Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 15

Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 15
dóm Hæstaréttar [í október vegna jarðamála í Biskupstung- um], en þetta er bara sama yfir- gangsstefnan áfram í lögfræð- ingum fjármálaráðherra.“ Gunnar sagðist ekkert skilja í fjármálaráðherra að skipa ekki mönnum sínum að ganga svolít- ið hægar fram. „Bændur og landeigendur verða að taka upp þær varnir sem menn hafa verið með og halda þeim áfram,“ seg- ir hann. Gunnar segir kosta landeig- endur bæði mikinn tíma og pen- inga að verjast kröfum ríkisins. „Í lögum um þjóðlendur var á sínum tíma gert ráð fyrir að menn fengju greiddan kostnað við málsvarnir, en það er alls ekki að fullu,“ segir hann og bætir við að í mönnum sé nokk- ur reiði út af þessum málum. „Reyndar finnst mér það vera þannig að menn átti sig ekki al- mennilega á þessu víða um land fyrr en á þeim dynur sjálfum. Sjálfur hef ég haft samband við ýmsa bændur út af þessu og fleiru og held að menn hafi búist við að gengið yrði skemmra í kröfum en gert er á Norðaustur- landi nú, en það er bara ná- kvæmlega gengið jafn hart fram og gert var á Suðurlandi.“ olikr@frettabladid.is 15ÞRIÐJUDAGUR 4. janúar 2005 A . J ac ob se ns B ok tr . A S, 3 95 0 B re vi k. Útsala 30%-50% TIMBERLAND SHOP Kringlunni – Sı́mi: 53 32 290 TÍMATAL Við fögnum áramótunum í samræmi við það tímatal sem viðurkennt er í flestum löndum. Við veltum því þó kannski ekki fyrir okkur eftir hverju þetta tímatal fer og hvers vegna ára- mót sumra ber upp á öðrum degi, eins og til dæmis Kínverja. Samkvæmt Vísindavefnum miðum við okkar tímatal við svo- kallað hvarfár, eða þann tíma sem tekur jörðina að ferðast einn hring í kringum sólina. Þeir van- kantar eru þó á þessari viðmiðun að við getum ekki fellt beint inn í árið eins og við þekkjum það. Hvarfárið er 365,2422 sólar- hringar og þess vegna þurfum við að beita ýmiss konar reiknikúnstum til að láta það passa við hreyfingar jarðarinnar. Árið 45 f.kr. lét Júlíus Sesar gera nýtt tímatal sem nú þekkist sem júlíanska tímatalið. Sam- kvæmt því var árið 365 dagar, en fjórða hvert ár einum degi lengra og meðalárið 365,25 sólar- hringar. Júlíanska tímatalið var tekið upp á Íslandi á elleftu öld. Þrátt fyrir að þetta tímatal hafi verið nokkuð nákvæmt var enn í því ákveðin skekkja. Á sextándu öld var hafist handa við að leiðrétta hana og var þá kom- ið á svokölluðu gregoríönsku tímatali sem nú er í gildi í flest- um löndum. Hlaupárunum var fækkað þannig að aldamótaár eru ekki hlaupár nema talan fjögur hundruð gangi upp í ár- talið. Meðalárið er því núna 365.2425 sólarhringar og leiðir af því að í tímatali okkar er því enn örlítil skekkja, eða sem nemur þremur dögum á hverjar fjórar aldir. Ekki miða þó öll tímatöl við hvarfárið. Margir þekkja til dæmis kínversku áramótin en gamla tímatal Kínverja miðar bæði við hreyfingu jarðar kring- um sól og hreyfingu tunglsins í kringum jörðina. Tunglmánuður- inn, eða tíminn milli tveggja fullra tungla, er um 29,53 og í slíkum tímatölum eru því annað hvort 29 eða 30 dagar í mánuði. Til að jafna út við hvarfárið þarf svo mánaðafjöldinn að vera breytilegur milli tólf og þrettán, allt eftir ákveðnum reglum. Þess vegna ber áramót Kínverja ekki upp á sama „tíma“ miðað við okkar tímatal. ■ FRÁ MIÐBORG PEKING Kínverjar taka hvort tveggja mið af hreyf- ingum jarðarinnar og tunglsins við útreikn- ing á lengd ársins. Tímaskekkja í tímatalinu Við fögnum áramótum ýmist á 365 eða 366 daga fresti. Beita þarf reiknikúnstum til að fá sem besta nálgun við svokallað hvarfár en vandasamt er að komast hjá því að ruglast í ríminu. RAGNHEIÐUR SNORRADÓTTIR LÖG- FRÆÐINGUR Ragnheiður segir að verið sé að ljúka sam- bærilegu starfi í Noregi og farið hafi verið af stað með hér í að skera úr um hvar mörk þjóðlendna skuli liggja. GUNNAR SÆMUNDSSON, VARAFORMAÐUR BÍ Gunnar telur að almennt átti landeigendur sig ekki á því hve kröfugerð ríkisins vegna þjóðlendna sé mikil fyrr en á þeim dynur sjálfum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /Á SK EL L ÞÓ R IS SO N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.