Fréttablaðið - 15.01.2005, Side 2
FJÖLMIÐLUN Íslenska útvarpsfélagið
og Frétt hafa verið sameinuð undir
nýju nafni, 365, sem skiptist í 365 –
ljósvakamiðla og 365 – prentmiðla.
Ritstjórnir fjölmiðla halda fullu
sjálfstæði en rekstur, framleiðsla
og sölu- og markaðsmál verða sam-
eiginleg nema hjá PoppTíví og
FM957.
Samhliða breytingunum verður
stofnað framleiðslufyrirtækið Hvít-
ar myndir sem mun taka yfir alla
framleiðslu og starfa sjálfstætt.
Fjármálastjórnun 365 verður hjá
Og Vodafone. Þjónustuver 365
verður hluti af þjónustuveri Og
vodafone. „Þarna verður öflugasta
þjónustuver á Íslandi og þannig
byrjað að starfa strax um næstu
mánaðamót,“ segir Pálmi Guð-
mundsson markaðsstjóri.
Stefnt er að því að sameinað fé-
lag verði til húsa að Skaftahlíð 24.
Gunnar Smári Egilsson verður
framkvæmdastjóri, Hermann Her-
mannsson aðstoðarframkvæmda-
stjóri og Kristján Grétarsson yfir-
maður framleiðslunnar.
Gunnar Smári segir að nafnið
eigi að endurspegla þjónustu fyrir-
tækisins allan sólarhringinn allan
ársins hring. - ghs
SPURNING DAGSINS
Hann hækkar ekki neitt því rukkað verð-
ur eftir öðrum leiðum.
Guðjón Halldórsson er þróunarstjóri Góðra lausna
sem er í samkeppni við Farsímagreiðslur um hvor
verði fyrri til að koma þjónustu á markað sem
gerir fólki kleift að borga stöðumælagjöld með
farsímum.
Guðjón, var símreikningurinn
ekki nógu hár fyrir?
2 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Framkvæmdastjóri verktakafyrirtækis dæmdur fyrir skattsvik:
Dæmdur til greiðslu þrjátíu milljóna
DÓMSMÁL Maður á sextugsaldri
var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær, dæmdur til að greiða rúmar
þrjátíu milljónir í sekt og í sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir brot gegn lögum um stað-
greiðslu opinberra gjalda og
brotum um virðisaukaskatt. Eins
árs fangelsi kemur í stað sektar-
innar verði hún ekki greidd.
Maðurinn sem var stjórnar-
maður og framkvæmdastjóri
verktakafyrirtækis játaði brot
sín. Hann stóð ekki skil á stað-
greiðslu opinberra gjalda vegna
ársins 2001. Þá stóð hann ekki
skil á staðgreiðslu sem haldið
var eftir af launum starfsmanna
fyrirtækisins frá árinu 2000 til
ársins 2003. Maðurinn stóð held-
ur ekki skil á virðisaukaskatti
sem innheimtur hafði verið í
nafni fyrirtækisins samtals um
tíu milljónir króna frá árinu 2000
til ársins 2003. Skattsvik manns-
ins nema samtals rúmlega
fimmtán milljónum króna.
- hrs
Alcan vill bætur
frá olíufélögunum
Samkvæmt lögfræðiáliti lögfræðinga Alcan bera olíufélögin ótvíræða skaða-
bótaskyldu gagnvart fyrirtækinu vegna samráðs. Olíufélögin skiptu með sér
sölunni frá árinu 1967. Tjónið nemur að minnsta kosti tugum milljóna króna.
VERÐSAMRÁÐ Forsvarsmenn Alcan,
áður Ísal, hafa ákveðið að sækj-
ast eftir bótum frá olíufélögun-
um vegna verðsamráðs þeirra.
Samkvæmt lögfræðiáliti sem
unnið var fyrir fyrirtækið bera
olíufélögin ótvíræða skaðabóta-
skyldu vegna þess. Ekki hefur
verið ákveðið hvort beðið verði
um viðræður við félögin áður en
höfðað verður skaðabótamál.
Hrannar Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Alcan segir að fé-
lagið muni ekki sitja þegjandi
undir þessu, enda nemi tjónið að
minnsta kosti tugum milljóna.
Hann segir að ekki sé búið að
meta tjónið nákvæmlega en miða
megi við að fyrirtækið kaupi olíu
fyrir um 200 til 250 milljónir á
ári. Landssamband íslenskra út-
vegsmanna hefur þegar óskað
eftir viðræðum við olíufélögin
um skaðabætur vegna tjóns sem
útgerðin hefur orðið fyrir vegna
verðsamráðs.
Í niðurstöðu samkeppnisráðs
kemur fram að olíufélögin hafi
gert Ísal þannig tilboð að tryggt
væri að Skeljungur héldi við-
skiptunum við fyrirtækið gegn
því að Skeljungur héldi áfram að
skipta framlegð af viðskiptunum
með Olís og ESSÓ.
Samkvæmt niðurstöðu sam-
keppnisráðs höfðu olíufélögin
um áratugaskeið skipt með sér
sölu Skeljungs til Ísal. Strax á
fundi olíufélaganna árið 1967
var samþykkt að félögin myndu
bjóða tiltekið verð í kaup Ísal á
eldsneyti. Jafnframt var ákveð-
ið að það félag sem fengi við-
skiptin skyldi skipta sölunni
jafnt með hinum félögunum. Að
mati samkeppnisráðs sýna gögn
málsins með skýrum hætti að
þetta fyrirkomulag hafi staðið
þar til Samkeppnisstofnun gerði
húsleit hjá olíufélögunum árið
2001.
Árið 1996 ákváðu stjórnendur
Ísal að endurnýja samning við
Skeljung. Starfsmenn olíufé-
lagsins tilkynntu þá Essó og Olís
um þessar viðræður og leituðu
eftir samþykki þeirra varðandi
kjör sem bjóða ætti. Jafnframt
sýna gögnin að Skeljungur hafi
leynt Ísal því að félagið skipti
sölunni með hinum olíufélögun-
um og hefði gert það frá upphafi
viðskiptanna árið 1967.
ghg@frettabladid.is
Tölur um nýliðið ár:
Græddum
á ferðafólki
FERÐAFÓLK Tölur Seðlabankans
sýna að gjaldeyristekjur af er-
lendum ferðamönnum eru 2,2
milljörðum meiri fyrstu níu mán-
uði síðasta árs en voru árið áður.
Samgönguráðuneytið segir
tölur fyrir árið í heild ekki liggja
fyrir, en fyrstu níu mánuðina
nemi hækkunin 7 prósentum.
Tekjurnar jukust úr 30,4 millj-
örðum króna í 32,6 milljarða.
„Mestu munar um aukna neyslu
erlendra ferðamanna hér á landi,
sem nemur 1,8 milljarði króna,“
segir þar en fyrstu níu mánuði ný-
liðins árs sóttu 300 þúsund er-
lendir gestir landið heim. - óká
SKEMMDIR Á BÍLNUM
Ökumaður bílsins rétt náði að sveigja frá
malarflutningabíl og skrapaði hliðina.
Malarflutningavagn:
Rann þvert
yfir veginn
SLYS Litlu mátti muna að alvarlegt
umferðarslys yrði á Selfossi á há-
degi í gær þegar malarflutninga-
vagn rann þvert á móti umferð.
Til móts við Fossveg þurfti
malarflutningabíll að hemla
snögglega þegar bíll á undan
honum hægði á sér. Ökumaður
malarflutningabílsins sá að ekki
næðist að stöðva bílinn í tæka tíð
og ákvað að víkja út í hægri
vegaröxl, en þá fór svo að
aftanívagn bílsins fór þvert á
veginn.
Bíll sem á móti kom þurfti að
sveigja út í vegarkant til þess að
lenda ekki undir vagninum.
Vagninn skrapaði hins vegar
vinstri hlið bílsins og skemmdi
töluvert. Ökumaður bílsins slapp
heill á húfi. - ghg
LOÐNUNNI FAGNAÐ
Terta í tilefni fyrsta loðnufarmsins sem
barst til Fáskrúðsfjarðar. Magnús Ásgríms-
son, verksmiðjustjóri hjá LVF, afhendir
Bergi Einarssyni skipstjóra tertuna.
Loðnuveiðar:
Hnúfubakur
á miðunum
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuveiðar hafa
gengið vel síðustu sólarhringa,
þrátt fyrir að leiðindaveður hafi
verið á miðunum austur af Langa-
nesi, og er loðnu nú landað allt frá
Siglufirði, austur um land og suð-
ur til Vestmannaeyja. Töluvert er
af hnúfubak á loðnumiðunum og
dæmi um að þeir hafi rifið nætur
skipanna sem þá hafa neyðst til að
halda til hafnar. - kk
Skuldabréfaútgáfa:
Stórt útboð
Íslandsbanka
VIÐSKIPTI Íslandsbanki hefur gefið
út skuldabréf á alþjóðamarkaði að
fjárhæð 450 milljónir evra eða
jafngildi rúmlega 37 milljarða
króna. Þetta er stærsta skulda-
bréfaútgáfa Íslandsbanka til þessa.
Skuldabréfin eru til fimm ára og
eru gefin út undir EMTN ramma-
samningi bankans um alþjóðlega
skuldabréfaútgáfu. Viðtökur mark-
aðarins voru góðar og var útgáfan
seld til yfir 50 fjárfesta víðs vegar
í Evrópu og Asíu.
Árið 2004 nam alþjóðleg skulda-
bréfaútgáfa bankans rúmlega 2,1
milljarði evra, jafngildi yfir 170
milljarða króna, í tæplega 50 útgáf-
um. Þetta gerir nýliðið ár að
umfangsmesta fjármögnunarári
Íslandsbanka til þessa. - hh
Sameining ÍÚ og Fréttar:
Nýja nafnið er 365
MERKI SAMEINAÐS FYRIRTÆKIS
Nafn fyrirtækisins á að endurspegla þjónustu
þess allan sólarhringinn allan ársins hring.
HARALDUR JÓHANNESSEN
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI
Ríkislögreglustjóri ákærði manninn
fyrir skattsvik.
HÖFUÐSTÖÐVAR ALCAN
Fyrirtækið vill bætur frá olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra.
ÁREKSTUR Á ESKIFIRÐI Nokkuð
harður árekstur varð á Strand-
götu á Eskifirði í gærdag. Bíl-
arnir lentu framan á hvor öðrum
í fljúgandi hálku. Ökumenn bíl-
anna meiddust minniháttar en
bílarnir skemmdust nokkuð.
SLAPP ÓMEIDDUR Ökumaður bíls
slapp ómeiddur eftir að hafa
misst stjórn á bíl sínum, keyrt út
af og hafnað í skurði skammt frá
Kaldárholti í Rangárþingi ytra.
Ökumaðurinn var í bílbelti. Bíll-
inn skemmdist nokkuð.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
NÍU LÉTUST Níu manns létust þeg-
ar lítil farþegaflugvél hrapaði í
fjalllendi í Síberíu. Flugvélin,
gömul tvíþekja, var að koma inn
til lendingar þegar hún hvarf af
ratsjám á fimmtudag. Flak hennar
og lík farþeganna fundust í gær.
■ EVRÓPA
Lýst eftir vitnum:
Árekstur á
gatnamótum
LÖGREGLA Rétt fyrir klukkan tíu
síðasta miðvikudagsmorgun lentu
saman hvítur Toyota Land Cruiser
jeppi og grár VW Golf fólksbíll á
mótum Arnarnesvegar og Bæjar-
brautar í Garðabæ.
Lögreglan í Hafnarfirði lýsir
eftir vitnum að óhappinu og biður
fólk sem veitt getur upplýsingar
að hafa samband í síma 525 3300.
Jeppanum var ekið austur Arnar-
nesveg, en fólksbifreiðinni norður
Bæjarbraut og ætlaði vestur Arn-
arnesveg. - óká