Fréttablaðið - 15.01.2005, Side 12
15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Hjörleifur Guttormsson vann mál fyrir hér-aðsdómi sem hann höfðaði til ógildingarstarfsleyfis álvers Alcoa á Reyðarfirði.
Hjörleifur taldi úrskurð umhverfisráðherra ólög-
mætan og að meta þyrfti sjálfstætt umhverfis-
áhrif vegna álversins. Ekki dygði að byggja á
mati af fyrra álveri, þar sem búnaður
til mengunarvarna væri ekki
sambærilegur. Héraðs-
dómur féllst á rök
Hjörleifs.
Hjörleifur
hefur verið öt-
ull andstæð-
ingur Kára-
hnjúkavirkj-
unar og tals-
maður nátt-
úruverndar-
sjónarmiða.
Eins og
kunnugt er
hafa Aust-
f i r ð i n g a r
upp til hópa
verið hlynnt-
ir byggingu
virkjunarinn-
ar en Hjörleif-
ur er borinn og
barnfæddur á
Austurlandi og
var þingmaður
kjördæmisins um
árabil. Hann
hefur aldrei
hræðst að fara
gegn straumn-
um og er einkar
fylginn sér í málum
sem hann tekur upp á
sína arma.
Hjörleifur er fæddur
árið 1935 í gróðurvininni
Hallormsstað, þar sem faðir
hans var skógarvörður. Upp-
vöxturinn í Hallormstaðar-
skógi kann að hafa ráðið
nokkru um áhuga Hjörleifs
á náttúruvísindum. Eftir
stúdentspróf hélt hann til
náms í líffræði við há-
skólann í Leipzig, þar sem
hann stundaði nám í líf-
fræði og lauk prófi árið
1963. Hann var í hópi vinstri-
sinnaðra íslenskra stúdenta í
Austur-Þýskalandi á tímum
kalda stríðsins.
Þegar heim kom settist hann
ásamt konu sinni að í Neskaup-
stað. Hjörleifur sinnti þar kennslu
og rannsóknarstörfum og hóf fljót-
lega afskipti af félagsmálum, sem leiddu á
endanum til þess að hann var kosinn á þing
fyrir Alþýðubandalagið vorið 1978 þegar Al-
þýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn unnu stóran
sigur í þingkosningum. Hann varð iðnaðarráð-
herra í vinstri stjórn sem mynduð var í kjölfarið.
Stjórnin lifði ekki nema rúmt ár og kosið var á ný
í desember 1979. Hjörleifur varð aftur iðnaðarráð-
herra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen í febrúar
1980 og gegndi því embætti til 1983.
Í iðnaðarráðherratíð hans voru uppi áform um
virkjun Bessastaðaár á Austurlandi. Hjörleifur
stóð einnig í samningaviðræðum um raforkuverð
við fulltrúa Alusuisse vegna álversins í Straums-
vík. Meðan æðstu menn þjóðarinnar fóru með
erlenda gesti í laxveið er sagt að Hjörleifur hafi
farið með sína gesti í fjallgöngur.
Hjörleifur er mikill ná-
kvæmnismaður og setur
sig geysilega vel inn í
öll þau mál sem
hann tekur sér
fyrir hendur.
Hann er því
með erfiðari
andstæðing-
um í pólitík
og hvergi
hægt að
koma að
tómum kof-
anum í þekk-
ingu hans á
málum. Hann
er geysilega
fylginn sér og
þrjóskur og
gefst aldrei
upp. Fræg eru
málþóf hans á
þingi þar sem
hann stóð í
r æ ð u s t ó l
sleitulaust
klukkutím-
um saman.
Gárungar fundu
í kjölfarið upp
mælieininguna
Hjörl sem er ein-
ing sem mælir
samhangandi ræðu-
tíma á mörkum
mannlegrar getu.
Stjórnmálastörf hans
einkenndust af ná-
kvæmni, vinnusemi
og skipulegri þekking-
aröflun; eiginleikum
sem verður alla jafna
að telja til kosta, en
voru andstæðingum
hans og stundum flokks-
félögum nokkur þyrnir í
augum. Hann lætur sig litlu
gilda hvort skoðanir hans
eru til vinsælda fallnar. Af-
staða hans til framkvæmda
á Austurlandi er í andstöðu
við marga fyrrum samherja
hans í Alþýðubandalaginu í
Neskaupstað.
Náttúruvernd hefur alla tíð
verið mikið hugðarefni Hjörleifs
en hann hafði forgöngu um stofnun
Náttúruverndarsamtaka Austur-
lands, löngu áður en vinstrimenn urðu
svo grænir sem þeir urðu síðar. Ekki verður skilið
við mann vikunnar öðruvísi en að minnast á rit
Hjörleifs um náttúru Austurlands og hálendisins á
svæðinu. Þar hefur hann unnið mikið afrek sem
gleðja mun og gagnast áhugafólki um náttúru og
gönguferðir um ókomin ár. ■
MAÐUR VIKUNNAR
Nákvæmur
náttúruverndarsinni
HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON
FYRRVERANDI RÁÐHERRA
TE
IK
N
: H
EL
G
I S
IG
. W
W
W
.H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Það er ekki létt verk að ganga um
bæinn sinn þessa dagana. Vonandi
er hægt að ýta við þeim sem eiga að
setja sand fyrir gangandi fólk. Það
er fljúgandi hálka í bænum og búið
að vera slæmt ástand í marga daga.
Fólk sem til dæmis þarf að skreppa
í Hagkaup í Skeifunni eða í Kringl-
una er í lífshættu og má þakka
fyrir að komast þangað óbrotið.
Það er búið að setja þessar fínu
göngubrýr á Miklubraut, einar
þrjár að tölu, en það gleymist alveg
að hugsa um að fólk þurfi að geta
gengið upp og niður að þeim. Það er
allt fullt af snjó og núna klaka í öll-
um tröppum og svo er svell fyrir
krakkana sem eru á brettum. Það er
kannski meiningin að við hinir eldri
skellum okkur bara líka á bretti. Ég
vil fá sand og salt fyrir gangandi
fólk á allar gangstéttar og á allar
tröppur þar sem er umferð gang-
andi fólks. Það er alveg jafnmerki-
legt og þessar bílar sem virðast
alltaf vera í forgang hjá borginni. ■
Tími fyrir sand á stéttar
KATRÍN ÞORSTEINSDÓTTIR
MEINATÆKNIR SKRIFAR UM
FÆRÐ FYRIR FÓTGANGANDI
Stjörnurnar sameinaðar til styrktarfórnarlömbunum í Asíu
Þriggja barna móðir íKópavogi Strippar til að drýgja tekjur heimilisins Bls. 14-15
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 12. TBL. – 95. ÁRG. – [LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005] VERÐ KR. 295
Á morgun eru tíu ár liðin frá snjóflóðinu sem tók líf fjórtán Íslendinga
Hrefna Björg
Hafsteinsdóttir, 7 ára
Kristján Númi
Hafsteinsson, 4 ára
Aðalsteinn RafnHafsteinsson, 2 ára
Hafsteinn Björnsson,40 ára Júlíanna
Bergsteinsdóttir, 12 ára
Bella AðalheiðurVestfjörð, 39 ára Petrea VestfjörðValsdóttir, 12 ára
Hjördís Björnsdóttir,37 ára Birna Dís Jónasdóttir,14 ára Helga Björk Jónasdóttir,10 ára Sveinn Gunnar Salómons-son, 48 ára Hrafnhildur KristínÞorsteinsdóttir, 49 ára
Hrafnhildur KristínÞorsteinsdóttir, 1 árs
Sigurborg ÁrnýGuðmundsdóttir, 66 ára
Ríkustu konur Íslands
Milljarðasaumaklúbburinn sem allir vilja komast í
MinninginhverfuraldreiDorritdrottningÍslands
Dorrit varð
55 ára í
vikunni og
hefur heillað
Íslendinga
í 5 ár
Sigrún ÁrnadóttirVarð kornung mammaí menntaskóla en er núástfangin amma
Bls. 30-31
Vann 1,5 milljónirí megrunarkeppni
Milljarðasauma-
klúbburinn Ríkustu
konur Íslands
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA