Fréttablaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 18
Steingrímur Steinþórsson, bóka-
útgefandi í Skruddu, er 54 ára í
dag. Tímamótin hringdu í hann
og spurðu fyrst hvernig þetta
hefði gengið í ár.
„Bókaútgáfan hjá okkur gekk
vel. Og það er eiginlega sama
sagan hjá öllum sem ég hef talað
við í greininni. En þessa dagana
erum við að taka við bókum úr
dreifingunni, skilunum. Mann
svíður auðvitað í hjartað við
hvern einasta kassa. En þetta var
ágætt.“
Hvaða bækur voru nú helstar
hjá ykkur fyrir þessi jól?
„Stærsta bókin var þriðja
bindið í hinu ágæta verki Gísla
Sigurðssonar, Seiður lands og
sagna, þar sem hann fjallar um
Suð-Vesturland. Áður voru kom-
in tvö bindi en þetta þriðja seld-
ist betur en hin tvö og svo á þetta
auðvitað eftir að seljast. Þetta
er stórvirki sem selst svona
mallandi allan ársins hring. Nú
svo var það Flosi. Hún gekk ljóm-
andi vel eins og við mátti búast,
þótt hún næði ekki sömu stórsöl-
unni og bókin hans í fyrra. Jökla-
veröld Helga Björnssonar. Fyrir-
fram bjuggumst við ekki við
stórsölu í þessari bók en hún kom
mjög vel út. Þá vorum við með
smásagnasafn eftir Ágúst Borg-
þór Sverrisson og nýja bók eftir
spennusagnahöfund, Ian Rankin,
sem ekki hefur átt bók á íslensk-
um markaði fyrr en er vel þekkt-
ur í Bretlandi. Við vorum með sjö
bækur á síðasta ári og við kvört-
um ekkert undan útkomunni.“
Hvað er svo framundan?
„Mesta stórvirkið hjá okkur á
komandi mánuðum er stórvirki
Helga Hallgrímssonar náttúru-
fræðings um Lagarfljót. Þetta er
mikil bók prýdd fjölda mynda.
Höfundurinn er löngu lands-
kunnur fyrir skrif sín og rann-
sóknir í náttúrufræði. Við erum
líka að undirbúa útgáfu á lítilli
bók eftir Sigurjón Björnsson
sálfræðing um Skagann og
Skagaheiði. Þar er mikill fróð-
leikur sem ekki hefur verið að-
gengilegur áður, örnefni, reið-
leiðir og sögulegt efni. Nú, við
erum líka að fást ofurlítið við
kiljuútgáfu. Bók Rankins, Með
köldu blóði, kemur út í kilju og
einnig ný þýðing af eldri bók
eftir hann. Þá erum við að gefa
út að nýju í kilju, hina frægu
bók Salingers „Bjargvætturinn í
grasinu“, í þýðingu Flosa Ólafs-
sonar. Svo það eru næg verk-
efni.“
Ætlarðu að halda upp á af-
mælið Steingrímur?
„Nei, ekki get ég sagt það. Við
gerum okkur kannski smá daga-
mun hjónakornin en það er ekki
til frásagnar. Ég held ekki upp á
afmæli nema á svona tíu ára
fresti.“ ■
18 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
MARTIN LUTHER KING (1929-1968)
var fæddur þennan dag.
Það er ekki til frásagnar
AFMÆLI: STEINGRÍMUR STEINÞÓRSSON ER 54 ÁRA Í DAG
„Ég hef ákveðið að halda mér við ástina.
Hatrið er of þung byrði að bera.“
- Því miður voru sumir landa hans ekki
sömu skoðunar. Þeir myrtu hann.
timamot@frettabladid.is
STEINGRÍMUR STEINÞÓRSSON Bókaútgáfan gekk vel.
Þennan dag 1951 var Ilse Koch,
sem gekk undir nafninu „nornin
frá Buchenwald“, dæmd í ævi-
langt fangelsi í Vestur-Þýskalandi.
Ilse Koch var eiginkona fanga-
búðastjórans í hinum alræmdu
Buchenwald-fangabúðum nasista
rétt hjá Weimar. Maður hennar
var höfuðsmaður í SS og var yfir-
maður Sachsenhausen-búðanna
og síðan Buchenwald til 1944
þegar nasistar tóku hann af lífi
fyrir fjárdrátt og þjófnað.
Ekki er að fullu vitað hversu
margir voru í Buchenwald en
talið er að meira en 50.000
manns hafi látið lífið þar, aðal-
lega af völdum sjúkdóma og
hungurs. Ilse Koch var sérlega ill-
ræmd fyrir grimmd. Vitnisburðir
fanga í búðunum sögðu hana
hafa riðið um búðirnar og barið
fanga með svipum sér til yndis-
auka. Þá hélt hún uppi spurnum
um fanga með húðflúr og lét
drepa þá, flá og súta skinnið til
nota í skrautgripi á heimilum SS-
manna. Í Nürnberg-réttarhöldun-
um voru sýndar myndir af þess-
um gripum sem Bandamenn
fundu í stríðslokin. Ilse Koch var
dæmd í Nürnberg í ævilangt
fangelsi en bandaríski hernáms-
stjórinn breytti dómnum síðar í
fjögurra ára vist. Vegna gífurlegs
þrýstings var hún leidd fyrir
rétt að nýju og þá dæmd til ævi-
langrar fangavistar. Ilse Koch
hengdi sig í fangaklefa sínum
1967 og varð fáum harmdauði.
15. JANÚAR 1951
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1535 Hinrik VIII lýsir sjálfan sig
æðsta mann ensku kirkj-
unnar.
1861 Elisha Otis fær einkleyfi á
gufuknúinni lyftu.
1870 Asninn notaður í fyrsta sinn
sem merki bandarískra
demókrata.
1919 Píanóleikarinn Paderevskí
verður forsætisráðherra
Póllands.
1983 Bandalag jafnaðarmanna
stofnað að undirlagi
Vilmundar Gylfasonar.
Flokkurinn fékk fjóra menn
kjörna í alþingiskosningum
í apríl sama ár.
1991 Stöð 2 hefur beinar út-
sendingar frá CNN vegna
Persaflóastríðsins.
1994 Minnihlutaflokkarnir í borg-
arstjórn Reykjavíkur ákveða
að bjóða fram sameigin-
lega undir nafni Reykjavík-
urlistans.
Nornin frá Buchenwald
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afslátturKæru vinir og ættingjar, hjartans þakkir fyrir
auðsýnda samúð, hlýhug og stuðning við fráfall
Sveinbjörns Júlíussonar
rafvirkja
Ólöf Ingibergsdóttir, Guðrún Sesselja Sveinbjörnsdóttir, Margrét Marís
Sveinbjörnsdóttir, Ívar Örn Sveinbjörnsson, Júlíus Veturliðason,
Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Ingibergur Sigurjónsson, Margrét Pálfríður
Magnúsdóttir og aðrir aðstandendur.
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við fráfall eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og bróður,
Péturs Valdimarssonar
frá Varmadal, Miðstræti 13, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna á deild 11e Landspítala
við Hringbraut.
Anna Sigfúsdóttir, fjölskylda og systkini.
Kæru vinir. Við færum ykkur öllum innilegar þakkir
fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við sviplegt
andlát eiginmanns míns og besta vinar, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Þórðar Guðmundssonar
frá Reykjum, vélfræðings, Reykjaborg, Mosfellsbæ.
f. 13. apríl 1926 d. 12. desember 2004
Sérstaklega þökkum við Karlakórnum Stefni í Mosfellsbæ, kór
eldri félaga í Karlakór Reykjavíkur og starfsfélögum hjá Orkuveitu
Reykjavíkur fyrir þá aðstoð og virðingu er þeir sýndu í minningu
Þórðar. Megi nýja árið færa ykkur öllum frið og farsæld.
Freyja Norðdahl
Guðbjörg Þórðardóttir Guðni Már Henningsson
Kjartan Þórðarson Sigrún Ragna Sveinsdóttir
Þórður Freyr Hilmarsson Sonja Berg
Guðmundur Jón Þórðarson
Haukur Ingi Þórðarson
Katrín Ísafold Guðnadóttir
Tinna Kjartansdóttir
Freyja Kjartansdóttir Sigurjón Örn Ólafsson
Sæunn Kjartansdóttir
Ásta Kristín Andrésdóttir Björgvin Marinó Pétursson
Guðmundur Páll Andrésson
Berglind Andrésdóttir Ævar Valgeirsson
Sigurjón Hákon Andrésson
Guðmundur Atli Pálsson
Emilía Björg Björgvinsdóttir
JARÐARFARIR
11.00 Vilhjálmur Óskarsson, frá Reið-
holti, Lýtingsstaðahreppi, verður
jarðsunginn frá Mælifellskirkju.
13.00 Guðrún Jakobsdóttir , fyrrv. hús-
móðir á Grund, verður jarðsungin
frá Blönduóskirkju.
13.30 Paul Erik Símonarson, Grýtu,
Eyjafjarðarsveit, verður jarðsung-
inn frá Grundarkirkju.
14.00 Jóhann Magnússon bifreiðaskoð-
unarmaður, Móholti 12, Ísafirði,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðar-
kirkju.
14.00 Gunnar Páll Björnsson, frá Grjót-
nesi, verður jarðsunginn frá Snart-
arstaðakirkju.
14.00 Jón Ingvarsson, Silfurtúni, Búðar-
dal, verður jarðsunginn frá
Hvammi í Dölum.
AFMÆLI
Berglind Ásgeirsdóttir
sendiherra er fimmtug í
dag.
Anton Helgi Jónsson rithöfundur er
fimmtugur í dag.
Helgi Seljan, fyrrv. alþing-
ismaður, er 71 árs.
Höskuldur Þráinsson
prófessor er 59 ára í dag.
Ævar Petersen fuglafræðingur er 57 ára.
Ragnar Ingi Aðalsteins-
son skáld er 61 árs.
Ásgeir Bolli Kristinsson verslunarmað-
ur er 54 ára.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir blaða-
maður er 48 ára.
Einar Páll Tamimi lög-
fræðingur er 36 ára í dag.
ANDLÁT
Stefanía Jónsdóttir lést föstudaginn 7.
janúar. Útförin fór fram í kyrrþey.
Kjartan Þór Valgeirsson, Akraseli 10,
lést 8. janúar.
Járngerður Einarsdóttir frá Tjörnum,
Vestur-Eyjafjöllum, lést mánudaginn 10
Brynheiður Ketilsdóttir frá Ketilsstöð-
um í Mýrdal, Austurgerði 1, Vestmanna-
eyjum, lést þriðjudaginn 11. janúar.
Eygerður Ingimundardóttir frá Hrísbrú,
Reykjabyggð 28, Mosfellsbæ, lést þriðju-
daginn 11. janúar.