Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 18

Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 18
[ Raunsæ heilsuheit ] Galdurinn við að halda áramótaheitin Hver hefur ekki sagt við sjálfan sig að hann muni hætta að reykja, drekka eða fara oftar í líkamsrækt þegar klukkan slær tólf á miðnætti á gamlárskvöld og gefist svo upp á áramóta- heitinu í lok janúar? Galdurinn við að halda heitin er að setja sér raunsæ áramótaheit. Hér eru nokkur áramótaheit sem tal- ist geta raunsæ. - Ég ætla að setja mér raunsæ megrunarmarkmið. Skyndimegrunarkúrar virka ekki. Stefndu að því að léttast hægt og stöðugt yfir langan tíma. Þannig er líklegra að takmarkið náist og að kílóin birtist ekki aftur á lærunum. - Ég ætla að borða meira af ferskum ávöxtum og grænmeti. Fimm skammtar á dag hljómar frekar mikið þannig að byrjaðu hægt. Fáðu þér nokkra litla skammta á dag, nokkur vínber hér og ein mandarína þar. Þig munar ekkert um það. Fáðu þér salat með samlokunni í hádeginu og hafðu salat í kvöldmatinn einu sinni í viku. Ávaxtasafi telst líka með þannig að þú getur drukkið tvö til þrjú glös af honum á dag. - Ég ætla að borða ávöxt áður en ég fæ mér kex. Semdu við sjálfa(n) þig. Ekki hætta að borða sætindi heldur borðaðu alltaf eitthvað hollt áður en þú færð þér óhollt. Ef þig langar að fá þér sætindi, fáðu þér þá ávöxt og bíddu í tíu mín- útur. Það eru miklar líkur á að þú verðir nokkuð södd/saddur eftir ávöxtinn. - Ég mun æfa meira Ekki byrja strax á því að fara fjórum sinnum í ræktina á viku, þá dettur þú bara niður af þreytu. Farðu frekar tvisvar í viku og gefðu þér stórt klapp á bakið ef þú nærð að fara þrisvar í viku. - Ég mun eignast vini í stigahúsi Gakktu upp stiga hvenær sem þú getur. Þú brennir vel á stiga- klifri og það styrkir líka rass og læri. Þannig að í hvert skipti sem þú sérð stiga þá geturðu hugsað með sjálfri/um þér „Þrumulæri, hér kem ég!“ - Ég ætla að drekka meira vatn Ekki stressa þig á því að þurfa að drekka tvo lítra á dag. Byrjaðu smátt. Hafðu alltaf vatnsflösku hjá þér í vinnunni eða skólanum. Hafðu líka eina flösku í töskunni þinni ef það er pláss. Alltaf þegar þig langar í te eða kaffi, fáðu þér þá vatn á undan. Komdu því einnig upp í vana að drekka vatnsglas fyrir svefninn. Ný sundlaug og stærri salir í Laugum Björn við nýju innilaugina sem tekin hefur verið í notkun og gestir World Class hafa aðgang að. Heilsuræktin á sér öflugt vígi í Laugum í Laugardal. Enn er það að stækka og ótal mögu- leikar blasa við. „Á annan í jólum fengum við 900 manns hingað og var þó bara opið frá 10-18. Það segir mér að fólk komi vegna þess að því þyki gam- an en ekki bara til að púla,“ segir Björn Leifsson, framkvæmda- stjóri í World Class í Laugardal. Stór innilaug, nýir leikfimisalir, fundarsalur með fullkomnum bún- aði og fleiri þrekþjálfunartæki eru að bætast við þá heilsuræktar- aðstöðu sem fyrir var í Laugum. Sundlaugarnar eru í eigu Reykja- víkurborgar og nýja innilaugin verður að mestu notuð til æfinga og kennslu en önnur mannvirki eru á vegum World Class sem Björn rekur af miklum myndar- skap. „Hér eru níu þúsund manns að æfa að staðaldri og ég stefni að því að fjölga þeim í 11 þúsund þeg- ar kemur fram í mars,“ segir hann galvaskur. Björn hugsar reyndar mun lengra en fram í mars því hann er með stóra drauma og ósk- ir um uppbyggingu í Laugardaln- um til framtíðar. En áður en við förum út í þá sálma göngum við um sali og virðum fyrir okkur þær framkvæmdir sem standa yfir á vegum World Class og kosta rúm- ar 60 milljónir, að sögn Björns. Fyrst komum við að nýjum skrif- stofum og tæknilega fullkomnu herbergi fyrir smærri fundi er bætist við þann ráðstefnusal sem fyrir er og Björn segir hafa vakið lukku. „Menn eru hrifnir af því að geta endað fundi úti í laug eða í baðstofu,“ segir hann. Búið er að opna nýjan og hljóð- látan jógasal og tvo 250 fermetra leikfimisali með fjaðrandi gólfi fyrir pallaleikfimi, dans og hvað sem er. Auk þess er verið að stækka tækjasalinn um 400 fer- metra. „Hver hefði trúað því að við mundum sprengja af okkur húsnæðið á einu ári?“ segir Björn brosandi og lýsir jafnframt fjölg- un þrektækja, sem eftir breyting- ar eru 310 talsins og í spinn- ingsalnum hefur hjólum fjölgað úr 25 í 40. „Fólk er hrifið af aðstöð- unni hér og aldurshópurinn hefur breikkað hjá okkur. Við höldum hávaða í lágmarki, spilum bara þægilega tónlist og lögun og loft salarins hindrar hljóðendurkast,“ segir Björn. Við höldum áfram að ganga um hin víðáttumiklu húsakynni Lauga. Komum að veitingastöðum, hárgreiðslustofu, nuddstofum, snyrtistofum og gufuböðum með ótal útfærslum. Óneitanlega er gaman að virða fyrir sér þessa að- stöðu sem ásamt sundlaugunum skapar fjölbreytta möguleika til heilsuræktar og dekurs. gun@frettabladid.is YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082 - þar sem þú getur treyst á gæðin - Lífrænt ræktaðar vörur Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 Birkiaska YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103 YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunaræfingar slökun og hugleiðsla Sértímar fyrir barnshafandi Allir yoga unnendur velkomnir Sértímar í kraftyoga www.yogaheilsa.is Rétt líkamsstaða Gamalt og gott ráð er að ganga um með bók á höfðinu til að laga líkamsstöðuna og rétta úr sér. Einnig er gott ráð að rétta vel úr sér, setja brjóstkassann fram og axlirnar út til hliðanna. Gott er að hugsa sem svo að þráður standi úr brjóstkassanum sem togað er í. Alltaf ætti að huga vel að líkamsstöðunni því það getur komið í veg fyrir ýmsa kvilla.[ ] Hugmyndir Björns um framtíðarskipulag Lauga. Ný sundlaug með fjórum 50 metra brautum myndar ferhyrning þar sem útilaugin er nú. Fimm hæða hótel er hluti af byggingunum umhverfis hana. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.