Fréttablaðið - 15.01.2005, Qupperneq 6
6 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Heilsugæslan í Grafarvogi:
Ný þjónusta við börn í vanda
HEILBRIGÐISMÁL Tekin hefur verið
ákvörðun af Heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu um að ný
þjónusta við börn sem stríða við
geðrænan vanda verði hluti af
heilsugæslunni í Grafarvogi sem
er fjölmennasta barnahverfi
landsins.
Atli Árnason, yfirlæknir
heilsugæslunnar í Grafarvogi,
segir tímamót að gefa heilsugæsl-
unni möguleika á því að hafa að-
gang að sálfræðingi, iðjuþjálfa og
félagsráðgjafa í frumþjónustu.
„Það má segja að það bætist við
nýtt vopn í meðferðarsafnið. Við
höfum reynslu af því í gegnum
ungbarnaeftirlit að við sjáum oft
tengslatruflanir í fjölskyldum.
Jafnvel erfiðleika í samskiptum
ungra barna og fjölskyldna þeirra
og við erum viss um að ef við
komum nógu snemma inn í mál sé
hægt að varna því að slík einkenni
breytist í geðsjúkdóma í stað þess
að vera truflanir,“ segir Atli.
Hann segir eftir miklu að slægj-
ast þar sem þeir geti aðstoðað og
stutt fólk og varnað því að börnin
þeirra verði veikari síðar meir.
- hrs
Þrautaganga Abbas hafin
Sex ísraelskir verkamenn og þrír palestínskir vígamenn féllu í árás þeirra síðarnefndu í fyrrinótt.
Árásin var gerð fáeinum klukkustundum eftir að Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti
Palestínumanna sagðist ætla að uppfylla öryggisskuldbindingar vegvísisins til friðar.
GAZA, AP Óvíst er hvaða áhrif
mannskæð árás palestínskra
vígamanna á ísraelska verka-
menn aðfaranótt föstudags hefur
á fyrirhugaðar friðarviðræður
Ísraela og Palestínumanna. Sex
Ísraelar féllu fyrir hendi víga-
mannanna áður en árás þeirra var
hrundið og þrír vígamannanna
drepnir.
Árásin í gærmorgun var gerð
tæpum sólarhring eftir að Ma-
hmoud Abbas,
sem í dag tekur
við embætti for-
seta palestínsku
heimastjórnar-
innar, lýsti því
yfir að hann vildi
standa við allar
skuldbindingar
sem Palestínumenn tóku á sig
þegar þeir samþykktu vegvísinn
til friðar, þeirra á meðal þá að
Palestínumenn hættu árásum á
Ísraela. Sama dag sagði einn leið-
toga Hamas koma til greina að
hætta árásum á Ísraela.
Ísraelar brugðust skjótt við
árásinni og lokuðu landamærun-
um að Gazaströndinni. Þeir sögð-
ust þó bíða með að grípa til hefnd-
araðgerða. Tzipi Livni, dóms-
málaráðherra Ísraels, sagði eftir
árásina að ísraelsk stjórnvöld
myndu gefa Abbas meiri tíma til
að takast á við herskáar hreyfing-
ar Palestínumanna. Húsnæðis-
málaráðherrann Yitzhak Herzog
varaði hins vegar við því að þolin-
mæði Ísraela væri ekki endalaus.
„Ísrael mun ekki sætta sig við
stöðugar hryðjuverkaárásir á
saklausa borgara. Abu Mazen fær
ekki hundrað daga frest,“ sagði
Herzog. Abu Mazen er auknefni
Abbas.
Þrenn samtök vígamanna lýstu
ábyrgð á hendur sér, þeirra á
meðal Hamas og Al Aqsa píslar-
vættirnar sem tengjast Fata-
hhreyfingu Abbas. Árásin er
fyrsta meiriháttar andstaðan sem
herskáar hreyfingar Palestínu-
manna sýna Abbas, sem hefur
mælst til þess að Palestínumenn
láti af ofbeldi í baráttu sinni fyrir
sjálfstæði. Sami Abu Zuhri, tals-
maður Hamas, sagði árásina hins
vegar alls ekki skilaboð til Abbas,
heldur áminningu til Ísraela.
Lokun landamæranna kemur
sér afar illa fyrir íbúa Gaza. Þar
með er komið í veg fyrir flutning
vöru til og frá svæðinu auk þess
sem það lokar á möguleika
Palestínumanna til að sækja
vinnu í Ísrael. ■
Þjónustumiðstöðvar Rvk:
Yfirmenn
ráðnir
BORGARMÁL Borgarráð samþykkti
á fundi sínum á fimmtudag að
ráða framkvæmdastjóra þjón-
ustumiðstöðva borgarinnar frá
og með 1. mars næstkomandi.
Ráðin verða Aðalbjörg Trausta-
dóttir, Hafdís Gísladóttir, Óskar
Dýrmundur Ólafsson og Ragnar
Þorsteinsson.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
borgarráði kölluðu eftir upplýs-
ingum og greinargerðum um þá
umsækjendur sem boðaðir voru í
viðtal og vildu vita hvers vegna
umsóknum frá forstöðumönnum
borgarhlutaskrifstofa hafi verið
hafnað. - óká
,,Abu
Mazen fær
ekki hundr-
að daga
frest.
Óveður í Danmörku:
Tugmilljarða
skemmdir
DANMÖRK Óveðrið sem gekk yfir
Danmörku um síðustu helgi olli
skemmdum sem metnar eru á 40
milljarða íslenskra króna, að því er
fram kom í fréttum Danske Radio.
Tryggingafélagið Tryg gerir ráð
fyrir að tjón viðskiptavina sinna
vegna óveðursins nemi átta til
ellefu milljörðum króna. Þar sem
Tryg er með 22 prósenta markaðs-
hlutdeild er heildarkostnaðurinn
metinn á fimm milljarða. - bþg
Sænsk stjórnvöld:
Vilja bolta-
bullur burt
SVÍÞJÓÐ, AP Sænska ríkisstjórnin
vill banna íþróttabullum aðgang að
íþróttaleikvöngum í framtíðinni.
Dómsmálaráðherrann hefur lagt
fram lagafrumvarp þessa efnis og
er tilefnið það að mjög hefur borið
á ólátum í tengslum við íþrótta-
viðburði síðasta árið.
„Ofbeldi á íþróttaviðburðum
eru óviðunandi,“ sagði Thomas
Bodström dómsmálaráðherra og
bætti við: „Íþróttaleikvangar okkar
eru staðir þar sem mikið er af
börnum og foreldrum.“ ■
FÓRNARLAMB ÁRÁSAR JARÐSUNGIÐ
Herzl Shlomo var sárt syrgður þegar hann var borinn til grafar í gær, fáeinum klukkustund-
um eftir að hann lét lífið ásamt fimm öðrum verkamönnum í árás palestínskra vígamanna.
Lending geimfarsins Huygens þykir mikið afrek:
Lenti á stærsta
tungli Satúrnusar
HUYGENS Á YFIRBORÐI TÍTANS
Huygens er hér sýndur nýlentur á yfirborði Títans í þessu málverki listamanns sem vann
myndina fyrir Evrópsku geimferðastofnunina.
ÞÝSKALAND, AP Evrópskum geimvís-
indamönnum tókst í gær að lenda
geimfari á yfirborði Títans,
stærsta tunglsins sem gengur á
sporbraut um Satúrnus og þykir
það mikið verkfræðilegt afrek.
Vonir eru bundnar við að geim-
farið sendi frá sér upplýsingar um
efni og andrúmsloft tunglsins sem
geti varpað ljósi á uppruna lífs á
jörðu.
„Við vitum á grundvelli lögmála
þyngdaraflsins að það er lent,“
sagði David Southwood, vísinda-
stjóri Evrópsku geimvísindastofn-
unarinnar, um för geimfarsins
Huygens fimm tímum eftir að það
hóf för sína niður á yfirborð
tunglsins. Upphaflega var ekki
gert ráð fyrir að Huygens sendi
frá sér merki í nema þrjá klukku-
tíma.
Mikilvægasti þátturinn í ferð
Huygens var tveggja og hálfs
klukkustunda flug farsins niður að
tunglinu. Meðan á því stóð átti Hu-
ygens að safna upplýsingum um
andrúmsloftið og taka myndir af yf-
irborði tunglsins. Talsverð líkindi
eru talin með Títan og jörðinni þeg-
ar hún var ung og því telja menn að
finna megi vísbendingar um hvernig
líf þróaðist á jörðu. Geimfarið sendi
upplýsingar frá sér til móðurskips-
ins Cassini sem sendi þær áfram til
stjórnstöðvar í Þýskalandi. ■
Kindakjötssala:
25 kíló á kjaft
LANDBÚNAÐUR Sala kindakjöts jókst
um 13,5 prósent milli áranna 2003
og 2004, eða um 860 tonn, sam-
kvæmt upplýsingum frá Lands-
samtökum sauðfjárbænda. Sala
síðasta árs jafngildir því að hver
Íslendingur hafi borðað um 25 kíló
af kindakjöti.
„Svo virðist sem aukið framboð
á unnum vörum úr lambakjöti og
öflugt markaðsstarf sé að skila sér.
Eftirspurnin hefur aukist til muna
og hafa allir sem koma að fram-
leiðslu lambakjöts lagt sig fram um
að mæta þeirri eftirspurn með góð-
um árangri,“ segja samtökin. Þá er
talið að vel hafi gengið að auka
áhuga yngra fólks á lambakjöti, en
kannanir hefðu sýnt að sá hópur
neytti minnst af því. - óká
Netbankinn:
Styrkir
fatlaðra
STYRKUR Þjónustumiðstöð Sjálfs-
bjargarheimilisins hefur endurnýj-
að tölvubúnað sinn fyrir styrk sem
Netbankinn veitti. Tölvukennsla og
tölvunotkun er sögð orðin vaxandi
þáttur í endurhæfingarstarfi þjón-
ustumiðstöðvarinnar.
Eldri búnaður var kominn til
ára sinna og endurnýjun því orðin
brýn. Netbankinn er eingöngu
rekinn á netinu og þótti stjórninni
því vel við hæfi að styðja við bakið
á starfseminni og verkefnum sem
efla þekkingu og möguleika fatl-
aðra. - hrs
ATLI ÁRNASON LÆKNIR
Nýja þjónustan getur jafnvel varnað því að
börn verði veikari síðar meir þar sem hægt
verður að grípa nógu tímanlega inn í.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Hefur þú áhyggjur af
verðbólgu?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hlustar þú á talmálsútvarp?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
xx%
xx%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN