Fréttablaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 24
4. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR8
Í biðstöðu.
SJÓNARHORNSVIPMYND
NESKAUPSTAÐUR: BÆR VIÐ NORÐANVERÐAN NORÐFJÖRÐ SEM ER EINN
AUSTFJARÐANNA
ÍBÚAFJÖLDI: 1.400 um síðustu áramót.
LANDNÁMSMAÐUR: Egill rauði nam Norðfjörð og bjó á Nesi.
UPPHAF VERSLUNAR: Neskaupstaður varð löggiltur verslunarstaður árið 1895.
FRÖMUÐUR: Konráð Hjálmarsson frá Brekku í Mjóafirði rak verslun á staðnum á
fyrstu áratugum 20. aldar og varð öflugur framkvæmdamaður.
NÁTTÚRUHAMFARIR: Snjóflóð féllu í Neskaupstað 20. desember 1974 og týndu
12 manns lífi auk þess sem miklar skemmdir urðu á byggingum. Þessara at-
burða var minnst nýlega þar sem þrjátíu ár voru liðin frá þeim.
STÆRSTA FYRIRTÆKIÐ: Síldarvinnslan er með stærstu útgerðarfyrirtækjum lands-
ins.
LEIKVANGUR: Oddsskarð er ákjósanlegur staður til vetrarleika á skíðum og brett-
um.
ALLT Í ÖLLU: Smári Geirsson hefur verið áberandi maður í Neskaupstað um
langt skeið í skólamálum, útgáfumálum, bæjarmálum og bítlamálum!
LÍSA BJÖRK ÓSKARSDÓTTIR ER
MARKAÐS- OG VEFSTJÓRI IKEA.
Erfiðast að geta ekki
lengt sólarhringinn
Í hverju felst starfið þitt? Ég sé um
markaðsmál og heimasíðu IKEA.
Hvenær vaknar þú á morgnana? Ég
vakna yfirleitt um hálfátta og mæti í
vinnuna upp úr klukkan átta.
Hversu lengi vinnur þú? Það er mjög
misjafnt hvað ég vinn lengi; allt frá um
fimm fram á kvöld, svona eftir því hvað
er í gangi hverju sinni.
Hvað er skemmtilegast við starfið?
Starfið er mjög fjölbreytt og starfsandinn
er góður. IKEA er líka svo lifandi fyrir-
tæki, það er alltaf eitthvað nýtt og
spennandi að gerast hjá okkur.
En erfiðast? Að geta ekki lengt sólar-
hringinn þegar mikið er að gera.
Hvað gerir þú eftir vinnu? Ég í fjarnámi
á Bifröst þannig að frítíminn fer að
mestu leyti í námið. Annars fer ég í laug-
arnar og reyni að stunda útivist þegar
tækifæri gefst.
Gætir þú hugsað þér eitthvert annað
starf? Ég er ánægð í starfinu mínu.
HVUNNDAGURINN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Vissir þú ...
...að hinn bandaríski Mike West
reif 301.052 blaðsíðna símaskrár
endilangar á þremur mínútum 14.
desember árið 2002?
...að mesta mannfall á Everest-fjalli
átti sér stað 10. maí 1996 en þá
dóu átta fjallgöngumenn í blind-
byl?
...að flatasta stjarnan í okkar
stjörnuþoku er suðurstjarnan
Achenar?
...að hæsta fjall sólkerfisins er tind-
ur Olympus Mons á Mars en hann
gnæfir 25 kílómetra yfir fjallsrótun-
um?
...að þykkasta snjólag sem mæst
hefur á jörðu niðri er 1.146 metrar
en það var í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum í mars árið 1911?
...að hæsta fjall í heimi er Everest-
fjall en tindurinn er 8.848 metra
hár?
...að hæsti foss heims er Englafoss
í Venesúela en hann fellur alls 979
metra?
...að elsti köngulóarvefurinn er frá
því snemma á krítartímabilinu, fyrir
meira en 120 milljónum ára?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N