Fréttablaðið - 15.01.2005, Side 20
Stofnað hefur verið nýtt fyrir-
tæki, Iceland Film Festival Ehf.,
sem mun standa fyrir alþjóðleg-
um kvikmyndahátíðum á Íslandi.
Stofnendur eru eigendur kvik-
myndahúsanna og dreifingar-
aðilar hérlendis. Þeir aðilar eru
Samfélagið sem rekur Sambíóin
og Háskólabíó, Skífan sem rekur
Regnbogann og Smárabíó, Mynd-
form sem rekur Laugarásbíó og
Græna ljósið sem hefur sérhæft
sig í dreifingu óháðra kvikmynda.
Fyrirtækið mun stefna að því
að halda eina stóra kvikmynda-
hátíð árlega og nokkrar minni á
hverju ári. Verður fyrstu stóru
hátíðinni hleypt af stokkunum 7.
apríl næstkomandi. Nefnist hún
Iceland Film Festival 2005 og
mun fara fram í öllum kvik-
myndahúsum Reykjavíkur. Auk
þess fer hún fram á Selfossi,
Akureyri og í Keflavík. Frum-
sýndar verða hátt í 30 kvikmynd-
ir hvaðanæva að úr heiminum og
stendur hátíðin yfir í allt að þrjár
vikur.
Ísleifur B. Þórhallsson, eig-
andi Græna ljóssins, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri hins
nýja fyrirtækis. Hann hefur
margra ára reynslu af dreifingu
og markaðssetningu kvikmynda
sem og skipulagningu kvik-
myndahátíða og annarra atburða.
Á síðastliðnum tveimur árum
hefur hann m.a. staðið að hátíðun-
um Breskum bíódögum og Banda-
rískum indí-bíódögum. Heppnuð-
ust þær báðar vel og sóttu yfir tíu
þúsund áhorfendur hvora hátíð.
Ísleifur segir að mikili þörf
hafi verið fyrir fyrirtæki sem
þetta. „Það sem hefur vantað er
ein stór hátíð á ári sem er haldin
reglulega og á sér samastað allt
árið um kring. Það hefur vantað
að það sé langtímaplan í gangi.
Menn hafa verið að halda þetta
hver í sínu horni en það er erfitt
að láta þetta bera sig. Við ákváð-
um frekar að reyna að snúa
bökum saman,“ segir Ísleifur.
Hann telur að í samfélaginu sé
krafa um að sýna kvikmyndir
sem alla jafna eru ekki sýndar í
bíóum. Á kvikmyndahátíðinni í
apríl verða til dæmis sýndar
myndir í átta flokkum, þar á
meðal miðnæturflokki þar sem
ögrandi kvikmyndir fá að njóta
sín og í heimsflokki þar sem
sýndar verða óháðar myndir frá
hinum ýmsu löndum.
Þegar hefur verið tilkynnt um
þrjár myndir sem verða sýndar
á Iceland Film Festival; Mala
educación, nýjustu mynd
spænska leikstjórans Pedro
Almodóvar, Ett Hål i mitt hjärta
eftir Svíann Lukas Moodysson
sem áður hefur gert Fucking
Åmål og Tilsammans, og gaman-
myndina Garden State eftir Zach
Braff úr þáttunum Scrubs.
freyr@frettabladid.is
20 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Fyrsta flokks húsbifreiðar í úrvali.
Hymer, Adria í úrvali .
Komið og sjáið úrvalið um helgina.
Aliner
Aliner 30 sek að reisa & fella
Komið í sýningarsal Evró & sjáið uppsetningu
Fleetwood Tuscon 8 fet
949.000.-
Sýnum 9 fellihýsi um helgina!
Adria 390DS hjólhýsi
Verð 1.490.000.-
Miller Ontario lágþekja
Janúar tilboð 3.990.000
(8 eftir).
STÓRSÝNING EVRÓ HELDUR ÁFRAM ALLA HELGINA…
LANDSINS MESTA ÚRVAL FERÐATÆKJA Í SKEIFUNNI.
Lukas Moodysson, leikstjóri
myndarinnar Ett Hål i mitt
hjärta, eða Gat á hjartanu, er
einn athyglisverðasti leikstjóri
samtímans. Hann hefur unnið sér
gott orð fyrir áleitnar myndir á
borð við Fucking Åmål, Til-
sammans og Lilja 4-ever.
„Myndin fjallar um fjórar ut-
angarðsmanneskjur sem búa í lít-
illi íbúð. Þær ætla að slá í gegn
með því að búa til klámmynd og
áhorfendur fylgjast með öllu fara
úr böndunum,“ segir Ísleifur B.
Þórhallsson sem sá myndina þeg-
ar hún var frumsýnd á kvik-
myndahátíð í Toronto. „Salurinn
var fullur af fólki enda virtur
leikstjóri á ferð en það voru ekki
margir sem náðu að sitja til enda.
Í Svíþjóð hengdu þeir upp viðvar-
anir til að fólk gæti áttað sig á
efni myndarinnar,“ segir hann.
„Hún er mjög sjokkerandi og það
er erfitt að horfa á hana. Hún
sómar sér vel í þessum miðnæt-
urflokki, sem hefur ekki sést
áður á íslenskri kvikmynda-
hátíð.“
Svo gæti farið að Lukas
Moodysson verði á frumsýningu
myndarinnar hér á landi en
Ísleifur og félagar vinna nú
hörðum höndum að því að fá
hann til að mæta á Iceland Film
Festival í apríl. ■
■ KVIKMYNDIR
TILSAMMANS Lukas Moodysson á að
baki athyglisverðar myndir á borð við
Tilsammans.
Mjög sjokkerandi
MALA EDUCACIÓN Nýjasta mynd spænska leikstjórans Pedro Almódovar þykir ákaflega vel heppnuð, rétt eins og flest fyrri verk hans.
Kvikmyndahátíðir
í eina sæng
Það hefur vantað
að það sé lang-
tímaplan í gangi. Menn hafa
verið að halda þetta hver í
sínu horni en það er erfitt
að láta þetta bera sig.
,,