð.
Helstu ágreiningsefni milli
Bandaríkjanna og ESB snerust
um hvað eigi að gera þegar Kyoto-
samkomulaginu lýkur árið 2012.
Stjórn Bandaríkjanna sagði sig
frá samkomulaginu árið 2001 og
hefur fram til þessa neitað að taka
þátt í viðræðum um hvað taki við
að því loknu.
Í Kyoto-samkomulaginu er gert
ráð fyrir að þjóðir sem undirrituðu
samkomulagið dragi úr losun gróð-
urhúsalofttegunda um 5,2 prósent
frá því sem hún var árið 1990. ESB
hefur reynt að fá Bandaríkin og
fjölmenn lönd eins og Kína og Ind-
land til að undirbúa samkomulag
um enn frekari takmarkanir við
losun gróðurhúsalofttegunda eftir
árið 2012. Suður-Afríka og fleiri
þróunarríki tóku undir afstöðu
Evrópumanna. Eyríki sem stafar
ógn af hækkun yfirborðs sjávar
hvöttu til þess að hert yrði á bar-
áttunni gegn hlýnun jarðar.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, sat
fundinn í Búenos Aíres. Hann seg-
ir að fulltrúar Bandaríkjanna hafi
einsett sér að eyðileggja fundinn
en tekist hafi að bjarga því fyrir
horn. Kyoto-samkomulagið lifi og
byrjað verði á samningaviðræð-
um á næsta ári um hvernig taka
eigi á málum eftir 2012.
Hann segir Bandaríkjastjórn
og George Bush forseta leggjast
gegn aðgerðum en Evrópa, Japan
og Kanada reyni að halda sínu
striki, en þessar þjóðir hafi kosið
að gera eitthvað til að forða lofts-
lagsbreytingum. Hins vegar hafi
örvæntingar gætt hjá fulltrúum
eyríkja og fátækra þróunarríkja á
ráðstefnunni í Búenos Aíres.
Bæði vegna þess að þau verði
mest fyrir barðinu á loftslags-
breytingum og breyttu veðurfari,
auk þess sem þau hafa ekki fjár-
hagslegt bolmagn til að taka á af-
leiðingunum. Hann segir Hollend-
inga gera ráð fyrir því að verja
fimmtán milljónum evra í eflingu
sjóvarnargarða vegna hækkunar
sjávar. Slíka fjármuni hafi fátæk-
ari ríki hins vegar ekki og eigi
þannig erfiðara um vik að verjast
flóðum.
„Úrræðaleysi einkenndi mál-
flutning fulltrúa margra þjóða,“
segir Árni. „Þarna var maður frá
Bangladess sem spurði hvert 120
milljónir íbúa landsins ættu að
flýja þegar það verður óbýlt
vegna flóða.“ Nýsjálendingar
hafa þegar boðist til að taka á
móti íbúum eyjunnar Túvalú
vegna hækkun yfirborðs sjávar,
en þeir eru aðeins nokkur þúsund
talsins.
ghg@frettabladid.is
Börn samkynhneigðra:
Vísað úr
kirkjuskóla
KALIFORNÍA, AP Foreldrar og sókn-
arbörn í kaþólska söfnuðinum í
Orange-sýslu í Kaliforníu hafa
sakað kirkjuyfirvöld um að
brjóta gegn kenningum trúarinn-
ar með því að leyfa samkyn-
hneigðu pari að skrá börn sín í
kirkjuskóla.
Hópurinn hefur krafist þess
að skólinn taki framvegis ein-
ungis við börnum fjölskyldna
sem „kaþólskar kenningar viður-
kenni“. Forsvarsmenn skólans
hafa hafnað kröfunni og segja
bakgrunn barna ekki geta komið
í veg fyrir að þau séu tekin inn í
skólann. ■
Tekjustofnanefnd:
Halldór slær
á væntingar
SVEITARSTJÓRNARMÁL Mikið má
breytast ætli tekjustofnanefnd
ríkis og sveitarfélaga að ná niður-
stöðu um tekjustofna fyrir lok
þessa mánaðar eins og stefnt er
að, að sögn Halldórs Halldórsson-
ar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, á
vefnum Haddi.is.
Meðal annars hefur verið rætt
að undanþágum ríkisins til
greiðslu fasteignagjalda af eign-
um verði aflétt. Einnig að sveitar-
félögin fái hlutdeild í veltuskött-
um svo sem tryggingargjaldi,
bensíngjaldi og hugsanlega virð-
isaukaskatti, sem þau hafa hingað
til ekki haft tekjur af. - gag
– hefur þú séð DV í dag?
FÆR EKKI AÐ TAKA
EIGINKONUNA MEÐ AF
HAMFARASVÆÐINU
Það flæddi alla leið
að útidyrunum
HALLDÓR HALLDÓRSSON
Sagði við Fréttablaðið fyrir skömmu að
helsta markmið sveitarstjórnamanna í
tekjustofnanefnd væri að sveitarfélögin
yrðu ekki rekin með þriggja og hálfs millj-
arðs tapi eins og var árið 2003.
SOS-BARNAÞORPIN SLUPPU
Styrktarfor-
eldrar SOS-
barnaþorpanna
við Indlands-
haf hafa verið
órólegir vegna
hamfaranna.
Samkvæmt
upplýsingum
varð ekkert
þorpanna fyrir
skaða af völd-
um flóðbylgj-
unnar. SOS- barnaþorpin á Íslandi
hafa veitt eina milljón króna úr
neyðarsjóði sínum. Þau óska fjár-
hagsaðstoðar til að efla hjálpar-
starfið.
HRINGT FRÍTT Í ÁSTVINI Gjald-
frjálst er að hringja úr heima-
síma til Indlands, Taílands,
Indónesíu og Srí Lanka til 2. jan-
úar fyrir viðskiptavini Símans.
Viðskiptavinir á hamfarasvæðun-
um greiða ekkert fyrir að mót-
taka símtöl. Starfsmenn Símans
safna fé og ætlar fyrirtækið að
tvöfalda söfnunarupphæðina.
Auk þess greiðir fyrirtækið
fimmtán prósent af upphæðinni
sem safnast í símasöfnun Rauða
krossins til samtakanna.
TRYGGT ÞRÁTT FYRIR SKILMÁLA
VÍS hefur ákveðið að ferðatrygg-
ingar félagsins bæti sjúkra- og
lækniskostnað viðskiptavina sem
hljótist af flóðbylgjunni í Asíu.
Það er gert þrátt fyrir að í skil-
málum standi að þær taki ekki til
tjóna af völdum náttúruhamfara.
FLUGFÉLÖG Farþegum Iceland Ex-
press fjölgaði um 88 prósent milli
áranna 2003 og 2004. Meginskýring
fjölgunarinnar er aukning sæta-
framboðs um helming með tilkomu
nýrrar þotu félagsins í byrjun apr-
íl. Ferðum var síðan fækkað aftur
til fyrra horfs þann 1. desember.
Iceland Express mun þó í sumar
bjóða upp á tvær ferðir á dag til
London og Kaupmannahafnar og
tekur breytingin gildi þann fyrsta
maí að sögn Ólafs Haukssonar, tals-
manns félagsins. Einnig er verið að
kanna möguleika á að bjóða upp á
að minnsta kosti einn áfangastað á
meginlandi Evrópu en ákvörðunar
þess efnis sé að vænta á næstu dög-
um.
Ólafur neitar því að félagið
eigi við fjárhagslega erfiðleika
að etja. „Nýir fjárfestar komu
inn í félagið í október síðastliðn-
um og það tryggði fjárhagslegan
grunn okkar verulega,“ segir
Ólafur.
Fargjöld félagsins hafa hækk-
að nokkuð á síðustu mánuðum
sem má rekja til hækkandi olíu-
verðs að sögn Ólafs. Hann neitar
því að færri sæti verði framvegis
boðin á lægsta verði. Hlutfall
ódýrustu fargjalda sé mjög mis-
munandi milli ferða en til viðmið-
unar sé gert ráð fyrir að um þriðj-
ungur sæta sé boðinn á lægstu
fargjöldum.
- ht
■ HAMFARIR Í ASÍU
Lítil stúlka á öruggum
stað í barnaþorpinu
SOS í Piliyandala á
Srí Lanka.
M
YN
D
AS
AF
N
S
O
S
ICELAND EXPRESS
88 prósent fleiri ferðust með Iceland Express á síðasta ári en árið 2003.
Iceland Express:
Farþegafjöldi nær
tvöfaldast
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
AP
M
YN
D
/R
IC
K
RY
C
RO
FT
VEFNAÐARVÖRUR Í KÍNA
Um átján prósent af fatnaði sem seldur er
í Evrópusambandslöndunum eru fram-
leidd í Kína.
Tollakvótar Evrópusambandsins á kínverskar
vefnaðarvörur felldir niður:
Gæti aukið erfiðleika
evrópsks fataiðnaðar
STORMASAMT Í REYKJAVÍK
Hækkun yfirborðs sjávar vegna hlýrra lofts-
lags veldur flóðum í eyríkjum í þróunar-
heiminum. Iðnríki hafa hins vegar tök á því
að styrkja varnargarða.
ÁRNI FINNSSON
Formaður Náttúru-
verndarsamtaka Ís-
lands segir að ör-
væntingar hafi gætt
hjá fulltrúum ey-
ríkja og fátækra
þróunarríkja á lofts-
lagsráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í
Búenos Aíres.
Þróunarríki örvænta
vegna loftslagsbreytinga
Evrópusambandið, fátæk þróunarríki og eyríki vilja að viðræður hefjist um frekari minnkun útblásturs
gróðurhúsalofttegunda. Bandaríkjastjórn dregur hins vegar fæturna. Nokkur þúsund íbúum eyjunnar
Túvalú hefur verið boðið landvistarleyfi á Nýja-Sjálandi vegna hækkunar sjávarborðs.