Fréttablaðið - 04.01.2005, Page 38

Fréttablaðið - 04.01.2005, Page 38
■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Átta. Þrjár til fjórar konur. 50 krónur í upphafsgjald og svo um 50 krónur hver mínúta úr heimasíma (tæpar 60 krónur úr farsíma). 30 4. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Illugi Jökulsson lét í gær af störfum sem ritstjóri DV og mun taka við útvarpsstjórastöðu á nýrri talútvarpsstöð í eigu Íslenska útvarpsfélagsins. Illugi hefur rit- stýrt DV síðastliðið ár, eða frá því að Frétt ehf., sem gefur meðal ann- ars út Fréttablaðið, keypti DV. „Þetta er síðasti opinberi vinnu- dagurinn minn en ég veit ekki hvort ég verð viðloðandi blaðið næstu daga,“ sagði Illugi í samtali við Fréttablaðið í gær. Illugi segist kveðja DV með söknuði. „Mig langar ekki til að hætta en sem gamall útvarpsmaður gat ég ekki hafnað tilboði um að reyna eitthvað nýtt í útvarpinu,“ segir Illugi sem segist helst eiga eftir að sakna þess frábæra fólks sem hann hefur unnið með á DV síðasta ár. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins verða þeir Hallgrímur Thorsteinsson, Sigurður G. Tómas- son og Ingvi Hrafn Jónsson, þrír af fyrri eigendum Útvarps Sögu, í áhöfn nýju útvarpsstöðvarinnar. Ingvi Hrafn staðfesti það í samtali við Fréttablaðið í gær. „Samningur- inn minn við Útvarp Sögu rann út um áramót og ég mun hefja störf á nýju stöðinni á næstu dögum,“ sagði Ingvi Hrafn. „Við byrjuðum hjá Íslenska útvarpsfélaginu – það eru guðfeður okkar. Á sínum tíma töldu þeir sig ekki finna markað fyrir stöðina en þegar þeir sáu hvað við höfðum gert eru þeir búnir að reikna grundvöllinn upp á nýtt og vilja fara með okkur í loftið á ný.“ Ingvi Hrafn hefur gagnrýnt miðla Íslenska útvarpsfélagsins og Fréttar ehf. í þætti sínum Hrafna- þingi og meðal annars kallað þá Baugstíðindi. Hann segir það engu breyta fyrir sig að fara vinna á þeim miðlum. „Ég held mínu rit- sjórnarlega frelsi. Það er enginn sem skiptir sér af Hrafnaþingi enda nýtur þátturinn fylgis tíu til fimmtán þúsund hlustenda. Ef einhverjum hjá Íslenska útvarps- félaginu dytti í hug að ritskoða Hrafnaþing þá yrði það bara einu sinni. Ég ræð mér sjálfur eins og ég hef alltaf gert.“ Ingvi Hrafn segir það miður að Arnþrúður Karlsdóttir fylgi þeim félögum ekki af Sögu yfir á nýju talmálsstöðina. „Það sem mér finnst verst af öllu er að Saga skuli vera að deyja skuldum og vanskil- um vafin. Það eru dapurleg örlög.“ Ingvi Hrafn vonast til að geta byrjað með Hrafnaþing að nýju fyrir helgi. „Ég held að það eigi eft- ir að ákveða á hvaða tíðni við verð- um en ég vona að við fáum tíðnina 94,3 þar sem Útvarp Saga byrjaði,“ segir Ingvi Hrafn sem bíður spenntur eftir því að komast á flug á ný. kristjan@frettabladid.is Hjartaknúsarinn Joshua Jackson, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Pacey í sjónvarpsþáttunum Dawson’s Creek, var ein af þeim mörgu stjörnum sem dvöldu hérlendis yfir áramótin. Joshua hefur einnig leikið í myndum eins og Gossip, The Skulls, Cruel In- tentions og Urban Legends. Á næsta ári eru tvær myndir væntanlegar í bíó þar sem hann fer með hlutverk. Með Joshua í för var leikkonan Lena Headey sem lék með honum í Gossip. Hún er ekki síður þekkt en hann og hefur leikið í myndum eins og Ripley’s Game, Possession, Devils Advocate og The Jungle Book. Joshua og Lena eyddu áramótun- um að miklum hluta á Nelly’s Café og voru mjög ánægð með móttök- urnar sem þau fengu. „Þau kíktu fyrst hingað og fóru svo eitthvað annað en komu svo aftur og skemmtu sér mjög vel. Þegar ég spurði þau af hverju þau hefðu valið að koma til Íslands yfir áramótin spurðu þau mig til baka: „Af hverju ekki?“ Þau höfðu orð á því hversu góður Víking-bjórinn var og voru ánægð með dvölina að öllu leyti. Þau töluðu líka um það hversu skrítið það væri að Íslendingarnir létu þau nánast alveg í friði,“ sagði Davíð Sigurðarson skemmtana- stjóri Nelly’s Café. ■ Smástirni fengu frið á Nelly’s ILLUGI JÖKULSSON: HÆTTIR SEM RITSTJÓRI DV EFTIR RÚMT ÁR Í STARFI Býður Ingva Hrafni vinnu Dótið? Automatic Coin Sorter, eða Klinkteljari Sem er? Tæki sem telur smáaura. Margir kannast við það að safna smápeningum í krukkur, bauka, potta eða önnur álíka föt. Þar safnast peningarnir upp án þess að gera nokkuð gagn. Þar sem smá- aurar eru nú farnir að telja meira en oft áður, samanber hundraðkallinn, má búast við að jafnvel þúsundir safnist fyrir í baukunum. Því er tilvalið að fá sér klinkteljara til þess að henda reiður á pen- ingana. Upphæðin er oft miklu hærri en fólk gerir ráð fyrir og dugar jafnvel fyrir fínni máltíð, leikhús- ferð eða annarri afþreyingu. Þannig er hægt að ákveða dag með nokkurra mánaða millibili þegar hellt er úr bauknum í vélina og gera sér í kjölfarið góðan dag. Hvernig virkar dótið? Klinkinu er hellt ofan í þar til gerða trekkt. Tækið sér síðan alfarið um að flokka peningana. Tækið er ekki bara notadrjúgt fyrir fullorðið fólk heldur geta krakkarnir leikið sér með það þess á milli enda fáir leikir jafn skemmti- legir og að telja peninga. Gallar? Einn stór galli er á ofan- greindu tæki. Hann er sá að tækið flokkar aðeins breska peninga. Það ætti þó ekki að vera mikið vandamál að breyta því þannig að það telji íslenskar krónur í staðinn. Tækið á einnig erfitt með að greina skítuga eða illa farna peninga. Fylgihlutir? Á tækinu er yfirfalls- bakki þannig að ef of miklu klinki er hellt ofan í trekktina tekur hann frá þá peninga sem það þekkir ekki. Tækið gengur fyrir tveimur C-rafhlöð- um en þær fylgja ekki með. Kostar? Tækið fæst meðal annars á vefsvæðinu iwantoneofthose.com en þar kostar það um þrjátíu pund eða tæpar fjögur þúsund krónur. DÓTAKASSINN 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 … fær Davíð Oddsson utanríkis- ráðherra fyrir að bregða á leik og sýna góða takta sem hann sjálfur í Áramótaskaupinu. HRÓSIÐ Eva Sólan sár Uppstríluð en klippt út úr áramóta- dagskránni – hefur þú séð DV í dag? ILLUGI KVEÐUR Illugi Jökulsson kvaddi samstarfsfólk sitt á DV í gær og tekur við nýrri útvarpsstjórastöðu á nýrri stöð. Mikael Torfason verður einn ritstjóri blaðsins. JOSHUA JACKSON Var í hópi Hollywood- stjarna sem eyddu áramótunum hérlendis. Hér er hann ásamt Davíð Sigurðarsyni á Nelly’s. INGVI HRAFN JÓNSSON Hann er hætt- ur á Útvarpi Sögu en færir sig um set á nýja útvarpsstöð Íslenska útvarpsfélagsins. Lárétt: 2 málning, 6 tónn, 8 nakin, 9 öfug stafrófsröð, 11 slá, 12 auðugur, 14 litlar öld- ur, 16 í röð, 17 dvelja, 18 stjórnarumdæmi, 20 tvíhljóði, 21 rekald. Lóðrétt: 1 nagli, 3 í röð, 4 vagninn, 5 veit- ingastaður, 7 fótabúnaður, 10 á hlið, 13 eins um r, 15 á litinn, 16 rándýr, 19 áttir. Lausn. Lárétt:2lakk,6as,8ber, 9uts,11rá,12 ríkur, 14gárur, 16úv, 17una,18lén,20au, 21flak. Lóðrétt: 1gaur, 3ab,4kerruna,5krá,7 stígvél, 10ská,13uru,15rauð,16úlf, 19 na. » FA S T U R » PUNKTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.