Fréttablaðið - 04.01.2005, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 4. janúar 2005
Amare Stoudemire hjá PhoenixSuns í NBA-körfuboltanum setti
persónulegt met þegar hann skoraði
50 stig gegn Portland Trailblazers í
fyrrinótt. Suns vann leikinn, 117-98,
og er sem fyrr efst allra liða í deild-
inni með tæplega 87% vinningshlut-
fall. Tveir leikmenn Suns hafa skorað
meira en 50 stig í leik: Tony Delk (53
stig) og Tom Chambers (60 stig).
Gamla knattspyrnugoðið PaulGascoigne er allur að koma til
eftir að hann var lagður inn á spítala
með lungnabólgu. Alex Armitage,
u m b o ð s m a ð u r
Gascoigne, þvertók
fyrir að ástand leik-
mannsins hefði eitt-
hvað með eiturlyf
og áfengi að gera.
„Þetta er bara
lungnabólga sem er
nokkuð sem getur
komið fyrir hvern sem er,“ sagði
Armitage. Gascoigne vonast eftir því
að komast í boltann á nýjan leik og
sótti nýverið um þjálfarastarf hjá
Newcastle Jets í áströlsku deildinni.
Það þarf toppdómara í toppleiki.Þetta fullyrti Jamie Carragher,
varnarmaður Liverpool, þegar hann
tjáði sig um störf Mike Riley, dóm-
ara í ensku úrvalsdeildinni. Carragh-
er vill meina að Riley hafi gert stór
mistök í tveimur leikjum sem urðu
Chelsea til góðs í slagnum um topp-
sæti deildarinnar. Varnarmaðurinn
knái sagði að Liverpool hefði átt að
fá vítaspyrnu þegar Chelsea lagði lið-
ið á Anfield. „Hann setti flautuna upp
í sig en svo er spurning hvort hann
hafi guggnað á að dæma,“ sagði
Carragher. Þá dró hann í efa gildi
vítaspyrnunnar sem Wayne Rooney
fékk í leik Manchester United og
Arsenal. „Knattspyrnusambandið
þarf að spyrja sig að því hvort Riley
eigi heima í toppslagnum í ljósi
þessara mistaka.“
Hinn nýi þjálfari Real Madrid,Wanderley Luxemburgo, spilar
stóran þátt í framtíð Fernando Mori-
entes hjá liðinu. Fari svo að hann
hafi áhuga á að halda Morientes
getur Luxemburgo
komið í veg fyrir
flutning kappans til
Liverpool. Gines
Carvajal, umboðs-
maður Morientes,
bjóst við að málið
yrði frágengið í
næstu viku. „Forseti
Real Madrid hefur beðið okkur að
hinkra þangað til þjálfarinn hefur
gert upp hug sinn. Samningamál eru
í biðstöðu en þó nokkur lið hafa sýnt
okkur áhuga,“ sagði Carvajal.
Blackburn hefur ekki hækkað til-boð sitt í Robbie Savage hjá
Birmingham. Þetta staðfesti Steve
Bruce, knattspyrnustjóri Birming-
ham, í gær. „Það hefur ekkert breyst
varðandi Savage og hann er sem
fyrr, ekki til sölu,“ sagði Bruce. Mark
Hughes, knattspyrnustjóri Blackburn,
hefur rennt hýru auga til Savage og
er búist við nýju tilboði frá Hughes á
næstu dögum. Blackburn bauð 2
milljónir punda í Savage í síðasta
mánuði en forráðamenn Birming-
ham afþökkuðu boðið.
Dan nokkur Gilbert hefur festkaup á NBA-liðinu Cleveland
Cavaliers. Gilbert, sem er upphafs-
maður veðréttinda-
fyrirtækisins Quic-
ken Loans, keypti
Cavaliers af bræðr-
unum Gordon og
George Gund fyrir
rúmlega 23 millj-
arða íslenskra
króna. Þess má geta
að bræðurnir keyptu Cavaliers árið
1983 fyrir 1,2 milljarða en eftir að
stórstjarnan LeBron James kom til
liðsins hefur rauk verðmæti Cavaliers
upp úr öllu valdi.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Alicante
frá 9.900 kr.
með Heimsferðum í sumar
Heimsferðir kynna nú stórkostlega verðlækkun á
flugi til Alicante fyrir sumarið 2005 og lægstu
verð sem hafa nokkru sinni sést í sólina. Nú getur
þú tryggt þér sæti á ótrúlegu verði ef þú bókar
strax, því einungis takmarkað sætaframboð er á
lægstu fargjöldunum.
Kr. 9.900.-
Flug aðra leiðina 31.mars. Skattar kr. 2.390
M.v. netbókun á www.heimsferdir.is
Bókunargjald á skrifstofu eða í síma er kr. 1.500 pr. mann.
- 18. mars
- 31. mars
- 21. apríl
- 18. maí
- 25. maí
- 1. júní
- 8. júní
- 15. júní
- 22. júní
- 29. júní
- 6. júlí
- 13. júlí
- 20. júlí
- 27. júlí
- 3. ágúst
- 10. ágúst
- 17. ágúst
- 24. ágúst
- 31. ágúst
- 7. sept.
- 14. sept.
- 21. sept.
- 28. sept.
- 5. okt.
- 12. okt.
- 19. okt.
Fyrstu sætin á lægsta verðinu
Bókaðu á
vefnum og
tryggðu þér
lægsta verðið
36%
verðlækkun
til Alicante
í sumar
Kr. 14.800.-
Fargjald fyrir fullorðinn. Skattar kr. 4.190. M.v. netbókun
á www.heimsferdir.is
Bókunargjald á skrifstofu eða í síma er kr. 1.500 pr. mann.
Notaðu Mastercard ávísun og VR ávísun til að lækka ferðakostnaðinn enn frekar..
Sæti verður að staðfesta við bókun
Dagsetningar í sumar
ENSKA ER OKKAR MÁL
Hringdu í síma 588 0303 • FAXAFENI 8 • www.enskuskolinn.is
Ensku
talnámskeið
Innritun hafin 2005
Róbert Gunnarsson á leið frá Danmörku:
Í samningaviðræðum
við Gummersbach
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn Ró-
bert Gunnarsson mun að öllum
líkindum spila með þýska félag-
inu Gummersbach næstu árin.
Róbert hefur undanfarin ár leikið
með danska félaginu Århus með
frábærum árangri. Mörg þýsk fé-
lög hafa borið víurnar í Róbert
síðustu ár en hann hefur staðist
gylliboð þeirra til þessa. Samning-
ur hans við Århus rennur aftur á
móti út í sumar og Róbert hefur
ákveðið að stíga skrefið til fulls og
fara til Þýskalands næsta vetur.
„Ég hef verið í sambandi við
Gummersbach síðustu tvo mánuði
og skaust svo út á milli jóla og
nýárs, leit á aðstæður, sá leikinn
gegn Essen og ræddi síðan við
þá,“ sagði Róbert í samtali við
Fréttablaðið í gær frá Svíþjóð þar
sem hann kom til móts við félaga
sína í íslenska landsliðinu, en þeir
munu mæta Svíum í landsleik í
dag og 6. janúar.
Róbert sagðist vera ánægður
með það sem hann sá hjá félaginu
og gerir frekar ráð fyrir því að
ganga í raðir félagsins áður en
HM hefst í Túnis.
„Ég vil endilega klára þessi
mál áður en við förum til Túnis.
Ég vil ekki hafa þetta hangandi
yfir mér þegar við byrjum að
spila. Málið klárast samt ekki al-
veg strax þar sem umboðsmaður
minn er erlendis og getur ekki
gengið frá málinu fyrr en eftir
svona viku í fyrsta lagi. Aftur á
móti ef allt stendur þá mun ég
ganga í raðir félagsins en það er
ekkert pottþétt fyrr en búið er að
skrifa undir,“ sagði Róbert en ef
hann skrifar undir við félagið
verður hann annar Íslendingurinn
sem gerir það á skömmum tíma
því Guðjón Valur Sigurðsson
skrifaði undir samning við félagið
á dögunum.
henry@frettabladid.is
RÓBERT GUNNARSSON Leikur væntanlega með þýska félaginu Gummersbach á næstu
leiktíð. Fréttablaðið/Tommy Holl
Colin Montgomerie:
Magurt ár í
golfinu
GOLF Skotinn Colin Montgomerie
segist ákveðinn í að taka til hönd-
unum á nýju ári eftir eitt slakasta
ár hans sem atvinnumaður í golfi
á nýliðnu ári. Kappinn er kominn í
81. sæti á heimslista kylfinga en
hann var um langa hríð meðal
þeirra tíu bestu. Montgomerie,
sem aðeins er rúmlega fertugur,
er viss um að geta enn keppt við
þá bestu en hann skildi nýlega við
kvinnu sína til margra ára en
stúlkan sú gaf honum afarkosti;
hættu í golfi eða hættu með mér.
Monty, hinn sanni Skoti, kaus
golfið áfram. ■
EKKI DAUÐUR ENN Montgomerie hefur
skilið við konu sína og hyggur á endur-
reisn ferilsins en síðasta ár var hans
lakasta í árafjölda.