Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 28
ANDLÁT
Inga Rósa Hallgrímsdóttir, Engihjalla 9,
Kópavogi, lést miðvikudaginn 29. des-
ember.
Drífa Gunnarsdóttir, Þingvallastræti 37,
Akureyri, lést fimmtudaginn 30. desem-
ber.
Páll Lúðvíksson verkfræðingur lést
föstudaginn 31. desember
Lilja Magnúsdóttir lést föstudaginn 31.
desember.
Margrét Hjálmarsdóttir lést laugardag-
inn 1. janúar.
JARÐARFARIR
11.00 Kristinn Björnsson sálfræðingur
verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni.
13.00 Erla Finnsdóttir frá Siglufirði
verður jarðsungin frá Grafarvogs-
kirkju.
13.00 Guðríður Þorbjörg Markúsdóttir
frá Súðavík, Hverfisgötu 119,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.00 Anna María Friðbergsson, Más-
hólum 10, áður Laugarnesvegi
104, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni.
13.30 Ottó Gottfreðsson, áður til heim-
ilis á Ægisgötu 18, Akureyri, verð-
ur jarðsunginn frá Akureyrarkirkju.
14.00 Erla Katrín Kjartansdóttir, frá
Akranesi, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju.
14.00 Sigurvin Sveinsson rafvirkja-
meistari, Vesturbraut 11, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkur-
kirkju.
14.00 Jón Kristinn Pálsson skipstjóri,
Botnahlíð 21, Seyðisfirði, verður
jarðsunginn frá Seyðisfjarðar-
kirkju.
15.00 Hjalti Þór Ísleifsson, Gnoðarvogi
56, verður jarðsunginn frá Kópa-
vogskirkju.
Þennan dag fyrir réttum fimmt-
án árum varð einn mesti bruni í
sögu Reykjavíkur. Þá kviknaði í
húsnæði Gúmmívinnustofunnar
að Réttarhálsi 2. Bruninn, sem í
fyrstu lét ekki mikið yfir sér,
gjöreyðilagði húsið og með því
húsnæði og vörulager margra
fyrirtækja. Eldurinn kom upp
þegar starfsmaður ætlaði að
styrkja beisli hestaflutninga-
kerru og notaði argonsuðu til
þess. Eldur komst í bensíntunnu,
sem sprakk. Í húsinu fór meðal
annars fram sólun hjólbarða og
við þá vinnu voru notuð leysiefni
sem mögnuðu eldinn. Nýbúið var
að mála og málning og leysiefni
voru á staðnum. Þá er talið að
eldur hafi fljótlega borist niður í
kjallara en þar var geymt gríðar-
legt magn hjólbarða. Margir
urðu til þess að gagnrýna
slökkviliðið og framgöngu þess.
Í DV dagana á eftir er fjallað um
brunann. Þar segir Hrólfur Jóns-
son, þáverandi varaslökkviliðs-
stjóri, að margt hafi lagst á eitt
til þess að eldsvoðinn varð jafn
gríðalegur og raun bar vitni. Í
fyrsta lagi eldurinn í kjallaran-
um, en þar var gríðarlegur elds-
matur og nær ómögulegt að
komast að til þess að slökkva. Þá
hafi eldvörnum verið stórlega
ábótavant í öllu húsinu. Bruna-
varnaveggir hafi algjörlega
brugðist og úðunarkerfi hefði
þurft að vera í húsinu en var
ekki. Hitinn var svo mikill frá
eldinum í kjallaranum að stálbit-
ar í þaki hússins láku niður og
brutu eldvarnarveggina. Hrólfur
sagði að slökkvistarf hefði í
sjálfu sér gengið eðlilega. „Það
var ekkert fát á mönnum. Það
voru lagðar út allar slöngur sem
við höfðum tiltækar og barist all-
an tímann. Því miður tapaðist sú
orusta.“
Í DV er talið að tjónið í brun-
anum hafi numið nálægt millj-
arði króna. Fyrirtækin sem urðu
fyrir skaða voru Gúmmívinnu-
stofan, Rekstrarvörur, J. Þor-
láksson og Norðmann, Hús og
lagnir, Kæling, Blómamiðstöðin,
Globus og Bessi. Húsið sem
brann var 2.300 fermetrar. Í kjöl-
far þessa mesta bruna í sögu
Húsatrygginga Reykjavíkur var
reynt að efla eldvarnaeftirlit í
borginni. Jafnframt var bruna-
málareglugerð sem gilti fyrir
landið allt tekin til endurskoðun-
ar. Það er óneitanlega kaldhæðn-
islegt, en í DV nokkrum dögum
eftir brunann kom fram í samtali
við starfsmann Gúmmívinnu-
stofunnar að viðurkenning frá
Eldvarnaeftirliti Reykjavíkur
hefði hangið á vegg í afgreiðsl-
unni. ■
20 4. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
ÞENNAN DAG TÓK ELVIS PRESLEY UPP
ÞRJÚ LÖG TIL PRUFU.
Það voru fyrstu upptökur hans.
REYKJAVÍK: EINN MESTI BRUNINN Í SÖGU BORGARINNAR
„Ég veit ekkert um tónlist.
Það er óþarfi í mínu fagi.“
Það skipti víst engu máli hvað hann sagði.
Hann söng og það var nóg.
timamot@frettabladid.is
SLÖKKVILIÐ NÝKOMIÐ Á VETTVANG AÐ RÉTTARHÁLSI 2 Fáa grunaði að þetta yrði
einn mesti eldsvoði sem sögur fara af hérlendis.
1847 komu mormónar til dalsins
með stóra saltvatninu, á svæðinu
sem nú er fylkið Utah. Tæpum
aldarfjórðungi fyrr hafði engillinn
Moroni vitjað Josephs Smith og
vísað honum á gulltöflur með
sögu Gyðingaþjóðanna sem lifað
höfðu í Ameríku áður fyrr. Kenn-
ing Smiths eignaðist marga fylgj-
endur og söfnuðir urðu til í Ohio,
Missouri og Illinois. En mormón-
ar sættu líka vaxandi gagnrýni
annarra trúarhópa og að lokum
voru þeir beinlínis ofsóttir. Smith
lifði ekki að komast til fyrirheitna
landsins við saltvatnið. Þar var
leiðtogi mormóna Brigham
Young. Í upphafi nutu íbúar
svæðisins mikils frelsis en 1857
setti forsetinn Young af sem
landstjóra, vegna fjölkvænis. Brig-
ham Young er sagður hafa átt 20
eiginkonur þegar það gerðist. Al-
ríkisstjórnin átti í harðvítugum
deilum við mormóna áratugum
saman á seinni hluta 19. aldar
en þeir voru tregir til þess að láta
af fjölkvæninu og hafa reyndar
ekki allir látið af því enn. Árið
1890 gaf leiðtogi mormónakirkj-
unnar út tilskipun þar sem fjöl-
kvæni var fordæmt og létt af
ýmsum fyrri ákvörðunum um
stjórn kirkjunnar á samfélaginu.
Sex árum síðar var Sjálfstjórnar-
svæðinu Utah veitt aðild að ríkja-
sambandinu og varð 45. fylki
Bandaríkjanna.
4. JANÚAR 1896 VARÐ MOR-
MÓNAFYLKIÐ 45. FYLKI
BANDARÍKJANNA.
Brigham Young leiðtogi mormóna.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1847 Þennan dag seldi byssu-
smiðurinn Colt bandarísku
alríkisstjórninni fyrstu
skammbyssurnar, sem við
hann voru kenndar.
1964 Fjöldamorðinginn sem kall-
aður var „kyrkjarinn frá
Boston“ fremur síðasta
ódæði sitt.
1974 Richard Nixon neitar að
verða við kröfu rannsókn-
arnefndar þingsins um að
afhenda segulbönd með
samtölum úr skrifstofu for-
setans.
1994 Íslendingar semja við
Bandaríkjamenn um fækk-
un í herliðinu í Keflavík.
Hermönnum fækkar um
380 manns og orrustuflug-
vélum fækkar úr tólf í fjórar.
1994 Repúblikanar ná meirihluta
í bandaríska þinginu, í
fyrsta sinn síðan á dögum
Eisenhowers.
Mormónafylkið gengur í Bandaríkin
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og stuðning og til allra þeirra sem lögðu hönd
á undirbúning minningarathafnar í Þorgeirskirkju
og útför okkar ástkæra sonar, bróður, dóttursonar,
unnusta og frænda,
Egils Fannars Grétarssonar
Fellsenda, Þingeyjarsveit.
Sérstakar þakkir til nemenda, kennara og starfsfólks Stórutjarna-
skóla. Einnig viljum við þakka fyrir söfnun sem staðið var að okkur
til stuðnings.
Kristín Harpa Þráinsdóttir, Sigurður Haraldsson, Guðrún Bryndís Jóns-
dóttir, Guðjón Þór Grétarsson, Þráinn Traustason, Ása Ólafsdóttir,
Sunna Ösp Bragadóttir og fjölskylda, Sigurður Helgi Þráinsson og fjöl-
skylda, Fríða Birna Þráinsdóttir og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Skúli Björgvin Sighvatsson
Skólavegi 24, Keflavík,
lést á heimili sínu 1. janúar.
Anna Jónsdóttir, Svan Skúlason, Valorie Skúlason, Ása Skúladóttir,
Karl Taylor, Guðfinna Sesselja Skúladóttir, Sigurður Garðarsson,
Bryndís Skúladóttir, Magnús Björnsson, Svanhildur Skúladóttir,
Hörður Geirsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 7. janúar kl. 14.00.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Davíð Kr. Jensson
byggingameistari, Langagerði 6,
andaðist á heimili sínu að morgni nýársdags. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju föstudaginn 6. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er vin-
samlegast bent á Styrktarfélag vangefinna.
Jenný Haraldsdóttir, Valborg Davíðsdóttir, Ragnar B. Ragnarsson,
Ásgeir Eiríksson, Kristrún Davíðsdóttir, Inga Davíðsdóttir, Jóhann
Bjarnason, Jenný Davíðsdóttir, Ólafur Einarsson, Hildur Davíðsdóttir,
Hreinn Hafliðason, Elsa María Davíðsdóttir, Þórhallur Matthíasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Sverrir Baldvinsson
frá Skógum í Hörgárbyggð,
andaðist fimmtudaginn 23.desember á Dvalarheimilinu Hlíð. Útför
hans fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 7. janúar kl.14.
Álfheiður Ármannsdóttir, Anna Soffía Sverrisdóttir, Sverrir Brynjar
Sverrisson, Elín Sigurðardóttir, Þóra Sverrisdóttir, Heiðrún Sverrisdóttir,
Þorsteinn Berg, Sólrún Sverrisdóttir, Óskar Steingrímsson, börn og
barnabörn.
Gúmmívinnustofan brennur
AFMÆLI
Davíð Scheving
Thorsteinsson
iðnrekandi er 74 ára
í dag.
Gunnar Þórðarson
tónlistarmaður er
59 ára.
Kristján Guðlaugsson blaðamaður í
Noregi er 55 ára.
Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur er
52 ára í dag.
Eyjólfur Sveinsson
er fertugur.