Fréttablaðið - 04.01.2005, Síða 32

Fréttablaðið - 04.01.2005, Síða 32
4. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Gerræðisleg tó- bakslög sem sjálf- sagt standast ekki stjórnarskrána í núverandi mynd meina mér að skrifa fallega um tóbak. Ég ætla samt að taka sénsinn og kveðja þennan óþverra hér enda er ekki beinlínis hægt að tala um að hér á eftir fari lofrulla þó um hálf- gerða minningargrein sé að ræða. Mér fannst of plebbalegt að hætta að reykja þann fyrsta janú- ar og hef því ákveðið að hætta ekki á morgun, heldur hinn og þá lýkur 15 ára erótísku sambandi mínu við sígaretturnar sem ég taldi mig löngum vera að sjúga úr kosmíska krafta. Ávinningurinn af öllu stubbatottinu hefur hins vegar aðallega verið fólginn í æðaþrengslum, síþreytu og slím- stífluðum öndunarvegi. Það er samt ekki laust við að mér finnist það frekar aumingja- legt að hætta að drepa mig hægt og rólega á miðri leið enda hefur reykingafasisminn í þjóðfélaginu nánast gert það að þegnskyldu að sýna heilbrigt andóf og standa vörð um persónufrelsi með reyk- ingum. Ástæðan fyrir því að ég hætti getur samt aldrei orðið aulalegri en ástæðan fyrir því að ég byrjaði. Humphrey Bogart reykti og mér fannst og finnst hann töff. Það þurfti ekki meira til. Hann tærðist upp af lungnakrabba og dó 57 ára. Ég reyndi einu sinni að telja mér trú um að það væri líka töff. Það er samt ekkert smámál að hemja tóbaksfíknina og ég er núna í miðju sorgarferli. Þetta er eins og að missa náinn vin sem hefur fylgt manni í gegnum súrt og sætt. Ég upplifði þetta einnig þegar ég gerði mér grein fyrir því að ég yrði að segja skilið við áfengi það sem ég ætti eftir ólifað. Tómleikatilfinning heltók mig og ég var tvær vikur að sigrast á sorginni en þá tóku við miklu betri tímar. Þetta varður eins með retturn- ar; djúp sorg en síðan ærslafull og súrefnisrík gleði. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA Þórarinn Þórarinsson kveður tóbakið með tregablöndnum létti. Minningargrein um fjandvin M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Ekki í kvöld Günther. Ég er með höfuðverk. Þú hefði nú getað sagt það fyrr. Hvað eru þið að horfa á drengir? Heimildarmynd um sögu bikinía. ... það er full mikið fyrir þig. Ég þarf á naglasnyrtingu að halda! Mamma, hvað er þetta? Vá! Rosa- lega ertu falleg á myndinni mamma. Þú ert að horfa á hjúkkuna. Það er ég sem ligg í rúminu. Ert þetta þú? Hvað kom fyrir? Þetta er albúm með barnamynd- um af þér. Viltu skoða það? Þessi mynd var tekin rétt áður en ég fékk að halda á þér í fyrsta sinn.      Brautarholt 22 • Sími: 551 4003 www.thorshamar.is • thorshamar@thorshamar.is R V 20 24 Ruslatunnur og fötur í miklu úrvali Úti sem inni Á ÞRIÐJUDÖGUM Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins -

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.