Fréttablaðið - 15.01.2005, Page 22
Bílakaup
Ekki hika við að leita þér aðstoðar hjá sérfræðingi þegar þú kaupir notaðan bíl, svo þú kaupir
ekki köttinn í sekknum. Leitaðu ráðlegginga hjá bifreiðaverkstæði og vittu hvort ekki sé boðið
upp á þjónustu þar sem bifvélavirki kemur með þér að skoða bílinn sem þú hyggst kaupa. Fáðu
einnig mat á því hvort bíllinn þurfi einhverrar viðgerðar við og hversu mikið það muni kosta. [ ]
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
B O S S A V E R M I R
Er kalt í bílnum?
Sætisáklæði í bílinn með hita
Aðeins 4.900 kr
Klettháls 9 • s: 587 5547 • www.ag-car.is/motorsport
Fæst einnig hjá
Bónstöðinni,
Njarðarnesi 1,
Akureyri
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
Ný kraftmikil vél
Nýr Land Rover Discovery
3 verður frumsýndur hjá
B&L í dag.
Þessi þriðja kynslóð af Discovery
hefur vakið athygli meðal annars
fyrir búnað, sem hefur hingað til
aðallega verið fáanlegur í flokki
dýrustu jeppa. Þar á meðal er
Terrain Response, nýtt skynvætt
aldrifskerfi, en Range Rover eig-
endur ættu að kannast við nokkuð
við búnaðinn. Hann byggir á
tækni frá Range Rover sem löguð
hefur verið að Discovery. Terrain
Response aldrifskerfið lagar
Discovery 3 sjálfkrafa að aksturs-
aðstæðum og verður hann þannig
jafnvígur meðal annars á möl,
grjóti, aurbleytu, snjó, hálku,
miklum bratta eða sandi.
Þá er Discovery 3 einnig kom-
inn með svipaða loftpúðafjöðrun
og Range Rover, auk þess sem
hann minnir útlitslega á þennan
stóra bróður sinn í lúxusjeppa-
flokknum, bæði að innan- og utan-
verðu. Með útlitsbreytingunni er
Land Rover að undirstrika þær
gagngeru breytingar sem gerðar
hafa verið á Discovery, jafnt
tæknilega sem hönnunarlega.
Auk þess kemur jeppinn með
nýja og kraftmikla V6 túrbó
dísilvél sem hönnuð er af Jagúar,
en hún skilar 189 hestöflum í full-
um afköstum og 440 Nm í tog.
Einnig kemur jeppinn með V8
bensínvél. Nýr Discovery 3 kostar
frá 5.480.000 kr. beinskiptur og
5.750.000 kr. sjálfskiptur.
Land Rover Discovery 3 jepp-
inn verður frumsýndur hjá B&L í
dag. ■
Á síðasta ári voru seldir 673
Skoda bílar á Íslandi.
Hekla sló met í sölu á Skoda bif-
reiðum á síðasta ári en alls seld-
ust 673 nýir bílar. Markaðshlut-
deild Skoda var 5,5% sem er 37%
söluaukning frá árinu á undan.
Söluhæsti Skoda bíllinn var
Skoda Octavia og var hann þriðji
söluhæsti bíllinn á markaðnum
þegar allar gerðir eru skoðaðar
en alls voru seldir 578 slíkir bílar.
Tvo mánuði á árinu varð Skoda
Octavia söluhæsti bíllinn á mark-
aðnum, í júlí og í nóvember.
Nýr Skoda Octavia verður
kynntur hér á landi í febrúar. Nýi
bíllinn er stærri, lengri, breiðari,
öruggari og betur búinn en fyrir-
rennarinn.
Skoda Octavia af eldri gerð
verður áfram í boði í Terno út-
færslu. Sá bíll er vel búinn og á
verði frá 1.745.000 þús. kr. og
mun Octavia Terno einnig fást
áfram í fjórhjóladrifinni Combi
útfærslu. ■
Metsala á Skoda
Mynd frá Skoda deginum þegar Hekla fagnaði sigri Octavia fjórða árið í röð í JD
Power áreiðanleikakönnuninni.
Subaru Impreza vann í flokki
millistórra bíla.
Subaru
sigrar í tveim
flokkum
Könnun á ánægju
bílaeigenda.
Fyrir skömmu var gerð könnun í
Hollandi og athuguð ánægja eig-
enda með bifreiðar sínar. Könnun-
in náði til eigenda alls 77 bílateg-
unda og 35 bílaframleiðanda en 240
þúsund bílaeigendur voru spurðir.
Í flokki millistórra bíla sigraði
Subaru Impreza og í flokki jepp-
linga bar Subaru Forester sigurorð
úr býtum. Subaru-umboðið á Ís-
landi, Ingvar Helgason hf., er að
vonum ánægt með þessar niður-
stöður og segir þær endurspegla
ánægju íslenskra viðskiptavina. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
Nýr Land Rover Discovery 3 verður í boði bæði í 5 sæta og 7 sæta útgáfu. Þriðja sætaröðin í 7 sæta útgáfunni þykir sérlega rúm-
góð. Þá eru aftari sætaraðir upphækkaðar eins og í kvikmyndahúsum, sem breytir miklu fyrir aðstöðu farþega í aftursætunum.